Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 21

Morgunblaðið - 03.04.2019, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 Lengi vel þótti bein- línis áhættusamt að ræða við ungmenni í skólum um viðkvæm álitamál, s.s. öfgaskoð- anir, sjálfsskaða eða kynverund. Því var jafnvel haldið fram að umræðan ein og sér leiddi til óæskilegra hugmynda og hegð- unar meðal ungs fólks. Með aukinni þekkingu og færni til að ræða flókin viðfangs- efni hafa slík viðhorf smám saman vikið fyrir víðsýnni sjónarmiðum. Einstaka skólastjórnendur og kennarar hafi tekið það upp hjá sjálfum sér að ræða viðkvæm álita- mál við sína nemendur, en hafa ekki getað stuðst við samræmdar leiðbeiningar eða kennsluefni. Tækifæri ungmenna til að tjá sig í skólum um viðkvæm álitamál hafa því verið misjöfn og jafnvel engin. Ungt fólk hefur af þeim sökum stólað á misgóðar upplýsingar frá jafnöldrum sínum og samfélags- miðlum, en ekki fengið faglega leið- sögn við að koma tilfinningum sín- um í orð og skilja líðan annarra. Hæpnar forsendur og hálfsann- leikur samfélagsmiðlanna er hins vegar ótraustur grunnur, sem get- ur valdið togstreitu og ungmennum óvissu um viðkvæm álitamál sem brjótast innra með þeim, birtast í nærsamfélagi þeirra, þjóðfélaginu í heild eða öðrum löndum. Lýðræði og mann- réttindi er einn af grunnþáttum mennt- unar sem aðalnámskrá byggir á. Lýðræði snýst m.a. um að taka afstöðu til siðferði- legra álitamála og að bera virðingu fyrir hverjum og einum. Skólastjórnendur, kennarar og aðrir sem vinna með ungu fólki hafa kallað eftir kennsluefni eða leiðbeiningum á þessu sviði, sem þeir geti notað í samskiptum sínum við nemendur og umræðum í skóla- stofunni. Menntamálastofnun hefur í samstarfi við Mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið og undirritaða svarað því ákalli með útgáfu tveggja handbóka. Þær voru upp- haflega gefnar út af Evrópuráðinu, en hafa nú verið þýddar á íslensku og staðfærðar fyrir tilstuðlan styrks frá Norrænu ráðherranefnd- inni. Önnur bókin ber yfirskriftina Viðkvæm álitamál og nemendur og er einkum ætluð til að hjálpa kenn- urum að virkja ungt fólk í umræðu um viðkvæm álitamál og efla sjálfs- traust og hæfni kennara til að gera þau að reglubundnu viðfangsefni. Álitamál geta komið upp á öllum skólastigum, í öllum skólagerðum og í hvaða námsgrein sem er, og því er handbókin hugsuð fyrir alla kennara. Hin handbókin, Stjórnun á tímum ágreinings og átaka, er hins vegar ætluð skólastjórnendum. Hún geymir ráðleggingar sem eiga að nýtast skólastjórum sem vilja taka frumkvæði og/eða bregðast við viðkvæmum álitamálum innan sinna skóla. Ungt fólk er áhugasamt um heiminn. Það er að búa sig undir framtíðina og drekkur í sig fróð- leik, bæði gagnslausan og nyt- saman. Það er skylda þeirra full- orðnu að kenna unga fólkinu að setja sig í spor annarra, að skilja líðan og aðstæður fólks sem býr við erfiðleika eða hefur annað gild- ismat. Okkur ber að kenna ungu fólki að taka þátt í umræðum um viðkvæm álitamál og stuðla að auknum skilningi á mannréttindum og innleiðingu grunnþáttar aðal- námskrár um lýðræði og mannrétt- indi. Þannig bætum við samfélagið okkar. Viðkvæm álitamál eiga erindi við ungmenni Eftir Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur »Hæpnar forsendur og hálfsannleikur samfélagsmiðlanna er ótraustur grunnur, sem getur valdið togstreitu og ungmennum óvissu um viðkvæm álitamál. Guðrún Ebba Ólafsdóttir Höfundur er grunnskólakennari. Um tíma hefur Ís- land verið efst á list- anum yfir athygl- isverðustu ferðastaði í heiminum. En vin- sældir hafa dalað og mér skilst að nú séum við ekki lengur á „top ten“ listanum. Skal engan undra. Til að skapa sér vinsældir og halda því þarf að rækta jarðveginn og hafa svolítið fyrir því. Að auglýsa landið sem athyglisverðan ferðamannastað er einungis fyrsta skrefið. Upp- bygging og viðhald á vinsælum stöðum þarf að fylgja. Gæta skal að ímynd landsins. Kanna þarf hvers vegna flestir vilja koma og skoða landið. En hvernig hefur þróunin verið á Íslandi? Fjöldi ferðamanna hefur aukist mjög hratt. Vinsælir við- komustaðir eru yfirfullir af fólki allan ársins hring. Menn sem von- uðust til að geta notið einstakrar náttúru í kyrrð og ró eru illa svikn- ir. Þingvellir, Gullfoss og Geysir hafa misst sinn sjarma. Fallegir staðir eru oft eitt drullusvað eins og til dæmis við Skógarfoss og í Fjaðrárgljúfrum. Snyrtiaðstaða, sérstaklega fyrir stærri hópa, er af skornum skammti. Á Djúpalóns- sandi til dæmis þar sem tugir rúta stoppa á hverjum degi eru engin klósett. Óreiða ríkir í gjaldtöku víða um land. Sums staðar er rukk- að inn og annars staðar ekki, gjald er lagt á og tekið af þannig að menn vita aldrei á hverju þeir eiga von. Ef ferðalangar vilja kynnast landi og þjóð þá reynist það erfitt að finna „ekta Íslending“. Íbúar þessa lands eru ekki jafn opnir og vinsamlegir gagnvart túristum eins og hefur verið enda eru þeir allt of margir. Á áfangastöðum er alls staðar töluð „útlenska“ og starfs- fólk er oft illa þjálfað enda kemur það yfirleitt tímabundið hingað og vinnur fyrir mjög lágt kaup. Í vax- andi mæli tíðkast það að svonefndir leiðsögumenn koma með hópum að utan og vita lítið um land og þjóð, eru illa upplýstir um náttúruvernd- armál og hætturnar sem öllum ber að varast. Lögvernda þarf starfs- heiti lærðra leiðsögumanna þannig að engir fúskarar geti ráðið sig í þeirra starf. Ímynd landsins er í hættu vegna þeirra fáránlegu staðreyndar að einn maður stundar hér ennþá hvalveiðar sem flestar þjóðar heimsins fordæma. Hann er vell- auðugur og með sjávarútvegs- ráðherrann í vasanum. Sá gaf nýverið aftur út veiðileyfi og und- anþágur frá lögum um vinnslu matvæla. Ferðaþjónustan er að mestu leyti borin uppi af litlum og með- alstórum fyrirtækjum. Mörg þeirra eru frek- ar ung og viðkvæm fyrir sveiflum. Verk- föllin geta auðvitað haft mjög slæmar af- leiðingar. Nú þegar hefur borið á afbókunum. Of hátt skráð gengi krónunnar hefur verið ferðaþjón- ustunni erfitt. Og ekki bætir úr skák þegar ferðaþjónustuaðilar vita ekki hvernig þeir eiga að skipu- leggja og verðleggja fram í tímann vegna óstöðugs gjaldmiðils. Mikið væri nú gott að fá evruna. Hvað er til ráða? Stjórnvöld þurfa að grípa inn af áhuga og festu. Það dugar ekkert „þetta reddast“ lengur. Ríkisstjórnin þarf að taka þátt í að leysa verkfallið. Til dæmis með að þeir lægstlaun- uðu verði undanskildir þeim háum sköttum sem leggjast á þeirra kaup. Í staðinn má setja á há- tekjuskatt og hækka fjármagns- tekjuskatt. Breiðu bökin mega al- veg við þessu. Talsvert fjármagn þarf að streyma til ferðaþjónustunnar og bæta verður – helst í gær – að- stöðu á þeim stöðum sem mesta þörfin er á: Til dæmis snyrtingar, göngustíga, upplýsingar, bílastæði og nóg af útskotum á þjóðveginum til að menn geti stoppað og ljós- myndað án þess að skapa hættu. Landvörðum þarf að fjölga og lög- gæslu þarf að efla. Hvaðan eiga peningarnir að koma? Aldrei hefur til dæmis verið rætt til enda um þann möguleika að taka komugjöld þegar ferðamenn heimsækja landið. Þetta væri mjög einföld og skilvirk leið til að peningar renni þangað sem þeim er ætlað. Nú vona ég að ferðamálaráð- herra girði sig í brók og vinni að þessum málum. Það er til lítils að brosa fallega í viðtölum og koma með allskonar útúrsnúninga. Lág- mark er að hún kynni sér málin betur. Hér duga engin vettlingatök. Ferðamanna- landið Ísland Eftir Úrsúlu Jünemann Úrsúla Jünemann »Nú vona ég að ferða- málaráðherra girði sig í brók og vinni að þessum málum. Höfundur er leiðsögumaður og kennari á eftirlaunum ursula@visir.is „Þið eruð vitni að hruni skipulögðustu áróðursherferðar nú- tímasögu,“ skrifaði Q eftir að Robert Muell- er hafði skilað skýrslu sinni og hreinsað Dó- nald Trump af ásök- unum um ólöglegt samráð við Rússa; út- sendari og skósveinn Pútíns hvorki meira né minna. Dónald, dóttursonur trillukarls á Suðureyjum, hefur all- an tímann haldið því fram að um nornaveiðar hafi verið að ræða. Fjórum mánuðum eftir að Trump hafði tekið við embætti, hinn 17. maí 2017, hófst rannsókn Roberts Muellers. Rannsóknin stóð í 675 daga; eða eitt ár, tíu mánuði og sex daga. Nítján lög- menn unnu á skrifstofu sérstaks saksóknara, dyggir demókratar og stuðningsmenn framboðs Hillary Clinton. Þeir vörðu 25 milljón doll- urum í rannsóknina eða sem nem- ur yfir þremur milljörðum króna. 42 aðilar voru yfirheyrðir fyrir sér- stökum rannsóknarrétti, „grand jury“, og 34 voru ákærðir eða ját- uðu ýmsar sakargiftir í tengslum við rannsóknina en engar sem sneru að samráði við Rússa. Af þessum 34 voru sex fyrrverandi ráðgjafar tengdir Trump en til við- bótar voru 26 Rússar ákærðir. 40 FBI-agentar og -sérfræðingar unnu að rannsókninni. Sérstakur saksóknari gaf út yfir 2.800 stefn- ur og bar fram fyrirspurnir til 13 erlendra ríkja og yfirheyrði yfir 500 vitni. Nokkrir ráðgjafar og samverka- menn Trumps komu fyrir rétt. Michael Cohen, Michael Flynn, Paul Manafort, Rich Gates og George Papadoupolus vegna ótengdra mála. Saksóknari í Úkra- ínu hefur hafið rannsókn á leka á upplýsingum þar í landi til að hafa áhrif á kosningarnar í Bandaríkj- unum 2016. Skýrsla demókrata Málatilbúnaður var byggður á skýrslu sem Demókrataflokk- urinn og framboð Hillary Clinton létu gera. Lögfræðifirma í Washington var ráðið sem réð rannsóknarf- irma sem réð fyrrver- andi breskan MI 5- njósnara staðsettan í Moskvu, Christopher Steele, sem safnaði gróusögum um Trump í Rússlandi þegar hann var að hugleiða að reisa Trump-turn í Moskvu. Skýrslu Clinton-framboðsins var komið til dómsmálaráðuneytisins og FBI, sem beitti blekkingum til að fá sérstakan dómstól FISA til að heimila njósnir um framboð Trumps. Samsærið um að njósna um Trump nær alla leið inn í Hvíta hús Baracks Obama. Í maí 2017 var róðurinn enn hertur. Andrew McCabe, forstjóri FBI, hefur skýrt frá því að þá hafi hann sett af stað rannsókn sem miðaði að því að koma Trump frá völdum og meðal annars var rætt um að Rob Rosenstein varadómsmála- ráðherra bæri hljóðnema innan- klæða með það að markmiði að setja forsetann af sem fáráð á grundvelli 25. greinar stjórn- arskrárinnar. Niðurstaða Muellers er að hvorki Trump né nokkur í hans liði hafi átt samskipti við Rússa í því augnamiði að hafa áhrif á forseta- kosningarnar 2016. Sérstakur sak- sóknari skoðaði sérstaklega hvort forsetinn hefði reynt að hindra rannsóknina. Mueller lét dóms- málaráðherra eftir að ákvarða það því engar sannanir væru um að svo væri. Margir á leið í fangelsi Tugir starfsmanna FBI, CIA og DOJ, dómsmálaráðuneytisins, hafa misst djobbið. Ansi margir eru á leið í fangelsi og nokkrir samsærismanna, þar á meðal James Baker, fyrrverandi aðallög- fræðingur FBI, eiga samstarf við rannsóknaraðila um að upplýsa um samsærið um að koma Trump frá völdum. Tíu dögum eftir kosning- arnar í nóvember 2016 kom Mike Rogers aðmíráll, forstjóri njósna- þjónstu hersins, á fund Dónalds í Trump-turninum í New York og skýrði honum frá því að framboð hans væri hlerað. Daginn eftir flutti hinn verðandi forseti úr turn- inum. Fyrir framboð sitt var Donald Trump virtur og dáður í Ameríku og hvattur til framboðs, meðal annars af Hillary Clinton og Oprah Winfrey, svo dæmi séu tekin. Hann hafði verið einn af „þeim“ en umsvifalaust var sú mynd dregin upp í fjölmiðlum glóbalista; CNN, NYT, WaPo og restinni af prövd- unum; að Trump væri fáráður, ras- isti, kvenhatari, ruddi og kyn- ofbeldismaður. Á þriðja ár hefur lygin farið hring eftir hring um veröldina. Blaðamenn um allan heim hafa unnið fagi sínu óbætan- legan skaða. Hér á landi hefur RÚV verið sérlega ötult við að draga Trump í svaðið. Framgöngu RÚV þarf að rannsaka. Á næstu vikum, mánuðum og misserum munu sláandi og svívirðilegar upp- lýsingar um glæpi tengda glóbal- isma koma fram í dagsljósið. Klukkan glymur glóbalistum. Eftir standa áleitnar spurningar: Af hverju allt þetta umstang? „Ef bastarðurinn vinnur þá höngum við öll í gálga,“ sagði Hillary. Af hverju? Hverjum er svo umhugað um að ráða Hvíta húsinu að aðeins útvaldir fá þar húsbóndavald? Umstangið um Dónald Eftir Hall Hallsson »Hverjum er svo um-hugað um að ráða Hvíta húsinu að aðeins útvaldir fá þar hús- bóndavald? Hallur Hallsson Höfundur er fréttamaður. h.hallsson@simnet.is Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10,1 kg Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.