Morgunblaðið - 03.04.2019, Blaðsíða 17
Ljósmyndarar fréttaveitunnar AFP
hafa haft í nógu að snúast síðustu
daga, m.a. tekið myndir af efnileg-
um hlaupagörpum í landi lang-
hlauparanna, Kenía, syni Michaels
Schumachers reyna sig í íþrótt föð-
ur síns og indverskum bifvélavirkj-
um gera bíla sprengju- og skot-
helda fyrir þingmannsefni sem búa
sig undir harða kosningabaráttu á
Indlandi.
Kenía er þekkt fyrir afburða-
langhlaupara og í einu héraða þess
eru tólf æfingabúðir fyrir unga
hlaupara sem æfa sig frá morgni til
kvölds til að feta í fótspor frægra
kenískra hlaupara sem hafa unnið
til verðlauna á ólympíuleikum og
heimsmeistaramótum.
Mick Schumacher á sér þann
draum að feta í fótspor föður síns,
kappaksturshetjunnar Michaels
Schumachers. Mick er tvítugur og
hefur nú tekið þátt í fyrstu Form-
úlu 2-keppni sinni í Barein. Hann
lenti í áttunda sæti í keppninni á
laugardag og tók í fyrsta skipti þátt
í reynsluakstri Formúla 1 í gær.
Kappakstur Mick Schumacher í Barein þar sem hann tók í fyrsta skipti þátt í reynsluakstri
Formúlu 1 í gær. Faðir hans, Michael Schumacher, varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1.
Kosningar í nánd Bílar gerðir sprengju- og skotheldir á Indlandi. Þingkosningar hefjast í land-
inu 11. apríl og sprengjuheldir bílar eru nú eftirsóttir þar vegna hættu á að ofbeldi verði beitt.
AFP
Hlaupagarpar Hópur hlaupara sprettir úr spori á æfingu í bænum Kapsabet í Kenía. Margir þekktir langhlauparar fæddust í bænum og nágrenni hans.
Fetað í
fótspor
hetjanna
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
berskjölduð og ákærum vegna illrar
meðferðar á þeim hefur fjölgað. Pak-
istanskur dómari og eiginkona hans
voru til að mynda dæmd í fangelsi
árið 2016 fyrir að pynda tíu ára
vinnustúlku og þekkt sjónvarpskona
var ákærð ári síðar fyrir að halda
stúlku nauðugri á heimili sínu.
Shahzad segir að í Pakistan sé
bannað með lögum að hafa börn und-
ir fimmtán ára aldri í vinnu en al-
gengt sé að bannið sé virt að vettugi.
„Hef ekkert val“
Ein pakistönsku vinnustúlknanna,
Saba, sem er fimmtán ára, segist
hafa þurft að hætta skólanámi til
vinna fyrir auðugar fjölskyldur í La-
hore. „Ég hef ekkert val, ég þarf að
vinna á tveimur heimilum á hverjum
degi til að hjálpa fjölskyldu minni,“
sagði hún. Búist er við að yngri syst-
ir hennar þurfi að feta í fótspor
hennar á næstunni.
Fjallað var um morðið á Uzmu í
vinsælum sjónvarpsþætti og stjórn-
andi hans hvatti til þess að þeim sem
urðu stúlkunni að bana yrði refsað.
Margir Pakistanar fordæmdu morð-
ið á samfélagsmiðlum og málið vakti
mikla umræðu um réttindi þjónustu-
fólks á heimilum, einkum barna.
„Við lítum jafnvel ekki á þjónana
okkar sem mannverur,“ sagði Shah-
zad og kvaðst vona að morðið á
Uzmu yrði til þess að tekið yrði á
vandamálinu til að tryggja að rétt-
indi þjónustufólksins yrðu virt.
AFP
Krefst réttlætis Muhammad Riaz, faðir sextán ára vinnustúlku, Uzmu Bibi,
sýnir mynd af henni í farsíma. Hún var myrt á heimili auðugrar fjölskyldu.