Morgunblaðið - 03.04.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019
Veður víða um heim 2.4., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Hólar í Dýrafirði -4 skýjað
Akureyri -1 léttskýjað
Egilsstaðir -3 skýjað
Vatnsskarðshólar 6 léttskýjað
Nuuk 3 rigning
Þórshöfn 3 heiðskírt
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 9 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 5 heiðskírt
Lúxemborg 13 heiðskírt
Brussel 10 skúrir
Dublin 5 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 7 skúrir
París 8 rigning
Amsterdam 11 rigning
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 14 heiðskírt
Vín 17 heiðskírt
Moskva 6 heiðskírt
Algarve 18 léttskýjað
Madríd 16 rigning
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 15 heiðskírt
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg 0 skýjað
Montreal 4 skýjað
New York 8 skýjað
Chicago 10 skýjað
3. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:39 20:24
ÍSAFJÖRÐUR 6:39 20:34
SIGLUFJÖRÐUR 6:22 20:17
DJÚPIVOGUR 6:07 19:55
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á fimmtudag
Sunnan 3-10 m/s og dálítil rigning eða slydda af og
til, einkum vestast, en bjartviðri á N- og A-landi. Hiti
0 til 5 stig, en vægt frost austan til.
Gengur í sunnan 10-20 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Skýjað og dálítil rigning eða slydda vestast
í kvöld, en hægari og bjartviðri NA- og A-lands. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost austan til.
Hvaða úrræði hafa gefist best við
að tryggja fólki velferð? Hvernig er
hægt að skapa tækifæri fyrir fólk
til að það geti bætt líf sitt? Þessum
spurningum og mörgum öðrum var
leitast við að svara á alþjóðlegu
ráðstefnunni What Works sem
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, setti í Hörpu í gær.
Meðal fyrirlesara eru Helen
Clark, fyrrverandi forsætisráð-
herra Nýja-Sjálands, Halla Tóm-
asdóttir, forstjóri the B Team, Silv-
ana Koch-Mehrin, forseti og
stofnandi Women Political Leaders,
og Þorsteinn Víglundsson, þing-
maður Viðreisnar.
Þetta er í þriðja skiptið sem ráð-
stefnan er haldin hér á landi, en nú
er hún í fyrsta skiptið í samvinnu
við Alþjóðabankann. Ráðstefnan er
á vegum Social Progress Impera-
tive-stofnunarinnar (SPI) sem birtir
árlega vísitölu félagslegra fram-
fara sem mælir lífsgæði og styrk
samfélagslegra innviða. Ísland er
þar í 2. sæti á eftir Noregi. Cognitio
er fulltrúi SPI hér á landi.
Fræðimenn og áhrifafólk komu saman á alþjóðlegu ráðstefnunni What Works sem hófst í gær
Ræddu
lífsgæði
í Hörpu
Morgunblaðið/Eggert
Ráðstefnan What Works Helen Clark, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands, er meðal fjölmargra fyrirlesara á ráðstefnunni, sem fram fer í Hörpu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við getum auðvitað aldrei gert alla
ánægða í tengslum við svona ákvarð-
anir en ég hef ekki fengið neinar at-
hugasemdir við þessa tilhögun. Ég
skynja engan óróleika innanhúss
vegna þessa,“ segir Sigríður Björk
Guðjónsdóttir,
lögreglustjóri á
höfuðborgar-
svæðinu.
Sigríður kynnti
í bréfi til starfs-
manna á dögun-
um að ýmsar
breytingar væru
fyrir höndum á
yfirmannastöðum
hjá embættinu.
Breytingarnar
yrðu hins vegar allar tímabundnar
að þessu sinni og engar stöður yrðu
auglýstar. „Það eru alltaf skiptar
skoðanir varðandi breytingar á yf-
irmannastöðum. Við ætlum að sigla
til áramóta með þetta svona og
styrkja stöðuna. Þessi háttur hefur
lagst vel í fólk og við teljum að þessi
leið sé til þess fallin að styrkja inn-
viði stofnunarinnar. Allavega út
þetta ár,“ segir Sigríður.
„Eins og þið þekkið eru breyting-
ar og auglýsingar á yfirmannastöð-
um sérstaklega vel til þess fallnar að
stuðla að óróleika hjá embættinu.
Við höfum ákveðið að bíða með að
festa stöður og setja frekar eða flytja
í samræmi við starfsmannalög þar
sem vantar tímabundið að losa álag,
vinna betur með hverja einingu og fá
reynslu á hvort viðkomandi breyt-
ingar skili þeim árangri sem að er
stefnt,“ sagði í bréfi Sigríðar.
„Viljum gefa fleirum tækifæri“
Meðal þeirra mannabreytinga
sem orðið hafa hjá embættinu er að
Hörður Jóhannesson aðstoðarlög-
reglustjóri lét nýverið af störfum
fyrir aldurs sakir. Ásgeir Þór Ás-
geirsson yfirlögregluþjónn stýrir nú
bæði almennri deild og aðgerðadeild
og hefur óskað eftir því að skipaður
verði aðstoðaryfirlögregluþjónn sér
til aðstoðar. Þrír varðstjórar fá að
spreyta sig á stöðunni í fjóra mánuði
í senn; þeir Arnar Marteinsson,
Ágúst Svansson og Kristján Helgi
Þráinsson. Þá verða þau Ævar Pálmi
Pálmason og Bylgja Hrönn Baldurs-
dóttir sett aðstoðaryfirlögregluþjón-
ar í miðlægri deild í sex mánuði
hvort. Theodór Kristjánsson var
færður í stöðu yfirlögregluþjóns til
eins árs frá 1. apríl síðastliðnum og
fær það verkefni að innleiða nýja
stefnumótun embættisins. Með
haustinu mun Ómar Smári Ár-
mannsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í umferðardeild, láta af störf-
um sökum aldurs. Við það mun
Guðbrandur Sigurðsson verða færð-
ur tímabundið í þá stöðu til eins árs
og Árni Friðleifsson verður færður í
stöðu aðalvarðstjóra á sama tíma.
Sigríður segir í samtali við Morg-
unblaðið að verið sé að innleiða
stefnumótun embættisins til 2025 og
þetta ár verði notað til þess. Hún
segir að heimilt sé að flytja fólk til í
starfi til skamms tíma eða setja það
tímabundið í ákveðin verkefni án
þess að auglýsa viðkomandi stöður.
Lengri tíma taki að skipa í yfir-
mannsstöður til framtíðar. Vísar hún
til þess að í október hafi verið aug-
lýst eftir tveimur yfirlögregluþjón-
um á Suðurnesjum. Nú, nærri því
hálfu ári síðar, hafi enn ekki verið
ráðið í stöðurnar. Á meðan þurfi um-
sækjendur að vinna undir sama þaki.
„Við höfum líka fengið athuga-
semdir við það þegar fólk er sett í
stöður og er þar á meðan gengið er
frá framtíðarskipun. Síðan þegar
kemur að skipun er viðkomandi bú-
inn að fá tækifæri sem enginn annar
fékk. Með því að fara aðra leið viljum
við að gefa fleirum tækifæri til að
spreyta sig í þessum störfum.“
Auglýsir ekki stöður yfirmanna í ár
Morgunblaðið/Eggert
Lögregla Unnið er að stefnumótun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Yfirmannsstöður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ekki auglýstar í ár Næstráðendur fá að
spreyta sig til reynslu Fleiri fá þannig tækifæri, segir lögreglustjóri Ráðningar stuðla að óróleika
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir