Morgunblaðið - 03.04.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 03.04.2019, Síða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Miðbær Reykjavíkur eruppáhaldsmiðbærinnminn. Ég ólst upp áFramnesveginum, þaðan er stutt að ganga í miðbæ- inn og fyrir vikið var ég mikið þar sem krakki og unglingur. Strax og ég hafði vit og getu þá flutti ég í miðbæinn og hef búið á ótal stöð- um þar öll mín fullorðinsár. Og nú er komið að mér að kveikja líf á þessu nýja torgi hér, Hjartatorgi, þar sem áður var Hjartagarðurinn. Hér verður gott að sitja úti í sum- ar og ég er svo heppinn að kvöld- sólin mun lifa lengst utan við mitt rými,“ segir Jóhann Ludwig Torfa- son myndlistarmaður sem opnaði nýlega verslun sína, Hjarta Reykjavíkur, á fyrrnefndu torgi neðarlega við Laugaveg. Þar selur hann ýmsan varning með áprent- uðum húsamyndum, myndum sem hann hefur teiknað af mikilli ná- kvæmni af húsum miðbæjarins. Einnig selur hann plaköt með sömu teikningum, póstkort, púslu- spil og auðvitað bækur sem geyma öll húsin hans. „Ég er rétt að byrja, búðin er enn hálfköruð og margar vörur á leiðinni, kaffikrúsir, klukkur, glasamottur, viskastykki og fleira, allt með áprentuðum húsateikn- ingum mínum. Ég líta á þetta sem hönnun og grafík en ekki endilega sem myndlist. Nytjavaran hefur tekið yfir í því sem ég er að skapa og myndlistin er í pásu. Mynd- listin hefur verið helgireitur fyrir mér, en eins mikið og ég hef mært myndlistina fyrir frelsið sem hún veitir mér, þá finn ég fyrir gríð- arlegu frelsi í þessum rekstri. Mér finnst virkilega gaman að geta þróað vörur og gert það sem mig langar,“ segir Jói og bætir við að hann ætli líka að setja upp vef- verslun fyrir Hjarta Reykjavíkur. Lúmska skepnan Spott Hið nýja hönnunarfyrirtæki Jóa á upphaf sitt í því að fyrir nokkrum árum fór hann að teikna húsin í miðbænum, afar raunsæis- lega. „Hratt og örugglega varð það að einhverskonar þráhyggju, en ég er í tvo til þrjá daga að teikna flók- ið hús. Það er miklu meiri ná- kvæmni í þessum teikningum en kemur fram í prentinu,“ segir Jói sem sat allt í einu uppi með fjöru- tíu teiknuð hús. „Þá gaf ég út bók með húsa- myndunum, einu húsi á hverri opnu en götukort er við hvert hús sem sýnir hvar það er í miðbænum. Þannig sé ég fyrir mér að draga ferðamenn inn í hverfi miðbæj- arins, þeir geta farið í göngutúr og leitað uppi húsin í bókinni eftir kortunum. Ég ætlaði að láta bókina heita Spotts in Reykjavik, með vís- an í köttinn Spott sem bregður fyr- ir á sumum húsamyndunum, en Spott er lúmsk og lítt áberandi skepna sem kíkir út um glugga eða laumast meðfram veggjum. Pæl- ingin var að þeir sem skoðuðu bók- ina gætu þá elt köttinn í húsaflakk- inu,“ segir Jói sem endaði á að kalla bókina The Heart of Reykja- vík. „Ég hélt áfram að teikna hús og tók næst fyrir Laugaveginn, götu sem ég hef skálmað alla mína ævi. Og úr varð bókin Kæri Lauga- vegur, en hún inniheldur teikn- ingar af öllum húsum Laugavegar frá númer eitt, upp að Hlemmi og svo aftur til baka. Ég komst að því að ég hafði ekki síður ánægju af því að teikna hús sem eru kassalaga steinkumbaldar, en litlu sjarm- erandi bárujárnshúsin. Sambandið milli afar ólíkra húsa er einmitt það sem býr til Laugaveginn,“ segir Jói og bætir við að bókin sé einnig samtímaskráning og ákveðin heim- ild um horfinn heim, því þrjú þeirra húsa sem eru í Laugavegs- bókinni hans hafa verið rifin eða fjarlægð og flutt annað. Í Lauga- vegsbókinni er byggingarár skráð við hvert hús og hver höfundur þess er, arkitektinn. Var alla tíð í uppreisn Jóa finnst skondið að hann sé kominn í verslunarrekstur því hann listamaðurinn hafi alla tíð verið í mikilli uppreisn gegn þeirri stað- reynd að föðurfjölskylda hans hef- ur verið viðskiptamegin í lífinu. „Fólkið mitt er blátt inn að beini, afi minn var stórkaupmaður Púsl Gestir púsla saman húsum Jóa í verslun hans. Miðbærinn stendur hjarta nær „Eins mikið og ég hef mært myndlistina fyrir frelsið sem hún veitir mér þá finn ég fyrir gríðarlegu frelsi í þessum rekstri,“ segir Jóhann Ludwig Torfason mynd- listarmaður sem opnaði verslunina Hjarta Reykja- víkur á Hjartatorgi. Hann segir sig ekki hafa órað fyr- ir því að hann ætti eftir að fara út í fyrirtækjarekstur. Jói slakur í búðinni Nokkur verk með húsamyndum Jóa prýða vegg í hamingjulit í verslun hans, Hjarta Reykjavíkur. Höfuðhús Grafíkverk Jóa, Listasafn Einars Jónssonar. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.