Morgunblaðið - 03.04.2019, Síða 15

Morgunblaðið - 03.04.2019, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Veðrið í marsmánuði var nokkuð hagstætt, samkvæmt yfirliti Veður- stofunnar um tíðarfarið í mánuð- inum. Hiti var yfir meðallagi árin 1961 til 1990 en undir meðallagi síðustu tíu ár. Veturinn, það er að segja mán- uðirnir desember til mars, var fremur mildur. Vel fór með veður og illviðri voru með færra móti. Óvenjuhlýtt var á landinu í des- ember og fram í miðjan janúar. Þá tók við sam- felldur kulda- kafli sem stóð fram í miðjan febrúar. Eftir það var veðrið breytilegra. Meðalhitinn í Reykjavík í vetur var 1,3 stig en það er ofan við meðallag. Á Ak- ureyri var meðalhitinn -0,4 stig sem er ofan við meðallag. Úrkoma í vet- ur var umfram meðallag, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Ef litið er til marsmánaðar ein- göngu þá var að tiltölu hlýjast á an- nesjum norðaustanlands. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var 0,5 stig á Raufarhöfn. Annars stað- ar á landinu voru hitavik að mestu neikvæð. Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 3,1 stig. Lægstur var hann í Sátu á miðhálendinu, -6,3 stig. Í byggð var meðalhitinn lægst- ur í Svartárkoti, -4,3 stig. Úrkoma í Reykjavík mældist 91,5 mm sem er 12% umfram meðaltal. Marsmánuður hagstæður  Vel fór með veður í vetur og illviðri með færra móti Él Veðrið er marg- breytilegt. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Undirskriftalistar, þar sem áform- um um virkjun í Tungudal í Fljótum er mótmælt, voru í gær afhentir Orkusölunni sem leyfi hefur til að rannsaka virkjunarkostinn. 795 nöfn eru á listunum. Birgir Gunnarsson, einn forsvars- manna undirskriftasöfnunarinnar, segir að hún hafi farið fram í tengslum við Facebook-síðuna „Við erum ættuð úr Fljótum“ enda hafi verið höfðað til íbúa í Fljótunum, bæði núverandi og fyrrverandi og velunnara Fljótanna. Hún stóð í þrjár vikur. Hætt verði við áform Mótmælt er hvers konar áform- um um virkjun Tungudalsár í Fljót- um með tilheyrandi vegafram- kvæmdum og óafturkræfu jarðraski. „Tungudalurinn sem er hliðardalur úr Stíflu er með falleg- ustu dölum Skagafjarðar, ósnortinn að mestu, og vinsælt útivistarsvæði. Áformuð virkjun mun ekki aðeins eyðileggja fallegan dal heldur á hún aðeins að skila 1-2 MW sem er varla ómaksins vert og mun ekki leiða til nokkurrar atvinnusköpunar í Fljót- um.“ Birgir segir að krafan sé sú að hætt verði við þessi áform. Ekki þurfi að rannsaka meira þar sem það sé borðleggjandi að virkjunin muni ekki borga sig en muni hafa í för með sér mikið rask á fallegu svæði, rask sem er óafturkræft að þeirra mati. Verkefni á frumstigi „Við munum taka mark á öllum ábendingum sem við fáum frá hags- munaaðilum og meta þær inn í verk- efnið, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar,“ segir Magnús Kristjánsson framkvæmdastjóri Orkusölunnar sem er dótturfyrir- tæki RARIK. Orkuksalan rekur Skeiðsfossvirkjun í Fljótum. Magnús segir að verkefnið sé á al- geru frumstigi. Aðallega sé unnið að rennslismælingum. Að þeim loknum verði lagt mat á það hvort virkj- unarkosturinn sé fýsilegur eða ekki. Morgunblaðið/Hari Mótmæli Magnús Kristjánsson tekur við undirskriftum úr hendi Birgis Gunnarssonar. T.v. eru Björn Z. Ásgrímsson og Haukur B. Sigmarsson. 795 velunnarar Fljót- anna mótmæla virkjun  Segjast taka mark á ábendingum „Að mati forsætisnefndar fólust í ummælum þingmannsins staðhæf- ingar um atvik, sem hann fullyrti að hefðu verið sambærileg þeim sem fjölmiðlar hefðu með ítarlegum hætti fjallað um í hljóðupptök- unum. Líta verð- ur til þess að ummælin fólu í sér andsvör hans við þeirri um- fjöllun. Þegar það er virt og við hvaða aðstæður þau voru látin falla er ekki unnt að fullyrða að hátterni þingmannsins hafi verið andstætt hátternisskyldum hans […] Það er því niðurstaða forsæt- isnefndar að erindi þitt gefi ekki nægilegt tilefni til frekari athug- unar.“ Kemur þetta fram í niðurstöðu forsætisnefndar Alþingis við erindi sem henni barst um meint brot Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á siða- reglum fyrir alþingismenn í tilefni af ummælum hans í fréttaviðtali í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 3. desember 2018 og síðari samskipti af því tilefni. Í erindinu var vísað til þess að hátterni þingmannsins hefði verið andstætt 5., 7. og 8. gr. siðareglna fyrir alþingismenn. Nið- urstaða forsætisnefndar var birt á heimasíðu Alþingis eftir hádegi í gær. Ummæli þingmannsins Í erindinu var vísað til þess að í fyrrgreindu viðtali hefði Sigmundur Davíð haldið því fram að samtöl af því tagi sem hljóðrituð voru á Klaustri bar í miðbæ Reykjavíkur „[…] þar sem alþingismenn níða og niðurlægja aðra þingmenn á óvið- urkvæmilegan og klámfenginn hátt, væru og hefðu um langa hríð verið alsiða meðal þingmanna allra flokka og að orðbragðið væri stundum jafnvel „töluvert grófara“.“ Með þessum ummælum átti Sigmundur Davíð að hafa brotið gegn háttern- isskyldum sínum og þeim meg- inreglum sem gilda um hátterni al- þingismanna skv. 5., 7. og 8. gr. siðareglna fyrir alþingismenn. Þá er vert að geta þess að nafn málshefjanda hefur ekki verið birt samhliða þessari niðurstöðu forsæt- isnefndar Alþingis. Ummælin ekki skoðuð frekar  Niðurstaða forsætisnefndar birt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.