Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019
Menn gerast gamansamir ogþað þegar að mestu alvöru-
mál eiga í hlut. Fyrir liggur að
„orkupakkinn“ gerir Íslendingum
ekkert gagn. EKKERT GAGN. Um
það er ekki einu sinni deilt!
Fyrir liggur að þeir lögfræð-ingar sem enn má treysta vara
við gjörningnum vegna þess að
hann stangast á við stjórnarskrá
sem fyrri pakkar gerðu reyndar
einnig, en bitarnir þá svo smáir að
almenningur gætti ekki að sér.
(Agúrkuaðferðin.)
Nú segja talsmenn ESB í rík-isstjórninni að það réttlæti
átök við þjóðina og að ljúga pakk-
ann í gegn að fengist hafi fyrir-
varar frá Brussel sem gjörbreyti
málinu. Þeir eru þessir:
Embættismaður í Brussel hafiupplýst að rafmagnsstrengur
til Evrópu hafi ekki enn verið lagð-
ur. Embættismaðurinn hefur sjálf-
sagt sannreynt þetta sjálfur þegar
hann kom með seinasta flugi WOW
eftir gjaldþrot.
Embættismaðurinn sá lét ekkivið þær upplýsingar sitja að
rafstrengurinn væri enn ólagður,
sem kom utanríkisráðuneytinu
þægilega á óvart.
Hann lofaði því að strengurinn„yrði ekki lagður án þess að
umræða um það fari fram“!
Theresa May taldi sig útskrifaða ídellurökum um brexit en jafn-
vel hún gæti grætt á námskeiði hér.
Í alvöru?
STAKSTEINAR
Kaupfélag Skagfirðinga hefur til
skoðunar að gera samkomulag við
Skagafjarðarveitur um að fram-
kvæmdum, sem nú eru áætlaðar á
næstu 5-6 árum, verði hraðað og
þeim lokið á 2-3 árum.
Þetta kemur fram í fundarboði til
félagsmanna en aðalfundir félags-
deilda KS fara fram í þessari viku.
Veituframkvæmdirnar sem um ræð-
ir eru stofnlögn frá Langhúsum er
tengist við dreifilögn frá Hrolleifs-
dal, dreifilagnir fyrir heitt vatn á þau
svæði í héraðinu sem eftir er að
tengja, átak í að ljúka tengingu ljós-
leiðara og borun vinnsluholu í Reykj-
arhóli við Varmahlíð. Einnig að
Skagafjarðarveitur skoði stuðning
við þá aðila sem ekki eiga kost á að
tengjast dreifikerfi hitaveitunnar.
Á deildarfundunum mun Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri fara yfir
þessi mál og kanna áhuga fundar-
manna á því að KS aðstoði Skaga-
fjarðarveitur fjárhagslega til að
þetta sé gerlegt, eins og það er orðað
í fundarboði til félagsmanna. Jafn-
framt verður farið yfir þau mál sem
snúa beint að samskiptum bænda og
kaupfélagsins.
Fyrstu deildarfundir eru í Héðins-
minni í dag og á Hofsósi í kvöld. Ann-
að kvöld er fundur í Miðgarði og á
föstudag í Ljósheimum.
Veituframkvæmdum verði hraðað
Rætt á félagsfundum að Kaupfélag
Skagfirðinga styrki Skagafjarðarveitur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagafjörður Kaupfélagið vill
hraða veituframkvæmdum.
Kópavogsbær hefur áhuga á því að
taka að sér byggingu nýs hjúkr-
unarheimilis við Boðaþing til að
flýta framkvæmdum. Ármann Kr.
Ólafsson bæjarstjóri segir að heil-
brigðisráðuneytið sé jákvætt gagn-
vart hugmyndinni. Eftir sé að fá
fjárhagslegar forsendur á hreint en
hann segist bjartsýnn á jákvæða
niðurstöðu.
Samið var um það fyrir tveimur
og hálfu ári að ríkið myndi byggja
64 rýma hjúkrunarheimili við Boða-
þing. Ætlunin var að það risi við
þjónustuálmu fyrir eldri borgara
sem Kópavogsbær á en Hrafnista
rekur samtengt hjúkrunarheimili
og íbúðir fyrir aldraða á svæðinu.
Verkefnið stöðvaðist í undirbún-
ingsferli vegna deilna um útboð á
hönnun nýju byggingarinnar. Nú
hefur verið leyst úr því máli fyrir
dómstólum.
Mikil þörf
Ekki liggur fyrir hvernig staðið
verður að framkvæmdum, náist
samningar um að Kópavogsbær sjái
um uppbygginguna. Verði af samn-
ingum má búast við að nýtt hjúkr-
unarheimili komist í gagnið eftir
tvö og hálft ár.
Ármann segir að þörf sé á að
fjölga hjúkrunarrýmum í Kópavogi.
„Hlutfall hjúkrunarrýma er lægra
hér en í flestum öðrum sveitar-
félögum og því hafa flestir verið
sammála um að næsta hjúkrunar-
heimili ætti að rísa í Kópavogi,“
segir Ármann.
helgi@mbl.is
Rætt um að Kópa-
vogsbær byggi
Viðræður um
uppbyggingu nýs
hjúkrunarheimilis
Morgunblaðið/Ómar
Öldrun Nýtt hjúkrunarheimili gæti
komist í notkun í lok árs 2021.
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á heimavorn.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/