Morgunblaðið - 10.04.2019, Page 10

Morgunblaðið - 10.04.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – margir litir Verð frá18.900,- KARTELL TAKE Borðlampi – margir litir Verð 12.900,- LUKKUTRÖLL Margar gerðir Verð frá 3.990,- FRANDSEN JOB Borðlampi Verð 15.900,- KAY BOJESEN Sebrahestur Verð 10.990,- stk MR.WATTSON LED lampi Verð 16.990,- KAY BOJESEN Söngfugl – margir litir Verð frá 10.990,- stk. KAY BOJESEN Api lítill Verð 17.990,- stk Fallegar gjafir í fermingarpakkann KARTELL LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 39.900,- stk. PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu að fjármunum í uppsveiflu. Þá rétt eins og AAB, eitt stærsta leigufélag Danmerkur. Félagið framkvæmdi mikið í niðursveiflunni 2009 en byrj- aði að rifa seglin upp úr 2013 þegar þenslan fór að aukast á byggingar- markaði. Þá var orðið mjög dýrt að byggja og óhagstætt. Nú hefur danska félagið mikla framkvæmda- getu og er tilbúið að stíga inn á mark- aðinn þegar herðir að. Félagið á og rekur yfir 20 þúsund íbúðir á Kaup- mannahafnarsvæðinu.“ Kaupi eignir inn í félagið Ragnar Þór segir koma til greina að Blær kaupi eignir inn í félagið og leigi þær áfram til félagsmanna. „Það getur vel verið að svona félagi bjóðist eignir sem eru langt undir byggingarkostnaði. Það gætu þá verið hagkvæmar útleigueiningar eða einingar til að taka og styðja við fyrstu kaupendur og eitthvað slíkt. Aðalatriðið er að það eru engin eigna- og tekjumörk í þessu. Þannig gætum við fengið þá sem falla til dæmis ekki inn í leigufélög eins og Bjarg, þar sem umsækjendur þurfa að vera tekju- og eignalitlir. Líkt og Bjarg mun Blær hafa getu til að framkvæma hvar sem er á landsbyggðinni. Félagið mun ekki einblína á dýrustu byggingarsvæðin til að byggja heldur fyrst og fremst huga að hagkvæmum byggingar- svæðum. Rekstrarlíkanið er byggt á langtímasjónarmiðum með hagsmuni almennings að leiðarljósi. Markmiðið er að auka ráðstöfunartekjur með lægri búsetukostnaði og auka um leið búsetuöryggi. Þannig gæti félagið orðið mótvægi við markaðinn sem hefur algjörlega fengið að ráða för. Það vantar 6-8 þúsund íbúðir á mark- aðinn næstu 10 árin. Félag eins og Blær gæti tekið stóran hluta af því án þess að vera of markaðsráðandi,“ segir Ragnar Þór. Mikil breyting á markaðnum Hann segir aðspurður þessar að- gerðir munu fela í sér miklar breyt- ingar á fasteignamarkaðnum. „Sé byggingarþörfin 1.800 til 2.200 íbúðir á ári og Bjarg og Blær byggja um 600-800 íbúðir á ári erum við að taka svolítið stóran hluta af nýjum íbúðum. Það er þó mjög lítill hluti af markaðnum. Sé staðan skoðuð er- lendis er hlutfall félagslegra íbúða víðast mun hærra en það verður hér á landi eftir 10 ár, þótt þetta verði að veruleika,“ segir Ragnar Þór. Spurður hvar Blær muni byggja íbúðirnar rifjar hann upp yfirlýsing- ar fulltrúa ríkis og borgar um að nota Keldnaholt í Reykjavík undir ódýrar íbúðir. Félagið verði opið fyrir því að byggja í úthverfum og í nágranna- sveitarfélögum höfuðborgarsvæðis- ins. Það muni hins vegar ekki byggja á dýrustu lóðunum. Björn Traustason, framkvæmda- stjóri Bjargs íbúðafélags, segir markmið félagsins að byggja þús- undir íbúða á næsta áratug. Félagið muni fjölga íbúðum í samræmi við þarfagreiningar sem koma fram í húsnæðisáætlunum sveitarfélaga, framboð á lóðum og úthlutun ríkis og sveitarfélaga á fjármagni fyrir al- mennar íbúðir. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, sagði í sam- tali við Morgunblaðið á föstudag að ríkisstjórnin hefði til skoðunar að veita frekari stofnframlög til félaga á borð við Bjarg. Horft væri til hópa á borð við eldri borgara og námsmenn. Byggi þriðju hverja íbúð  Formaður VR segir húsnæðisfélagið Blæ geta byggt 400-600 íbúðir á ári  Ásamt Bjargi geti Blær byggt um 800 íbúðir á ári, eða um þriðjung nýrra íbúða  Ríkið geti eignast hlut í íbúðum með lánum Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), segir svæð- isskipulag sveitarfélaga draga ákveðin meginatriði fram. Til dæmis um að skipuleggja þurfi húsnæði á viðráð- anlegu verði. „Hvert sveitarfélag hefur hins vegar sitt skipulag,“ segir Hrafnkell. Á hinn bóginn séu SSH að vinna þróunaráætlun sem ætlunin er að birta drög að í maí. Þar verði safnað saman áformum sveitarfélaga næstu fjögur ár. Úr þeim drögum verði hægt að lesa upp- lýsingar um fjölda íbúða. Þá m.a. félagslegar íbúðir og íbúðir sem fara í óhagnaðardrifin félög. „Það eru satt að segja ekki mörg sveitarfélög sem leggja áherslu á slíkar íbúðir miðað við þau gögn sem við höfum fengið í hendur,“ segir hann. Boðuð eiginfjárlán geti haft sjálfstæð áhrif á skipulagið. „Það eitt og sér að taka svona ákvörðun hefur áhrif á deiliskipulagsgerð sveitarfélaga.“ Fjöldinn ekki verið kortlagður ÓDÝRAR ÍBÚÐIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Hrafnkell Á. Proppé Bjarg íbúðafélag er með 903 íbúðir í vinnslu Gert er ráð fyrir lóðum og stofnframlagi fyrir allt að 400 íbúðir að auki í ár Íbúðir Framkvæmdatími 1 Móavegur, Rvík 124 Framkvæmdir hafnar 2018-2020 2 Urðarbrunnur, Rvík 66 Framkvæmdir hafnar 2018-2020 3 Silfratjörn-Úlfarsárdal, Rvík 66 Framkvæmdir hefjast í vor 2019-2020 5 Hallgerðargata, Rvík 64 Framkvæmdir hefjast í vor 2019-2020 7 Hraunbær, Rvík 79 Framkvæmdir hefjast í vor 2019-2020 4 Bryggjuhverfi A, Rvík 23 Forhönnun 2019-2020 6 Gelgjutangi - Vogabyggð, Rvík 60 Forhönnun 2019-2020 8 Bryggjuhverfi B, Rvík 77 Forhönnun 2019-2021 9 Skerjafjörður, Rvík 80 Forhönnun 2020-2022 10 Hamranes - Hafnarfirði 150 Forhönnun 2020-2021 11 Akranes 33 Framkvæmdir hafnar 2019 12 Akureyri 31 Framkvæmdir hefjast í vor 2019-2020 13 Þorlákshöfn 13 Forhönnun 2019-2020 14 Sandgerði 11 Forhönnun 2019-2020 15 Selfoss 26 Forhönnun 2019-2020 Framkvæmdir hafnar: 223 íbúðir. Framkvæmdir hefjast í vor: 240 íbúðir. Forhönnun: 440 íbúðir. 903 íbúðir samtals Heimild: Bjarg íbúðafélag BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir húsnæðisfélaginu Blæ meðal annars ætlað að vera sveiflu- jafnari á byggingarmarkaðnum. Horft sé til þess að félagið byggi 400- 600 íbúðir á ári og alls 6-8 þúsund íbúðir á næstu 10 til 15 árum. Stuðst sé við áætlun Íbúðalána- sjóðs um uppsafnaða og væntanlega íbúðaþörf á tímabilinu. Íbúðir Blæs verði jöfnum höndum til leigu og sölu. Þær standi öllum til boða. Ragnar Þór segir félagið Blæ verða fjármagnað með fjárfestingu lífeyrissjóða og hagkvæmri fjár- mögnun frá Íbúðalánasjóði. Ekki sé ætlunin að lífeyrissjóðir niðurgreiði félagið. Þvert á móti verði fjármögn- unin öruggari og betri fjárfesting en til dæmis í skuldabréfaflokkum og öðru sem sjóðirnir hafi fjárfest í með misjöfnum árangri á þessari öld. Ragnar Þór segir félagið að mót- ast. Unnið sé að stofnsamþykktum um tilgang og markmið Blæs sem húsnæðisfélags sem starfi samhliða Bjargi íbúðafélagi. Bjarg sé fyrir lægri tekjuhópa en Blær hugsað sem félag fyrir allan almenning. Samþykkt um fjármögnun „Það er enginn ágreiningur um það innan verkalýðshreyfingarinnar, eða Samtaka atvinnulífsins, hvernig viðskiptalíkan Blæs er sett upp og var bókun samþykkt í nýgerðum kjarasamningum um fjármögnun fé- lagsins. Við erum að áreiðanleika- kanna líkanið okkar og setja það upp í faglegri kynningu fyrir lífeyrissjóði. Auðvitað er ekkert í hendi fyrr en sjóðirnir eru tilbúnir í þetta með okkur. Við sjáum svo fyrir okkur að hinn hlutinn af fjármagninu geti komið í gegnum Íbúðalánasjóð. Þar á að opna fyrir hagkvæma fjármögnun fyrir óhagnaðardrifin félög sem sannarlega skila lægri fjármagns- kostnaði í lægri húsnæðiskostnaði. Blær er þó ekki aðeins hugsað sem leigufélag heldur sem almennt hús- næðisfélag sem getur bæði byggt og selt og stutt við verkefni á borð við þau sem Frosti Sigurjónsson kynnti síðastliðinn föstudag,“ segir Ragnar Þór. Vísar hann til tillagna starfshóps undir forystu Frosta sem skilaði skýrslu til félagsmálaráðherra um lækkun þröskulds ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn. Ein megintillagan er að ríkið leggi til eiginfjárlán sem verða 15-30% af kaupvirði. Ragn- ar Þór segir að- spurður það vel koma til greina að ríkið fjármagni hluta íbúða með slíkum eiginfjár- lánum, án aðkomu lífeyrissjóða eða Íbúðalánasjóðs. Horft sé til góðrar reynslu Dana af slíkum félögum. Framkvæmi í niðursveiflu „Við sjáum fyrir okkur að Blær geti eins og Bjarg gegnt sveiflujöfn- unarhlutverki fyrir byggingariðnað- inn. Að það sé eitthvert félag sem er fjármagnað og hafi burði til þess að skrúfa frá einum framkvæmdakrana þegar einhverjar aðrar forsendur í efnahagslífinu skrúfa fyrir aðra. Með því gæti félagið framkvæmt í niður- sveiflu á byggingarmarkaði en safn- Ragnar Þór Ingólfsson Ásmundur Einar Daðason Björn Traustason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.