Morgunblaðið - 10.04.2019, Page 11

Morgunblaðið - 10.04.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG úr náttúrulegum efnivið, tré og silki ERUM FLUTT ! á Nýbýlaveg 8 – Portið Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 LANCÔME KYNNING MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS 20% afsláttur af LANCÔME vörum GLÆSILEGUR KAUPAUKI ÞEGAR ÞÚ KAUPIR LANCÔME VÖRUR FYRIR 9.500 EÐA MEIRA. KYNNUMM.A. RÉNERGIE MULTI-GLOW KREMIN SEM GEFA ÁRANGUR SEM ÞÚ BÆÐI SÉRÐ OG FINNUR. • SAMSTUNDIS: Húðin er nærðari og áferðin fallegri. • EFTIR 2 VIKUR: Þéttari, ferskari húð líkt og henni hafi verið lyft • EFTIR 8 VIKUR: Hrukkur eru minna sjáanlegar,húðin er fylltari. NÝTT RÉNERGIE YEUX MULTI-GLOW AUGNKREM MY EYES SAY WHO I AM: STRENGTH, RADIANCE, ENERGY. VEKUR LJÓMA OG STYRKIR Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tvö íslensk örbrugghús hafa ákveðið að taka í notkun kippuhöld úr endurunnu bygg- og hveitihrati í stað plasthringja sem lengi hafa séð um að halda bjórkippum sam- an. Þessi nýju kippuhöld brotna niður í náttúrunni og flokkast með öðrum lífrænum úrgangi. Sumir vilja meira að segja meina að narta megi í umbúðirnar með bjórnum en það er víst gert á eigin ábyrgð. „Þetta er mjög spennandi. Við erum ánægð að sleppa við plast- úrganginn sem hefur fylgt dós- unum. Það er frábært að geta lagt sitt af mörkum. Okkur finnst þetta skipta máli,“ segir Marteinn B. Haraldsson, einn eigenda brugg- hússins Seguls 67 á Siglufirði. Segull 67 hefur um nokkurra ára skeið framleitt bjór og selt í Vín- búðunum. Fyrirtækið tók nýlega í notkun dósavél og hefur selt dósir í svokölluðum rútum til þessa. Að sögn Marteins verða árstíðabundn- ir bjórar Seguls fyrst um sinn seld- ir með umhverfisvænu kippuhöld- unum en síðar verði skoðað hvort hinir bjórarnir fylgja í kjölfarið. Fyrsta sending er þegar farin í frí- höfnina í Leifsstöð. Unnið hefur verið að innleiðingu umhverfis- vænu kippuhaldanna síðan síðasta sumar. „Það hefur verið vakning í þess- um málum og okkur fannst ekki viðeigandi að nota plastið. Það er reyndar mun kostnaðarsamara að gera þetta með þessum hætti en við gerum það samt sem áður.“ Kippuhöldin kallast E6PR eða Eco Six Pack Ring, nánar til tekið. Þau voru sett á markað árið 2017 og hafa smátt og smátt hlotið aukna útbreiðslu og viðurkenningu. Kippuhöldin hafa einmitt notið vin- sælda meðal örbrugghúsa sem leggja frekar áherslu á gæði en magn. Brugghúsið Álfur mun brátt kynna til leiks bjórinn Búálf og verður hann seldur í samskonar umbúðum. „Í samstarfi við íslenska bændur höfum við fundið hágæða hráefni sem hingað til hefur ekki verið hægt að fullnýta og fundið leið til þess að gera frábæran bjór úr því. Það hefur aldrei annað komið til greina en að gera vist- spor umbúðanna sem minnst að sama skapi,“ segir á Facebooksíðu brugghússins. Taka í notkun umhverfis- væn kippuhöld fyrir bjór  Örbrugghús úthýsa plasti  Má borða umbúðirnar Segull 67 Kippuhöldin verða úr endurunnu bygg- og hveitihrati. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Við tökum við þeim um leið og þeir lenda og verðum með tvo vörubíla sem við erum búin að breyta töluvert til þess að auðvelda flutninginn frá Keflavík til Vestmannaeyja,“ segir Sigurjón Ingi Sigurðsson, deildar- stjóri sérlausna hjá TVG Zimsen, spurður hvernig fyrirtækið muni annast flutning tveggja mjaldra frá Keflavíkurflugvelli að athvarfi þeirra í Vestmannaeyjum. Hann segir bílana sem eru 13,6 metrar að lengd, hafa verið styrkta svo þeir þoli þyngd tankanna sem mjaldrarn- ir munu verða í og að gerðar hafi ver- ið ráðstafanir til þess að hægt sé að skorða kerin vel. „Svo er búið að auka loftflæði inn svo það verði nægilegt súrefni fyrir þá,“ segir Sig- urjón Ingi og bætir við að bílarnir verði skilgreindir sem sóttkví og að- gangur að flutningsrýminu mjög takmarkað. Þá verður myndavélakerfi í bílun- um með beinni útsendingu inn í stýrihúsið meðan á flutningum stendur, þannig að ef eitthvað kemur upp á sé hægt að grípa inn í. Einnig er gert ráð fyrir talstöðvakerfi sem gerir mögulegt að tala við mjaldrana úr stýrihúsinu, að sögn Sigurjóns Inga. „Ef þeir verða eitthvað óróleg- ir, þá geta þjálfarar þeirra talað við þá. Það er fyrsta aðferðin til þess að róa þá niður, þar sem þeir vilja forð- ast að gefa þeim lyf.“ Mikið umstang Flogið verður með mjaldrana frá Sjanghaí í Kína til Íslands og lenda þeir á Suðurnesjum 16. apríl. Verður þeim komið fyrir í bílum TVG Zim- sen sem munu aka með þá til Vest- mannaeyja þar sem þeir verða í sóttkví í nokkrar vikur áður en þeim er komið fyrir í Klettsvík. Spurður hvernig bílunum verði komið til Eyja, svarar deildarstjórinn að þeir muni fara með Herjólfi frá Land- eyjahöfn. „Herjólfur mun aðlaga sig að komu okkar, þannig að þeir bara bíða. Um leið og við komum fara bíl- arnir beint um borð og ferjan beint af stað,“ útskýrir hann. Sigurjón Ingi segir mikla vinnu í kringum sérhæfð verkefni af þess- um toga. „Þetta er mikið umstang hérna heima þar sem þetta eru margar stofnanir sem koma að þessu. Þetta hefur verið töluverð pressa síðustu þrjá, fjóra mánuði að ganga frá öllum leyfum og gefa út vottorð.“ Mjaldrarnir verða fluttir í sérbúnum vörubílum  Styrktir til að þola þyngdina  Fara með Herjólfi til Eyja Ljósmynd/Sea Life Trust Mjaldrar Litla-Hvít og Litla-Grá fljúga til Keflavíkur, verður ekið um borð í Herjólf sem siglir með þá til Vest- mannaeyja. Hvalirnir munu búa í Klettsvík til æviloka. Líklegt er að margir sæki Eyjar heim til að skoða þá. Forsvarsmenn Icelandair hótela hafa tekið ákvörðun um að greiða starfsfólki sem var á frívakt verk- fallsdagana 8. og 22. mars laun fyr- ir umrædda daga í ljósi þess að Efl- ing og VR ætla ekki að greiða starfsfólki á frívakt launamissi. Greint hafði verið frá því að Ice- landair hótel hefðu dregið laun af öllu því starfsfólki sem ynni störf sem féllu undir verkfallsaðgerðir stéttarfélaga í mars óháð því hvort það hefði verið á vakt þá daga sem aðgerðirnar stóðu yfir. Efling for- dæmdi ákvörðunina harðlega og skoraði á hótelkeðjuna að leiðrétta mistökin. „Við hörmum framgöngu forsvarsmanna Eflingar í fjöl- miðlum, enda er hún í þversögn við yfirlýstar sáttaumleitanir þeirra við þau fyrirtæki sem verkfallið náði til,“ sagði í tilkynningu Magn- eu Þóreyjar Hjálmarsdóttur fram- kvæmdastjóra til starfsólks í gær. Starfsfólk Icelandair hótela fær greitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.