Morgunblaðið - 10.04.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 10.04.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 ✝ SvanhildurFinndal Guðmundsdóttir fæddist í Finns- tungu 19. júlí 1953. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 1. apríl 2019. Hún var yngst systkina sinna. Foreldrar hennar voru Guðmundur Tryggvason, f. 29.4. 1918, d. 9.11. 2009, og Guðrún Sigríð- ur Sigurðardóttir, f. 18.4. 1924, d. 15.12. 1975. Systkini Svanhildar: 1) Garðar Röðull Kristjánsson, f. 15.9. 1943, d. 15.1. 1998 (sam- mæðra). 2) Grétar, f. 4.7. 1948, maki Ingunn Gísladóttir, f. 15.5. 1950. Börn þeirra eru Björk, f. 23.4. 1969, Reynir son, 9.10. 1952. Börn þeirra eru Guðmundur Rúnar, f. 21.9. 1971, Garðar Kristján, f. 30.12. 1975, og Gunnar Tryggvi, f. 14.3. 1979. Barna- börnin eru átta og eitt barna- barnabarn. Svanhildur ólst upp í Finns- tungu og lauk skyldunámi í heimasveit sinni. Hún stundaði nám í Unglingaskólanum á Blönduósi og Gagnfræðaskóla Austurbæjar og var einn vetur í Húsmæðraskólanum á Stað- arfelli. Hún útskrifaðist sem sjúkraliði frá Landakotsspítala 1975. Fyrstu árin eftir útskrift vann hún á Héraðshæli Aust- ur-Húnvetninga. Hún var sjúkraliði við Heilbrigð- isstofnun Norðurlands, Sauð- árkróki, í rúm 36 ár þar sem hún starfaði enn þegar hún féll frá. Svanhildur var einhleyp og barnlaus, en hélt heimili með föður sínum eftir andlát Guð- rúnar móður sinnar. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 10. apríl 2019, klukkan 13. Finndal, f. 29.12. 1972, Elfa Þöll, f. 1.2. 1975, Ágústa Ösp, f. 27.10. 1987, d. 27.1. 1988. Barnabörnin eru sex og eitt barnabarnabarn. 3) Heimir Finndal, f. 23.8. 1949, fyrr- verandi maki Fanney María Maríasdóttir, f. 9.6. 1955, börn þeirra eru El- ísabet, f. 6.9. 1972, (faðir El- ísabetar er Agnar Ebenesers- son), Yngvi Finndal, f. 28.4. 1978, Guðrún Harpa, f. 1.6. 1982, og Atli Finndal, f. 21.2. 1984. Barnabörnin eru fimm. Sambýliskona Heimis er Jón- ína Jóhannsdóttir, f. 5.7. 1950. 4) Áslaug Finndal, f. 5.1. 1951, maki Halldór Bjarni Marías- Að setjast niður og skrifa minningargrein um systur sína er eitthvað sem ég hélt að ég þyrfti aldrei að gera en stundum snýst lífið í höndunum á okkur og fer á annan veg en við viljum. Við ætluðum að skreppa til Reykjavíkur í fermingu hjá frænda okkar á sunnudag en á fimmtudag hringdir þú og sagðist ætla á föstudag með strætó og koma svo með okkur til baka á sunnudag. Ég hvatti þig til að taka fyrri ferð strætó þann dag sem þú gerðir sem betur fer. Sama kvöld leiðst þú út af og varst látin þremur sólarhringum síðar. Þegar við fluttum á Blönduós fyrir tveimur árum mættir þú manna fyrst með málningarpensil til að hjálpa til. Þegar við fórum að parket- leggja, þá hjálpaðir þú einnig til, þú hafðir sjálf lagt parket á Hólaveginum og kunnir þónokk- uð til verka. Sama á við um önnur verkefni, þegar ég kom til þín með gard- ínur og vildi fá lánaða saumavél tókst þú verkið að þér. Eins var þetta með verkefni utandyra. Þegar kom að sumarblómum og runnum áttir þú hvort tveggja á lager og boðin og búin að hjálpa til með leiðbeiningum, plöntun og ekki síður við að vinna verkin. Hver sem verkefnin voru var alltaf hægt að treysta á aðstoð þína og góðvild. En okkar samverustundir verða ekki fleiri í bili þar sem þú ákvaðst að flýta þér í sumarland- ið og þar mun þér líða vel og þar verður vel tekið á móti þér. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Allar góðu stundirnar við spila- mennsku og spjall sem við höfum átt saman lifa í minningunni, von- andi tökum við upp þráðinn síðar. Áslaug og Halldór (Dóri). Að mörgu leyti minnir Svan- hildur á fyrsta erindið í kvæðinu um konuna sem kyndir ofninn minn. Hún vann verk sín hljóð og tíundaði ekki gengin spor. Hún hélt utan um það sem þurfti að gera, kveikti ljósið, kynti ofninn og leit eftir að allt væri í lagi, hún býsnaðist ekki yfir dagsverkinu og lokaði hljóð á eftir sér. Hún var til staðar fyrir allt sitt fólk. Þegar Svanhildur var 22 ára gömul dó mamma og eftir það annaðist hún pabba okkar í 34 ár eða þar hann hann dó árið 2009. Ég tel það einsdæmi. Hún notaði nánast allar sínar frívaktir árum saman til að fara í Sölvatungu og hugsa um hann. Hún tók þátt í ræktunarstarfi pabba og upp- byggingu í Sölvatungu frá upp- hafi. Að byggja bústað og rækta tré og annan gróður er ekki bara að setja niður og bera á. Það þarf að girða landið, fá fræ eða græð- linga og koma gróðrinum af stað, sjá hvað hentar á hverjum stað og byrja upp á nýtt ef eitthvað geng- ur ekki upp. Eftir að við bræður Svanhildar byggðum okkur sumarbústaði og komum upp skógarreitum feng- um við ófáar plöntur frá henni. Hún bar virðingu fyrir öllu lífi í kringum sig hvort sem það voru dýr, gróður eða hvaðeina. Páfa- gaukurinn, hundarnir og fuglarn- ir sem komu árlega til að verpa í Sölvatungu voru persónulegir vinir hennar. Stundum þegar við hjónin vor- um að heiman einhverja daga kom hún suður til að passa kis- urnar. Síðast fyrir örfáum vikum þegar eldri kisan var orðin veik var hún hér í eina viku í fjarveru okkar, þær urðu vinkonur, nú eru þær báðar horfnar á braut. Hún var handverkskona list- feng og hæfileikarík. Má segja að allt hafi leikið í höndunum á henni. Hún var aldrei verklaus og naut þess að búa til hluti og gefa. Svanhildur hafði gaman af því að ferðast bæði innan lands og ut- an. Við hjónin, annað okkar eða bæði, fórum með henni í nokkrar utanlandsferðir, nú síðast til Gdansk í nóvember. Það var gaman að ferðast með Svanhildi, hún var afskaplega glögg og athugul og hafði áhuga á að skoða það sem fyrir augun bar. Hún naut þess að skoða tré og annan gróður og tók gjarnan fræ með sér heim, til að prófa ný af- brigði. Svanhildur bjó hjá okkur í Reykjavík einn vetur þegar elsta dóttir okkar var nýfædd og við bæði í skóla. Þann vetur var hún í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og hjálpaði okkur með barnið þess á milli. Ég er þakklátur fyrir að hafa verið við hliðina á henni þegar kallið kom og hún var rétt nýkom- in suður til að fara í fermingar- veislu um helgina. Það hefði verið óbærilegt að frétta að andlát hennar hafi borið að höndum þar sem hún var stödd einhvers stað- ar alein. Hún kvartaði aldrei, sem var reyndar mjög líkt henni, en það má vera ljóst að hún hlýtur að hafa fundið fyrir óþægindum um langa hríð. Ég ætla að gera hvað ég get til að viðhalda verkum pabba og Svanhildar í Sölvatungu. Ég þakka elskulegri systur minni samfylgdina, umhyggju við foreldra okkar sem og alla hennar miklu hjálpsemi og væntumþykju við mig og fjölskyldu mína alla tíð. Takk fyrir allt, Grétar, Ingunn og fjölskyldur. Í dag kveð ég ástkæra systur mína, Svanhildi Finndal, sem svo skyndilega var burt frá okkur kölluð. Við Svanhildur systir höfðum alla tíð mikil samskipti og vorum samrýnd. Eftir æskuárin í Finnstungu lágu leiðir okkar sín í hvora áttina um árabil. Er Svan- hildur var í sjúkraliðanámi og ég einnig í námi í Reykjavík, leigð- um við saman íbúð. Eftir nám 1975 lágu leiðir okk- ar norður til heimahaga. Fór ég til vinnu á Blönduósi í eitt ár. Nokkur ár bjó ég síðan í Reykja- vík eða frá 1977-1984. Þá flutti ég ásamt fjölskyldu minni til Sauð- árkróks. Svanhildur var þá flutt þangað og komin til vinnu sem sjúkraliði við sjúkrahúsið á Sauð- árkróki, þar sem hún starfaði allt þar til hún lést. Hún hafði frá 1976 haldið heimili og annast föð- ur okkar, sem hafði byggt sér hús á landskika úr jörðinni Finns- tungu, sem fékk nafnið Sölvat- unga. Það gerði hún allt þar til hann lést eða til 2009. Eigum við systkini henni afar mikið að þakka fyrir það. Þannig fór að ég og mín fjöl- skylda fengum landskika til eign- ar úr jörðinni Finnstungu, sem lá að Sölvatungu. Kallast þar Tungukot. Það gerði einnig bróð- ir minn og fjölskylda. Þau eignuðust land og byggðu sér hús við Blöndu og kallast þar Stekkjarhvammur. Ég og konan mín Fanney komum okkur upp húsi í Tungukoti og einnig kom- um við okkur upp gróðurhúsi. Gróðurhús var einnig byggt í Sölvatungu hjá Svanhildi og föð- ur okkar. Þarna ætluðum við og Svanhildur og faðir okkar að sinna miklu áhugamáli okkar, en það var skógrækt. Þarna upplifð- um við það að sjá tré vaxa af fræi, stækka og verða heimili fuglanna, sem sóttu í skóginn. Á Sauðárkróki bjó ég með fjöl- skyldu minni til 2007 utan árin 1998-2002. Af þessu má sjá að við höfum mestalla ævi átt samleið. Við áttum mörg sameiginleg áhugamál og höfðum mikla ánægju af því að sinna þeim sam- an. Svanhildur var mikill heima- gangur á heimili mínu og fjöl- skyldunnar á Sauðárkróki og við fjölskyldan ekki síður oft hjá Svanhildur Finndal Guðmundsdóttir ✝ Sævar Guð-mundsson fæddist á Snotru í Landeyjarsveit hinn 9. ágúst 1940. Hann lést 1. apríl 2019 á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðjónsson, f. í Voðmúlastaða- Austurhjáleigu í Austur- Landeyjum 1. september 1915, d. 22. ágúst 1998, og Guðleif Þórunn Guðjónsdóttir frá Voð- múlastaða-Miðhjáleigu, f. 28.10. 1907, d. 30.6. 1984. Bróðir Sævars er Helgi Þór, f. 22.11. 1943. Kona hans er Sal- óme Guðný Guðmundsdóttir, f. 19.8. 1944. Dóttir þeirra er Auð- ur, f. 25.5. 1967. Sævar kvæntist 16. septem- ber 1972 Álfheiði Bjarnadóttur, f. 18. maí 1940 á Sveinsstöðum, Neshreppi, utan Ennis á Snæ- fellsnesi, d. 9. ágúst 2014. Börn þeirra eru: 1. Sólveig Birna Sig- berg, f. 20. apríl 2006. 2.4. Garð- ar Eyberg, 19. maí 2011. 3. Guð- leif Sunna Sævarsdóttir, f. 23. apríl 1973. Maki Baldvin Hrafnsson, f. 20. ágúst 1973. Börn þeirra eru: 3.1. Guðmund- ur Hrafn, f. 6. nóvember 1997. 3.2. Sævar Leó, f. 29. febrúar 2004. 4. Jóhanna Bjarndís Sæv- arsdóttir, f. 7. janúar 1980. Maki Rafal Arapinowicz, f. 12. októ- ber 1973. Fyrir á Rafal Karol- inu, f. 9. september 1994, Kamil, f. 1. júlí 1998, og Patrycju, f. 16. desember 2003. Á æskuárum sínum bjó Sævar með foreldrum sínum og yngri bróður í Austur-Landeyjum þar til fjölskyldan flutti til Reykja- víkur árið 1959. Sævar fór í Iðn- skólann í Reykjavík, lauk þar námi sem rennismiður árið 1963. Eftir nám hóf Sævar störf hjá Vélaverkstæði Egils Vil- hjálmssonar, sem hann átti síðar hlut í og starfaði hjá lengst af sinni starfsævi. Hann starfaði lengi með Félagi járniðnaðar- manna og sat í trúnaðarráði fé- lagsins. Útför Sævars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 10. apr- íl 2019, klukkan 15. urðardóttir, f. 14. júní 1964. Maki Þór Þorgeirsson, f. 1. júní 1963. Börn þeirra: 1.1. Álfheið- ur, f. 15. apríl 1981. Maki, Jóhannes Bergþór, f. 27. sept- ember 1971. Börn þeirra eru 1.1.1. Þór Vilberg, f. 22. maí 2009. 1.1.2. Unnur Ísold, f. 15. apríl 2011. Fyrir á Jóhannes Stefán Birgi, f. 18. janúar 1993, og Benedikt Arnar, f. 23. febrúar 1995. 1.2. Bjarni Sævar, f. 15. maí 1992. Maki María Rún, f. 22. sept- ember 1992. Barn þeirra er Sig- urlaug Mía Bjarnadóttir, f. 9. janúar 2017. 1.3. Árni Þór, f. 13. október 1995. Maki Hulda María Albertsdóttir. 2. Ari Eyberg Sævarsson, f. 3. ágúst 1967. Maki, Ásta Ósk Hákonardóttir, f. 17. júlí 1972. Börn þeirra: 2.1. Astrid Eyberg, f. 14. janúar 2002. 2.2. Ernir Eyberg, f. 29. október 2003. 2.3. Ísabella Ey- snillingur til allra verka. Flókið og strítt, skakkt og hnýtt þín smíði hún gerði‘ allt sem nýtt. Hjartað þitt hlýja og ríka hvatti‘ alla til dáða, mig líka. Með ást þinni, gleði og gæsku mér gafstu fullkomna æsku. Þakka þér þúsundfalt pabbi Þess sakna, að ei til þín labbi. Smelli koss þér á kinn og strýk blítt vangann þinn. Ég bið Guð, minn pabba að geyma og gefa‘ honum sína heima. Hann vaggi þér brjóst sitt við verndi og leggi þér lið. Ljós Hans, það glitri og ljómi þig leiði að himneskum ómi. Sem þig umvefur ást og hlýju uns pabbi, við hittumst að nýju. (SBS) Ég kveð þig með söknuði sárum strýk vanga er fljóta í tárum. Þú mig hlaust, hnökralaust Falslaust var okkar traust. Hetjan mín stóra og sterka Ég elska þig, pabbi minn, og þakka þér fyrir allt sem þú hefur ætíð gefið mér af elsku þinni og örlæti. Guð blessi þig og öll þín dásemdarverk. Þín elskandi dóttir, Sólveig Birna. Elsku pabbi minn. Þá er kom- ið að kveðjustund. Þú varst kletturinn minn, traustur og stóðst alltaf við orð þín. Ég hugsaði alltaf þegar ég var lítil að þegar ég myndi giftast, yrði sá maður að vera eins og pabbi. Þú varst svo gáfaður og hæfi- leikaríkur, ég benti á fjall og þú vissir allt um það, alveg sama hvað ég spurði um þá vissir þú svarið. Þú vannst mikið á verk- stæðinu, á laugardögum varstu þar að sjá um bókhaldið og oft kom ég með þér. Þú sagðir sjald- an nei ef ég bað um eitthvað, ef það gerðist þá suðaði ég þar til já-ið kom. Ég man þegar ég var lítil og þú komst örþreyttur úr vinnu og mig langaði svo í bíó á teiknimynd, þú fórst með mig og svafst yfir myndinni. Þú varst alltaf reiðubúinn að skutla mér og sækja, aldrei heyrði ég and- varp. Minningarnar streyma fram og ég gæti skrifað þykka bók um allt það góða sem þú gerðir fyrir mig. Við gerðum heimildarmynd um þig árið 2004, þvílík fjár- sjóðskista að eiga hana fyrir komandi kynslóðir. Ég fékk stærsta lukkupottinn þegar þú fluttir á Hjúkrunarheimilið Sól- tún og á mína deild. Við vorum saman alla daga, mikið brallað saman. Ég, þú og hundarnir mín- ir (sem unnu líka á Sóltúni) átt- um margar gleðistundir saman. Ég var hjá þér, hélt í höndina þína þegar þú tókst síðasta and- ardráttinn. Þegar mamma dó þá hafði ég þig enn hjá mér. Núna ert þú far- inn og er ansi tómlegt. En ég er samt glöð að þið eruð saman á ný. Hér er svo dapurt inni – ó, elsku pabbi minn, ég kem að kistu þinni og kveð þig hinsta sinn. Mér falla tár af trega – en treginn ljúfsár er – svo undur innilega þau einmitt fróa mér. Ég þakka fræðslu þína um það, sem dugar best, er hjálpráð heimsins dvína, og huggað getur mest. Þú gekkst með Guði einum og Guði vannst þitt starf, hið sama af huga hreinum ég hljóta vil í arf. Nú ertu farinn frá mér, en föðurráðin þín, þau eru ávallt hjá mér og óma blítt til mín: Guðs orðum áttu að trúa og ávallt hlýða þeim, það mun þér blessun búa og ber þig öruggt heim. (B.J.) Elska þig og sakna, þín dóttir og örverpi, Jóhanna Bjarndís. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar. Aldrei var neinn svo ástúðlegur eins og þú. Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt. Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn. Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði. Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund. Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Æskunnar ómar ylja mér í dag. (Þorsteinn Sveinsson) Elskulegur pabbi minn er bú- inn að kveðja. Eftir situr stórt skarð í lífi okkar sem við munum reyna að fylla með ljúfum og góð- um minningum og af nógu er að taka. Bíltúrar, ferðalög, göngu- túrar með myndavélina, allar samverustundirnar. Þegar hugsað er til baka þá finnst mér að pabbi minn hafi getað allt, ekkert verið honum ómögulegt. Hvort sem það var að búa eitt- hvað til, laga eða bæta þá gerði hann það. Pabbi var traustur og góður maður, sannkallaður öð- lingur. Hann kunni að gleðjast yfir stóru sem smáu. Honum fannst litlu hlutirnir og það sem manni hættir stundum til að taka sem sjálfsagt stórkostlegt, eins og hann sagði svo oft. Það er mikil gæfa að hafa það viðhorf til lífsins. Pabbi var hrifnæmur, kunni að meta það sem vel var gert, vandað og fallegt. Hann var fróðleiksfús og vel lesinn. Vissi í raun ótrúlega margt um ótrúlega margt. Hvort sem það var landa- fræði og staðhættir, hérlendis sem erlendis, gömul og ný tækni eða sögur og þjóðlegur fróðleik- ur. Hin síðari ár þurfti hann vegna veikinda sinna að reiða sig meira á aðstoð og stuðning barna sinna og tengdabarna. Sá stuðn- ingur var fúslega veittur enda átti hann allt það og meira til inni hjá okkur. Pabbi og mamma áttu kær- leiksríkt hjónaband sem ein- kenndist af ást, virðingu og um- hyggju hvors fyrir öðru og sínum nánustu. Það er mikilvægt vega- nesti fyrir okkur afkomendurna. Við Baldvin hófum búskap í bílskúrnum hjá þeim, sem við standsettum með aðstoð pabba. Þar fór vel um okkur. Eigum margar minningar um góðar samverustundir í Funa- foldinni. Þar voru báðir dreng- irnir okkar skírðir og við giftum okkur þar. Elsku pabbi minn, þótt það sé sárt að kveðja finnum við huggun í því að nú er hugur þinn og lík- ami frjáls. Það var ómetanlegt fyrir okkur sem eftir erum að þú hélst jákvæðninni, glettninni og þinni ljúfu og góðu lund til síð- asta dags. Er þakklát fyrir að hafa fengið að vera með þér og halda í hönd þína til síðustu stundar. Bið algóðan Guð að blessa minningu minna elskulegu for- eldra, Sævars Guðmundssonar og Álfheiðar Bjarnadóttur. Guðleif Sunna Sævarsdóttir. Elsku pabbi Sævar. Þú og mamma Álfheiður tókuð á móti mér með opnum örmum og buðuð mér í fjölskylduna árið 2006 þegar ég kynnti mig sem kærasta yngstu dóttur ykkar, Sævar Guðmundsson Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.