Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.04.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Ástralíu. Hann situr í stjórn alþjóðlega brunavísindafélagsins og er formaður menntamála- nefndar þess félags. Björn er í rit- stjórn tímaritsins Fire Technology og í ritstjórn tímaritsins Inter- national Journal on Engineering Performance-Based Fire Codes. „Ég er hvað ánægðastur með að hafa verið ábyrgur, sem bruna- málastjóri, fyrir eldvörnum Íslend- inga í 18 ár, ásamt öðru góðu fólki, ekki síst 35 slökkviliðsstjórum landsins. Á Íslandi eru helmingi færri dauðsföll, per íbúa, en annars staðar á Norðurlöndunum. Í 10 ár B jörn Karlsson fæddist 10. apríl 1959 í Reykjavík og ólst upp í Laugarnesi. Hann gekk í Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla, varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1980, lauk B.Sc.Hon.-prófi í bygg- ingarverkfræði frá Heriot-Watt University í Edinborg 1985 og doktorsprófi frá Háskólanum í Lundi í brunavarna- og áhættu- verkfræði 1992. Björn starfaði við kennslu og rannsóknir við byggingarverk- fræðideild Háskólans í Lundi í tæpa tvo áratugi, mestallan tímann sem lektor og prófessor. Hann starfaði sem Visiting Professor við University of Maryland 1996. Björn var skipaður bruna- málastjóri og forstöðumaður Brunamálastofnunar árið 2001 og flutti heim til Íslands, og var ráð- inn forstjóri Mannvirkjastofnunar 2011. Síðan 2006 hefur Björn sam- hliða verið hlutastarfandi dósent við umhverfis- og byggingarverk- fræðideild Háskóla Íslands. Björn hefur sinnt varafor- mennsku í Verkfræðingafélagi Ís- lands, verið formaður Lagnafélags Íslands og var formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana 2015- 2018. Hann er formaður foreldra- félags Hagaskóla og varaformaður foreldrafélags Landakotsskóla. Björn situr í stjórn styrktarsjóðs Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur, en hann hefur mikinn áhuga á myndlist sem og íslensk- um bókmenntum, ljóðlist og tón- list. Björn hefur ritað bækur og mik- inn fjölda greina um brunavarnir og áhættuverkfræði, þekktasta rit hans er bókin Enclosure Fire Dynamics sem er gefin út af CRC Press, en hún er kennd í háskólum víða um heim. Björn hefur haldið fjölda fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum, m.a. í Evrópu, Banda- ríkjunum, Kanada, Japan, Kína og hef ég, ásamt góðu fólki á Mann- virkjastofnun, verið ábyrgur fyrir rafmagnsöryggi á Íslandi og þar er staðan eins; hér eru mun færri dauðaslys af völdum rafmagns en annars staðar á Norðurlöndunum, ef tekið er tillit til fólksfjölda. Og ég hef verið ábyrgur fyrir reglu- verki byggingariðnaðarins síðan árið 2011 og þar erum við að þróa mjög skilvirkt rafrænt umhverfi fyrir alla sem starfa í bygging- ariðnaðinum, hönnuði, meistara, byggingarstjóra og byggingarfull- trúa, svo eitthvað sé nefnt. Ég er mjög stoltur að eiga þátt í þessari Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar – 60 ára Forstjórinn Hjá Mannvirkjastofnun og Brunamálastofnun hefur Björn sinnt öryggismálum á sviði brunavarna, rafmagnsöryggis og byggingarmála. Kom heim til að gæta öryggis landsmanna Börnin Frá vinstri: Logi, Birta, Ásta Melrós og Birna Eldey. VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is 50 ára Haf- dís er Vest- manna- eyingur, jógakennari og rekur veitingastaðinn Tangann. Maki: Páll Scheving, f. 1963, verksmiðjustjóri í Fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins. Börn: Ellert, f. 1988, Emma, f. 1992, Gígja, f. 1998, Erna, f. 2000, og Daníel, f. 2000. Foreldrar: Kristján Valur Óskarsson, f. 1946, og Emma Pálsdóttir, f. 1944, bús. í Vestmannaeyjum. Hafdís Kristjánsdóttir 40 ára Guðjón er Reykvík- ingur en býr í Kópavogi. Hann er byggingarverkfr. og burð- arþolshönnuður hjá VSB verkfræðistofu. Maki: Karen Arnarsdóttir, f. 1989, viðskiptafræð- ingur hjá Verifone. Börn: Skarphéðinn, f. 2006, Snorri Hrafn, f. 2008, og Kári Páll, f. 2017. Foreldrar: Magnús Páls- son, f. 1949, og Ingibjörg Sigríður Guðmundsdóttir, f. 1949. Guðjón Magnússon Sé manni „mjög í mun um“ eitthvað er best að byrja á því að losa sig við „um“. Orðtakið hljóðar: e-m er e-ð (mikið/mjög) í mun og merkir að e-n langar til e-s, e-r lætur sig e-ð miklu varða. „Mér er nú heldur í mun að fara heim til mín“ segir í Odysseifs- kviðu. Munur þýðir þarna ósk, löngun eða vilji. Málið Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú gengur fram af miklum krafti og undrast um- burðarlyndi annarra í þinn garð. 20. apríl - 20. maí  Naut Mundu að öllum orðum fylgir ábyrgð svo lofaðu engu nema þú getir staðið við það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er erfitt að sættast á það að maður hafi ekki alltaf rétt fyrir sér. Sá vægir sem vitið hefur meira. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Allt bendir til þess að uppgjör sé í nánd í deilumáli milli þín og góðs vinar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Án nokkurs vafa ertu miðja allrar athygli í fé- lagslífinu. Vertu óhrædd/ur við að reyna nýjar aðferðir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Óvænt tækifæri berst upp í hendurnar á þér og er þér fyrir bestu skoða það vel. 23. sept. - 22. okt.  Vog Samstarfsfólk þitt er óvenju hjálplegt þessa dag- ana og þú ert líka tilbúin/n til að hjálpa því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það eftir þér að skvetta svolítið úr klaufunum en gættu allrar háttvísi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú finnur til mik- illar samkenndar með þeim sem minna mega sín. Sýndu tilfinningum annarra tillits- semi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gerðu allt sem þér er unnt til þess að byggja upp þína eigin sjálfsmynd, í stað þess að rífa þig niður. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Leitaðu eftir að- stoð til að leysa verkefni þitt. Viljastyrkurinn er ekki mikill þessa dagana og líklegt að þú kaupir bara einhvern óþarfa ef þú passar þig ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ef þú vilt ná ein- hverjum árangri skiptir meira máli hvað kemur út úr þér en hvernig þú lítur út. Krossgáta Lárétt: 3) 5) 7) 8) 9) 12) 15) 16) 17) 18) Tossi Læstu Rýra Meiða Öfugt Kæpan Ílöng Liðnu Tám Sagga Sum Tauta Sárar Skapnaður Kerti Apann Arkar Snagi Riða Tarfa 1) 2) 3) 4) 6) 10) 11) 12) 13) 14) Lóðrétt: Lárétt: 1) Ákafur 7) Ættin 8) Magran 9) Askja 12) Stamp 13) Kyrra 14) Glens 17) Vökvar 18) Rauða 19) Reiðir Lóðrétt: 2) Kvartil 3) Forsmán 4) Ræna 5) Stök 6) Anga 10) Styrkti 11) Jarðaði 14) Garm 15) Elur 16) Svar Lausn síðustu gátu 367 6 5 4 1 4 3 8 5 2 9 3 2 4 1 8 4 4 1 2 8 5 9 3 5 8 Sudoku Miðstig Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. 9 3 8 6 5 7 4 2 1 4 1 7 3 2 8 6 9 5 5 6 2 1 4 9 3 8 7 6 9 5 7 1 2 8 4 3 1 8 3 4 9 6 5 7 2 2 7 4 8 3 5 1 6 9 7 4 1 9 6 3 2 5 8 8 5 6 2 7 1 9 3 4 3 2 9 5 8 4 7 1 6 Til hamingju með daginn Ólafsvík Lilja Pa- welsdóttir fæddist 17. ágúst 2018 kl. 21.03 á Akranesi. Hún vó 2.900 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Katarzyna Sandra Uchanska og Pawel Þorkelsson. Nýir borgarar Lausn sudoku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.