Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.04.2019, Qupperneq 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019  Ásgeir Örn Hallgrímsson, fyrrver- andi landsliðsmaður í handknattleik, missir af fyrsta leik Hauka gegn Stjörnunni í úrslitakeppni Íslands- mótsins síðar í þessum mánuði. Ás- geir var í gær úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ vegna rauðs spjalds sem hann fékk í leik liðsins gegn ÍBV á dögunum. Bergvin Þór Gíslason úr ÍR fékk rautt spjald gegn Stjörnunni og spilar ekki fyrsta leik ÍR gegn Selfossi.  Þýska knattspyrnufélagið Augs- burg, sem Alfreð Finnbogason leikur með, rak í gær þjálfarann Manuel Baum, sem hafði stýrt liðinu frá 2016. Liðið er í fimmtánda sæti þýsku 1. deildarinnar, fjórum stigum frá fall- svæðinu. Martin Schmidt er tekinn við þjálfuninni. Hann stýrði áður Wolfsburg og Mainz.  Framherjinn Marcus Rashford get- ur líklega leikið með Manchester Unit- ed í kvöld þegar liðið tekur á móti Barcelona í átta liða úrslitum Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu en hann missti af síðasta leik liðsins vegna meiðsla. Rashford æfði með United í gær, sem og Alexis Sánchez sem hef- ur verið frá keppni í fimm vikur vegna meiðsla. Eitt ogannað FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson Víðir Sigurðsson Íslensku landsliðskonurnar í knatt- spyrnu koma ósigraðar heim frá Suður-Kóreu eftir að hafa gert jafn- tefli, 1:1, í seinni vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Chuncheon í gær. Fyrri leikinn í Yongin á laug- ardaginn vann Ísland 3:2. Suður-Kórea lék þarna síðustu heimaleiki sína fyrir lokakeppni HM í Frakklandi þar sem liðið er í riðli með Frakklandi, Noregi og Nígeríu. Íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega í rigningunni í Chuncheon og skoraði á 22. mínútu. Sigríður Lára Garðarsdóttir átti skot af löngu færi sem fór í þverslána en Rakel Hönnudóttir náði frákastinu og skoraði af stuttu færi með flug- skalla. Sex mínútum síðar jafnaði Ji So- Yun, leikmaður enska liðsins Chelsea, þegar hún skoraði með góðu skoti úr vítateignum. Heima- konur sóttu nokkuð stíft það sem eftir lifði hálfleiksins en íslenska vörnin var vel á verði sem og Sonný Lára Þráinsdóttir í markinu. Berglind Björg Þorvaldsdóttir var hársbreidd frá því að koma Íslend- ingum yfir strax á þriðju mínútu í síðari hálfleik en skot hennar fór í þverslána. Það gerðist ekki mikið það sem eftir lifði leiksins. Mikið var um skiptingar og við það datt botn- inn nokkuð úr leiknum. Suður- Kórea, sem er átta sætum fyrir ofan Ísland á heimslistanum, var sterkari aðilinn en tókst sjaldan að finna glufur á sterkri vörn Íslands og Sonný Lára var öryggið uppmálað á milli stanganna. Fyrri leikurinn var betri „Þessi leikur var kaflaskiptur hjá okkur. Þær voru meira með boltann en náðu ekki að skapa mikið af hættulegum færum. Við spiluðum vel á köflum en héldum boltanum ekki nógu vel innan liðsins,“ sagði Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji Íslands, sem gerði tvö mörk í sigurleiknum á laugardaginn. „Það hefði verið gaman að sjá boltann inni þegar ég skaut í þver- slána og niður því það hefði komið okkur í góða stöðu. Ég sá að mark- maðurinn var framarlega svo ég ákvað að skjóta strax vel fyrir utan vítateiginn,“ sagði Berglind um slá- arskotið í byrjun síðari hálfleiks. „Völlurinn sem við lékum á í dag var ekki góður og það kom niður á báðum liðum. Fyrri leikurinn var betri hjá okkur, þá héldum við bolt- anum betur og náðum að skapa nokkur góð færi. Svo voru 16 þúsund manns á fyrri leiknum en tvö þúsund í dag, þannig að það voru meiri læti í fyrri leiknum og gaman að spila fyr- ir framan allan þann fjölda,“ sagði Berglind við Morgunblaðið.  Á mbl.is/sport er rætt við Fanndísi Friðriksdóttur um 100. landsleikinn og við Jón Þór Hauks- son þjálfara íslenska liðsins. „Hefði verið gaman að sjá boltann inni“  Berglind Björg nærri því að tryggja Íslandi annan sigur á Suður-Kóreu AFP Chuncheon Rakel Hönnudóttir fagnar ásamt Fanndísi Friðriksdóttur eftir að hafa komið íslenska liðinu yfir á 22. mínútu leiksins í gær. Þuríður Erla Helgadóttir setti Ís- landsmet í snörun og í sam- anlögðum árangri í 59 kg flokki kvenna á Evrópumótinu í ólymp- ískum lyftingum sem nú stendur yf- ir í Batumi í Georgíu. Þuríður lyfti þar 87 kílóum í snörun og bætti met sitt þrisvar. Hún náði sér ekki eins vel á strik í jafnhöttun þar sem hún lyfti 102 kílóum og endaði þar með í 14. sæti af 25 keppendum í flokkn- um með 189 kíló samanlagt í þess- um tveimur greinum. Evrópumeist- arinn Rebeka Koha frá Lettlandi lyfti samtals 221 kílói . vs@mbl.is Þuríður setti tvö met í Georgíu Ljósmynd/IWF EM2019 Þuríður Erla Helgadóttir keppti í 59 kg flokknum í Batumi. Chuncheon, vináttulandsleikur kvenna, þriðjudag 9. apríl 2019. Skilyrði: 8 stiga hiti, rigning og vindur. Harður völlur. Ísland: (4-5-1) Mark: Sonný Lára Þráinsdóttir. Vörn: Ingibjörg Sig- urðardóttir (Ásta Eir Árnadóttir 60.), Guðrún Arnardóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir. Miðja: Sandra María Suður-Kórea – Ísland 1:1 Jessen (Selma Sól Magnúsdóttir 60.), Sigríður Lára Garðarsdóttir (Andrea Mist Pálsdóttir 67.), Rak- el Hönnudóttir (Lára Kristín Ped- ersen 67.), Gunnhildur Yrsa Jóns- dóttir, Fanndís Friðriksdóttir (Hallbera Guðný Gísladóttir 76.). Sókn: Berglind Björg Þorvalds- dóttir. Áhorfendur: Um 2.000. 0:1 Rakel Hönnudóttir 22.náði frákastinu þegar Sigríður Lára Garðarsdóttir átti þrumuskot í þverslá og skoraði með skalla af stuttu færi. 1:1 Ji So-Yun 28. með skotiúr miðjum vítateig Ís- lands. I Gul spjöld:Jón Þór Hauksson (Ísland/ þjálfari) 86. (mótmæli).  Fanndís Friðriksdóttir lék sinn 100. A-landsleik fyrir Íslands hönd.  Rakel Hönnudóttir skoraði í báðum leikjunum við Suður-Kóreu og hefur nú skorað 9 mörk í 99 landsleikjum.  Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir var í fyrsta skipti í byrjunarliði Íslands en hún kom inná sem varamaður í sínum fyrsta landsleik þegar liðin mættust síðasta laugardag.  Fjórir leikmenn í íslenska hópn- um spiluðu ekkert í leikjunum tveimur, Bryndís Lára Hrafnkels- dóttir, Svava Rós Guðmunds- dóttir, Elísa Viðarsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir. KOMIÐ Í VERSLANIR ! Stórsniðugur skammtari fyrir stórsekki Hentar fyrir : FÓÐUR - ÁBURÐ - FRÆ - SAGKÖGGLA - SALT FÆST Í VERSLUNUM OKKAR OG Í NETVERSLUN www.fodur.is K YN NIN GARTILBO Ð15% AFSLÁTTUR Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, náði ekki að tryggja sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins eftir 2:1-tap í lokaleiknum í milli- riðli undankeppninnar gegn Hol- landi í gær. Alexandra Jóhanns- dóttir skoraði markið úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur og jafnaði þá 1:1. Ísland hafnar í öðru sæti millirið- ilsins eftir 6:0-sigur á Búlgaríu og 2:2-jafntefli við Rússland. Sigur gegn Hollandi hefði fleytt íslenska liðinu á EM. sport@mbl.is Ísland fer ekki á EM U19 ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Vítaskytta Alexandra Jóhanns- dóttir skoraði mark Íslands í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.