Morgunblaðið - 10.04.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 10.04.2019, Síða 26
VALUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Hannes Þór Halldórsson, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, segir nokkrar ástæður vera fyrir því að hann kýs að flytja heim til Íslands á þessum tímapunkti eftir sex ár er- lendis. Á snærið hljóp hjá Vals- mönnum en Hannes skrifaði undir samning við félagið í gær. Er ekki tjaldað til einnar nætur heldur er samningurinn til fjögurra ára. Hannes tjáði Morgunblaðinu í gær að forgangsatriði hefði verið hjá sér að losna frá Qarabag í Aserbaíd- sjan en þar var hann í frystinum eins og hann orðaði það. Þegar ljóst var að hann gæti losnað þaðan hefði fjöl- skyldan komist að þeirri niðurstöðu að nú væri ágætur tímapunktur til að flytja aftur heim. Dóttir Hann- esar væri til að mynda að komast á skólaaldur. Mögulega hefði verið hægt að skoða fyrirspurnir erlendis en þessi niðurstaða væri best þegar öllu væri á botninn hvolft. Hannes segir nokkur félög hér heima hafa sýnt áhuga en með til- komu ýmissa samskiptamiðla sé svo- lítið erfitt að segja til um hvað sé formlegt og hvað óformlegt. Hann hafi fengið ýmsar fyrirspurnir eftir ýmsum leiðum. „Ég átti alls konar samtöl en það er loðin lína hvað er formlegt eða óformlegt. Ég hafði einhverja sann- færingu fyrir því að Valur væri rétti staðurinn ef ég kæmi heim. Mér finnst vera kraftur í félaginu og hér er einhver stemning sem er áþreif- anleg. Metnaðurinn er mikill. Þeir hafa unnið deildina tvisvar í röð og mikill kraftur í öðrum íþróttum í fé- laginu. Yfir félaginu er atvinnu- mannabragur og aðstaðan er til að mynda flott. Mig langaði að upplifa þessa stemningu,“ sagði Hannes þegar Morgunblaðið ræddi við hann á blaðamannafundi í gær. Anton Ari Einarsson hefur varið mark Vals undanfarin ár með góðum árangri og Sveinn Jóhannesson lék tvo bikarleiki í fyrra. Þeir eru fyrir á bás hjá Val nú þegar Hannes bætist í leikmannahópinn. „Nú erum við með þrjá góða markmenn hérna. Því verður sam- keppni um stöðuna. Anton er með samning við okkur út þetta tímabil. Staðan verður bara tekin á því þegar þar að kemur,“ sagði Ólafur Jóhann- esson, þjálfari Vals, um þetta atriði þegar Morgunblaðið spjallaði við hann í gær. Hannes er áttundi leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals í vetur og sex leikmenn eru farnir. Þar ber hæst að leikmaður ársins í fyrra, Patrick Pedersen, fór til Moldóvu. Stemningin í félaginu er áþreifanleg  Markvörðurinn Hannes Þór Hall- dórsson samdi við Val til fjögurra ára Morgunblaðið/Hari Brosmildur Hannes Þór í Lollastúkunni á Hlíðarenda í gær. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Dominos-deild karla Undanúrslit, annar leikur: Þór Þ. – KR ......................................... 102:90  Staðan er 1:1. 1. deild karla Umspil, annar úrslitaleikur: Hamar – Fjölnir ................................... 88:86  Staðan er 1:1. Evrópubikarinn Fyrsti úrslitaleikur: Valencia – Alba Berlín........................ 89:75  Martin Hermannsson var næststiga- hæstur hjá Alba með 16 stig. Svíþjóð Undanúrslit, fyrsti leikur: Borås – Norrköping ........................... 69:52  Jakob Örn Sigurðarson skoraði ekki fyr- ir Borås. Frakkland Nanterre – Boulazac........................... 68:90  Haukur Helgi Pálsson skoraði tvö stig fyrir Nanterre. KÖRFUBOLTI HK er komið yfir í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í blaki eftir sigur á ríkjandi Íslands-, bikar- og deildarmeisturum KA í fyrsta leik einvígisins í Fagralundi í gær, 3:1. KA vann fyrstu hrinu leiksins 25:23 en HK svaraði með því að vinna þrjár í röð. Þriðja hrin- an var vendipunktur leiksins en hún vannst ekki fyrr en í stöðunni 33:31 fyrir HK sem þá var komið 2:1 yfir í leiknum. Liðin mætast næst í tveimur leikjum í KA-heimilinu á föstudags- kvöld og svo síðdegis á laugardag. HK skellti Íslands- meisturunum Morgunblaðið/Eggert Fyrsti leikur Boltinn í loftinu í Fagralundi í Kópavogi í gær. HK og Fylkir eru komin yfir í rimmunum tveimur um sæti í efstu deild kvenna í handknattleik eftir sigra í fyrstu leikjum umspilsins. HK vann FH 27:24 á heimavelli og Fylkir vann ÍR 24:22 á útivelli. Elna Ólöf Guðjónsdóttir, Díana Kristín Sigmarsdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoruðu allar fimm mörk fyrir HK en Fanney Þóra Þórsdóttir skoraði sjö mörk fyrir FH. Hrafnhildur Irma Jóns- dóttir var markahæst hjá Fylki með níu mörk en hjá ÍR skoraði Silja Ís- berg átta. sport@mbl.is HK og Fylkir unnu fyrstu leikina Morgunblaðið/Eggert 1:0 Díana Kristín Sigmarsdóttir lætur vaða á mark FH í gær. Liverpool tók stórt skref í átt að undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 2:0-sigri á Porto í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitunum á Anfield í gær. Þá er mikil spenna fyrir síðari leikinn í rimmu Tottenham Hotspur og Man- chester City en Tottenham vann í gær í London 1:0. Naby Keita kom Liverpool yfir strax á fimmtu mínútu, en það gaf tóninn fyrir leikinn, þar sem Liver- pool var mun sterkari aðilinn og hefði hæglega getað bætt við fleiri mörkum. Roberto Firmino náði því á 26. mínútu eftir afar snyrtilega sókn. Leikur Tottenham og City var dramatískur í meira lagi. City fékk vítaspyrnu strax á 12. mínútu en Hugo Lloris varði frá Sergio Agüero. Á 58. mínútu fór Harry Kane, lykilmaður Tottenham, meiddur af velli. Hann meiddist á ökkla eftir samstuð við Fabian Delph. Það kom þó ekki að sök, því á 78. mínútu skoraði Heung-Min Son sigurmark Tottenham. AFP 2:0 Roberto Firmino fagnar marki sínu ásamt samherjum á Anfield í gær. Liverpool í góðri stöðu gegn Porto HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM karla: Laugardalsh.: Ísland – N-Makedónía 19.45 KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, þriðji leikur: Blue-höllin: Keflavík – Stjarnan (0:2). 19.15 1. deild kvenna, þriðji úrslitaleikur: Dalhús: Fjölnir – Grindavík (0:2)........ 19.15 BLAK Fyrsti úrslitaleikur kvenna: Fagrilundur: HK – KA ........................ 19.30 KNATTSPYRNA Bikarkeppni karla, Mjólkurbikarinn: Akraneshöll: Kári – Hamar...................... 19 Í KVÖLD! Hin sænska Fanny Sunesson verður kylfuberi hjá landa sínum Henrik Stenson á Mastersmótinu í golfi sem hefst á Augusta Nat- ional á morgun. Sunesson er sest í helgan stein en ákvað að taka slaginn og hjálpa landa sínum, sem er á milli kylfubera. Sunes- son nýtur mikillar virðingar og hefur áður starfað með Stenson en er frægust fyrir samstarfið við Nick Faldo. Sunesson svaraði kalli samlanda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.