Morgunblaðið - 10.04.2019, Side 29

Morgunblaðið - 10.04.2019, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2019 2005 DÖGG GUÐMUNDSDÓTTIR Árið 2005 fóru hnífapör eftir Dögg Guðmunds- dóttur í framleiðslu hjá franska fyrirtækinu Christ- ofle. Hönnuðurinn segir hugmyndina hafa kviknað tíu árum áður þegar hún var í námi á Ítalíu. Þá gerði hún kökuhníf sem hún kallaði „Ponte“ en bogadreg- ið lag hans minnti á Ponte Vecchio-brúna í Flórens. Þegar hnífapörin bættust við fékk serían nafnið „Brú“. Í viðtali í Morgunblaðinu útskýrir Dögg: „Seinna breytti ég hnífapörunum, lækkaði fyrst bog- ann og síðar sneri ég honum við á gafflinum og skeiðinni þannig að þau snúa niður í dag.“ Tíu mismunandi hlutir eru í áhaldaseríunni sem nú ber nafnið „Hekla“ að undirlagi framleiðandans. Áhöldin eru úr ryðfríu stáli og eru enn í framleiðslu og fáanleg hjá www.christofle.com. Dögg er búsett í Danmörku og hannar vörur undir eigin vörumerki Dögg Design. Hún hefur einnig hannað vörur meðal annars fyrir Ligne Roset, Norr 11, B-sweden og Sólóhúsgögn. Íslensk hönnun - Hönnunarsafn Íslands Til hnífs og skeiðar Ljósmynd/ Hönnunarsafn Íslands/Sigríður Sigurjónsdóttir skráði Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækk- andi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan sam- anburð og eru nytjamunir og/ eða skrautmunir. Í tilefni af aldarafmæli full- veldis Íslands setti safnið upp sýninguna 100ár100hlutir á In- stagram þar sem 100 færslur eru birtar á jafnmörgum dög- um af hönnunargripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem 22 atriði voru kynnt til sögunnar, hljómsveitir eða sóló- tónlistarmenn sem bætast við dag- skrá hátíðarinnar í ár sem haldin verður í 21. sinn í miðbæ Reykja- víkur 6.-9. nóvember næstkom- andi. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær rís hljóm- sveitin Seabear, með Sindra Má Sigfússon í fararbroddi, úr átta ára dvala og af öðrum íslenskum listamönnum sem kynntir hafa verið til leiks má nefna Ólöfu Arn- alds, Mammút, JFDR, Huga og Svavar Knút. Af erlendum listamönnum ber fyrst að nefna hina norsku girl in red og munu einnig koma fram Penelope Isles frá Brighton, Pottery frá Kanada og Bretlandi, Úkraínumaðurinn Ivan Dorn og landi hans, rapparinn Alyona Alyona sem er mögulega fyrsti kvenkyns rapparinn frá Úkraínu sem treður upp hér á landi. Þá hefur skoska sveitin Free Love boðað komu sína og Þjóðverjinn Niklas Paschburg. Will Larnach-Jones, rekstrar- stjóri Iceland Airwaves, segir í til- kynningu að í ár verði farið enn nær hjarta og rótum hátíðarinnar. 22 atriði bætast við dagskrá hátíðarinnar Iceland Airwaves Ljósmynd/Cris Almeida Stúlkan Hin norska Marie Ulven kall- ar sig girl in red, eða stúlka í rauðu. Nýir rekstraraðilar tónlistarhátíð- arinnar Secret Solstice sendu frá sér yfirlýsingu í gærmorgun þar sem fram kemur m.a. að hátíðin verði haldin í sumar hvort sem Reykjavík- urborg styðji við hana eða ekki. Há- tíðin verði auk þess sú stærsta og flottasta hingað til. Yfirlýsingin er send vegna um- fjöllunar fjölmiðla um hátíðina und- anfarna daga þar sem hefur m.a. komið fram að hátíðin skuldi hljóm- sveitinni Slayer fyrir tónleika henn- ar á hátíðinni í fyrra. Í yfirlýsing- unni segir að tíu milljóna króna skuld fyrra rekstrarfélags Secret Solstice, sem ágreiningur sé um, komi ekki í veg fyrir að hátíðin verði haldin í ár. „Rétt er að Reykjavíkur- borg svari fyrir um hvað sá ágrein- ingur snýst en um bakreikninga er að ræða. Þá er ennfremur rétt að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borg- arfulltrúi Viðreisnar, skýri frá mik- ilvægi hátíðarinnar fyrir borgina í þessu samhengi en efnahagslegt fót- spor hátíðarinnar er um 1500 millj- ónir á ári og um 8 milljarðar í heild- ina. Reykjavíkurborg hefur hinsvegar leitað til núverandi rekstraraðila vegna skuldar fyrri rekstraraðila í leit að lausn. Þá hefur því verið haldið fram að hátíðin skuldi hljómsveitinni Slayer fyrir framkomu sína á hátíðinni en það er ekki rétt. Umboðsmaður hljómsveitarinnar K2 Agency hefur borið fram reikninga sem fyrri rekstraraðili hátíðarinnar hefur hafnað. Secret Solstice átti í góðum samskiptum við Slayer síðast og hef- ur gert upp framkomulaun (artist fee) hljómsveitarinnar,“ segir í yfir- lýsingunni og að hvorki tónlistar- menn né starfsmenn hafi stefnt há- tíðinni vegna vangoldinna launa fyrri hátíða. Búið er að bóka alla erlenda tón- listarmenn fyrir hátíðina í sumar, semja við hljómsveitir og greiða staðfestingargjöld, skv. yfirlýsing- unni og segir þar ennfremur að eng- inn tónlistamaður hafi afboðað komu sína. Enn á eftir að tilkynna um nokkra tónlistarmenn og hljóm- sveitir sem koma fram á hátíðinni í sumar. Segja Secret Solstice haldna með eða án stuðnings Reykjavíkurborgar Morgunblaðið/Árni Sæberg Grjótharður Kerry King á tónleik- um Slayer á Secret Solstice 2018. Glæpasagan Heltekin erfrumraun Flynn Berry áþessu sviði og verður ekkiannað sagt en að hún lofi góðu um fram- haldið. Stígandi er í frá- sögninni og endahnúturinn faglegur. Nora Lawrence, sem býr í Lundúnum, kemur að líki Rachel, systur sinnar, á heimili hennar í þorpinu Marlow, skammt frá Ox- ford. Rannsókn lögreglu virðist engu skila og Nora tekur til eigin ráða. Eftir því sem hún veltir við fleiri steinum þeim mun ljósara verður fyrir henni að Rachel hafi leynt ýmsu og hrein- lega logið að henni. En þá er ekki öll sagan sögð, því líkindi eru með morð- inu og árás á Rachel fimmtán árum fyrr auk þess sem lögregla dregur vinskap systranna í efa. Flynn Berry dregur upp trúverð- uga mynd af fámenninu, þar sem fátt er við að vera nema slúðra um náung- ann. Morðið á Noru vekur minni at- hygli en andlát Callum, ungs fótbolta- manns í þorpinu, í kjölfar bílslyss um tveimur mánuðum áður. Lögreglan er fámenn og hefur öðrum mikilvæg- ari hnöppum að hneppa en að ein- beita sér að málinu, að því er virðist. Ofbeldi svífur yfir vötnunum. Nokkr- ar persónur eru grunsamlegar og hegðun þeirra ýtir undir sekt frekar en sakleysi. Á sama tíma er nauðgari dæmdur saklaus og fórnarlambinu, 15 ára stúlku, kennt um. Bókin kom fyrst út á ensku 2016. Þráðurinn er skemmtilega ofinn og eftir því sem Nora sökkvir sér dýpra í málið þeim mun flæktari verður hún í það. Hún verður margs vísari en er föst í vefnum. Höfundur sýnir góða spretti og hnýtir að síðustu lausa enda á óvæntan hátt. Í stuttu máli er Heltekin vel uppbyggð saga um af- brot, þar sem ástir og ævintýri flétt- ast saman við skipbrot og harmleik. Fleiri en ein hlið á öllum málum Glæpasaga Heltekin bbbnn Eftir Flynn Berry. Þýðandi: Hermann Stefánsson. Kilja. 303 bls. JPV útgáfa 2018. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Ágætis byrjun Glæpasagan Heltekin er fyrsta bók Flynn Berry.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.