Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 05.04.2019, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Að setja nokkrar friðarliljur í fallegan pott er gjöf sem hittir í mark. Friðarliljur fást m.a. í Blómaval. Kosta 1.579 kr. stykkið. Himneskt teppi frá Dorma. Kostar 4.290 kr. Carla skálin frá Day Home er falleg. Fæst í Heimahúsinu. Kostar 5.800 kr. Huggu- legar brúðar- gjafir Að kaupa brúðargjafir getur verið ótrúlega skemmtilegt, ér í lagi ef maður þekkir brúðhjónin vel og smekk þeirra. Margir hafi tekið upp á því að velja gjafir úr verslunum og búa þannig til gjafalista. Þessar gjafir eru vinsælar núna í brúðargjafir. Napoleon lampi frá PB Home fæst í Heimahúsinu. Kostar 27.700 kr. Globe Ginger Bread blómapottur fæst í Epal. Kostar 6.950 kr. Borðlampi Jwda light sem fæst í Epal. Kostar 26.500 kr. Skurðarbretti frá Day Home fæst í Heima- húsinu. Kost- ar 10.600 kr. Það ættu allir að eiga einn iitala pott. Þessi fæst í Casa. Kostar 36.900 kr. Gestalten Evergreen bókin fæst í Haf Store. Kostar 7.900 kr. Launge borð- stofustóll fæst í Norr 11. Kostar 114.900 kr. Huggu- legir klukku- vísar fást í Heimahús- inu. Kostar 8.400 kr. U m leið og brúðhjón sleppa dúfunum eft-ir athöfnina sveima þær nokkra hringiyfir þeim og gestum þeirra og fljúga síðan heim á leið,“ segir Ragnar Sigurjónsson, sem hefur verið að rækta dúfur fyrir svona at- hafnir í brúðkaupum í áratug. „Þegar ég færi brúðhjónum hvítu dúfurnar útskýri ég fyrir þeim þessa brúðkaupshefð og bið þau að bera fram ósk í hljóði um leið og þau sleppa dúfunum.“ Stórkostlegt augnablik sem allir muna eftir Ragnar segist hafa farið af stað með þessa hugmynd á sínum tíma eftir að hafa séð svona athöfn í erlendri kvikmynd. Hann segir Bandaríkjamenn sem dæmi duglega að nýta sér hvítar dúfur í brúðkaupum. Eins er venjan viðurkennd t.a.m. á Bretlandi svo dæmi séu tekin. Hver man ekki eftir brúðkaupi þeirra Dav- ids og Viktoríu Beckham sem giftu sig í einu íburðarmesta hóteli Írlands. Athöfnin sjálf fór fram í kapellu í garðinum sem er nefnd eftir Viktoríu Bretadrottningu. Eftir athöfnina var einmitt hundrað hvítum dúfum sleppt og hófu þær sig til flugs yfir höfuð hinna 236 veislu- gesta. Stórfenglegt augnablik sem líður fólki seint úr minni. Hvítar dúfur tákna hamingju og gæfu Að sleppa hvítum dúfum eftir athöfn í kirkju boðar frið, hamingju og gæfu í hjónabandinu. Á Íslandi geta brúð- hjón leigt hvítar dúfur sem þau sleppa eftir athöfnina. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hvítar dúfur boða frið og hamingju. Er til eitt- hvað rómantískara á brúðkaupsdaginn?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.