Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Síða 2
Hvernig kom það til að þú fórst að stýra
ferða- og útivistarvef?
Þetta hefur svo sem verið draumur hjá mér lengi að vinna
að verkefni sem þessu. Eftir að ég hætti í morgunútvarp-
inu á K100 var þetta kjörið tækifæri fyrir mig. Ég hef
gert tvær sjónvarpsseríur fyrir Stöð 2 um útivist og heilsu
enda eru þetta einar af mínum stærstu ástríðum og því þakk-
lát að fá að vinna við það.
Áttu þér uppáhaldsárstíð?
Hver árstíð hefur sinn sjarma en mér finnst náttúran fallegust
þegar hún er hulin glitrandi snjó í fallegu og sólríku veðri.
Jöklaferð eða sólarferð?
Ég var uppi á Svínafellsjökli fyrir nokkrum dögum í glamp-
andi sól og hef sjaldan verið hamingjusamari en í þessu fal-
lega umhverfi. Mér finnst jöklar vera fegursta nátt-
úruundrið og fæ aldrei nóg af því að horfa á þá og heillast af
þeim.
Hvað drífur þig áfram á ferðalögum?
Ætli ég sé ekki forvitin að sjá eitthvað nýtt sem nærir mig
andlega. Mér finnst óskapleg gott að fara út í náttúruna og anda að
mér nýrri og ferskri orku. Einnig held ég að það sé einmitt forvitnin
sem rekur mig á milli landa, ég er stanslaust að læra eitthvað nýtt og
lifi fyrir það að víkka sjóndeildarhringinn.
Eru einhver ferðalög framundan hjá þér á næstunni?
Ég er einmitt í þessum skrifuðu orðum að fara út úr bænum. Mér
finnst mikilvægt að synir mínir tengi við fegurð íslenskrar náttúru.
Við ætlum að byrja á því að fara á kajak á Stokkseyri og kíkja svo að-
eins upp á jökul en þeir eru að fara í fyrsta skiptið í smá jöklagöngu.
Morgunblaðið/Ásdís
FRIÐRIKA HJÖRDÍS GEIRSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hamingjan í
hámarki á jökli
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.4. 2019
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Ég er uppgefin, þetta er svo lýjandi. Það má eiginlega segja aðheilsugæslan, félagsþjónustan og BUGL hafi hundsað heilsufars-vanda dóttur minnar, útilokað hana frá því að fá hjálp, fyrir þær
sakir að hún passar ekki inn í kerfið þeirra vegna einhverfunnar, passar
ekki inn í níðþröngu boxin.“
Svona kemst móðir unglingsstúlku að orði þegar hún ræðir við Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins í dag um
erfiða stöðu dóttur sinnar sem ný-
lega greindist einhverf. Í síðustu
viku birtum við viðtöl við nokkrar
konur sem hafa fengið einhverfu-
greiningu á fullorðinsaldri. Þar
var fjallað um mikilvægi þess að
greina einhverfu fyrr, einkum hjá
stúlkum. Svo virðist sem þær rati
síður inni í greiningarferli en
strákar og því uppgötvist síðar á
ævinni að þær séu á einhverfurófi.
Móðirin sem rætt er við í blaði
dagsins bendir hins vegar á að
gagnslítið sé að greina stúlkurnar
ef ekki eigi að hjálpa þeim. Hún
kemur ekki fram undir nafni af
tillitssemi við dóttur sína en vill
gjarnan greina frá stöðu fjölskyld-
unnar megi það verða til þess að
eitthvað breytist í þessum efnum
og fleiri sem þurfi fái hjálp við hæfi.
Fjórtán ára dóttir hennar lokar sig af og foreldrarnir hafa fengið þau
svör að hún verði að fá sérhæfða sálfræðiþjónustu – en þá þjónustu er
hins vegar vandkvæðum bundið að fá. Á meðan foreldrarnir leita að úr-
ræðum sem duga versnar ástand dótturinnar og einangrunin verður
meiri.
Því miður er þetta saga margra. Foreldrar í öngum sínum á hlaupum
innan kerfisins en rekast á veggi á meðan börnum þeirra líður verr og
verr.
Þetta á ekki að þurfa vera svona erfitt. Börn sem þjást eiga einfald-
lega að fá alla þá hjálp sem þau þurfa á að halda svo þau geti blómstrað
í samfélaginu. Á því græða allir.
Einhverfa –
en hvað svo?
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Því miður er þettasaga margra. For-eldrar í öngum sínum áhlaupum innan kerfisins
en rekast á veggi á meðan
börnum þeirra líður verr
og verr.
Þetta á ekki að þurfa vera
svona erfitt.
Heiður Heimisdóttir
Mjög vel, ég er reyndar í fæðing-
arorlofi en mér líst mjög vel á þá.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
líst þér á
kjarasamn-
ingana?
Haraldur Sæmundsson
Mér líst mjög vel á þá. Nú á eftir að
sjá hvernig við útfærum styttingu
vinnuviku og launabreytingar.
Sunna Björk Ívarsdóttir
Ég veit lítið um þetta. Hef ekki
fylgst með þessu.
Þorsteinn Surmeli
Ég er glaður fyrir hönd þeirra sem
náðu að semja og það virðast allir
vera glaðir og þá er ég glaður.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Friðrika Hjördís Geirsdóttir er fjölmiðlamanneskja með ástríðu fyrir ferðalögum
og útivist. Hún ritstýrir ferða- og útivistarvef mbl.is og vefnum Iceland Monitor.