Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Qupperneq 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.4. 2019 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Skinnhúfa kr. 19.800 Vargur kr. 37.000 Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Hálsmen kr. 13.900 Hérna erum við að tala saman Bókaðu 8–120 manna fundarými á góðu verði Nánar á harpa.is/fundir Öll höfum við orðið vör viðhina gífurlegu fjölgunferðamanna á Íslandi síð- ustu árin. Við erum að fá í heimsókn til Íslands um og yfir tvær milljónir ferðamanna. Hvað er það sem gerir það að verkum að svo margir koma hingað? Er það vegna þess að Ísland er ódýr ferðamannastaður? Nei, ekki leng- ur! Hvað er það þá? Jú, okkar stór- kostlega náttúra. Fjöllin, firðirnir, fossarnir, Þingvellir, hvalirnir, vötn- in, heita vatnið og Strokkur. Ferða- mönnum finnst einnig mikið til koma okkar frábæru sundlauga sem eru um allar byggðir landsins. Hver með sinn sjarma og oft frábæra staðsetn- ingu. Góður árangur íþróttalands- liða hefur efalaust haft sitt að segja og þættir eins og Ófærð eiga líka sinn þátt í að markaðssetja landið og náttúruna. Ófáir Norðmenn hafa tal- að við mig um þáttinn, bæði landslag og leikara. Þar að auki er maturinn góður og veitingahús eru vel sótt allt árið. Það má nefna flotta staði sem hafa sér- hæft sig í að matreiða okkar frábæra fisk, eins og veitingahúsið Messann. Eða önnur veitingahús eins og Kop- ar sem bjóða upp á okkar bragðgóða lambakjöt, „fjallalambið“, fisk og annað gómsæti. Orka, vatn og matur má segja að verði mikilvægustu auðlindir fram- tíðarinnar. Þess vegna er þróun á landbúnaði og ræktun gífurlega mikilvæg fyrir framtíðina. Mikil- vægt er að við pössum vel upp á okk- ar stórkostlegu náttúru og auðlindir, bæði til hafs og lands. Það að geta boðið upp á „fjallalamb“ sem elst upp úti í íslenskri náttúru hlýtur að vera eitthvað sem við getum mark- aðssett á heimsvísu sem gæðavöru, eins og Norðmenn markaðssetja sinn lax um allan heim. Ef skoðaðar eru kenningar um nám og taugavísindi (eins og kenn- ingu Edelmans) þá er lykilatriði að þróun færni og kunnáttu þarfnast mikillar þjálfunar og reynslu til að skapa taugafræðileg net, nokkurs konar „snaga“. Á unga aldri er mik- ilvægt að börnin fái fjölbreytt áreiti og öðlist þannig og skapi marga litla snaga með yfirborðskenndri þekk- ingu, sem geta síðan orðið stórir og sterkir fyrir dýpri þekkingu og kunnáttu. Við þurfum að efla nátt- úrufræðiáhuga hjá börnum og ung- lingum. Það þarf að byrja skipulagða innleiðingu og kennslu strax í leik- skólum landsins. Þar fengju börnin fræðslu í gegnum til dæmis 10 klukkustunda dagskrá þar sem farið væri yfir bæði dýr, fugla, skordýr, orma, fiska, hafið, landið og gróður. Markmiðið væri kennsla þar sem börnin fengju að kynnast hverju við- fangsefni á sem bestan og árangurs- ríkan hátt með því að snerta og prófa. Síðan þyrfti markvisst átak til að fá fleiri nemendur til að velja nám sem tengist þessu gífurlega mikil- væga sviði fyrir framtíðina, þar sem umhverfismál og sjálfbærni eru í brennidepli úti um allan heim. Norðmenn hafa virkilega tekið á þessum málum með stóreflingu Um- hverfisháskólans í Ås og fjölgun há- skólafaga í öðrum háskólum sem tengjast umhverfi, umhverfisvernd og sjálfbærni. Eflum náttúrufræðikunnáttu – tendrum loga. Náttúra og náttúrufræði Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is ’ Við þurfum að eflanáttúrufræðiáhugahjá börnum og ungling-um. Það þarf að byrja skipulagða innleiðingu og kennslu strax í leik- skólum landsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gjaldþrot WOW air er áfall sem sviptirfjölda fólks lífsviðurværi og hagkerfiðí heild sinni dýrmætum tekjum. Það er mikil eftirsjá að þessu fyrirtæki sem stuðl- aði með margvíslegum hætti að bættum lífs- kjörum og auknum lífsgæðum á Íslandi. Ferðaþjónustan mun til skemmri tíma verða fyrir töluverðu höggi. Að óbreyttu er talið að brotthvarf WOW air valdi því að erlendum ferðamönnum fækki um um það bil 300 þúsund á árinu, en önnur flugfélög munu fylla það skarð að einhverju leyti með því að auka sæta- framboð. Þessi málalok áttu sér töluvert langan að- draganda eins og allir landsmenn fylgdust með. Sú staðreynd stuðlaði að tvennu. Annars vegar mildaði þetta höggið vegna þess að fé- lagið byrjaði sjálft að draga verulega saman seglin. Hins vegar höfðu stjórnvöld svigrúm til undirbúnings. Stjórnvalda að bregðast við með ábyrgum hætti Eins og fyrirsjáanlegt var reyna sumir stjórn- arandstæðingar að nýta sér þessa atburði til að pota í ríkisstjórnina með frekar ódýrum og ótrúverðugum hætti. Sumir þeirra segja að áætlanir hennar hafi aðeins gengið út á að koma strandaglópum til síns heima, sem sé ekki einu sinni hlutverk stjórnvalda. Þeir hinir sömu ættu endilega að koma því á framfæri við bresk stjórnvöld, sem stóðu frammi fyrir því að ríflega 100 þúsund manns urðu stranda- glópar þegar flugfélagið Monarch fór á haus- inn og eyddu gífurlegum fjármunum í að koma þeim til síns heima. Að sjálfsögðu er það hlut- verk ábyrgra stjórnvalda að leggja mat á þá ringulreið og tilheyrandi álitshnekki fyrir landið sem getur orðið við verstu mögulegu að- stæður, ef áfall sem þetta verður á versta mögulega árstíma og versta mögulega tíma dags, og teikna upp mögulegar leiðir til að milda þá stöðu. Merkilega þrautseigar eru líka raddir um að stjórnvöld hefðu átt að freista þess að bjarga fé- laginu. Gefið er í skyn og eiginlega fullyrt að ein- hver tiltekinn fjöldi milljarða hefði dugað til að gera félagið lífvænlegt. Ef sú hefði verið raunin hefðu fjárfestar gripið tækifærið á markaðs- legum forsendum. Horfa má til fordæmisins um Air Berlin, sem var gríðarlega stórt og mik- ilvægt flugfélag. Þýsk stjórnvöld reyndu ekki að bjarga því félagi. Þau veittu því lán, en ekki til að bjarga því heldur eingöngu til að kaupa svigrúm, örfáar vikur, svo að hægt yrði að selja eignir þess. Til stóð að lánið fengist að fullu endurgreitt en þýskir fjölmiðlar hafa síðar haldið því fram að þriðjungur?/töluverður hluti þess hafi tapast. Aukið sætaframboð mikilvægast Miklu skiptir að reyna að milda höggið sem verður til skamms tíma, það er að segja á þessu ári. Að mínu mati skiptir þar mestu að auka sætaframboð til landsins. Ísland er án nokkurs vafa á kortinu sem vinsæll áfanga- staður erlendra ferðamanna. Kynningar- og markaðsátak gæti vissulega skilað árangri og kemur að sjálfsögðu til skoðunar en ef sama krónan gæti annaðhvort gert 500 manns meðvitaða um Ísland eða orðið til þess að fjölga flugsætum hingað til lands um 500 þá yrði hið síðarnefnda auðvitað fyrir valinu. Í mínum huga leikur enginn vafi á því að ferðaþjónusta verður áfram ein af und- irstöðuatvinnugreinum okkar. Það gerum við með því að huga sérstaklega að því að leggja áherslu á arðsemi framar fjölda ferðamanna. Langtímaverkefni ferða- þjónustunnar er sjálfbærni Öll viðleitni okkar í ráðuneyti ferðamála miðar að því að efla greinina á forsendum sjálfbærni. Sjálfbærni er bara orð þar til settir eru fram mælikvarðar. Í störfum mínum hef ég lagt áherslu á þetta og birtist hún í okkar helstu verkefnum sem eru:  Endurskoðun á langtímastefnumótun í ferðaþjónustu í samráði við greinina og sveit- arstjórnarstigið  Viðamikið álagsmat á tugi mælikvarða samfélagslegra, umhverfislegra og efnahags- legra innviða, til að stuðla að upplýstari ákvarðanatöku og forgangsröðun  Efling rannsókna og gagnaöflunar  Bæta stafræna tækni í ferðaþjónustu  Uppbygging innviða á vegum Fram- kvæmdasjóðs ferðamannastaða og Lands- áætlunar um innviðauppbyggingu  Nýjar áfangastaðaáætlanir landshlutanna, innleiðing þeirra og framkvæmd  Barátta gegn ólöglegri starfsemi, svo sem með heimagistingarvakt Það er mín bjargfasta trú – og hún bygg- ist á trú minni á frjálst framtak – að til lengri tíma muni aðrir fylla upp í það skarð sem WOW air skilur eftir sig að því marki sem starfsemi þess var sjálfbær. Í þessum orðum felst trú á framtíð Íslands sem fyrsta flokks áfangastaðar ferðamanna og á framtíð íslenskrar ferðaþjónustu sem einn- ar af okkar mikilvægustu undirstöðu- atvinnugreinum. Ferðaþjónusta verður áfram undirstöðuatvinnugrein ’Í mínum huga leikur eng-inn vafi á því að ferða-þjónusta verður áfram ein afundirstöðuatvinnugreinum okkar. Það gerum við með því að huga sérstaklega að því að leggja áherslu á arðsemi fram- ar fjölda ferðamanna. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.