Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Síða 14
HEILBRIGÐISMÁL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.4. 2019 R íflega þúsund manns voru á biðlist- um eftir liðskiptaaðgerð þegar síð- ustu tölur um listana voru gefnar út hjá landlækni í október 2018. Þær tölur segja þó aðeins til um þá sem þegar hafa fengið úr því skorið hjá lækni að þeir þurfi á aðgerð að halda. Áður en fólk kemst á biðlista eftir aðgerð þarf það oft að bíða upp undir ár eftir að komast í viðtal til sérfræðings. Þannig má segja að töl- ur um bið skekkist nokkuð ef aðeins er horft á seinni biðlistann; þann biðlista sem sjúklingur kemst á eftir að hann fer í viðtal til sérfræðings. Bæklunarskurðlæknir sem blaðamaður ræddi við telur líklegt að um 500 manns geti verið á bið eftir að komast í viðtal. Samkvæmt skýrslu landlæknis er biðtími á göngudeild bæklunarlækna á bilinu 6-8 mán- uðir á Landspítala og hefur lengst frá upphafi árs 2018. Styttri biðlistar í viðtal hjá sérfræð- ingi voru á Akureyri, eða einn og hálfur mán- uður, á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akra- nesi tíu dagar og hjá Klíníkinni í Ármúla innan við mánuður. Það er ekki fyrr en fólk er búið að komast í viðtal til sérfræðings að það fær gefna upp dag- setningu á væntanlegri aðgerð, þurfi það á henni að halda. Þá fyrst er það komið á biðlista eftir aðgerð þótt biðin þar á undan geti hafa verið löng og ströng. Samkvæmt viðmið- unarmörkum Embættis landlæknis um ásætt- anlegan biðtíma á aðgerðin að vera innan 90 daga og er miðað við að 80% sjúklinga komist í aðgerð innan þess tíma. Í skýrslu landlæknis frá október 2018 er farið yfir stöðu á biðlistum eftir völdum skurð- aðgerðum. Aðgerðastaðir eru þá beðnir um upplýsingar og m.a. er óskað eftir þeim heild- arfjölda á biðlista og þeim fjölda sem beðið hef- ur lengur en þrjá mánuði. Ef skoðaðir eru þeir sem bíða eftir mjaðmaskiptaaðgerð, hafa sjö af tíu verið lengur en þrjá mánuði á biðlista á þeim þremur aðgerðarstöðum sem taka þátt í bið- listaátakinu. Hjá sjúklingum sem bíða eftir hnéskiptum hafa ríflega tveir af þremur beðið lengur en þrjá mánuði. Legurými af skornum skammti Biðlistaátakið, sem hófst árið 2016, er þó sagt hafa skilað árangri. Á vef landlæknis segir um stöðu á biðlistum í desember 2018 að staðan hafi lagast töluvert frá upphafi átaksins. „Á heildina litið hefur biðlistaátakið skilað miklum árangri. Aðgerðum hefur fjölgað mikið og bið- tími hefur styst þrátt fyrir að hann sé enn of oft yfir viðmiðunarmörkum. Á sama tíma og átak- ið hefur staðið yfir hefur þörfin fyrir sumar að- gerðir aukist sem lýsir sér í auknu innflæði sjúklinga á biðlista eftir þeim aðgerðum. Þá hafa ýmsir þættir dregið úr afkastagetu sjúkrahúsanna, s.s. lokun rúma, skortur á hjúkrunarfræðingum og frestun aðgerða. Einnig hefur áhrif hversu margir þeir ein- staklingar eru sem lokið hafa meðferð á Land- spítala og bíða eftir þjónustu annars staðar, svo sem hjúkrunarrými, endurhæfingu eða bú- setuúrræði.“ Sjúklingar fá dagsetningu aðgerðar en lenda svo í að aðgerðinni sé frestað. Landlæknir leit- aði að ástæðum fyrir því. Það sem veldur frest- unum er oft bráðaaðgerðir sem verða að ganga fyrir, skortur er á starfsfólki (og ekki er þá hægt að innrita eins marga sjúklinga og ætti að vera pláss fyrir) og síðast en ekki síst er ekki pláss á deild vegna sjúklinga sem eru tilbúnir að útskrifast af deildinni en skortir önnur úr- ræði. Að auki vantar einnig oft legurými á gjör- gæslu. 770 mjaðmaaðgerðir Biðlistaátakið hefur stytt biðtíma í liðskipta- aðgerðir á mjöðm en betur má ef duga skal. Í október árið 2015 biðu til að mynda 523 ein- staklingar eftir aðgerð en í október 2018 voru þeir 337. Á síðasta ári voru gerðar í kringum 770 liðskiptaaðgerðir á mjöðmum hér á landi á þremur stöðum; LSH, Akureyri og Akranesi. Þegar biðtími eru skoðaður er gjarnan mið- að við miðgildi biðtíma en það segir til um hve- nær 50% þeirra sem fóru í aðgerð höfðu komist að. Miðgildi biðtíma er nokkuð misjafn eftir heilbrigðisstofnunum; á Landspítala fór mið- gildi biðtíma úr 36 vikum árið 2015-2016 í 21 viku árið 2017-2018. Af 491 sem fór í aðgerð á Landspítala á síðasta ári, beið helmingur því 21 viku eða lengur, a.m.k. fimm mánuði. Biðtími á HVE (Akranesi) hefur farið vaxandi og á síð- asta ári beið helmingur þar a.m.k. 14 mánuði. Á Akureyri var miðgildi biðtíma á síðasta ári 19 vikur. Helmingur þeirra 212 sem fóru í að- gerð hafði því beðið í rúma fjóra mánuði þegar aðgerðin var gerð. Eins og fyrr segir er hér að- eins verið að horfa á seinni biðlistann en und- anskildir eru þeir sem enn hafa ekki komist í viðtal. Einnig er hér ekki tekið með í reikning- inn að 200 manns hafa farið í liðskiptaaðgerð á Klíníkinni á síðustu tveimur árum og fjöldi manns farið til útlanda. Leitað var upplýsinga hjá Sjúkratryggingum Íslands um fjölda þeirra sem farið hafa utan í aðgerðir en ekki fengust svör við því áður en blaðið fór í prent- un. Biðtími umfram viðmiðunarmörk Varðandi hnéaðgerðir hefur í heild þeim sem bíða aðeins fækkað. Í október 2015 voru 844 á biðlista en í október 2018 voru þeir 703. Verulega hefur fækkað þeim sem beðið hafa í tólf mánuði eða lengur. Einnig hefur fækkað í hópi þeirra sem beðið hafa í sex mánuði eða lengur. Á síðasta ári voru gerðar hér á landi 734 hnéaðgerðir (frá okt. 2017 til okt. 2018) en eins og fyrr segir er svipaður fjöldi á biðlista, eða 703. Í skýrslu landlæknis segir: „Þegar að- gerðarfjöldi á ári er svipaður og fjöldi á biðlista verður biðtími langt umfram viðmiðunarmörk um að 80% komist í aðgerð innan þriggja mán- aða.“ Miðgildi þeirra sem biðu eftir hnéaðgerð er ólíkt eftir þessum þremur aðgerðastöðum. Frá okt. 2015 til loka sept. 2016 var miðgildi bið- tíma á Landspítala 63 vikur en 33 vikur hjá þeim sem fóru í aðgerð frá okt. 2017 til okt. 2018. Þannig beið um helmingur þeirra 447 einstaklinga sem þar fóru í aðgerð 2017-2018 í rúma sjö mánuði eftir aðgerð, þó svo að biðtím- inn hafi styst um helming frá árunum á undan. Miðgildi biðtíma þeirra 90 sem fóru í aðgerð á HVE frá okt. 2017 til okt. 2018 var 64 vikur. Þannig biðu 50% a.m.k. tæpa 15 mánuði eftir aðgerð. Á Akureyri var miðgildið 24 vikur og komst þá helmingur þeirra 197 sem þar fóru í hnéskipti í aðgerð eftir rúma fimm mánuði. Hægt að sækja þjónustu erlendis Í reglugerð heilbrigðisráðuneytis um lækn- ismeðferð sem ekki er unnt að veita hér á landi segir: „Sé sjúkratryggðum brýn nauðsyn á læknismeðferð erlendis, vegna þess að ekki er unnt að veita honum nauðsynlega aðstoð hér á landi, greiða Sjúkratryggingar Íslands kostn- að við meðferðina. Sama gildir um kostnað við lyf og læknishjálp sem nauðsynleg er erlendis í tengslum við meðferðina. Meðferðin skal vera alþjóðlega viðurkennd og byggjast á gagnreyndri þekkingu á sviði læknisfræði, sbr. 44. gr. laga um sjúkratryggingar.“ Sjúklingur sem þarf að bíða lengur en í þrjá mánuði eftir nauðsynlegri aðgerð má því leita sér læknishjálpar til annarra landa innan EES-svæðisins, treysti viðkomandi sér til þess að ferðast milli landa. Umfjöllun um liðskiptaaðgerðir heldur áfram næsta sunnudag þegar birt verða viðtöl við bæklunarskurðlækna og sjúkling sem fengið hafði heimild til að fá aðgerð í Svíþjóð niðurgreidda af Sjúkratryggingum Íslands en mátti svo ekki ferðast þegar til kom. Morgunblaðið/Ásdís Yfir þúsund bíða aðgerða Þrátt fyrir biðlistaátak sem staðið hefur yfir í þrjú ár biðu 1.040 manns eftir að komast í liðskipti á hné eða mjöðm í október síðastliðnum. Margir sjúklingar kjósa að fara til útlanda í aðgerðir á grundvelli þriggja mánaða reglu og enn aðrir kjósa að borga sjálfir fyrir aðgerð á einkastofnun til að sleppa við biðina löngu. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.