Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2019, Qupperneq 28
Níundi áratugur síðustu aldarvar þekktur fyrir óhóf, glysog glamúr og hljómsveitin Mötley Crüe var þar fremst í flokki með sitt túperaða hár. Aðalstaðurinn var Sunset Strip í Hollywood og rokk og ról réð ríkjum, rokk af þeirri gerð þegar menn gengu í þröngum buxum og deildu fataskáp með kær- ustunum sínum. Kvikmyndin The Dirt sem kom nýlega inn á Netflix segir sögu hljómsveitarinnar. Mynd- in er byggð á metsölubókinni, The Dirt: Confessions of the World’s Most Notorious Rock Band, ævisögu Mötley Crüe frá 2001. Neil Strauss skráði söguna með aðstoð frá hljóm- sveitarmeðlimunum. Douglas Booth leikur bassaleikarann Nikki Sixx, Colson Baker, betur þekktur sem rapparinn Machine Gun Kelly, leik- ur trommarann Tommy Lee, Iwan Rheon er gítarleikarinn Mick Mars og Daniel Webber fer með hlutverk söngvarans Vince Neils. Eiturlyfjanotkun, óhófleg drykkja, partí og kynlíf er allt meðal þess sem einkenndi líf þeirra framan af ferlinum. „Ég notaði heróín fyrir yfir þús- und dali á dag og það fór ábyggilega eitthvað svipað í kókaín og alkóhól. Ég var á hraðri niðurleið og stefndi í gjaldþrot eða dauða. Það var erfitt að horfa upp á þetta í myndinni,“ sagði Sixx við USA Today. Þetta eru engar ýkjur því bassa- leikarinn tók of stóran skammt af heróíni en það tókst að endurlífga hann. Allt þetta er í kvikmyndinni og miklu meira til enda gerðist margt ófallegt og sorglegt í lífi þeirra, sem þeir vildu að yrði ekki sleppt. Sixx var spurður í viðtali við Kerr- ang hvernig mögulegt hefði verið að lifa lífi sem samanstóð af tónleikum, kókaíni, alkóhóli, pillum, stripp- búllum og einkaþotum. Hann svar- aði því til að það væri í raun ekki hægt. „Við þurftum að aflýsa Evr- óputúr vegna þess að ég átti við eiturlyfjavandamál að stríða. Við kláruðum batteríin og rákumst á vegg. Þetta hafði slæm áhrif á hljóm- sveitina og ferilinn. Okkur fannst að við gerð myndarinnar ættum við ekki að líta framhjá þessu og gera mynd sem léti öllum líða vel eða líka við sveitina, það væri ekki hrein- skilin kvikmyndagerð,“ sagði Sixx sem vildi láta allt flakka. „Við vildum hafa með í myndinni þegar fallega dóttir Vince deyr. Við vildum hafa með bílslysið sem hafði svo mikil áhrif á sveitina, sem Razzle dó í,“ sagði Sixx og á þar við trommuleikara annars glysbands, Hanoi Rocks, sem lést í bílslysi sem Vince Neil var valdur að und- ir áhrifum áfengis. Sixx bætir við að hann skilji ekki alveg hvernig þeir lifðu þetta alltaf af. „Við vorum sterkari en við héldum.“ Persóna Sixx, sem Booth leikur, er í for- grunni í myndinni sem sögumaður. „Þetta var skemmtileg leið inn í ótrú- lega og öðruvísi tíma því Láta allt flakka Heimildarmyndin The Dirt segir frá uppgangi rokksveitarinnar Mötley Crüe á níunda áratugnum. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Liðsmenn Mötley Crüe eins og þeir birtast í myndinni The Dirt. 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.4. 2019 LESBÓK Rapparinn Machine Gun Kelly, sem heitir réttu nafni Colson Baker, fékk strax mik- inn áhuga á að leika í The Dirt þegar hann heyrði af myndinni. Hann er mikill aðdáandi Tommys Lees og fékk sér húðflúr af tromm- aranum á úlnliðinn þegar hann var 18 ára gamall. „Það kom enginn til mín og bað mig að leika í mynd- inni; ég fór í prufu fyrir hana sex sinnum,“ sagði hann við Entertainment Weekly. Hann var tilbúinn að taka lít- ið hlutverk bara til að vera í myndinni. „Svo fór ég í prufu sem Nikki Sixx og þau sögðu að ég hefði sömu orku og Tommy Lee og ég ætti að koma aftur til að fara í prufu fyrir það hlutverk. Og svo fjórum prufum síðar fékk ég hlutverkið. Ég er hávaxinn og grannur og full- ur af orku, svo þetta passaði vel.“ Ákveðinn í að leika í myndinni Það er svipur með Machine Gun Kelly og Tommy Lee. ÁLAG „Ég minnist þess að suma daga var hún með sól- gleraugu daglangt í hljóðverinu,“ segir Patrick Leon- ard, annar upptökustjóra einnar frægustu breiðskífu Madonnu, Like a Prayer, í samtali við breska blaðið The Guardian á dögunum en því er fagnað um þessar mund- ir að þrjátíu ár eru liðin frá útgáfu plötunnar. Leonard segir mikið álag hafa verið á söngkonunni meðan á gerð plötunnar stóð, bæði vegna þess að hjónaband þeirra Seans Penns leikara hékk á bláþræði á þessum tíma og ekki síður vegna þess að yrkisefnið á plötunni var við- kvæmt, uppvöxtur Madonnu á strangkatólsku heimili. Í viðtalinu kemur fram að Madonna hafi gengið gegnum mikinn hreinsunareld við gerð plötunnar og liðið mun betur í sálartetrinu á eftir. Mætti með sólgleraugu Madonna með sólgleraugun. Reuters HÁR Eins og þeir sem mættu á uppistand Bruce Dickinsons, söngvara Iron Maiden, í Hörpu laust fyrir jól veittu athygli þá er kappinn byrjaður að safna hári á ný eftir að hafa verið með drengjakoll í meira en tvo áratugi. Beðinn um skýringar á þessu uppá- tæki á sýningu í Hollandi á dögunum svaraði Dickinson því til að hann væri að þessu vegna þess að hann væri orðinn gamall og langaði að svekkja jafnaldra sína sem búnir eru að missa hárið fyrir fullt og fast. Í svari söngv- arans kom einnig fram að hann hefði upphaf- lega klippt sig vegna þess að hann langaði að vera unglegri. Safnar hári til að svekkja jafnaldrana Bruce Dickinson er kominn með fínan makka. Skjáskot Eddie Van Halen í essinu sínu. Engir endurfundir hjá Van Halen ROKK Orðrómur þess efnis að fjór- ir upprunalegu meðlimir hinnar fjallhressu rokksveitar Van Halen komi til með að standa saman á sviði í fyrsta skipti í 35 ár síðar á þessu ári virðist vera úr lausu lofti gripinn. Alltént tísti bassaleikarinn Michael Anthony, sem er sá eini fjórmenninganna sem stendur utan bandsins, á dögunum að ekkert yrði af téðum túr. Frekari upplýsingar fylgdu ekki tístinu en grunnt hefur verið á því góða milli hans og Van Halen-bræðra, Eddie og Alex, í hálfan annan áratug. Sonur Eddie, Wolfgang, hefur leikið á bassa með sveitinni síðustu árin, auk þess sem David Lee Roth söngvari er snúinn aftur eftir langvarandi fjarveru. Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið:

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.