Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 6

Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Hefur þú prófað nýju kjúklingasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A ræðukóngur 148. löggjafarþingsins, Björn Leví Gunnarsson pírati, sem talað hefur í 803 mínútur. Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki hef- ur talað lengst þingkvenna, eða í 765 mínútur. Bjarni Benediktsson er sá ráðherra sem lengst hefur tal- að, eða í 732 mínútur samtals. Björn Leví var sem fyrr segir ræðukóngur á 148. löggjafarþinginu en hann blandar sér varla í baráttuna núna. Samkvæmt yfirliti á vef Alþingis hafa 9.986 ræður og athugasemdir verið fluttar á yfirstandandi þingi. Þingræður eru 5.078 og athuga- semdir 4.908. Samtals hafa þing- menn talað í 466 klukkustundir. Orkupakkinn til umræðu Stærsta mál komandi vorþings er án efa 3. orkupakkinn og mál hon- um tengd. Guðlaugur Þór Þórðar- son utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögunni um orku- pakkann áður en þingið fór í páska- frí. Urðu miklar umræður um málið. Að henni lokinni gekk málið til utanríkismálanefndar þingsins. Hefur nefndin sent út umsagnar- beinir til 127 aðila, félaga og ein- staklinga. Frestur til að skila um- sögnum er til 30. apríl. Tekið er fram á vef Alþingis að hver sem er geti þó sent inn umsagnir um þing- mál. Oft hefur það gerst að þinghaldið hefur teygst fram á sumarið þegar umdeild mál eru til umræðu og svo kann að fara að þessu sinni. Má ætla að seinni umræðan um 3. orku- pakkann verði löng og ítarleg. Ný þingmál, sem áttu að koma á dagskrá fyrir sumarhlé, þurftu að berast skrifstofu Alþingis fyrir lok marsmánaðar. Samkvæmt starfs- áætlun þingsins á nefndastörfum að ljúka 24. maí. Almennar stjórnmála- umræður (eldhúsdagur) verða mið- vikudaginn 29. maí. Birgir og Þorsteinn eru hnífjafnir Birgir Þórarinsson Þorsteinn Víglundsson Morgunblaðið/Hari Alþingi Þingmenn koma til starfa að nýju í lok apríl. Mörg mál á eftir að ræða og afgreiða og verður áreiðanlega nóg að gera í þinghúsinu.  Tveir þingmenn berjast um ræðukóngstitilinn  Alþingi kemur saman eftir páskafrí 29. apríl  Nær 10 þúsund ræður verið fluttar á yfirstandandi þingi BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is. Alþingi kemur saman að nýju 29. apríl næstkomandi að loknu 17 daga páskahléi. Samkvæmt starfsáætlun þingsins verður síðasti þingfundur fyrir sumarhlé miðvikudaginn 5. júní. Það fylgir því ætíð spenna hvaða þingmaður verður ræðukóngur/ drottning á hverju löggjafarþingi. Nú þegar 18 þingfundardagar eru eftir samkvæmt starfsáætlun 149. löggjafarþingsins eru tveir karlar svo að segja hnífjafnir. Birgir Þór- arinsson Miðflokki hefur flutt 341 ræðu og athugasemd og talað í sam- tals 1.075 mínútur, eða um 18 klukkustundir. Fast á hæla honum kemur Þorsteinn Víglundsson Við- reisn, sem hefur flutt 372 ræður og athugasemdir og talað samtals í 1.067 mínútur. Þegar þingið fór í jólaleyfi 18. desember sl. var Þorsteinn í for- ystu, hafði nærri klukkutíma for- skot á Birgi. Sá síðarnefndi hefur verið mjög öflugur í ræðustólnum eftir áramótin. Ljóst má vera að þessir tveir þingmenn munu bítast um ræðukóngstitilinn á þessu þingi. Í þriðja sæti er Þorsteinn Sæ- mundsson Miðflokki sem talað hef- ur samtals í 857 mínútur og fjórði er Fjöldi fyrir- spurna sem lagð- ar hafa verið fram á 149. lög- gjafarþingi er 449. Fyrirspurnir til munnlegs svars eru 50 og til skriflegs svars 399. Þessar upp- lýsingar fengust hjá Alþingi. Björn Leví Gunnarsson hefur lagt fram 57 fyrirspurnir, Inga Sæland 32, Jón Þór Ólafsson hefur lagt fram 23, Jón Steindór Valdimarsson 17 og þeir Ólafur Ísleifsson og Smári McCarthy 16 hvor. Dómsmálaráðherra hefur fengið 124 fyrirspurnir, fjármála- og efna- hagsráðherra hefur fengið 82, heil- brigðisráðherra 81 fyrirspurn, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra 66 og mennta- og menn- ingarmálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 62 hvor. Margar fyrirspurnir til dómsmála- ráðherra voru lagðar fram að nýju eftir að Sigríður Á. Andersen vék úr embætti. Þingmenn hafa heimild til að leggja fram fyrirspurnir allt til þingloka. Á síðasta þingi, 148. löggjafar- þinginu, bárust alls 396 fyrirspurnir til ráðherra. Björn Leví Gunnarsson lagði þá fram langflestar fyrir- spurnir, eða 93. Björn Leví með flestar fyrirspurnir Björn Leví Gunnarsson Snorri Másson snorrim@mbl.is Byggðar verða 50-60 íbúðir við Sjó- mannaskólann segir í lóðarvilyrði sem borgarstjóri Reykjavíkur undirritaði síðasta mánudag við fé- lagið Vaxtarhús ehf. Þar kemur fram að íbúðirnar á svæðinu skuli flokkast sem „hagkvæmt húsnæði“, sem ungt fólk og fyrstu kaupendur hafa forgang að kaupum á. Þeim for- gangi er þannig háttað að hann gild- ir í þrjár vikur frá því að eignin er auglýst fyrst í fjölmiðli. Að þeim þremur viknum liðnum má verktak- inn selja hana á almennum markaði. „Við setjum stórt spurningar- merki við það að ungt fólk komi yfir- leitt til með að kaupa þessar íbúðir,“ segir Helgi Hilmarsson, grafískur hönnuður og talsmaður íbúasamtak- anna Vina Saltfiskmóans, sem hafa mótmælt byggingu íbúða á reitnum. Hann bendir á að samkvæmt mati KPMG verði meðalsöluverð á nýjum íbúðum í byggingunni 28,9 milljónir fyrir 40 fermetra íbúð, sem gerir 722.500 kr á fermetrann. Helgi segir að á sama tíma sé meðalfermetra- verð í 105 í kringum 400.000, skv. út- reikningum á fasteignavef Frétta- blaðsins. Því verði þessar nýju íbúðir ekki ódýrari kostur, heldur þvert á móti dýrari en húsnæðið sem fyrir er. Vinir Saltfiskmóans hafa gagn- rýnt áformin frá því síðasta vor, þegar áform borgaryfirvalda um framkvæmdir á reitnum litu dagsins ljós. Gagnrýni hópsins snerist í fyrstu að vanhelgun á fornum minj- um, nefnilega í Saltfiskmóanum svo- nefnda, þar sem verkaður var salt- fiskur í upphafi 20. aldar. Horfið var frá áformum um að byggja einmitt á þeim reit en Helgi segir þó að frið- helgi svæðisins sé enn ógnað, því lóðamörkin í nýju áformunum gangi enn inn á friðhelgina. Og það segir hann að samtökin telji í einhverjum skilningi lögbrot, nema að fengnu leyfi frá Minjastofnun. Sem sé enn ófengið. Að auki hafi byggingin ver- ið hækkuð og muni því skyggja á svæðið og Sjómannaskólann sjálfan. Óábyrgt að auka uppbyggingu Helgi segir ósk íbúa þá að beðið sé með að gefa út vilyrði af þessum toga á meðan ekki hafi verið kann- aðir innviðirnir í hverfinu til að sinna auknum fjölda íbúa. Uppbygg- ing í hverfinu sé þegar gríðarleg, á annað þúsund íbúða séu þegar í byggingu eða fyrirhugaðar. Vart segir Helgi að þurfi að kanna innviði sérstaklega, eins og Óli Jón Herter- vig, skrifstofustjóri eigna- og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkur- borg, boðaði í viðtali við Vísi í gær, heldur liggi fyrir að til dæmis Há- teigsskóli anni ekki íbúafjölda. Á svæði hans verði 4.100 íbúðir eftir að áformaðri uppbyggingu lýkur, þegar þær mættu mest vera 1.300 svo að „gott“ teldist, samkvæmt eig- in stöðlum borgarinnar. Þá liggi fyr- ir að ekki sé svigrúm til viðbygginga við Háteigsskóla, þar sem þegar sé verið að byggja blokkir á lóðunum í kringum hann. Deiliskipulagsvinnu í hverfinu á að ljúka hjá borginni fyrir árslok. Helgi kveðst vilja hreyfa mótmælum áður en óafturkræfar ákvarðanir verði teknar. „Okkur finnst óábyrgt að byggja hér ofan á alla aðra upp- byggingu í hverfinu,“ segir Helgi. Hann segir ekki verið að mótmæla þéttingu byggðar sem slíkri heldur snúist þetta um að menn fari ekki fram úr sér og spilli til dæmis verð- mætum grænum svæðum. „Við vilj- um bara að þetta sé gert í einhverj- um eðlilegum samhljómi með íbúunum í hverfunum,“ segir hann. Við vinnslu þessarar fréttar náðist ekki í talsmenn Vaxtarhúsa ehf. Breytt áform ógni enn friðhelgi Saltfiskmóans  Lögbrot að mati íbúasamtaka  Uppbygging þegar mikil Ljósmynd/Reykjavíkurborg Framkvæmdir Því er haldið fram að fyrirhugaðar framkvæmdir fari inn á friðhelgi Saltfiskmóans, sem er sögulega verðmætt svæði. Umhverfisstofnun kynnti á fimmtu- daginn tillögu sína að friðlýsingarskil- málum fyrir friðland að Látrabjargi, ásamt tillögu að skilgreiningu marka friðlýsta svæðisins. Þar með var opn- að fyrir umsagnir hagsmunaaðila við tillöguna en sá frestur er til og með 18. júlí. Samkvæmt tillögunni á flatarmál friðlýsta svæðisins að vera 2.340 hekt- arar. Það er á strikaða svæðinu á myndinni til hægri. Það á að ná „frá Þambaraflögum, eftir Brunnanúp, að Hálsvörðu gegnum Lambalá, þar sem vötnum hallar fram á bjargbrún, í sjó fram og alla leið að landamerkjum við Eyjaskorarnúp, frá Melalykkju yfir miðjan Þorsteinshvamm og fylgi lín- an landamerkjum inn til landsins“. Þá á það einnig að ná til hafsbotns og líf- ríkis einn kílómetra frá landi. Meginmarkmið friðlýsingarinnar er sagt vera að „vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, einkum varpsvæði sjófugla“. Frá árinu 2011 hefur Umhverfis- stofnun unnið að undirbúningi friðlýs- ingar með samtali við landeigendur, sveitarfélag og fleiri. Lagðir til skilmál- ar að friðlýsingu  Friðlýsing á Látrabjargi nái yfir 2.340 ha Látrabjarg Verndarsvæði á að ná frá Brunnanúpi til Eyjaskorarnúps.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.