Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 16

Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 Hugsaðu vel um húðina þína – alltaf Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan. www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600 Umboðsaðili CASE vinnuvéla á Íslandi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Bene- dikt Bogason hæstaréttardómari og Þorgeir Örlygsson hæstaréttardóm- ari luku nýverið við þriðja ritið í þriggja binda ritröð sinni um al- mennan hluta kröfuréttar á Íslandi. Með útgáfu þriðju kröfuréttarbók- arinnar er þar með búið að ljúka við 100 ára yfirferð kröfuréttar á Ís- landi. Fyrsta bindið kom út árið 2009 og fjallaði um efndir kröfu en annað bindið, sem fjallaði um vanefndaúrræði, kom út árið 2011. Kröfuréttur III fjallar m.a. um að- ilaskipti að kröfuréttindum og lok þeirra en til viðbótar er umfjöllun um fyrningu og tómlæti. Réttarframkvæmdin í heild sinni frá stofnun Hæstaréttar „Við höfum horft yfir sviðið og til allrar réttarframkvæmdar frá stofn- un Hæstaréttar árið 1920. Síðan eru nokkrir dómar úr Landsyfirréttin- um í þessum þremur bindum en þarna er næstum því 100 ára réttar- framkvæmd. Dómaskráin bara í Kröfurétti III er í kringum 500 dómar, þannig að við erum að tala um mörg hundruð dóma Hæsta- réttar á sviði kröfuréttar frá 1920 sem hafa verið greindir,“ segir Ey- vindur í samtali við Morgunblaðið. „Það er algjör forsenda þess að geta skrifað heildarúttekt á kröfu- rétti að fara yfir réttarframkvæmd- ina og síðan erum við í og með nor- ræna réttarframkvæmd,“ bætir hann við. Lengi vel hefur verið litið til réttarframkvæmdar annars stað- ar á Norðurlöndunum til að fylla í eyður hérlendis. Eyvindur segir þetta eiga sérstaklega við hvað varð- ar fyrningarmál hérlendis. „Fyrn- ingarlögin hjá okkur eru mjög ung á mælikvarða kröfuréttar, bara frá 2007. Norðmenn hafa verið með sömu lög síðan 1979. Þá getum við stuðst við réttarframkvæmd þar.“ Handbók fyrir dómara Þriðja bindið er hugsað til kennslu fyrir laganema en ekki síð- ur er um að ræða handbók fyrir starfandi lögfræðinga og dómara. „Ekki síst út af þessari greiningu á réttarframkvæmdinni,“ segir Ey- vindur. Kröfuréttur hefur verið ein af þeim fræðigreinum lögfræðinnar sem hafa reynt mikið á eftir efna- hagshrunið. Í bókinni er m.a. fjallað um rétt kröfuhafa til viðbótar- greiðslu. „Það var mjög stórt efni í hruninu og nú er búið að greina þessar meginreglur kröfuréttar um viðbót- argreiðslu. Það reyndi mjög mikið á viðbótargreiðslu út af endurútreikn- ingi gengistryggðu lánanna. Þá reyndi svo mikið á þessar gömlu meginreglur kröfuréttar sem hafði ekki reynt svo mikið á áður, svo sem fullnaðarkvittun.“ Landsréttur fordæmisgefandi Þrátt fyrir að mikið reyndi á kröfu- rétt í tengslum við hrunið stefnir nú í að Landsréttur verði fordæmisgef- andi dómstóll á sviði kröfuréttarins. „Það er það sem mun gerast. Það er það sem gerist á Norðurlöndunum þegar Hæstiréttur er farinn að taka færri mál. Þá þarf áfrýjunarleyfi og slíkt. Það sem gerðist á Norðurlönd- unum og mun gerast hér er að mun færri mál úr viðskiptalífinu og kröfu- réttinum fara upp í Hæstarétt. Ég vona í það minnsta að Hæstiréttur muni taka kröfuréttarmál og mál úr viðskiptalífinu reglulega upp.“ 100 ára yfirferð kröfuréttar lokið  Þriðja bindið í ritröð um kröfurétt komið út  Réttarframkvæmd á Íslandi frá stofnun Hæstaréttar til ársins 2019  Hugsað sem handbók fyrir lögfræðinga og dómara, segir Eyvindur G. Gunnarsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kröfuréttur III Eyvindur G. Gunnarsson, Þorgeir Örlygsson og Benedikt Bogason skrifuðu Kröfurétt III. Fyrstur til að sinna kennslu í kröfurétti á Íslandi var Jón Kristjánsson, sem var prófess- or við lagadeild Háskóla Ís- lands frá árinu 1911 til dánar- dægurs 1918. Ólafur Lárusson tók síðan við kennslunni, en hann var skipaður prófessor árið 1919 og gegndi því starfi til 1955. Magnús Þ. Torfason var skipaður prófessor árið 1955 og tók þá við kennslu í kröfu- rétti af Ólafi Lárussyni og gegndi henni til ársins 1970 þegar hann var skipaður dóm- ari við Hæstarétt Íslands. Gaukur Jörundsson tók við kennslu í kröfurétti af Magn- úsi Þ. Torfasyni, en Gaukur var skipaður prófessor árið 1969 og gegndi því starfi til 1992. Þorgeir Örlygsson tók við kennslunni af Gauki. Með Þor- geiri kenndu sem stundakenn- arar Benedikt Bogason og Ey- vindur G. Gunnarsson og tóku þeir við kennslunni eftir hann árið 1999 og hafa sinnt henni síðan. Kennsla í kröfurétti í yfir 100 ár KRÖFURÉTTUR Á ÍSLANDI Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Ýmsar sláandi upplýsingar um svefnvenjur íslenskra ungmenna komu fram í niðurstöðum úr rann- sókn Rannsóknar og greiningar sem kynntar voru í vikunni. Samkvæmt niðurstöðunum sofa 70% framhalds- skólanema á Íslandi ekki nóg. Þá drekka um 78% þeirra nema sem sofa um sjö klst. eða minna á sólarhring gjarnan orkudrykki með koffíni til þess að halda sér gangandi yfir daginn. Dr. Erla Björnsdóttir, sem tók þátt í kynningunni, varaði við of- neyslu koffíndrykkja þar sem þeir veiti líkamanum aðeins gerviorku en bæti ekki upp fyrir hvíldarleysi. Tæpur helmingur nema sem sofa sex klst. eða minna á sólarhring seg- ist hafa notað svefntöflur a.m.k. einu sinni á ævinni. Í niðurstöðunum kom fram að þeir nemar sem horfa á kvikmyndir, þætti eða önnur myndbönd í meira en fjórar klst. á dag sofa minna en þeir sem horfa minna en fjórar klst. á dag. Svipuð tíðni er á milli tölvu- leikjaspilunar og notkunar sam- félagsmiðla – þeir nemar sem verja meira en fjórum klst. á dag í slíka afþreyingu sofa jafnan minna en aðrir. Kynningin á niðurstöðunum fór fram við afhendingu Gulleplisins 2019. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hlaut verðlaunin fyrir áætlun sína til að bæta svefn og svefnvenjur nem- enda sinna. Meðal annars hefur far- ið fram fræðsla um mikilvægi svefns fyrir ungt fólk, tilraunir hafa verið gerðar með upphaf skólabyrjunar og nemendum hefur verið gefið frí í fyrsta tíma eftir skólaball. Ungmenni sofa ekki nóg Svefn Mörg ungmenni sofa minna en ráðlegt er á sólarhring.  FB fær Gulleplið 2019 fyrir að bæta svefnvenjur nemenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.