Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík sími 561 9200 | run@run.is www.run.is Atli Steinn Guðmundsson Ósló Þegar umræðan um þriðja orku- pakka Evrópusambandsins stóð sem hæst í Noregi í fyrra, áður en Stór- þingið samþykkti þessa sameigin- legu löggjöf sambandsins um evr- ópskan orkumarkað, lagði miðillinn Faktisk.no fram einfaldaða útlistun á innihaldi, verkan og álitamálum pakkans. Í raun er Faktisk.no ekki eigin- legur fjölmiðill heldur sameiginlegur rannsóknarvettvangur sem stærri fjölmiðlar Noregs reka sín á milli til að fara ofan í saumana á umfangs- miklum málum. Faktisk skoðaði í greinargerð sinni þýðingu orku- pakkans fyrir Noreg sem að mörgu leyti endurspeglar stöðu Íslands gagnvart pakkanum. Evrópusambandið samþykkti árið 2009 safn laga og reglna sem mynda þriðja orkupakkann og fjalla um hagkvæma nýtingu rafmagns og gass í Evrópu. Eftirlitsstofnunin, sem mun hafa með höndum ráðgjöf og eftirlit með því að aðildarríkin fylgi regluverkinu, varð til árið 2011 undir heitinu Agency for the Co- operation of Energy Regulators, ACER. ACER er ætlað að skapa evr- ópskan orkumarkað þar sem orka flyst frjálst milli ríkjanna, eins og aðrar vörur sem falla undir fjórfrelsi Evrópusamstarfsins. Rísi ágrein- ingur um reglur orkupakkans fer ACER með úrskurðarvald í slíkum málum og miðlar niðurstöðunni til þeirrar stofnunar sem fer með orku- mál í viðkomandi aðildarríki. Ákvörðunarvald um sæstrengi óbreytt Í Noregi, eins og á Íslandi, varð nokkur umræða um hvort einhvers konar valdaafsal ætti sér stað í krafti orkupakkans, hvort hægt yrði með honum að þvinga Norðmenn til að leggja sæstrengi til raforkuflutn- ings til annarra landa. Slíkum hug- myndum höfnuðu lögfræðingarnir Øystein Skotheim og Aleksander Dypvik Myklebust í samantekt Aftenposten og sögðu þar að ákvörð- unarvald Norðmanna um sæstrengi yrði óbreytt og héldist alfarið innan Noregs svo sem verið hefði. Undir þetta sjónarmið tók forstjóri ACER, Alberto Pototschning, þegar norska fréttastofan NTB ræddi við hann, og sagði stofnunina ekki ráða neinu um byggingu innviða. Spurningin um valdframsal til ESB við samþykkt þriðja orkupakk- ans hefur verið ofarlega í umræð- unni á Íslandi og í Noregi. Norska dómsmálaráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu að um valdframsal væri að ræða, hins vegar teldist það ekki nógu stórvægilegt til að krefj- ast þess að ¾ hluta atkvæða á Stór- þinginu þyrfti til samþykktar eins og norska stjórnarskráin mælir fyrir um þegar framsal valds til yfir- þjóðlegra stofnana er til meðferðar í þinginu. Tveir lagaprófessorar við Háskól- ann í Ósló hafa tekið til andmæla, þeir Eivind Smith og Hans Petter Graver. Segja þeir ráðuneytið fara með fleipur, það sé engan veginn smávægilegt inngrip að land gefi frá sér ákvörðunarvald í orkumálum til ACER, málaflokki sem haft geti um- talsverð áhrif á afkomu fjölda fyrir- tækja og fólksins í landinu. Graver sagði við norska blaðið Klasse- kampen að það yfirvald í orkumálum innan Noregs sem þriðji orkupakk- inn óhjákvæmilega myndi leggja ACER og Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, í hendur væri ekki hægt að kalla léttvægt í efnahagslegu tilliti. Þriðji lagaprófessorinn, Tarjei Bekkedal, dró nokkuð úr fullyrð- ingum hinna tveggja þegar Fakt- isk.no ræddi við hann. Sagði Bekke- dal að hvorki ACER né ESA færu með nokkurt yfirvald hvað snertir eignarhald eða byggingu orkumann- virkja innan einstakra aðildarríkja, sæstrengi þar með talda. Hann sagði ACER hvorki geta sett reglur né komið að stefnumótun. Hlutverk stofnunarinnar væri að túlka þau lög og reglur sem giltu hverju sinni. Ekki sé hægt að tala um valdframsal til stofnunar sem hafi með höndum túlkun reglna sem þegar hafi verið samþykktar. Óttast uppsagnir Norska alþýðusambandið, LO, lagðist gegn samþykkt þriðja orku- pakkans í Noregi. Meðal röksemda LO var að ekki væri hægt að segja fyrir um hvernig Regulerings- myndigheten for energi, RME, í Noregi, sem fer með sama hlutverk og Orkustofnun á Íslandi, kæmi til með að þróast í framtíðinni í samfloti við síbreytilegt regluumhverfi ESB. Are Tomasgard, stjórnarmaður í LO, sagði við NTB-fréttastofuna að þrátt fyrir afstöðu sambandsins væri það fylgjandi góðu samstarfi Noregs og Evrópusambandsins í orkumálum. ESB ætti mikið undir raforku frá Noregi, á móti kæmi að í skjóli LO starfaði fjöldi verkalýðs- félaga starfsfólks norskra fyrir- tækja sem væru háð því að geta selt sína framleiðslu. Helstu rök alþýðusambandsins eru að með tilkomu þriðja orkupakk- ans, og þar með fleiri sæstrengja til annarra landa ESB en nú eru þegar til staðar, muni raforkuverð hækka innanlands. Þetta komi til af því að með aukinni sölu til útlanda muni vatnsmagnið í uppistöðulónum norskra raforkuframleiðenda verða af skornum skammti sem leiði til þess að raforkufrekur iðnaður verði dýrari í rekstri og fyrirtæki neyðist til að grípa til uppsagna. Þáverandi olíu- og orkumála- ráðherra Noregs, Terje Søviknes, sagði ekki ástæðu til að óttast að raf- orkuverð hækkaði að ráði með orku- pakkanum. Hann sagði óhjákvæmi- legt að hagsmunir Noregs og ESB í orkumálum ættu ekki alltaf samleið, í því fælust þó ekki nægjanlega veigamikil rök til að segja nei. Per Sanderud, þáverandi for- stöðumaður Norsku vatna- og orku- málastofnunarinnar NVE, sagði það fráleitt að tengja samstarfið við ACER við hærra orkuverð. Hann sagði ACER ekki ráða neinu um verð raforku. „ACER er stofnun sem við viljum gjarnan tilheyra svo við getum haft áhrif á regluverkið í framtíðinni sem við hvort sem er fáum í hausinn gegnum EES- samninginn. Það er ekki flóknara en það.“ Þýskt sólskin í Danmörku Meirihluti hefur verið fyrir því innan norskrar umhverfishreyfingar að Noregur verði hluti af samstarf- inu. Heyrist þaðan að aukið sam- starf í orkumálum leiði til þess að endurnýjanlega orkugjafa megi nýta betur. Helsta vandamál sumra framleiðsluaðferða endurnýjan- legrar orku sé að þær er eingöngu hægt að nota við sumar aðstæður. Þannig sé framleiðsla sólarorku háð sólskini og vindmyllur snúist bara í vindi. Með samtengdum orkumarkaði verði engum vandkvæðum bundið að senda þýska sólarorku til Dan- merkur og danska vindorku til Þýskalands þegar veðurskilyrði hamla framleiðslu. Noregur fram- leiðir stærstan hluta síns rafmagns með vatni og með orkuflutningi milli Evrópulanda megi koma á jafnvægi við aðrar framleiðsluaðferðir. Norsku umhverfissamtökin ZERO telja að með flutningi raforku milli Evrópulanda megi draga stórlega úr notkun jarðefnaeldsneytis sem orkugjafa, umhverfinu til hagsbóta. Byggt á samantekt Geirs Molnes á Faktisk.no, Ellefu hlutir sem þú þarft að vita um ACER og þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Morgunblaðið/RAX Raflínur Harðar deilur hafa verið um svonefndan þriðja orkupakka Evrópusambandsins hér á landi og í Noregi. Þriðji orkupakkinn séður með norskum augum Þinghús Norska stórþingið hefur samþykkt þriðja orkupakkann.  Evrópskur orkumarkaður þar sem orka flyst frjálst milli ríkjanna Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Embætti landlæknis hefur lýst yfir áhyggjum yfir því að biðlistar eftir hjúkrunarrýmum á Íslandi hafi hald- ið áfram að lengj- ast ár eftir ári. 25. mars síðast- liðinn gaf emb- ættið út greinar- gerð fyrir árið 2018 þar sem upplýsingar voru birtar um bið- lista, biðtíma, lengd búsetu og uppbyggingu hjúkrunarrýma á Íslandi. Í uppgjörinu kemur fram að um síðustu áramót hafi 395 manns verið á biðlista eftir varanlegri bú- setu í hjúkrunarrými. Þetta jafngild- ir 6,1 af hverjum 1.000 íbúum 67 ára eða eldri og 19,1 af hverjum íbúum 80 ára eða eldri. Til samanburðar má nefna að árið 2014 var hlutfall íbúa 80 ára og eldri á biðlista 23 af hverj- um 1.000. Í uppgjörinu er greint frá því að árið 2014 hafi aðeins rúmur fjórð- ungur þeirra sem hlutu hjúkrunar- rými þurft að bíða lengur en 90 daga frá því að þau komust á lista. Árið 2018 hafi hins vegar 373 af 875, eða 42 prósent, þurft að bíða lengur en 90 daga. Meðalbiðtími þeirra sem hlutu varanlega búsetu í dvalarrými árið 2018 var 125 dagar. Miðgildi biðtíma var 83 dagar, en var 45 dagar árið 2014. Konur eru yfirleitt fleiri á bið- listunum en það má líklega rekja til hærra hlutfalls kvenna meðal eldri borgara. Vonast eftir betri tíð Þótt embætti landlæknis telji sí- fellt lengri biðtímann áhyggjuefni lýsti það í tilkynningu 11. apríl yfir ánægju með að einstaklingum með gilt færni- og heilsumat sem bíða eft- ir að komast í varanleg úrræði utan spítalans hefði fækkað frá desember 2018. Í tilkynningunni kom fram að vonir stæðu til að ástandið batnaði á næstu misserum með opnun nýrra hjúkrunarrýma. Um áramótin voru 2.582 hjúkrunarrými á Íslandi. Þetta voru 39 fleiri rými en áramótin á undan, en á þeim tíma hafði einstaklingum á biðlista jafnframt fjölgað um 33. Í til- kynningu landlæknis er sagt brýnt að efla heimahjúkrun og stuðla að bættri heilsu íslenskra eldri borgara. Áhyggjur af löngum biðtíma  Bið eftir hjúkrunarrými lengist enn Laura Sch. Thorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.