Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
a s ttur a staver e antar yr r . ma
Smiðjuvegur11,200Kópavogur, sími5713770
pall@sauna.is /www.sauna.is
OFN FYLGIR
p
OFN FYLGIR
OFN FYLGIROFN FYLGIR
Fjárfesting í vellíðan
10% f lá f l 1
Tegund Stærð h x þv Sætafjöldi Listaverð
450 122 x 152 cm 2 - 4 570.000 kr.
460 122 x 182 cm 4 - 6 610.000 kr.
470 122 x 214 cm 5 - 8 660.000 kr.
Tunnupottur úr sedrusviði
Tegund Stærð þv x l Sætafjöldi Listaverð
760 214 x 183 cm 2 - 4 810.000 kr.
770 214 x 214 cm 4 - 6 858.000 kr.
780 214 x 244 cm 6 - 8 895.000 kr.
Saunatunna úr sedrusviði
Tegund Stærð Sætafjöldi Listaverð.
PSMINICL 214 x 214 cm 2 - 4 1.090.000 kr
Pod útisauna úr sedrusviðiTegund Stærð b x l Sætafjöldi Listaverð
860LU 244 x 182 cm 2 - 4 1.290.000 kr.
870LU 244 x 214 cm 4 - 6 1.390.000 kr.
880LU 244 x 244 cm 6 - 8 1.490.000 kr.
Luna útisauna úr sedrusviði
Tegund Stærð þv x l Sætafjöldi Listaverð
760 PV 214 x 182 cm 2 - 4 1.110.000 kr.
770 PV 214 x 214 cm 4 - 6 1.150.000 kr.
780 PV 214 x 244 cm 6 - 8 1.190.500 kr.
Panorama sedrus saunatunna
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fyrirmyndin er skýr og í mínum
huga fer ekkert á milli mála að hin
eina sanna álfakirkja er fundin,“
segir Sigurður Guðmundsson á
Sviðugörðum í Flóa. Sá bær er í
gamla Gaulverjabæjarhreppnum,
ekki langt frá rústum Suðurkots í
Rútsstaðahverfi, lítils býlis sem fór í
eyði fyrir um öld síðan. Kotið hefur
sess í sögunni sakir þess að þaðan
var Ásgrímur Jónsson listmálari,
fæddur árið 1876, einn frumherja ís-
lenskrar myndlistar og fyrstur Ís-
lendinga til að lifa af listmálun.
Í einkennilegum kletti
Ein af þekktustu þjóðsagnamynd-
um Ásgríms er lítil vatnslitamynd,
Álfakirkjan, frá árinu 1905. Eins og
gengur hefur fólk velt fyrir sér hver
fyrirmyndin sé, en enginn botn kom-
ist í málið. Ber þá að hafa í huga að
listaverk lúta ekki lögmálum raun-
vísinda eða reglustiku og þeir sem
kúnstinni sinna hafa skáldaleyfi.
Vísbendingar er þó að finna um hver
fyrirmyndin að Álfakirkjunni sé,
sbr. frásögn Ásgríms í ævibókinni
Myndir og minningar sem Tómas
Guðmundsson skráði og kom út
1956.
„Ég sá reyndar aldrei til huldu-
fólksins og hef ég þó sjálfsagt oft
gert mér far um að skyggnast eftir
því, en í hugarheimi mínum lifir það
glöðu og litríku lífi. Einkum þótti
vera margt um huldufólk í Hróars-
holtsklettum og eins átti það sér
kirkju úti í hrauninu. Hún var í fal-
legum og einkennilegum kletti með
tveimur álmum uppúr. Löngu
seinna, eða þegar ég var orðinn full-
tíða maður, gerði ég mynd úr þjóð-
sögum og hafði þar klettinn til hlið-
sjónar,“ segir í bókinni (leturbr.
SBS)
Urð í Þjórsárhrauni
Í umræðum á Facebook-veggnum
Búandi og brottfluttir Bæhrepp-
ingar vakti Sigurður Guðmundsson
athygli á myndinni af álfakirkjuni,
sem um þessar mundir er uppi á
sýningunni Einu sinni var í Lista-
safni Árnesinga í Hveragerði. Þar
eru þjóðsagnamyndir Ásgríms á
sýningu sem er unnin í samstarfi við
Listasafn Íslands og byggist aftur á
sýningu þess Korríró og Dillindó
sem efnt var til á síðasta ári.
„Gæti nú ekki verið að fyrir-
myndin sé steinn sem stendur í
Rútsstaðahrauni og ber nafnið Klof-
steinn vegna þess að hann er klofinn
í tvennt,“ sagði Sigurður. Margir
tóku undir sjónarmið Sigurðar sem
fór í vettvangsferð með blaðamanni
Morgunblaðsins. Við skoðuðum
klettinn, hraundrýlið eða hvað sem
náttúruvætti þetta má kalla; urð í
hinu mikla Þjórsárhrauni sem er
undirstaða Flóans. Blasir þessi
klettur við þegar ekið er fram Gaul-
verjabæjarveg frá Selfossi, er um
300 metra frá veginum skammt áður
en beygt er inn á Rútsstaðaafleggj-
arann.
„Jú, þetta virðist allt stemma. Tvö
horn eða armar á klettinum, rétt
eins og Ásgrímur sjálfur lýsir, taka
nánast allan vafa af. Annars tekur
Ásgrímur þetta svolítið eftir eigin
höfði og ýkir klettinn, sem er í þýfð-
um móa eins og vel sést á vatns-
litamyndinni. Já, Klofsteinn er án
vafa álfakirkja Ásgríms,“ segir Sig-
urður, best þekktur sem Denni í
Sviðugörðum. Hann sýndi blaða-
manni einnig minnisvarða um Ás-
grím sem er við svonefnda Timb-
urhóla, við Gaulverjabæjarveg.
Varðinn var áður við rústirnar í Suð-
urkoti, reistur um 1980, en fluttur á
núverandi stað nærri aldamótum.
Komin á slóðina
Verk Ásgríms, sem lést árið 1958,
eru enn í dýru gildi höfð og nafnið
lifir. Heimili listamannsins við Berg-
staðastræti í Reykjavík er varðveitt
í sinni upprunalegu gerð og er í um-
sjón Listasafns Íslands. Á þess veg-
um eru haldnar sýningar á verkum
Ásgríms, sem á sínum tíma arfleiddi
íslenska ríkið að öllu sínu.
Rakel Pétursdóttir, sérfræðingur
hjá Listasafni Íslands, þekkir vel til
sögu Ásgríms og segir að við undir-
búning sýningarinnar Korríró og
Dillindó sem fyrr er nefnd hafi verið
kannað hvar fyrirmynd Álfakirkj-
unnar gæti verið. ,,Við bárum vatns-
litamyndina saman við ljósmyndir
og landakort en fundum ekki klett
sem hægt væri að vísa til með vissu.
Nú sýnist mér að við gætum verið
komin á slóðina því í upplýsingum
um verkið í gagnagrunni Listasafns
Íslands stendur að um klett í Rúts-
staðahverfi sé að ræða,“ segir Rakel.
Rætur í Flóanum
Auk íslenskrar náttúru var efni-
viður og fyrirmyndir Ásgríms gjarn-
an íslenskar þjóðsögur og sagnaarf-
ur kynslóðanna, fólks sem trúði
staðfastlega að sitthvað í umhverf-
inu væri tæplega af þessum heimi.
Verkin voru af ýmsum toga; vatns-
litamyndir, teikningar og stórar
landslagsmyndir úr olíu. Mörg
þeirra áttu sér fyrirmyndir í Húsa-
felli í Borgarfirði, þar sem Ásgrímur
dvaldist mörg sumur. En ræturnar
voru þó alltaf í Flóanum, þar sem
huldufólkið var á sveimi.
Álfakirkjan er
nú talin fundin
Klofsteinn er kirkja Fyrirmynd í
Flóanum Huldufólk og litríkt líf
Ásgrímur hafði til hliðsjónar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Klettur Hraundrýlið í Rútsstaðalandi er í þúfnakarga
og lætur ekki mikið yfir sér, en leynir samt á sér.
Ljósm/Listasafn Íslands
Álfakirkjan Mynd Ásgríms Jónssonar er frá árinu 1905
og er af fróðum talin eitt af markverðustu verkum hans.
Sigurður
Guðmundsson
Rakel
Pétursdóttir