Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 24

Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Steinn Steinarr orti oft afnokkrum ólíkindum og afefasemdum sem skína í gegnum margt sem hann setti af mikilli list niður á blað. Hann orti til að mynda um draum sérhvers manns og lauk á orðunum: „Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans.“ Svo var viðfangsefnið skuggi hans og heimsins sem endaði svo: „Þú, sem ert hér, skalt hverfa í heimsins skugga, og heimurinn skal hverfa í skugga þinn.“ Enn fremur orti Steinn um skáldalaunin og þann erfiða lærdóm sem lífið kenndi honum: „Þau bláköldu sannindi, að allt, sem innt er af hendi, í öfugu hlutfalli borgast við gildi þess.“ Þá var það heimsóknin í kirkjugarðinn, þar sem hann drúpti drykk- langt höfði yfir dauðans ró, og spurði: „hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir, eða hinn, sem dó?“ En þó að hið ágæta skáld væri iðulega fullt efasemda, ósjaldan í bland við hæfilegan skammt af léttúð og kerskni, er ekkert af þessu að finna í ljóð- inu Kreml, sem er fullt af al- vöru og þunga: Sjálfur dauðinn, sjálfur djöfullinn hefur byggt þessa bergmáls- lausu múra. Dimmir, kaldir og óræðir umlykja þeir eld hatursins, upphaf lyginnar, ímynd glæpsins Dimmir, kaldir og óræðir eins og Graal – Graal hins illa. Ekki þarf að undra að þungamiðja Sovétríkjanna, á tíma þegar óvíst var hvort ómennska sósíalismans, sem var ráðandi í stórum hluta ver- aldarinnar, yrði einnig ofan á í hinum vestræna heimi, skyldi vekja slík hughrif með skáld- inu. Kreml er vitaskuld aðeins mannvirki og út af fyrir sig ekki órætt með sama hætti og gralinn. En Kreml er miklu meira – eða var það að minnsta kosti. Kreml var, eins og fram kemur hjá Steini, táknmynd hinna illu afla í heiminum. Táknmynd þeirrar helstefnu sem vildi leggja undir sig ver- öldina og svipta fólk frelsi sínu og hamingju. Þess vegna var Kreml miklu meira en aðeins mannvirki. Þetta á enn frekar við um þau mannvirki þessarar hel- stefnu sem sérstaklega voru reist með það fyrir augum að svipta fólk frelsi sínu og skerða þannig hamingju þess. Aug- ljóst dæmi er Berlínarmúrinn, sem skar í sundur fjölskyldu- og vinabönd og skildi þjóð eftir í sárum sem enn hafa varla gróið þó að múrinn sjálfur hafi verið rifinn niður. Enn sjást þó merki hans á götum Berlínar og hann er jafnan nærri í huga þeirra sem þar búa og lifðu óhugnaðinn. Aðrir, einkum þeir sem í seinni tíð hafa tekið upp á því að daðra við þessa stjórnmálastefnu, mættu að ósekju kynna sér mannvonsk- una sem ríkti handan múrsins og þær þjáningar sem almenn- ingur leið þar undir oki sósíal- ismans. Mörg önnur mannvirki snerta fólk einnig sterkt, en sem betur fer oftar með öfug- um formerkjum. Nú í dymbil- vikunni gerðist sá voða- atburður að upp blossaði eldur í Frúarkirkjunni í París, Notre Dame, sem olli gríðarlegu tjóni. Þessi dómkirkja Parísar á sér langa og merkilega sögu og er sannarlega samtvinnuð sögu Frakklands og raunar álf- unnar allrar. En bruninn hreyfir ekki svo mjög við hjört- um almennings af þeirri ástæðu einni að þar hafi brunn- ið gamalt sögufrægt hús. Það væri nógu slæmt, en sterk við- brögðin stafa af því að í París brann guðshús. Rétt eins og fólk tengir mannvirki við hið illa tengir það mannvirki við það sem gott er. Kristin trú og sá kærleikur sem henni fylgir er samofinn kirkjum hennar, ekki síst höfuðkirkjum á borð við Frúarkirkjuna í París. Að þessi mikla kirkja skyldi brenna í dymbilvikunni er að vissu leyti táknrænt, því að fullvíst er að hún mun rísa upp aftur og er undirbúningur þess þegar hafinn. Á morgun er páskadagur, dagur upprisunnar. Sigurhátíð sæl og blíð, eins og séra Páll Jónsson sálmaskáld orti. Ann- að sálmaskáld nítjándu aldar, og raunar alþingismaður að auki um nokkurra ára skeið, séra Helgi Hálfdánarson, orti einnig um þessa sigurhátíð lífs- ins. Í Sálmabók og helgisiða- reglum Hins evangeliska lút- erska kirkjufélags Íslendinga í Vesturheimi, sem prentuð var í Winnipeg árið 1918, er páska- sálmur eftir Helga sem hefst þannig: Látið nú, Adams börn, hátíðleg sigurljóð hljóma, hefjið með fögnuði þakkar og lofgjörðar róma; herrann vor hár, hann, sem bar mein vor og sár, heljar sleit harðsnúinn dróma. Látið ei hugfallast, dauðinn er fallinn og deyddur, dauðlegum vegur til heimkynna lífsins er greiddur; lýsir nú lýð lífssólin inndæl og blíð; hræðist ei: háskinn er eyddur. Gleðilega páska! Sigurhátíð Þ að er kostulegt að fylgjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem hefur verið við völd nánast linnulaust frá lýðveldisstofnun, tala um stöðuna í heilbrigðiskerf- inu á Íslandi. Svo virðist sem þau hafi misst af umræðu undanfarinna ára þar sem ítrekað hef- ur verið kallað eftir uppbyggingu innviða, með- al annars heilbrigðiskerfisins. Eins og þau hafi einnig misst af umræðu meðal þjóðarinnar, á málþingum, í könnunum og í fjölmiðlum um mikilvægi opinbers gjaldfrjáls heilbrigðis- kerfis. Heilbrigðiskerfið hefur í boði Sjálf- stæðisflokks og samstarfsflokka verið vanrækt stórkostlega, svo þrátt fyrir frábært starfsfólk á heimsmælikvarða er helst fjallað um biðlista og gjaldtöku af fárveiku fólki. Þessi staða í heil- brigðiskerfinu er pólitísk ákvörðun, ekki náttúrulögmál, og þessu verður einfaldlega að snúa við. Núna hefur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins tekist að láta umræðuna snúast um að heilbrigðisráðherra í þeirra eigin ríkisstjórn beri ábyrgð á ófremdarástandinu. Að hún sé sú sem komi í veg fyrir að veikt fólk fái bót meina sinna á meðan að staðreyndin er sú að það þarf að efla hér okkar opinbera heilbrigðiskerfi með sameiginlegu átaki okkar allra, einmitt til að við getum borið okkur saman við þau velferðarríki sem við í daglegu tali flokkum okkur með. Það þarf engan stærðfræðing til að segja okkur að það er óskaplega heimskulegt að senda veikt fólk í aðgerðir til útlanda sem kostar ríkissjóð meira en að framkvæma aðgerðirnar hér heima. En þessir ágætu þingmenn virðast horfa algjörlega framhjá því að það er hægt að gera þetta á enn kostnaðarminni hátt, með því að byggja upp og hlúa að okkar opinbera heilbrigðiskerfi. Af hverju neita sjálfstæðismenn að horfast í augu við að það er búið að reyna með hörmulegum afleiðingum að svelta hið opinbera kerfi nán- ast inn að beini? Það er ekki bannað að leita lækninga hjá sjálfstæðum læknum en það sem mun alltaf koma okkur illa er ef sjálfstæðis- mönnum tekst að búa hér til tvö- og þrefalt kerfi þar sem þeir efnameiri komast fram fyrir raðirnar og fá betri þjónustu í krafti fjár- magns. Það er ekki í anda þess velferðarkerfis sem við jafnaðarmenn aðhyllumst og ég veit að heilbrigðisráðherra aðhyllist líka. Það veiðileyfi sem þingmenn Sjálfstæðisflokks virðast hafa fengið á heilbrigðisráðherra kemur stjórnarand- stöðuþingmanni spánskt fyrir sjónir, ekki síst í ljósi þagn- ar annarra stjórnarþingmanna við aðgerðum ráðherra Sjálfstæðisflokks þegar kemur t.d. að leyfum til hvalveiða, löskun á dómskerfinu og lækkun veiðigjalds. Svo virðist sem gagnrýni innan stjórnarflokka sé bara í boði ef sjálf- stæðisþingmenn bera hana fram. Annars myndi hún lík- ast til kallast sundrung og kattasmölun. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Svelti til einkavæðingar Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Tími frjókornaofnæmis erhafinn. Trjátegundin elri,einnig nefnd ölur, byrjaðiað blómgast um síðustu mánaðamót og dreifa frjóum sínum. Fólk með birkiofnæmi getur fundið fyrir ofnæmiseinkennum því frjó- korn birkis og elris hafa sömu of- næmisvaka. Helstu tegundir sem valda ofnæmi á Íslandi eru birki, grös og súrur. Þetta kemur fram á vef Náttúru- fræðistofnunar, ni.is. Stofnunin hef- ur ásamt Veðurstofunni annast frjó- kornamælingar frá 1997. Vöktun frjókorna fer fram með frjógildrum. Þær eru tvær og eru staðsettar á þökum Náttúrufræðistofnunar, önnur í Urriðaholti í Garðabæ og hin á Borgum á Akureyri. Á vef stofnunarinnar er að finna frjó- almanak sem sýnir hvenær líklegt er að frjókorn séu í lofti. Þar eru einnig ýmsar gagnlegar upplýs- ingar um efnið og ráðleggingar til þeirra sem eru með frjókorna- ofnæmi. Frjókorn aukast á næstu vikum Frjókorn munu aukast verulega á komandi vikum en talið er að um 7% Íslendinga fái ofnæmi fyrir frjó- kornum einhvern tímann á ævinni. Um þriðjungur þeirra fær einkenni áður en hann nær 16 ára aldri og þau eru algengari meðal karla en kvenna. Einkennin eru hnerri, kláði, nefrennsli og bólgin slímhúð. Fram kemur á vefnum að átta tegundir af elriættkvísl, Alnus, eru ræktaðar hér á landi, oftast sem stök tré í görðum. Elri er fyrst allra tegunda, sem valda ofnæmi, til að blómstra á vorin eða fljótlega eftir að hitastig fer upp fyrir 5°C. Stund- um má jafnvel sjá útsprungna rekla hanga á greinum strax í mars en með blómguninni fara frjókorn að dreifast út í andrúmsloftið. Elri er af sömu ætt og birki og hafa frjóin sömu ofnæmisvaka. Fólk með of- næmi fyrir birkifrjói getur því fund- ið fyrir einkennum löngu áður en birkið blómgast ef það er í námunda við blómstrandi elri. Þá segir að lyng- og víðifrjó séu, auk elrifrjókorna, fyrstu frjó til að mælast í frjógildrunum, oftast um miðjan apríl. Frjótölur þeirra eru þó ekki háar vegna þess að þau dreifast aðallega með skordýrum. Báðar tegundir eru þekktir ofnæmisvaldar en ekki eins skæðar og birki eða elri, sem eru nær eingöngu vind- frævaðar. Asparfrjó, sem geta vald- ið ofnæmi, birtast í maí. Birki blómgast venjulega um og eftir miðjan maí. Á Norðurlönd- unum blómgast það í apríl og dæmi eru um að frjókorn þaðan, að því tal- ið er, hafi mælst hér á landi áður en íslenska birkið er byrjað að dreifa frjóum sínum. Birki er einn skæð- asti ofnæmisvaldur á Norðurlönd- unum en grasofnæmi er algengara hér á landi. Frjómælingar hafnar Frjómælingar hófust í Garðabæ og á Akureyri í lok mars og standa þær yfir til 30. september. Í sumar verður hægt að fylgjast með mæl- ingum á birki- og grasfrjóum á vef stofnunarinnar. Birkifrjómælingar byrja að birtast vikulega í maí og birting grasfrjómælinga í júní. Mæl- ingarnar er gott að nota sem viðmið um hvenær blómgun tegundanna hefst og geta þær, ásamt veður- spám, hjálpað þeim sem eru haldnir ofnæmi að segja fyrir um frjómagn. Ef veður er hlýtt, þurrt og smá vindur má búast við háum frjótölum hjá blómstrandi tegundum sem dreifa frjóum sínum með vindi. Heilræði Náttúrufræðistofnun gefur þeim sem haldnir eru frjókornaofnæmi tíu heilræði: Forðast að fara út þar sem er mikið af birki og óslegnu grasi. Bent er á að gras dreifir helst frjóum sínum snemma morguns (kl. 7-10) og seinnipart dags (kl. 16-19). Önnur ráð eru þessi: Ekki þurrka þvott utandyra, sofa við lokaðan glugga; slá grasið áður en það blómgast; skipta um föt og þvo hár- ið eftir að hafa verið nálægt frjó- dreifingu; nota sólgleraugu og höf- uðföt; bursta og þvo feld heimilis- dýra; aka um með lokaða glugga og hafa góða frjókornasíu í loftræsting- unni og loks að taka lyf samkvæmt læknisráði. Tími frjókorna- ofnæmis er hafinn GettyImages/iStockphoto Frjókorn Nú er sá tími genginn í garð þegar frjókorn fara að valda mörgum óþægindum. Heilræði um viðbrögð er að finna á vef Náttúrufræðistofnunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.