Morgunblaðið - 20.04.2019, Page 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
AÐEINS
4
ÍBÚÐIR
Nýjar, mjög vandaðar og glæsilegar íbúðir við Klapparstíg 28,
101 Reykjavík. Stærðir íbúða eru frá 70-131 fm. Allar íbúðir
eru fullbúnar án gólfefna fyrir utan baðherbergi (og þvottahús
þar sem við á) en votrými íbúða eru flísalögð með glæsile-
gum flísum. Vandaðar innréttingar frá danska framleiðandan-
um HTH og Corestone borðplötur. Blöndunar- og sturtutæki
frá Ísleifi Jónssyni og eldhústæki frá AEG.
Bílastæði í nýrri upphitaðri bílageymslu innangengt í Klap-
parstíg 30 fylgir með hverri íbúð ásamt sérgeymslu í kjallara.
klapparstigur.is
Bílastæði fylgir með hverri íbúð
KLAPPARSTÍGUR 28 KLAPPARSTÍGUR 30
5 AF 11
ÍBÚÐUM
EFTIR
Nýjar og glæsilegar íbúðir við Klapparstíg 30, 101 Reykjavík.
Stærðir frá 34 til 47 fm. Íbúðir eru allar fullbúnar með ljósum,
flísum á böðum og parketi. Gólfhiti í öllum íbúðum. Vandaðar
innréttingar frá danska framleiðandanum HTH og borðplata
úr kvartsstein frá Granítsmiðjunni. Blöndunar- og sturtutæki
frá Tengi og eldhústæki frá AEG. Hægt er að kaupa bílastæði
í nýrri upphitaðri bílageymslu innangengt í Klapparstíg 30.
klapparstigur.is
Hægt að kaupa bílastæði
Átta skákmenn urðu efstirog jafnir á 34.Reykjavíkurskákmótinusem lauk í Hörpu á mánu-
daginn. Að teknu tilliti til mótsstiga
var röðin þessi: 1.-8. Lupulescu, Al-
ireza, Grandelius, Jones, Parligras,
Petrosjan, Tari og Gupta, allir með
sjö vinninga af níu mögulegum.
Lupulescu er sigurvegari mótsins
eftir stigaútreikning og er vel að því
kominn. Hann tefldi á efsta borði
nánast allt mótið og hafði um tíma
vinnings forskot á næstu menn en
tapaði fyrir Gawain Jones í áttundu
umferð. Að svo margir skákmenn
skipi efsta sætið kemur ekki á óvart
því það að hafa einungis níu umferðir
er of lítið í opnu móti með um 250
keppendur. Ekki er lagt síðan tefld-
ar voru tíu umferðir á Reykjavíkur-
mótinu en mótshaldarinn vill halda í
frídag svo hinir erlendu keppendur
geti skoðað sig um eða tekið þátt í
hinum ágætu hliðarviðburðum
skákhátíðarinnar.
Hannes Hlífar Stefánsson fékk
flesta vinninga íslensku skákmann-
anna, 6½ vinning af 9, og raðast í 18.
sæti af þeim sem tíu sem voru með
sömu vinningatölu. Hann átti ekki
möguleika á einu af efstu sætunum
er lokaumferðin rann upp en vann
Guðmund Kjartansson sem var með
6 vinninga. Jóhann Hjartarson var
þá einnig með möguleika á að kom-
ast í efsta sætið, átti vinningsmögu-
leika um tíma í skák sinni við hina
ungu stjörnu Íran, Firouzja Alireza,
en tapaði um síðir. Hann átti síðar
um daginn flug til Helsinki og svo
áfram þaðan til móts við íslenska
landsliðið sem teflir þessa dagana á
HM öldungasveita á grísku eyjunni
Ródos. Knöpp ferðaáætlun var ekki
eini streituvaldur Jóhanns því helsti
galli Hörpu sem keppnisstaðar –
mikill hávaði frá tónleikum, ráð-
stefnum og gestagangi – truflaði ein-
beitingu hans. Hvað sem því líður
geta yngri skákmennirnir tekið sér
Jóhann til fyrirmyndar; hann tefldi
hverja einustu skák en aðrir af okkar
bestu mönnum tóku a.m.k. eina ½
vinnings yfirsetu.
Mestu stigahækkanir íslensku
keppenda komu í hlut Adams Om-
arssonar sem hækkaði um 91 Elo-
stig og Stephans Briem sem hækk-
aði um 75 Elo-stig. Mótið var vel
skipulagt í hvívetna og gott að hafa
jafn hæfan tæknistjóra og Ingvar
Þór Jóhannesson sem sá um beinar
útsendingar. GAMMA var aðal-
styrktaraðili mótsins.
Jón Kristinsson með fullt hús á
Ródos
Íslensku liðin sem taka þátt á HM
öldungasveita Ródos fara nokkuð vel
af stað. Fyrrverandi Íslandsmeist-
ari, Jón Kristinsson, hefur unnið all-
ar skákir sínar. Jón, sem er kominn
fast að áttræðu, fór létt með rúss-
neskan stórmeistara í 2. umferð:
Jón Kristinsson – Nikoloja
Puskov (Rússland)
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. cxd5
exd5 5. Bg5 Rbd7 6. e3 c6 7. Bd3
Be7 8. Dc2 Rh5 9. Bxe7 Dxe7 10.
Rge2 g6 11. O-O-O Rb6 12. Kb1 Rg7
13. Hhe1 Be6 14. Rf4 O-O-O 15. Ra4!
Jón er vel að sér í fræðunum.
Þetta er talin besta leiðin til að berj-
ast fyrir frumkvæðinu.
15. Rxa4 16. Dxa4 Kb8 17. Hc1
Bf5 18. Hc3 Bxd3+?
Þessi uppskipti eru ótímabær og
bæta stöðu riddarans til muna. 18. ...
g5! var nauðsynlegur leikur.
19. Rxd3 Rf5 20. Ha3 a6 21. Hb3!
Ka7 22. Da5
Vinnur fljótt en sterkara var þó
22. Hc1!
22. ... Hb8?
Hann gat varist með 22. ... Rd6.
23. Rc5 Hhc8 24. Hb6!
- og svartur gafst upp. Það er eng-
in vörn gegn hótunnni 25. Hxa6+,
24. Ka8 er svarað með 25. Rxa6!
o.s.frv.
Rúmeninn Lupulescu
sigurvegari Reykja-
víkurskákmótsins
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Konstantin Lupulescu Sigurvegari 34. Reykjavíkurskákmótsins.
Á hátíðarfundi Al-
þingis á síðastliðnu ári
var ákveðið að smíða
nýtt hafrannsóknaskip,
þjóðargjöf. Nýtt haf-
rannsóknaskip er mikil-
vægt þjóðarbúinu en
ekkert kom fram um
hvort gjöfin yrði
„hrein“.
Fjölbreyttar elds-
neytislausnir hafa verið
kynntar fyrir skip á undanförnum
árum og eru allar byggðar á vist-
vænu eldsneyti sem auðvelt er að
framleiða á Íslandi. Ólíklegt verður
að teljast að í framtíðinni verði
„ein“ lausn fyrir skip enda þarfir
fjölbreyttar. Nú þegar er Norður-
sigling með tvö rafmagnsskip í
hvalaskoðun og nýr Herjólfur verð-
ur að miklu leyti knúinn innlendu
rafmagni. Nú eru Íslendingar í
dauðafæri að hefja umskiptingu á
eldsneyti á sjó.
Metan, metanól, vetni og raf-
magn eru kostir sem hægt er að
horfa til – jafnvel samþætting á
nokkrum. Metanframleiðsla mun
stóraukast þegar ný gasgerðarstöð
verður tekin í notkun. Vökvagert
náttúrulegt gas hefur rutt sér til
rúms víða og sama má gera hér.
Norðmenn eru að hanna fyrstu ferj-
una sem verður aðeins á vetni en
hingað til hafa flest verkefni með
vetni á sjó verið á höndum sjóherja
mismunandi landa. Kostir metanóls
eru að metanólvélar brenna einnig
dísilolíu. Það eykur öryggi við notk-
un skipsins því enn sem komið er er
dreifing vistvæns eldsneytis til
skipa takmörkuð. Þurfi
nýtt hafrannsóknaskip
að koma í fjarlægar
hafnir er mikilvægt að
hægt sé að nálgast
eldsneyti – og enn er
dísil algengasta elds-
neytið.
Fleiri en ein lausn
möguleg
Áhugavert væri að
flétta saman mismun-
andi orkuberum og þá
gæti þekking á mismunandi elds-
neyti aukist enn frekar á Íslandi.
Oftast eru fleiri en ein aðalvél í
slíku skipi sem opnar ákveðin tæki-
færi. Ljósavél eða -vélar gætu svo
verið knúnar öðru eldsneyti. Ljóst
er að framtíðin verður ekki knúin af
jarðefnaeldsneyti og mikilvægt að
kynna fyrir útgerðum mismunandi
möguleika. Skipið nýttist þá ekki
aðeins til hafrannsókna heldur einn-
ig til fræðslu fyrir framtíðarsjófar-
endur. Þetta eru þekktar lausnir og
orkan innlend og vistvæn.
Skip endast í 30-50 ár, gefum
þjóðinni ekki risaeðlu.
Eftir Jón Björn
Skúlason
»Nýtt hafrannsókna-
skip, þjóðargjöfin,
ætti að verða fyrirmynd
framtíðarskipa þjóðar-
innar og knúið vistvæn-
um innlendu orku-
gjöfum.
Jón Björn Skúlason
Höfundur er framkvæmdastjóri
Íslenskrar nýorku.
Mögulegt orkukerfi.
Verður „þjóðar-
gjöfin“ risaeðla?
Jón Þorkelsson fæddist 16.
apríl 1859 í Ásum í Skaftár-
tungu. Foreldrar hans voru
hjónin Þorkell Eyjólfsson, síð-
ast prófastur á Staðastað, og
Ragnheiður Pálsdóttir.
Eftir stúdentspróf lauk Jón
cand. mag.-prófi í norrænum
fræðum frá Hafnarháskóla
1885, og dr.phil.-prófi 1888.
Jón var skipaður lands-
skjalavörður 1899 og þjóð-
skjalavörður 1915 og gegndi
því embætti til æviloka. Hann
var forseti Sögufélagsins frá
stofnun þess 1902 og til ævi-
loka, forseti Þjóðvinafélagsins
1912-13 og forseti Bókmennta-
félagsins frá 1918 til æviloka.
Hann sat í verðlaunanefnd
Gjafar Jóns Sigurðssonar frá
1909, var ritstjóri Huldar,
Sunnanfara og Blöndu, al-
þingismaður Snæfellsnesinga
1892-93, Reykvíkinga 1908-
1911 og konungskjörinn þing-
maður 1915.
Þekktustu rit Jóns forna,
eins og hann var jafnan nefnd-
ur, voru Saga Jörundar hunda-
dagakóngs, Þjóðsögur og
munnmæli, Tyrkjaránið á
Íslandi 1627 og Vísnakver
Fornólfs.
Fyrri kona Jóns var Karólína
Jónsdóttir, en þau skildu.
Seinni kona hans var Sigríður
Finnbogadóttir. Börn Jóns og
Karólínu voru Kristín og Logi,
sem dóu á barnsaldri, og Guð-
brandur rithöfundur, f. 1888.
Dóttir Jóns og Sigríðar var
Matthildur, f. 1910.
Jón lést 10.2. 1924.
Merkir Íslendingar
Jón
Þorkelsson
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is