Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Reyktur og grafinn lax Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir, Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík. Ómissandi á páskaborðið Það er enn í ljósu minni flestra okkar að nokkrir af alþingis- mönnum okkar mót- mæltu komu Piu Kjærsgaard hingað til lands á síðasta ári á þeim forsendum að hún væri rasisti og voru tínd til öll vafa- söm ummæli hennar síðustu áratugi. Þó hefur Pia ekki fengið dóm fyrir nein þessara ummæla og var ekki hér á eigin vegum, heldur sem fulltrúi dönsku ríkisstjórnarinnar. En það er ekki aðeins Pia sem hefur fengið á sig ásakanir um ras- isma því í ýmsum erlendum tíma- ritum má líta skrif í þá átt. Nýlega las ég t.d. grein í hinu bandaríska Nation. N. Mirzoeff skrifar þar af fullkominni vanþekkingu um hælis- leitendamál í Danmörku og ásakar Dani um útlendingahatur, rasisma hvítra og andlegar pyntingar. Hann minnir á nýlendutíma Dana og seg- ir að þó Trump sé slæmur þá stefni Evrópubúar á að vera sýnu verri. Kjarni greinarinnar er heimsókn í Sjælsmark flóttamannamiðstöðina sem er fyrir utan Kaupmannahöfn og talar hann þar við konu frá Erí- treu sem er þar ásamt syni sínum. Hún hefur fengið höfnun á land- vistarleyfi og bíður brottflutnings. Aðstæður þarna eru sagðar verri en í ísraelsku fangelsi enda er Sjælsmark rekið af dönsku Fangelsismálastofnuninni. Höf- undur segir að komið sé fram við fólkið sem þræla og að það hafi ekki framið neinn glæp til að eiga skilið að vera þarna. Margt bendir þó til að það sé ekki rétt hjá honum því í lok árs 2017 bjuggu 5.278 hæl- isleitendur (0,1% fólks á aldrinum 15-70 ára) í dönskum flóttamanna- miðstöðvum en sama ár var 1.271 hælisleit- andi ákærður fyrir brot á refsilöggjöfinni og 204 þeirra voru dæmdir í óskilorðs- bundið fangelsi, þar af 30 fyrir búðaþjófnað sem var 9,4% af heildarfjölda slíkra dóma. En hafa þá Danir ekki tekið við neinum flóttamönnum. Jú, jú, árið 2018 voru nær 500.000 innflytj- endur frá löndum utan Evrópu í Danmörku og landið er ofarlega á óskalista hælisleitenda. Sumir inn- flytjendur eru þó ekki á neinum óskalista hjá Dönum. Í nýjustu skýrslu Fjármálaráðuneytis Dana kemur fram að kostnaður dönsku þjóðarinnar vegna innflytjenda frá löndum utan Vesturlanda er 33 milljarðar DKR á ári en að 14 millj- arða hagnaður sé af innflytjendum frá vestrænum löndum. Að með- altali kostar hver innflytjandi frá löndum þriðja heimsins 35.000 DKR á ári og afkomendur þeirra 27.000 DKR á ári hver. Það er einkum vegna minni atvinnuþátt- töku en líka vegna annars kostn- aðar. Innflytjendur frá löndum múslima sækja t.d. geðdeildirnar heim 1.300% meira en innfæddir og þeir sem ekki eru Danir að upp- runa fremja hlutfallslega marga glæpi. Samkvæmt dómsmálaráðu- neyti Dana 2017 þá eru 23% dæmdra nauðgara frá löndum utan Vesturlanda, en sá hópur er aðeins 6% fólks 15-79 ára. Einhver gæti haldið því fram að innflytjendur frá Asíu eða Afríku fengju ekki sömu atvinnutækifæri og innfæddir en tölfræði Dana sýn- ir t.d. að taílenskar konur hafi 70% atvinnuþátttöku en konur frá Sóm- alíu aðeins 21% og svipað gildir um karlana. Einnig komast Taílend- ingar sárasjaldan í kast við lögin en 2012 var tíundi hver Sómali í land- inu dæmdur til refsingar (Danm. Stat., 2016). Danir tóku inn stóra hópa af hælisleitendum og héldu að önnur og þriðja kynslóðin yrði sjálfkrafa dönsk en í þess stað hafa stórir hópar safnast saman í gettóum án þess að læra dönsku, án þess að mennta sig, án vonar um framtíðina – hvorki Danir né tengdir uppruna- landinu. Í sumum gettóum er „danskur“ níðyrði og meira en 150 ungir menn yfirgáfu landið til að berjast með ISIS – fundu þar til- gang. Danskir múslimar kvarta undan óvinveittu andrúmslofti, holl- usta þeirra við landið sé stöðugt ve- fengd. Þær hugmyndir munu hafa verið fyrir hendi fyrir 11. september 2001 en jukust stórlega í kjölfar Múhammeðsteikningafársins er tveir ímamar, Akkari og Laban, er höfðu fengið hæli í landinu og danskan ríkisborgararétt ferðuðust um Miðausturlönd 2006 og sýndu teikningarnar með þeim afleið- ingum að ráðist var á dönsk og norsk sendiráð, kirkjur og kristna. NYT áætlar að 200 manns hafi látið lífið og 50% samdráttur varð í sölu á dönskum vörum til Miðaustur- landa. Arla varð t.d. af 10 millj- ónum DKR á degi fyrstu vikurnar. Síðar komst upp um áætlanir um að drepa teiknarann, Kurt Wester- gaard, og einnig fréttamenn Jyl- landsposten. Svik Akkari og Laban eru enn sem fleinn í þjóðarsál Dana og lái þeim hver sem vill. Aðrir ímamar hafa einnig vakið úlfúð, Grimhøj- moskan varð alræmd 2016 fyrir boðun strangra sjaríalaga og í fyrra var svo ímam á Nörrebro ákærður fyrir hatursorðræðu. Hann hafði talað fyrir stofnun kalífaveldis, út- rýmingu gyðinga og innrásar í þau lönd er eitt sinn voru undir stjórn múslima og nefndi þar Andalúsíu, Balkanskagann og Róm. Ef greinarhöfundur Nation hefði reynt að kynna sér málefni innflytj- enda í Danmörku þá hefði greinin eflaust orðið öðruvísi, en vönduð heimildaöflun virðist hreint ekki í tísku nú þegar boðskapur pólitískra réttlætisriddara er það sem blífur víða á fjölmiðlum og vinir okkar Danir sem hafa tekið við nær hálfri milljón hælisleitenda og eytt ómældu fé í alls konar aðlögunar- verkefni eru að ósekju ásakaðir um rasisma og útlendingahatur. „Rasistarnir “ vinir okkar Danir Eftir Ingibjörgu Gísladóttur »Danir eru iðulega ásakaðir um rasisma og útlendingahatur. Þeir sem koma fram með slíkar ásakanir hafa ekki kynnt sér inn- flytjendamál í Dan- mörku. Ingibjörg Gísladóttir Höfundur starfar við umönnun aldraðra. Ef orkupakka þú eyða vilt og efla landsins hag. Þér er og verður ávallt skylt, að auðga fegurð og brag. Landsölumennirnir lævísir vilja lausnargjald fyrir vötn og storð. Megir þú hljóta skarpur að skilja, að skelfileg eru þeirra orð. Þeir Ísafoldu æra og meiða, efnishyggjumenn. Sögu okkar særa og deyða og sækja gróða enn. Land- sölumenn Höfundur er læknir og fv. borgarstjóri. Ólafur F. Magnússon Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.