Morgunblaðið - 20.04.2019, Page 33

Morgunblaðið - 20.04.2019, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Í dag kveðjum við alltof snemma kæra vinkonu og vinnu- félaga, Önnu Guð- rúnu Garðarsdóttur. Anna hóf störf á sjúkradeild- inni á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja í janúar 2008. Það kom fljótt í ljós að hún var kærkomin viðbót við þann góða hóp sem þar starfar. Hún var sterkur karakter og átti auðvelt með að umgangast fólk. Hún var ekki feimin við að segja sína meiningu, alltaf stutt í húmorinn en var samt svo góð við alla. Hún var dugleg, vinnusöm og hafði þann einstaka hæfileika að sjá jákvæðu hliðarnar og gera gott úr öllu. Önnu er sárt saknað af vinum og vinnufélögum á HSS. Hún var góður vinnufélagi, falleg bæði að innan og utan. Anna var hrókur alls fagnaðar í vinnuferðum og skemmtunum tengdum vinnunni. Það var eftir- sóknarvert að vera nálægt henni við slík tilefni. Ekki síst vegna þess hve beinskeytt hún var og lét allt flakka, en alltaf í góðu með meðfylgjandi hlátri. Við þökkum fyrir góðar minn- ingar, ekki síst ferðina til Edin- borgar sem við vinnufélagarnir fórum saman í vorið 2014. Það var mikið hlegið í þeirri ferð og að sjálfsögðu fór enginn yfir „vesen- kvótann“ sinn sem eins og endra- nær var settur á í upphafi ferðar. Æðruleysi og jafnaðargeð ein- kenndi Önnu. Hún tók því sem að höndum bar, bæði í störfum sínum og ekki síður í veikindunum. Hún kvartaði ekki, heldur þvert á móti sýndi hún mikla þrautseigju og hugrekki, sama hvað gekk á. Við lítum á það sem forréttindi að hafa kynnst Önnu og starfað með henni. Við minnumst hennar með þakklæti og virðingu. Um leið og við kveðjum yndis- lega konu, traustan og kæran fé- laga vottum við aðstandendum hennar og vinum okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd vinnufélaga á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja, Bryndís Sævarsdóttir. Að koma minningum og hug- renningum á blað til að deila með öðrum þegar ástvinur fellur frá er fallegur íslenskur siður, það veitir einhverskonar sálarró að koma í orð öllu því sem fer um hugann þó ritað sé með tár í augum og kökk í hálsi. Hún Anna okkar er dáin, það er ennþá óraunverulegt, það eigin- lega getur ekki staðist að við séum að skrifa minningargrein um hana. En jú, sú er víst raunin, hún kvaddi okkur of ung, allt of hratt og of stór hluti ævinnar eftir. Anna hans pabba, Siffi hennar Önnu. Já, þau áttu svo sannarlega hvort annað. Það er svo ánægju- legt þegar tveir einstaklingar finna ástina á nýjan leik. Hvernig þau færðust smám saman nær hvort öðru í áhorfendastúkunni á körfuboltaleikjum hvort hjá sinni dóttur, Bonnie og Teddý, urðu ástfangin og fóru að búa saman, eignuðust fallegt og hlýlegt heim- ili, voru hamingjusöm saman. Við systkinin vorum orðin það stór að ekki var lengur um pabbahelgar eða pabbavikur að ræða en okkur var tekið opnum örmum og heim- ilið ávallt opið. Stefán varði þar óteljandi klukkutímunum að horfa á fótbolta með þeim og nánast bræddi úr samlokugrillinu því hver ostasamlokan á fætur ann- arri rann ofan í síhungraðan ung- Anna Guðrún Garðarsdóttir ✝ Anna GuðrúnGarðarsdóttir fæddist 12. nóvem- ber 1960. Hún lést 1. apríl 2019. Útförin fór fram 16. apríl 2019. linginn. Ófá voru matarboðin og ára- mótin þar sem allir úr báðum fjölskyld- um komu saman á heimili pabba og Önnu, þá var heldur betur kátt á hjalla! Ógleymanlegar utanlandsferðir Bonnie og Stefáns með pabba og Önnu til heitari landa, sumarbústaðaferðir á Íslandi og ekki klikkuðu þau á að heimsækja Guggu til Danmerkur og síðan Svíþjóðar, að hafa þau tvö hjá sér í heimsókn voru dýrmætar sam- verustundir. Barnabörnin á báða bóga eru orðin ansi mörg og Anna prýddi heimilið með fjöldanum öll- um af myndum af þeim sem stillt var upp í sjónvarpsholinu, miðju heimilisins, þannig voru þau öll ávallt í sjónmáli og fóru ekki framhjá neinum sem kom í heim- sókn. Þau pössuðu vel upp á að verja tíma með þeim eldri þegar þau voru á landinu, núna síðast í vetrarfríinu seinnipart febrúar þrátt fyrir að hún væri í raun þá orðin sárlasin. Fyrir það erum við þakklát. Að greina börnum frá þegar nákominn deyr er erfitt. Elsa Margrét horfði á litlu systur sína og fannst ósanngjarnt að Anna amma hefði ekki náð að hitta hana áður en hún dó. Sveinn Orri velti fyrir sér hvort hún væri þá núna búin að hitta Pollý sína aftur og bætti svo við á sinni sænsku- skotnu íslensku „en á hún þá ekki lengur heima með Siffa afa?“ Þá var erfitt að halda lengur aftur af tárunum. Elsku pabbi okkar, missir þinn er mikill. Þú veist að við erum til staðar fyrir þig. Það er þungt að kveðja en það eina sem við getum gert er að hlúa að minningunum og varðveita þær í hjarta okkar. Elsku Helga, Heiðar, Teddý, Sylvía og fjölskyldur, við finnum svo innilega til með ykkur og vott- um ykkur okkar dýpstu samúð. Guðbjörg, Bonnie og Stefán. Þann 2. mars sl. fór ég í heim- sókn til Önnu frænku minnar og Siffa á heimili þeirra í Krossholt- inu. Að það skuli hafa verið sú allra síðasta heimsókn til hennar er ótrúleg tilhugsun. Við horfðum öll saman á fjölskylduliðið okkar Önnu, Arsenal, etja kappi við erki- fjendur sína Tottenham. Þó að fyrri hálfleikurinn sjálfur hafi ver- ið gleymanlegur stendur eitt upp úr og það var að hlusta á Önnu réttlæta fyrir sér að fá sér auka sneið af eplaköku og rjóma. Eins og hún hafi ekki átt það skilið mið- að við allt sem hún hefur farið í gegnum sl. ár. Síðasta korterið í seinni hálf- leiknum mun ætíð vera í huga mér því þær mínútur endurspegluðu svo margt sem tengdist Önnu. Vítið sem Tottenham fékk var klárlega rangstaða en okkur er ávallt sagt að það þýði ekkert að deila við dómarann og markið stóð. Hvort Guð var réttlátur dómari á því sem lagt var á Önnu verður seint svarað en Anna tók við öllu frá honum með fyrirmynd- ar jákvæðni og hugarfari, tilbúin að sigra allra áskoranir. Skyndi- lega fékk Arsenal kjörið tækifæri til að vinna leikinn þegar þeir fengu dæmt víti í uppbótartíma. Upp steig leikmaður Arsenal, tilbúinn til að axla þá ábyrgð sem fylgir að taka víti í uppbótartíma. Svoleiðis ábyrgð er ekki á alla lögð og jafnvel bestu leikmennirnir verða veikir í hnénu í svona að- stæðum. Það bar aldrei öðru en að Anna ætlaði sjálf að bera ábyrgð- ina á að takast á við öll þessi krefj- andi verkefni. Á þessum tíma leit- aði Anna aldrei eftir því að kenna öðrum um, hún spurði aldrei af hverju hún og hún missti aldrei trúna að hún myndi sigra. Arsenal-leikmaðurinn andaði djúpt og hóf tilhlaupið sitt að bolt- anum. Þrátt fyrir að hafa hug- rekkið, getuna og tækifærið til að tryggja sigur brást honum boga- listin. Arsenalmenn voru varla búnir að átta sig á að leikurinn var ekki unninn og enn í gangi þegar dómarinn tók til sinna ráða og veittist hratt að einum leikmanni Arsenal og dró fram rauða spjald- ið og bað viðkomandi að yfirgefa leikvöllinn strax - hans þátttöku í þessum leik væri lokið. Önnu frænku minnar verður sárt saknað, enginn annar hlátur kemur í staðinn fyrir hlátur henn- ar. Lífsgleði hennar mun ávallt fylgja mér enda var hún einstök manneskja. Hraðinn sem varð í endalokum hennar verður dýr- mæt áminning fyrir okkur öll sem stöndum eftir. Hennar minning mun lifa áfram á meðan hún tekur að sér annað hlutverk hinum megin. Elsku Siffi, Heiðar, Teddý, Sylvía og Helga amma, með tárin í augunum votta ég ykkur mína innilegustu samúð. Anna Guðrún Garðarsdóttir, ég elska þig og mun sakna þín. Þinn frændi, Sverrir Auðunsson og fjölskylda. Elsku Anna frænka. Hversu óréttlátt er að þú varst tekin frá okkur alltof snemma? Þú varst einstök manneskja sem gerðir gott bara miklu betra, svo einstök varstu að fólk sem rétt hitti þig mundi eftir þér löngu seinna. Þú reyndist okkur systrum svo einstaklega vel og því mun ég aldrei gleyma. Þú varst alltaf svo hugulsöm, hjarthlý, einlæg, já- kvæð og hlekkurinn okkar allra. Þú gafst svo mikið frá þér og ég vildi óska þess að ég hefði haft tíma til að gefa meira á móti. Þú varst mér mikil fyrirmynd frá unga aldri og það sem þú varst skemmtileg og fyndin, en kenndir mér umfram allt að hafa húmor fyrir mér sjálfri. Takk fyrir allar dýmætu stundirnar sem við eign- uðumst, þær einkenndust af mikl- um hlátri og því mun ég aldrei gleyma. Þegar komið er að leiðarlokum og kveðju þá iðrast maður ýmis- legs. En með jákvæðni þinni og öllu því sem þú kenndir mér þá veit ég að: „Ekki gráta af því þessu er lokið, brostu yfir því að þetta gerðist.“ Þakklæti og gleði er mér efst í huga þegar ég hugsa til þín. Ég mun halda minningu þinni á lofti um ókomna tíð, passa einstaklega vel upp ömmu, börnin þín og fólk- ið okkar. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig ein með sorgir mínar. Gef mér kærleik gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Ómar Ragnarsson/ Gísli á Uppsölum) Með saknaðarkveðju, þín Bagga. Sigurbjörg Auðunsdóttir. Elsku yndislega frænka mín. Það má með sanni segja að ég finn fyrir miklum tómleika. Til- hugsunin um að þú sért ekki leng- ur á meðal okkar er óhugsandi. Þú sem hefur staðið með mér í gegn- um súrt og sætt, gefið mér móður- leg ráð á erfiðum tímum og um- fram allt verið mér afar kær vinkona. Jákvæðni, manngæska, gálga- húmor og æðruleysi eru einkunn- arorð um litríkan persónuleika þinn. Framangreindir mannkostir gerðu það að verkum hve dásam- legt og stórskemmtilegt var að vera í kringum þig. Hjá okkur var alltaf gaman, við gátum hlegið og talað saman um allt og ekkert. Ég þakka fyrir þær fjölmörgu minn- ingar og leyfi þeim að lýsa upp mína vegferð, í gegnum ókomin ár. Það hefur verið átakanlegt að fylgja þér í gegnum þessa erfiðu vegferð sem veikindin hafa skap- að. Þrátt fyrir að þú hafir í gegn- um ferlið, oft á tíðum, staðið með vindinn í fangið mátti aldrei greina neikvæðni, reiði né von- leysi í þínu fari. Þvert á móti, þú naust hverrar mínútu sem lífið hafði upp á að bjóða og vegna þessa áttum við meðal annars yndislegan tíma undir lokin á spít- alanum. Það eru forréttindi að hafa kynnst þér og fengið að verja tíma með þér og þínum. Ég elska þig og mun þér aldrei gleyma. Minn- ing þín mun lifa enda mun ég sjá til þess að segja af þér sögur og miðla ráðum þínum. Hinsta kveðja og hjartans þökk. Þín Aníta. Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÍRIS KARLSDÓTTIR sjúkraliði, lést þriðjudaginn 2. apríl í Halifax. Útförin fer fram í Kópavogskirkju miðvikudaginn 24. apríl klukkan 13. Guðmundur Haraldsson Karl Þór Baldvinsson Matthildur Björnsdóttir Haraldur Þór Guðmundsson Ragnheiður Valgarðsdóttir Laufey Guðmundsdóttir Jóhann Bjarnason Arnar Þór Guðmundsson Hrafnhildur Fanngeirsdóttir Lilja Hrönn Guðmundsdóttir Eyþór Friðriksson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR SIGTRYGGSSON áður til heimilis í Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi sunnudaginn 14. apríl. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 23. apríl klukkan 13. Gréta Björg Hafsteinsdóttir Ómar Már Gunnarsson Ingibergur H. Hafsteinsson Albína Jóhannesdóttir Regína Hauksdóttir Harpa Hauksdóttir Heiðrún Hauksdóttir Helgi Einarsson afa- og langafabörn Elsku mamma okkar, tengdamamma, dóttir, systir og amma, HELGA HAFSTEINSDÓTTIR hársnyrtimeistari, Hríseyjargötu 20, Akureyri, lést sunnudaginn 14. apríl. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 2. maí klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Guðrún Ósk Þorbjörnsdóttir Hólmar Sigmundsson Hafdís Þorbjörnsdóttir Ingi Jóhann Friðjónsson Birta Júlía Þorbjörnsdóttir Ingibjörg Kristinsdóttir Hulda Hafsteinsdóttir Júlíus Jónsson Þórunn Hafsteinsdóttir Guðni Þór Jósepsson Ylfa og Frosti Snær Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSDÍS GUÐBRANDSDÓTTIR, Nýjabæ, Garði, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, þriðjudaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 23. apríl klukkan 13. Hörður Ragnarsson Hulda Björk Þorkelsdóttir Friðrik Ragnarsson Maretta Ragnarsson Ragnhildur Ragnarsdóttir Atli Rafn Eyþórsson Guðbjörg Ragnarsdóttir Þór Guðjónsson Sigrún Ragnarsdóttir Gísli Heiðarsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Okkar kæri sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, ÁGÚST ÞÓR ÁRNASON, aðjúnkt, lést á heimili sínu fimmtudaginn 11. apríl. Jarðarförin fer fram föstudaginn 26. apríl klukkan 15 frá Langholtskirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu Akureyrar eða Krabbameinsfélag Akureyrar Margrét Elísabet Ólafsdóttir Guðmundur Árni Ágústsson Mojca Skraban Brynjar Ágústsson Svana Helgadóttir Helga Björg, R. Sunna, Birta Guðrún og Dagur Elísabet Ólöf Ágústsdóttir Maik Cichon Carolin Freyja, Sophie Sól og Eric Thor Guðjón Trausti Árnason Kerstin E. Anderson Guðbjörg Gígja Árnad. Sigurður M. Jónsson Jóhanna Harpa Árnadóttir Þorsteinn Páll Hængsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.