Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 ✝ ÞorgeirReynisson fæddist á Siglufirði 15. desember 1954. Hann lést 12. jan- úar 2019 í Noregi. Foreldrar hans voru Jóna Jak- obína Þorgeirs- dóttir, f. 30.10. 1933, d. 5.4. 2014, og Haraldur Reyn- ir Árnason, f. 16.8. 1930, d. 27.1. 2007. Systir Þorgeirs er Guðrún Reynisdóttir, f. 27.6. 1959, gift Jóhannesi Ingvari Lárussyni, f. 19.11. 1950. Þorgeir giftist þann 1.1. 1977 Sóleyju Þór- laugu Sigurðardóttur, f. 17.6. 1958. Þau skildu. Þorgeir og Sóley eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Atli Þór Þorgeirsson, f. 26.9. 1974. Börn hans eru: a) Breki Atlason, f. 18.2. 2003, b) Úlfa Nadía Miljevic Atladóttir, f. 22.3. 2017. 2) Jóna Jakobína Þor- geirsdóttir, f. 21.10. 1976. Börn hennar eru: a) Thelma Rut og b) Diljá Sif Guðnadætur, f. 27.10. 2000. c) Guðjón Þór Magnús- son, f. 5.12. 2010. 3) Guð- mundur Þorgeirsson, f. 29.8. 1986. Minningarathöfn um Þorgeir verður haldin í Siglufjarðar- kirkju í dag, 20. apríl 2019, klukkan 14. Í kvæðinu Veröld án veggja, eftir Þorgeir, er þessi vísa: Gleymdu mér ekki guð gefðu mér auga gegnum glerið grið á betri stað. Svífa á vötnum sálir sem sofa, svefnlausi maðurinn kvað. Við kynntumst Þorgeiri skömmu eftir að hann kom fyrst til Sandefjord. Við höfðum þá búið hér skamma hríð, og vorum rétt að kynnast fólkinu og bænum. Löngu síðar sagði hann mér þessa sögu: Manstu þegar ég kom hingað fyrst, og gisti hjá ykkur. Ég hef ekki þorað að segja þér það fyrr. Það var sautjánda maí að ég vakn- aði við heilmikinn lúðrablástur, rauk út í glugga og svipti gard- ínunum frá til að gá hvað væri á seyði. Þar blasti við þessi fína skrúðganga, skólalúðrasveitin, all- ir krakkarnir prúðbúnir, kennar- arnir í þjóðbúningum, veifandi norska fánanum og hrópandi húrra. Það var tilkomumikil sjón. En ég gáði ekki að því hvað blasti við blessuðum börnunum. Ég sef nefnilega alltaf nakinn! Þá skildi ég af hverju kennar- arnir höfðu horft svona einkenni- lega á okkur næstu árin. Þorgeir var hamhleypa til verka. Hann var ætíð árrisull og vinnusamur. Ætíð hjálpsamur og elskulegur. Hann vann lengi á stórum gröfuskipum með Noregs- ströndum og Frakklandi. Síðar tók hann að kaupa fasteignir og gerði upp og seldi svo. Eða gaf, ef svo bar undir. Hann safnaði ekki veraldlegum auði. Einu sinni feng- um við Þorgeir til að leika jóla- sveininn. Hann barði húsið utan svo börnin hrukku við og ruddist svo inn með poka á bakinu. Rödd- in var óþekkjanleg og börnin skelfd, en þeim fannst ekkert skrítið að jólasveinninn talaði ís- lensku í Noregi. Þegar hann rétti þeirri yngstu pakka úr pokanum, sá hún húðflúrið sem þakti fram- handlegginn: Þetta er enginn jóla- sveinn, þetta er hann Doddi. Hann var þekktur undir ýms- um nöfnum. Á Siglufirði hét hann Toggi. Þegar hann söng með Mið- aldamönnum um sveitir norðan- lands kallaðist hann Geiri, í Nor- egi hét hann Torgeir, börnin mín þekktu hann sem Dodda. Í Frakk- landi og Austurlöndum fjær var hann kallaður Tótó. Það var alltaf glaðværð, þegar Þorgeir var annars vegar, og var hann vel þokkaður og vinsæll, eins og þessi saga sýnir: Halló, komið þið á laugardag- inn? Kannski, kemur Þorgeir? Veit ekki, hann er ekki búinn að svara, ég skal athuga. Sæll, kemur þú á laugardaginn? Hvað er í matinn? Við ætlum að grilla nautalund, en einhver verður að búa til bearnaissósuna. –Ég kem, þið þurfið að fá almennilega sósu. Halló aftur, heyrðu, Þorgeir kemur. Fínt, sjáumst. Þorgeir var ætíð hrókur alls fagnaðar og heimsótti okkur oft. Stundum söng hann og spilaði á gítarinn, eða sagði sögur af sjálf- um sér og afrekum sínum, eða bara tilbúna brandara til að fá fólk til að hlæja. Og það var mikið hlegið. En undir glaðværu yfirbragð- inu bjó viðkvæmari sál. Hann samdi ljóð og lög við þau, sem voru hljóðritað fyrir nokkrum árum. Í ljóðinu Lokaferð er þessi vísa: Nú er ekki ferðafært um dalinn, einmana úlfur ýlfrar hátt, er kvalinn, finnur ekki ferðalanginn kæra, skjálfandi á grúfu milli hleina, líður inn í lokasvefninn væra. Þorgeir Reynisson er öllum harmdauði og söknum við hans mikið. Högni Jónsson. Þorgeir Reynisson Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, ÓSKARS INGÓLFS ÞÓRÐARSONAR áður til heimilis á Blöndubakka 16, Reykjavík, sem lést laugardaginn 23. mars. Starfsfólki Seljahlíðar og Droplaugarstaða eru færðar innilegar þakkir fyrir góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Þórður Garðar Óskarsson Rannveig Jónsdóttir Jóna Ingibjörg Óskarsdóttir Benedikt Guðni Þórðarson Þorleifur Óskarsson Helga Kristín Gunnarsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, HEBBU HERBERTSDÓTTUR. Gylfi Zoega Marta Guðrún Skúladóttir Gunnar Már Zoega Inga Sif Ólafsdóttir Tómas Gylfi, Gunnar Snorri, Einar Skúli Ólafur Már, Gerða María, Kristín Hebba Dís Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR andaðist að Sólvangi í Hafnarfirði fimmtudaginn 11. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 3ju hæðar Sólvangs fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Kári Birgir Sigurðsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, GUÐRÚNAR BIRNU GARÐARSDÓTTUR Heiðvangi 7, Hellu. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jón Helgason Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖRN EGILSSON fulltrúi, lést á hjúkrunarheimilinu Skógabæ, Seljahverfi, laugardaginn 13. apríl. Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 23. apríl klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á að styrkja Alzheimer samtökin eða önnur mannúðarmálefni. Lonni J. Egilsson Gunnhildur Elsa A. Hansen Egill Örn Arnarson Hansen Anna Silfa Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN SNÆDAL, Grettisgötu 6, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 7. apríl. Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 24. apríl klukkan 13. Ágústa Axelsdóttir Óttar Snædal Eva Lind Gígja Daði Ingólfsson Gunnhildur Ólafsdóttir og barnabörn Í smáu skríni hjá móður minni er lítil mynd, sem komin er til ára sinna, af tveimur ungum stúlk- um. Þær höfðu skotist út í ljós- myndasjálfsala í matarhléi á Rafveitunni. Myndin fangar hógværa glaðværð þeirra og vináttu. Vinnufélagarnir forð- um, Halla Jóhannsdóttir og móðir mín Marta Jónasdóttir, voru ekki aðeins samstarfsmenn á Rafveitunni við Tjarnargötu í nærri áratug, áður en þær festu ráð sitt, því þær voru náskyldar í báðar ættir. Þær voru systra- dætur, dætur Ólafar og Huldu frá Álftanesi á Mýrum, og Jó- hann Ármann faðir Höllu var ömmubróðir móður minnar í föðurætt. Vinskapur stúlknanna var því marginnsiglaður með ættartengingum úr Borgarfirði í móðurætt og undan Eyjafjöll- um í föðurætt og samstarfi á fimmta og sjötta áratugnum. Á milli þeirra skapaðist hálfgert systrasamband sem stóð hátt í níu áratugi hnýtt með líkindum og samstöðu. Þær göntuðust á stundum með það þegar þær lofuðu heilsu sína og góða af- komu að það væru „góðu genin“ sem þær deildu sem reyndust þeim svona vel. Höllu upplifði ég sem konu sem lét sig málefnin varða. Hún Halla Jóhannsdóttir ✝ Halla Jóhanns-dóttir fæddist 20. nóvember 1923. Hún lést 8. apríl 2018. Útför Höllu fór fram í kyrrþey 20. apríl 2018. sló á þráðinn og spurði frétta af fólki á ýmsum aldri af ömmu, mömmu og systur hennar og síðar börnunum. Um- hyggjusemi Höllu náði út yfir stór- fjölskylduna og fórum við mæðgur ekki varhluta af henni. Á mínum unglingsárum átti hún það til að bjóða okkur í mat sem bragðaðist undur vel. Í eitt slíkt sinn á aðventu var borðað í eldhúsinu því borðstofuborðið stóð þakið af föndurefnum og áhöldum til sköpunar. Sannköll- uð sælustund fór í hönd í þessu gósenlandi. Afraksturinn er settur upp hver jól og yljar. Halla er hluti af þeim kvennakrans sem studdi mig í uppvextinum. Hún fylgdist með áföngum í lífi fjölskyldunnar og gott betur, hún hélt ferm- ingarveislu fyrir mig í húsinu sínu við Sæbrautina með stóru gluggunum sem fönguðu mis- munandi birtu hafs og himins. Í tilefni stúdentsútskriftar sendi hún kvæði og sögur Jónasar Hallgrímssonar og tertu í líki stúdentshúfu og rennir mig í grun að ég hafi ekki verið sú eina sem fékk slíkt listaverk úr hennar höndum. Nú ári eftir útför Höllu stendur hún ljóslifandi fyrir hugskotssjónum mínum og móður minnar með sitt kank- vísa bros, opna faðm og geisl- andi áhuga á margvíslegum málefnum. Valgerður Garðarsdóttir. „Hver rifjar upp líf sitt án þess að minnast kennara sem skiptu hann miklu máli?“ Svo sagði mætur maður, Gunnar Eyjólfsson leikari, í ævisögu sinni, Alvöru leiksins (283). Og sannarlega verður mér hugsað með hlýhug og þökk til eins helzta læriföður míns í guð- fræði, dr. Einars Sigurbjörns- sonar, sem var í senn fjölfróður, stórvel gefinn og gefandi af sínu. Eftir nám í forntungunum grísku og hebresku, almennri trúarbragðafræði og inngangs- fræðum Biblíuritanna, ásamt ritskýringu þeirra, öllum þeim merku fræðum hjá miklum vís- dóms-kennurum eins og Jó- hanni Hannessyni, Birni Magnússyni, Jóni Sveinbjörns- syni, dr. Þóri Kr. Þórðarsyni o.fl., þá tók við önnur megin- áherzla hjá guðfræðinemum, í trúfræði, kirkjudeildafræði, sið- fræði og kirkjusögu. Tvær fyrstnefndu greinarnar annaðist dr. Einar. Ég get séð hann líf- legan fyrir mér, sitjandi við enda borðsins langa í 5. kennslustofu háskólans, með öllum sínum nemendum (obbinn af þeim karlkyns á þeim árum) og leiða þá gegnum efnið með sínum létta, en hugmyndavekj- andi hætti. Þetta var sönn akademía, þar sem nemendur áttu frjóar rök- Einar Sigurbjörnsson ✝ Einar Sigur-björnsson fæddist 6. maí 1944. Hann lést 20. febrúar 2019. Útför hans fór fram 6. mars 2019. ræður við læri- meistara sinn, rétt eins og tíðkaðist í háskólum miðalda. Quæstiones dispu- tatæ (umdeild meginspursmál) í heimspeki, guð- fræði og trúfræði voru þar rökrædd í þaula, með ótal heimildum, ver- aldlegum og trúar- legum, og eftir aðferðum rök- fræðinnar, og ég finn sama skyldleikann í kennslustundum með mínum sænskmenntaða doktor Einari. Alvara hans í þjónustunni við hinn kristna arf birtist bæði þar, iðulega með óvæntum ábendingum, og í bók- um hans ferskum, áhugaverð- um, vel skipulögðum án mála- lenginga. Hlýhugur hans og bræðralag með okkur nemend- um sýndi sig bæði í kennslu- stofunni, einkaráðgjöf og í kaffi- samveru okkar á Kapelluloftinu. Hann auðsýndi vali mínu á kaþólskri trú fulla virðingu og var mér áfram til leiðsagnar með sérefnisritgerð mína á mörkum þekkingarfræði og trú- fræði skólaspekingsins Tómasar frá Aquino. Þá var líka gott að vitja hans í rannsóknarstofu hans og eitt sinn a.m.k. á heim- ili þeirra hjónanna, en minnis- stætt líka að koma til þeirra síðar í sumarbústaðinn í Hval- firði. Ég vil enda þetta með þakk- lætis- og samúðarorðum til ekkju hans Guðrúnar Eddu og fjölskyldu hans allrar. Megi minning hins góða manns lifa og leið hans opnast að náðar- stóli frelsara okkar Jesú Krists. Jón Valur Jensson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.