Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 36
póstinum ásamt vini sínum, Sigurði
Sverrissyni og fyrrverandi sam-
starfsmanni á Mogga, en hann gaf
þá út Skagablaðið. Hún tók síðan ein
við blaðinu. „Þetta var mikil vinna
sem stóð yfir frá 1988 til 1992. Pólit-
íkin var hörð í Firðinum á þessum
tíma, kratar í meirihluta með Guð-
mund Árna sem bæjarstjóra, oft
gustaði hressilega.“ Fríða var um
tíma í ritstjórn 19. júní, tímarits
Kvenréttindafélags Íslands og ann-
aðist útgáfu landsmálablaðanna
Hamars í Hafnarfirði og Garða í
Garðabæ.
Úr Firðinum fór Fríða til starfa
og náms sem áfengisráðgjafi hjá
SÁÁ frá 1993 til 1998; hún er með al-
þjóðleg réttindi sem áfengis- og
vímuefnaráðgjafi. Árin 1999 til 2004
starfaði hún hjá Landspítalanum við
námskeiðahald fyrir aðstandendur.
„Áfengis- og vímuefnaráðgjöf er
krefjandi en mjög gefandi starf.
Mörgum bestu vina minna sem ég á í
dag kynntist ég í því starfi.“
var frábært vinnuumhverfi og marg-
ir eftirminnilegir þingmenn sem ég
vann fyrir. Ég vil sérstaklega nefna
Helga Seljan, Jónas Árnason og
höfðingjann Vilhjálm frá Brekku.“
Frá Alþingi lá leiðin í blaða-
mennsku á Morgunblaðið en þar
starfaði hún frá 1978 til 1986. Á átt-
unda áratugnum var Fríða virk í
stjórnmálabaráttu ungra sjálfstæð-
ismanna. „Ég var formaður FUS
Hugins í Garðabæ og í stjórn Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna; var
fyrsti varabæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Garðabæ 1978 til 1982,
kennari í Stjórnmálaskóla Sjálf-
stæðisflokksins 1969 til 1978. Enn
fremur átti ég sæti í stjórn Blaða-
mannafélags Íslands um skeið.
Morgunblaðsárin voru eitt skemmti-
legasta tímabil ævinnar; ég minnist
fjölmargra samstarfsmanna og við-
mælenda með þakklæti og virðingu.“
Af Mogganum lá leiðin suður í
Hafnarfjörð þar sem Fríða hóf út-
gáfu á héraðsblaðinu Fjarðar-
F
ríða Proppé fæddist 20.
apríl 1949 á Flókagötu
1, Reykjavík, ólst þar
upp en flutti 10 ára í
Vogahverfið. Landa-
kotsskóli var fyrsti skólinn, síðan
Vogaskóli, þá Verslunarskóli Íslands
og síðar Háskóli Íslands. „Ég fór níu
ára í sveit að Hofi í Vatnsdal, A.-
Hún. og var þar í tvö sumur, síðan á
Kirkjubæjarklaustur og Hólm í
Landbroti. Ég var kúarektor, sett
upp á rakstrarvél tíu ára sem hestur
dró, vann fyrir fæði og húsnæði. Á
unglingsárum fór ég í tómatarækt á
Syðri-Reykjum og fiskvinnslu á
Akranesi. Orðið barnaþrælkun var
þá ekki til. Í velflestum tilfellum
höfðu börn minnar kynslóðar gott af
því að kynnast atvinnulífi til sjávar
og sveitar.“
Margar góðar minningar á Fríða
úr Vogahverfinu. Krakkar voru í
tugatali í útileikjum: Brennó, fallin
spýtan og alls kyns útivist. Fjöl-
skyldur voru stórar, Vogaskóli ný-
byggður og í hverfinu Hálogaland,
braggi frá stríðsárunum þar sem
kennd var skólaleikfimi og æfðar
íþróttir. „Laugardalshöllin var
byggð á unglingsárum mínum og
fátt um aðra lögmæta keppnis-
íþróttaaðstöðu. Ég æfði handbolta
með Fram, komst í meistaraflokk og
unglingalandslið. Enn fremur keppti
ég í frjálsum íþróttum með ÍR,
stundaði helst kastgreinar og há-
stökk. Hvers konar íþróttir, auk lax-
og silungsveiða með Helga eigin-
manni mínum, hafa gefið mér mikið.
Ég hóf að stunda sund með Görpum
í Breiðabliki fyrir þremur árum. Við
fórum nokkur saman á Norður-
landamót í Málmey sl. haust; ég
vann til verðlauna í mínum aldurs-
flokki; tvö gull og eitt brons. Fram-
undan er árlegt Íslandsmeistaramót
Garpa í byrjun maí; ég keppi þar í
aldursflokki 70-74 ára.“
Verslunarskólaprófi lauk Fríða
1968. Hún starfaði sem gangastúlka
á Heilsuverndarstöðinni á sumrin
meðfram námi og fór í hjúkrun um
haustið. Þungaðir hjúkunarnemar
máttu ekki vinna á þeim árum þann-
ig að Fríða hóf störf á Alþingi 1969.
Hún ílengdist þar til 1978, fyrstu ár-
in við þingritun, síðar sem einkarit-
ari þingmanna í Þórshamri. „Þetta
Komin á sextugsaldur 2003 og
samhliða starfinu á Landspítalanum
hóf Fríða nám í íslenskudeild við
Háskóla Íslands og lauk BA-námi
árið 2006. „Mér fannst svo gaman í
HÍ að þegar BA-gráðan var í höfn,
elti ég skólafélaga í kennslurétt-
indanám í félagsvísindadeild og lauk
því ári síðar,“ sagði hún. Meistara-
gráðu í kennslufræði íslensku,
Mpaed, hlaut Fríða 2009. Í kennslu-
fræðináminu var Fríða kennaranemi
við Menntaskólann í Kópavogi og
fékk stöðu þar 2007 sem íslensku-
kennari. „MK er góður vinnustaður.
Þar er hópur frábærra kennara og
starfsfólks og fátt hefur gefið mér
meiri ánægju í lífinu en að vinna með
ungu fólki sem á framtíðina fyrir
sér. Íslenskan er mér kær og topp-
urinn að fá að ljúka starfsferlinum
með því að miðla henni.“
Fríða hætti störfum að mestu
haustið 2017 en sinnir enn íhlaupa-
kennslu. Auk þess að njóta efri ár-
anna, sinnir hún eiginmanni sínum
sem er að kljást við heilabilunar-
sjúkdóm; hún á sæti í stjórn Alz-
heimersamtakanna. „Það er ekki
sjálfsagt að halda góðri heilsu,“ seg-
ir Fríða og að lokum: „Ég er þeirrar
skoðunar að það sé heimilt og jafn-
vel hollt að skipta um starfsvett-
vang. Ég held að öll starfsreynsla
nýtist hvert svo sem leiðin liggur
næst. Þegar ég lít um öxl upplifi ég
fyrst og fremst þakklæti fyrir öll
skemmtilegu tækifærin sem lífið
hefur boðið mér upp á og fyrir alla
frábæru samferðamenn mína.“
Fjölskylda
Eiginmaður Fríðu er Helgi Skúla-
son, f. 26.2. 1945, húsasmíðameistari.
Foreldrar hans voru hjónin Skúli
Jónsson, bóndi á Hróarslæk, Rang-
árvallasýslu, f. 24.9. 1919, d. 14.7.
1988 og Ingigerður Oddsdóttir,
bóndi á Hróarslæk, f. 28.3. 1923, d.
31.l. 2010. Fyrri maki Fríðu er Matt-
hías G. Pétursson, f. 18.11. 1948,
tryggingarfulltrúi.
Börn: 1) Halldóra Gyða Matthías-
dóttir Proppé, f. 20.6. 1969, alþjóða-
markaðsfræðingur, búsett í Garða-
bæ. Maki: Óli Svavar Hallgrímsson
kjötiðnaðarmaður. Sonur þeirra er
Kristófer Björn Ólason Proppé; 2)
Jóhannes Friðrik Matthíasson, f.
Fríða Proppé, framhaldsskólakennari, blaðamaður og áfengisráðgjafi – 70 ára
Atorkusöm Fríða stundar m.a. laxveiðar og keppir í sundi.
Hollt að skipta um starfsvettvang
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til þess að leyfa
sköpunargáfunni að njóta sín jafnvel
þótt annað verði að sitja á hakanum á
meðan.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú gætir átt von á búbót í gegnum
maka eða félaga. Dirfska þín í verkefna-
vali vekur aðdáun annarra og útkoman
verður glæsileg.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú finnur hjá þér þörf til að
bæta heilsuna. Það er auðveldara en þig
grunar að sleppa óhollustunni. Prófaðu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekkert fæst án fyrirhafnar og því
stoðar lítt að sitja með hendur í skauti
og bíða þess að hlutirnir gerist af sjálfu
sér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú getur gert góð kaup í dag. Ef þú
heldur að þú sért ekki á réttum stað
skaltu hugsa þig um.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Breyttu á einhvern hátt út af van-
anum í dag. Þú finnur fyrir þörf til að
gera breytingar heima við. Þú færð boð í
brúðkaup.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú mátt aldrei missa sjónar á vel-
ferð þinna nánustu, þótt í mörg horn sé
að líta. Þú færð símtal sem gleður þig.
Njóttu samveru með fjölskyldu og vin-
um.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú verðurðu að halda þér
til hlés og ýta frá þér fólki sem tekur frá
þér orku. Þú hefur þörf fyrir að skríða
inn í skelina.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að
staldra við og gefa sér tíma til að skoða
hlutina vandlega. Þiggðu hjálp ef þú
þarft hana. Heppnin mun elta þig næstu
daga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að verða þér úti um
eins mikla útiveru og þú getur. Þú tekur
framförum í ræðutækni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Varaðu þig á fjárfestingum í
dag því þú gætir ofmetið heppni þína.
Semdu þar til þú færð bestu kjörin. Ekki
er allt gull sem glóir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stundum verður maður að við-
urkenna staðreyndir sem eru manni á
móti skapi. Sannleikanum verður hver
sárreiðastur.
50 ára Hilmar er
fæddur og uppalinn í
Reykjavík en hefur búið
á Egilsstöðum frá 14
ára aldri. Hann er lög-
maður og fasteignasali,
er einn eigenda lög-
mannsstofunnar Sókn-
ar og eigandi Inni fasteignasölu og er
formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga.
Maki: Stefanía J. Valdimarsdóttir, f.
1970, íslenskukennari.
Börn: Bryndís Björt, f. 1993, Kolbeinn, f.
1996, og Valdimar Brimir, f. 2002.
Barnabarn er Ívan Pétur Björgvinsson.
Foreldrar: Gunnlaugur Már Guðmunds-
son, f. 1948, d. 2015, sjómaður í Reykja-
vík, og Hjördís Hilmarsdóttir, f. 1951,
fasteignasali, bús. á Egilsstöðum.
Hilmar Gunnlaugsson
40 ára Áshildur er frá
Akureyri en býr í
Hafnarfirði. Hún er
sjálfstætt starfandi
markþjálfi og gong-
spilari. Hún hefur
starfað í áratug með
foreldrafélögum með
viðkomu í pólitík. Hún er menntaður
kennari með diplóma í jákvæðri sálfræði.
Maki: Sigurður Ólason, f. 1973, fram-
kvæmdastjóri hjá Marel.
Börn: Viktor, f. 2005, Anton, f. 2007,
Lilja Karítas, f. 2008, og Katrín Líf, f.
2010.
Foreldrar: Valtýr Hreiðarsson, f. 1949,
viðskiptafræðingur, og Katrín Jónsdóttir,
f. 1949, nuddari. Þau eru búsett í Sunnu-
hlíð á Svalbarðsströnd.
Áshildur Hlín Valtýsdóttir
Til hamingju með daginn
Á opnunni „Íslendingar“ íMorgunblaðinu
er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is