Morgunblaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
ÍSLANDSMÓTIÐ
í Pepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu
sumarið 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir miðvikudaginn 17. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569 1105
–– Meira fyrir lesendur
26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
SÉRBLAÐ
Skapmaðurinn Capers einbeitti sér
að körfubolta og þá er hann gríðar-
lega góður. Robinson er misjafn, en
góður á sínum degi og Matthías
átti sína bestu leiki á tímabilinu á
móti Stjörnunni. Matthías er einn
mikilvægasti íslenski leikmaður
deildarinnar og þegar hann spilar
vel spilar ÍR oftast vel. Sigurður
Gunnar Þorsteinsson reyndi hvað
hann gat á móti Stjörnunni en hann
var að glíma við Hlyn Bæringsson
stærstan hluta seríunnar. Hann
gæti verið meira áberandi á móti
KR og er ÍR þá með aukavopn í
sókninni.
Það þarf hins vegar allt að ganga
upp á móti KR, sem kann þetta allt
saman upp á 10. ÍR-ingar mega
ekki við því að lykilmenn spili illa,
en KR-ingar geta komist upp með
það, enda breiddin gríðarleg, það
tekur næsti maður við. KR-ingar
léku síðast 15. apríl og ættu því að
mæta úthvíldir gegn ÍR-ingum sem
fóru í gegnum erfiða fimm leikja
seríu gegn tvöföldum meisturum.
Fyrsti leikur úrslitanna fer fram í
DHL-höllinni í Vesturbænum næst-
komandi þriðjudag.
Fyrsta úrslitaeinvígi í 49 ár
ÍR vann tvisvar í Garðabænum og fer í úrslit Síðasti titillinn kom 1977
Fimmfaldir Íslandsmeistarar KR bíða í úrslitum Áfall fyrir Stjörnuna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigursælir ÍR-ingarnir Matthías Orri Sigurðarson og Gerald Robinson eru komnir í úrslitin gegn KR.
MG-höllin, undanúrslit karla, odda-
leikur, fimmtudag 18. apríl 2019.
Gangur leiksins: 4:5, 7:9, 19:18,
22:21, 29:24, 33:32, 34:37, 37:50,
40:54, 46:64, 52:68, 58:68, 63:71,
65:75, 70:82, 79:83.
Stjarnan: Antti Kanervo 19, Hlynur
Elías Bæringsson 16/11 fráköst/5
stoðsendingar, Collin Anthony Pryor
13, Brandon Rozzell 11/5 fráköst/6
stoðsendingar, Filip Kramer 8, Ægir
Þór Steinarsson 6/9 stoðsendingar,
Tómas Þ. Hilmarsson 6/5 fráköst.
Fráköst: 22 í vörn, 9 í sókn.
Stjarnan – ÍR 79:83
ÍR: Gerald Robinson 22/10 fráköst,
Kevin Capers 20/4 fráköst/7 stoð-
sendingar, Matthías Orri Sigurðar-
son 20/4 fráköst/6 stoðsendingar,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9,
Daði Berg Grétarsson 5, Sigurkarl
Róbert Jóhannesson 4, Hákon Örn
Hjálmarsson 3.
Fráköst: 16 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Leifur S. Gardarsson, Rögnvald-
ur Hreiðarsson.
Áhorfendur: 1350.
ÍR sigraði 3:2.
HANDBOLTI
Grill 66-deild karla
Umspil, undanúrslit, fyrsti leikur:
Þróttur – HK.............................. (24:27) 10:0
Þrótti var úrskurðaður sigur.
Þýskaland
H-Burgdorf – RN Löwen.................... 28:30
Alexander Petersson skoraði 6 mörk fyr-
ir Löwen en Guðjón Valur Sigurðsson lék
ekki með.
Füchse Berlín – Kiel............................ 29:30
Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk fyrir
Füchse. Alfreð Gíslason þjálfar Kiel.
B-deild:
Aue – Balingen..................................... 31:26
Oddur Gretarsson skoraði eitt mark fyr-
ir Balingen.
Dormagen – Hamburg........................ 31:28
Aron Rafn Eðvarðsson varði 4 skot í
marki Hamburg.
Spánn
Barcelona – Anaitasuna ..................... 35:26
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir
Barcelona.
Danmörk
Århus – GOG ........................................ 26:28
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyr-
ir GOG.
Esbjerg – Viborg ................................. 29:25
Rut Jóns skoraði ekki fyrir Esbjerg.
Frakkland
Dijon – París 92 ................................... 27:24
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði ekki
fyrir Dijon.
Svíþjóð
8-liða úrslit, fjórði leikur:
Redbergslid – Kristianstad ................ 22:25
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 4 mörk
fyrir Kristianstad, Teitur Örn Einarsson 2
og Ólafur Guðmundsson 1.
Kristianstad vann einvígið 3:1.
Austurríki
Bikarinn, undanúrslit:
Schwaz – Bregenz ............................... 20:24
Ísak Rafnsson skoraði 1 mark fyrir
Schwaz.
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ég var búinn að segja það fyrir
fram að þetta færi í fimm leiki og
þá er þetta 50/50,“ sagði Kristófer
Acox, leikmaður KR, í samtali við
Morgunblaðið, spurður hvort það
hefði komið honum á óvart að ÍR
sló Stjörnuna út í undanúrslitum
Íslandsmótsins í körfubolta. Með
sigrinum tryggði ÍR sér sæti í úr-
slitunum gegn KR.
„ÍR er búið að koma flestum á
óvart í þessari úrslitakeppni og lið-
ið er búið að fara erfiða leið. Það
má hrósa ÍR-ingum fyrir að komast
alla leið í úrslit,“ sagði Kristófer.
ÍR hafnaði í sjöunda sæti deildar-
innar, en sló út Njarðvík, sem hafn-
aði í öðru sæti, og svo deildar- og
bikarmeistara Stjörnunnar.
„Þeir eru að smella á réttum
tíma, svipað og við höfum verið að
gera í úrslitakeppninni. ÍR er með
mjög góðan hóp og mun betri en
deildarkeppnin gaf til kynna. Þetta
er skólabókardæmi um hversu op-
in þessi úrslitakeppni er; fimmta
sæti og sjöunda sæti mætast í úr-
slitum.“
Kristófer segir alla í KR-liðinu
vera heila heilsu og ríkir spenna
hjá fimmföldum Íslandsmeist-
urunum. KR lék síðast við Þór Þ.
15. apríl og fær því meiri hvíld en
ÍR fyrir úrslitaeinvígið.
„Við erum mjög spenntir að fá
að byrja að spila aftur. Það skiptir
máli að fá nokkra aukadaga í pásu
á meðan hinir þurfa að kljást í
mjög erfiðri rimmu. Við erum allir
heilir og klárir í þetta,“ sagði
Kristófer Acox.
Fyrsti leikur KR og ÍR fer fram
næstkomandi þriðjudagskvöld í
Vesturbænum.
„ÍR er búið að koma
flestum á óvart“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrslit Kristófer Acox og KR-ingar
mæta ÍR á þriðjudagskvöld.
Svíþjóð
Norrköping – Falkenberg...................... 4:3
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með Norrköping og lagði upp sigur-
markið í uppbótartíma.
Frakkland
Dijon – Rennes ......................................... 3:2
Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn
með Dijon.
Holland
PSV Eindhoven – Ajax............................ 0:1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék síð-
asta hálftímann með PSV en Anna Björk
Kristjánsdóttir er frá vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
Í GARÐABÆ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Það verða ÍR og KR sem leika til
úrslita um Íslandsmeistaratitil
karla í körfubolta. Það varð ljóst
eftir 83:79-sigur ÍR á Stjörnunni á
útivelli í oddaleik liðanna í undan-
úrslitum á skírdag. Framganga ÍR-
inga í úrslitakeppninni er glæsileg.
Liðið endaði í sjöunda sæti Dom-
inos-deildarinnar og lá því fyrir að
ÍR þyrfti að vinna Njarðvík, sem
endaði í öðru sæti, og að öllum lík-
indum deildar- og bikarmeistara
Stjörnunnar til að komast í úrslit.
Það er nákvæmlega það sem
Borche Ilievski og lærisveinar hans
gerðu. Sætið þeirra í úrslitunum er
algjörlega verðskuldað og fá þeir
þann heiður að leika í fyrsta úr-
slitaeinvígi tveggja Reykjavíkur-
liða.
ÍR er í úrslitum í fyrsta skipti
síðan úrslitakeppnin tók þá mynd
sem á henni er í dag og í fyrsta
skipti í úrslitaeinvígi síðan árið
1970. Félagið hafði mikla yfirburði í
íslenskum körfubolta á árum áður
og státar af 15 Íslandsmeistara-
titlum. Sá síðasti kom árið 1977 og
var það 15. titill ÍR-inga á 25 árum.
ÍR hefur ekki orðið meistari síðan
og þyrstir ÍR-inga í annan titil.
Í úrslitum bíður þeirra KR-lið
sem hefur orðið meistari síðustu
fimm ár. Það kom fáum á óvart að
KR skyldi komast í úrslit, þrátt
fyrir að liðið endaði í fimmta sæti
deildarinnar. Það vill enginn mæta
KR í úrslitakeppninni.
ÍR-ingar óttast hins vegar ekki
neinn. Það voru fáir sem spáðu ÍR-
ingum sigri gegn Stjörnunni, þrátt
fyrir góða spilamennsku í átta liða
úrslitum á móti Njarðvík. Ákveðnir
hlutir verða að vera í lagi á móti
KR í úrslitum, ætli ÍR-ingar sér að
eiga möguleika. Í oddaleiknum á
móti Stjörnunni spiluðu þeir Kevin
Capers, Gerald Robinson og Matt-
hías Orri Sigurðarson virkilega vel.