Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 42

Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Landscapes sem hún vann á árunum 2011 til 2017. Og í miklu bókverki sem ber sama heiti, Unwired, og kom nýverið út hjá þýska gæða- forlaginu Hatje Cantz, steypir hún því saman við annað skylt verkefni, iPortrait, en saman bregða þau ljósi á að tilvera og heimur okkar mann- anna skreppur sífellt meira saman inn í hinu stafræna neti heimsins, og fær okkur jafnframt til að spyrja hvort það sé bara jákvætt. Hvort bætt samband einangri fólk mögu- lega frekar en tengi. Hassink naut velgengni fyrir myndlist sína, sem fjallaði meðal annars um stórfyrirtæki heimsins og hnattvæðingu, og starfaði síðustu árin í New York-borg. Henni auðn- aðist að ljúka frágangi á þessari síð- ustu bók sinni áður en hún lést úr krabbameini í nóvember síðast- liðnum, aðeins 52 ára gömul. Lífsgæði í sambandsleysi Bókin Unwired er í stóru broti, há og þykk, í mjúkum spjöldum og 318 blaðsíður – æði efnismikil. Þá er leikið á meðvitaðan og athyglis- verðan hátt með ólíkar pappírs- tegundir í köflum verksins. Í inngangi kveðst Hassink hafa fengið hugmyndina að því að finna ótengda staði eftir að hafa dvalið um skeið á friðaðri eyju við Japan þar sem var ekkert símasamband og hún kynntist þeim lífsgæðum sem í því fólust; hún gat verið ein með sjálfri sér og engin truflun sem ógn- aði. Bókin hefst á sjötta tug mynda af landslagi og yfirgefnum mann- virkjum, það eru hin ótengdu svæði. Þarna eru myndir af íslenskum mosabreiðum og hraunflákum, eyði- dölum og sandbreiðum á hálendinu; aftast eru litlar útgáfur af öllum myndum bókarinnar og sagt hvar og hvenær þær voru teknar, þær ís- lensku eru frá nokkrum stöðum á Snæfellsnesi, frá Lakagígum, Langasjó og Loðmundarfirði. Í þess- um hluta eru einnig myndir frá nokkrum stöðum á Svalbarða – það- an eru myndirnar af sambandslausu eyðibyggðunum, frá eyjunni Yakus- hima við Japan, og svo kemur á óvart að fjórar myndir eru frá Baden- Baden í Þýskalandi. Þær eru teknar á lúxushóteli, í tveimur herbergjum sem hafa verið klædd með kopar til að gera þau sambandslaus – en er ljósin eru kveikt fá gestir þó sam- band, þeir geta tengst heiminum aftur. Seinni hluti bókarinnar er um þrjúhundruð mannamyndir og þá þarf að snúa bókinni upp á rönd til að skoða; hver mynd sýnir eina mann- eskju í jarðlest í nokkrum stór- borgum jarðar, og allir á myndunum eru í símanum og ótengdir umhverf- inu. Þessar myndir eru teknar í Sjanghæ, Moskvu, New York, Seól, Tókýó og London og bregða upp at- hyglisverðri mynd af þeim áhrifum sem snjallsímar hafa á líf og hegðun fólks. Hassink hnykkir á muninum á hinum tveimur heimum bókarinnar með því að mynda hina sam- bandslausu staði á millistóra filmu með myndavélina á þrífæti – það er hægt og vandvirknislegt vinnuferli – en myndirnar af fólki með símana tekur hún líka á síma, nokkrar út- gáfur af iPhone. Í athyglisverðu viðtali við Hass- ink sem er í bókarlok fjallar hún um þessi tvö verk sem mætast í bókinni og segir þau alls ekki jafn ólík og þau kunni að virðast við fyrstu sýn, enda fjalli bæði um stafrænt samband og sambandsleysi. Og það tókst henni að sýna okkur í sínu lokaverkefni á slá- andi hátt. Utan eða innan þjónustusvæðis  Jacqueline Hassink ljósmyndaði staði án símasambands á Íslandi Ljósmyndir/Jacqueline Hassink/Hatje Cantz Langisjór 3 Ljósmynd tekin í Vatnajökulsþjóðgarði 17. ágúst árið 2015, utan þjónustusvæðis farsímaneta. Þetta verk Jacqueline Hassink hefur birst víða á sýningum og með umfjöllun um þetta síðasta verkefni listakonunnar. iPortrait Moscow 15 er heiti þessarar ljósmyndar, einnar þúsunda sem Hassink tók í jarðlestum. Þessa tók hún 4. mars 2016 kl. 12.36 á iPhone 6. Neshraun 2 Ein mynda Hassink frá Íslandi, tekin 27. ágúst árið 2011. Listakonan Jacqueline Hassink og kápa síðustu bókar hennar. AF MYNDLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Með hverjum degi sem líður ná far- símanet símafyrirtækjanna að teygja geisla sína inn í sífellt af- skekktari afkima jarðar og er það kynnt sem mikilvæg og góð framför, og tákn um aukið öryggi. Ferða- langar á hálendi Íslands hafa fundið fyrir þessari langdrægni geislanna, hvernig þeir hafa sífellt betur uppi á fólki á afskekktum stöðum; þar sem þeir voru kannski áður einir í heim- inum á göngu, sambandslausir með öllu við umheiminn, og þótti það ótvíræð lífsgæði – en þá hringdi sím- inn skyndilega, þögnin var rofinn og nútíminn ruddist inn í kyrrðina. Hinir síminnkandi sambands- lausu staðir á jörðinni – meðal ann- ars á Íslandi – voru viðfangsefni hol- lenska ljósmyndarans og myndlistarkonunnar Jacqueline Hassink í verkefninu Unwired Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri Flugvallarþjónusta BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda. 5-8 manneskjur 19.500 kr. 1-4 manneskjur 15.500 kr. Verð aðra leið:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.