Morgunblaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Shazam er ein af ofurhetjumDC-útgáfunnar og ölluspaugilegri en aðrar slíkar,ef marka má þessa skemmtilegu kvikmynd sem er jafn- framt sú fyrsta um hetjuna. Shazam er 14 ára drengur, Billy Batson, sem getur breytt sér í fullorðna ofurhetju með því einu að hrópa Shazam. Lýst- ur þá eldingu niður í hann og - barba- brella! - Billy verður að Shazam eða Shazam að Billy. Shazam! er fyrst og fremst gam- anmynd og virkar að mestu vel sem slík. Í byrjun er annars vegar rakin saga illmennis myndarinnar og hins vegar Billy. Illmennið, Dr. Thaddeus Sivana, lendir í virkilega undarlegum aðstæðum sem ungur drengur þegar hann sogast, einhverra hluta vegna, inn í aðra vídd og hittir þar fyrir skrautlegan galdrakarl (Djimon Hounsou í kostulegu gervi). Sá segist vera að leita að hjartahreinni mann- eskju sem geti tekið við töframætti hans og haldið dauðasyndunum sjö í skefjum. Hinn hjartahreini þarf að standast freistingar dauðasyndanna sem eru viðstaddar í formi skrímsla í styttulíki (já, þetta er vissulega stór- furðulegt!). Sivana fellur á því prófi og er varpað aftur í raunheima. Hann ver ævi sinni í að finna aftur þennan galdraheim og tekst það loksins þegar hann er kominn á miðj- an aldur. Sogar hann þar í sig mátt hins illa og hyggst þvínæst hneppa mannkyn í þrældóm og leysa úr læð- ingi dauðasyndirnar sem nú búa innra með honum. Víkur þá sögunni að Billy sem verður viðskila við móður sína í skemmtigarði á barnsaldri og finnur hana aldrei aftur. Hann flakkar milli fósturforeldra fram á unglingsár en þrífst hvergi. Eftir að hafa framið minniháttar lögbrot og er honum komið fyrir hjá enn einni fjölskyld- unni og þar hittir hann fyrir Freddy sem er á svipuðum aldri og hann sjálfur og mikill aðdáandi ofurhetja. Dag einn er Billy óvænt kallaður á fund galdrakarlsins fyrrnefnda sem greinir honum frá því að hann sé bú- inn að leita að hjartahreinni mann- eskju sem arftaka til fjölda ára og sé nú orðinn uppgefinn á leitinni. Billy verði einfaldlega að taka við töfra- mættinum með því að grípa í galdra- stafinn hans og segja nafn hans upp- hátt. Nafnið er Shazam og um leið og Billy hefur kallað það breytist hann í fullorðna ofurhetju með þrútna vöðva og í mjög svo kjánalegum bún- ingi. Hann veit ekki sitt rjúkandi ráð en Freddy hjálpar honum að upp- götva krafta sína og á endanum að nýta þá til góðs. Þessi hluti myndar- innar er bráðfyndinn og sérsniðinn að börnum og unglingum (og auðvit- að líka fullorðnum sem geta enn fundið barnið í sjálfum sér). Þegar vondi karlinn Sivana fréttir af Sha- zam og áttar sig á því að þeir hafi fengið krafta sína frá sama stað og að hann verði að ráða niðurlögum hans. Hefst þá barátta upp á líf og dauða. Leikararnir njóta sín virkilega vel í þessum kjánaskap og Zachary Levi er bráðfyndinn í titilhlutverkinu. Þá eru hinir barnungu leikarar líka skemmtilegir og fer þar fremstur Grazer í hlutverki Freddy. Myndin minnir um margt á líkamsskipta- myndirnar hér í gamla daga, t.d. Vice Versa og Big en í þeim verða litlir strákar skyndilega að karl- mönnum fyrir töfra. Því geta fylgt margs konar vandræði, eins og gefur að skilja, og slíkar aðstæður geta bæði börn og fullorðnir lifað sig inni í. Í Shazam! má meira að segja sjá augljósa vísun í hið þekkta píanó- atriði Big þar sem Tom Hanks fer á kostum. Eins og oft vill verða í ofurhetju- myndum þá fatast þessari flugið í seinni hlutanum í alltof löngum slagsmálum hetjunnar og skúrksins og gjarnan hefði mátt klippa eins og 10-15 mínútur af þeim hamagangi. En Shazam! er samt sem áður mjög skemmtileg, hrein afþreying fyrir börn jafnt sem fullorðna og synir mínir tveir og álitsgjafar sem sáu hana með mér voru hæstánægðir. Barbabrella! Rafstraumur Zachary Levi í hlutverki Shazam og Jack Dylan Grazer í hlutverki vinar hans Freddy. Hér er Shazam nýbúinn að uppgötva einn af ofurkröftum sínum. Að mati rýnis er myndin fínasta afþreying þó ekki sé hún gallalaus. Laugarásbíó og Sambíóin Álfa- bakka, Kringlunni og Egilshöll Shazam! bbbmn Leikstjórn: David F. Sandberg. Handrit: Bill Birch, Darren Lemke, Geoff Johns og Henry Gayden. Aðalleikarar: Zachary Levi, Asher Angel, Mark Strong og Jack Dylan Grazer. Bandaríkin, 2019. 132 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Ein af þeim myndlistarsýningum sumarsins sem vekja umtal og áhuga meðal áhugasamra myndlist- arunnenda er sýningin Utrecht, Caravaggio og Evrópa sem var opnuð í Alte Pinakothek-safninu í München í vikunni. Þar er sýnt fram á það hversu mikil áhrif ný myndsýn og nálgun ítalska meist- arans Michaelangelo Merisi sem þekktur er sem Caravaggio (1571- 1610) hafði á aðra myndlistarmenn Evrópu á áratugunum eftir 1600. Á sýningunni eru nokkur lykil- verka Caravaggios sem hafa verið fengin að láni frá ólíkum evrópsk- um söfnum; Greftruns Krists, sem er í eigu Vatíkansins, Medúsa frá Uffizi- safninu í Flórens, Spákonan frá Louvre-safninu og Heilagur Jeremías í hugleiðslu sem er í eigu Listasafnsins í Montserrat á Spáni. Þá eru sýnd um sjötíu málverk eftir marga kunnustu „Caravaggista“ Evrópu á sautjándu öld eins og áhangendur stíls ítalska meistarans hafa verið kallaðir, ekki síst lista- menn frá Utrecht í Hollandi sem áttu eftir að láta mikið að sér kveða, þá Hendrick ter Brugghen, Gerard van Honthorst og Dirck van Baburen en allir féllu þeir fyrir óvenjulegum og raunsæislegum verkum Caravaggios á ferðalagi til Rómar upp úr 1600. AFP Meistaraverk Maður horfir í Alte Pinakothek á málverk Caravaggios, Greftrun Krists, sem Vatíkanið á. Við hlið þess er samnefnt verk eftir Nicholas Tournier, einn margra sem voru undir áhrifum frá Caravaggio. Sýna áhrif Caravaggios á málara  Verkum aðdá- enda hans safnað saman í München Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 5/5 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 2/6 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00 Lau 8/6 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 16:00 Auka Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Lau 4/5 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 3/5 kl. 19:30 Fim 9/5 kl. 19:30 Mið 22/5 kl. 19:30 Fyndinn og erótískur gamanleikur Loddarinn (Stóra Sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 7.sýn Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Þitt eigið leikrit (Kúlan) Sun 28/4 kl. 15:00 Lau 4/5 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 17:00 Lau 4/5 kl. 17:00 Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Mið 24/4 kl. 19:30 Lau 27/4 kl. 19:30 Fös 26/4 kl. 19:30 Þri 30/4 kl. 19:30 Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Dansandi ljóð (Leikhúskjallarinn) Lau 11/5 kl. 20:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Mið 15/5 kl. 20:00 Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 24/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 27/4 kl. 14:00 Lau 27/4 kl. 15:30 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk! Elly (Stóra sviðið) Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Kæra Jelena (Litla sviðið) Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.