Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
DA CAPO
VIÐTALSTÓNLEIKAR GUNNAR GU BJÖRNSSON
NÁNAR Á
S A L U R I N N . I S
8.04.19 KL.16:
SIGRÚN
HJ LMTÝSDÓT IR
DIDDÚ
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ram Limited 3500
Nýtt útlit 2019!
Litur: Perlurauður/ svartur að innan (einnig til Granite
Crystal) Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, togar 1000
pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti,
hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki.
VERÐ
11.790.000 m.vsk
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, t.d. hita/
kæling í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél,
Dvd spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl
o.fl. 3,6 L Hybrid.
VERÐ
8.490.000 m.vsk
2019 GMC Denali 3500
Litur: Silver, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
2019 Módel, Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE
hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld
sæti, geymsla undir aftursæti, heithúðaður pallur og
kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
11.360.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white / svartur að
innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á
palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights,
bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart,
20” felgur. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 431 hestöfl,
470 lb-ft of torque
VERÐ
11.790.000 m.vsk
Katarina Frostenson, sem nýverið hætti í Sænsku aka-
demíunni (SA), sendir 23. maí frá sér bókina K – berätt-
elsen. Í fréttatilkynningu frá útgefanda kemur fram að
bókin fjalli um síðustu mánuði Frostenson í SA, þ.e. tím-
ann frá nóvember 2017 til maí 2018. „Í allri opinberri
umræðu um krísuna í SA höfum við aldrei fengið að
heyra hlið Frostenson,“ segir Jonas Axelsson, útgáfu-
stjóri Polaris útgáfunnar. „Þetta kemur flatt upp á mig,
enda hef ég ekki verið í neinum tengslum við hana um
nokkurt skeið,“ sagði Anders Olsson, starfandi ritari SA,
þegar hann heyrði af útgáfunni, en tók fram að viðbúið
hefði verið að Frostenson greindi frá sinni hlið mála. silja@mbl.is
Frostenson skrifar um krísuna í SA
Katarina
Frostenson
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Fyrir sjö árum , er ég keyrðivefþættina Tónlistarstund ámbl.is í góðu samstarfi við
Sighvat Ómar Kristinsson, tók ég
nýútkomnar plötur til kostanna.
Hundruð platna renna í gegnum
fingur mína ár hvert en þessi var
eftirminnileg. Kerskin, undarleg –
á einhvern hátt venjuleg en samt
óvenjuleg. Platan var eftir Hall-
grím nokkurn
Oddsson, mann
sem ég þekkti ekk-
ert, en plötur af
svipuðum toga
voru ekki óalgeng-
ar. Skúffuskáld,
hæfileikamenn
(stundum) í tónlist en ekki með tón-
listina að aðalstarfi. Og svo kemur
að því að lagt er í að taka upp, gefa
út, og er niðurstaðan stundum frá-
bær, stundum hrikaleg, oftast ein-
hvers staðar á milli. Það tók Hall-
grím sautján ár að koma þessari
fyrstu plötu sinni út, þannig að í
samanburðinum kom þessi með
hraðpósti.
Ég staldraði við Einfaldlega
flókið á sínum tíma af einfaldri
ástæðu. Þarna var eitthvert „x“.
Eitthvað sem fékk eyrun til að
sperrast upp. Það var erfitt að setja
hendur nákvæmlega á hvað það
var. Ég reit svo á sínum tíma: „ Á
yfirborðinu virðist þetta fremur
hefðbundin dægurtónlist. Þriggja
gripa popprokk með alþýðublæ,
djassskotin á köflum ... [en hvað
sker hana frá] ... Það gæti legið í
textunum, skemmtilega ort uppgjöf
við tiktúrur kvenþjóðarinnar (og
sjálfs sín. Veraldarinnar?). Það
gæti legið í sérkennilegum söngn-
um og það gæti legið í því að lögin
Í biðröð undir sæng
fara sínar leiðir þegar þeim hentar
– óforvarandis.“
Eins og á fyrri plötunni er
Halldór Gunnar Pálsson gítarleik-
ari Hallgrími til halds og trausts við
útfærslu hugmynda og honum til
fulltingis eru Valdimar Olgeirsson
á kontrabassa, Magnús Örn
Magnússon (trommur/slagverk) og
Leifur Jónsson (píanó). Upptökur
fóru fram í Sundlauginni hjá Birgi
Jóni Birgissyni að utanskildu píanó-
inu sem tekið var upp í Paradís hjá
Ásmundi Jóhannsyni. Gítarskreyt-
ingum var og bætt við í vinnuað-
stöðu Halldórs Gunnars. Eftir-
vinnsla var í höndum Birgis Jóns
hljóðblandara og Finns Hákonar-
sonar sem hljóðjafnaði. Samkvæmt
upplýsingum er plötunni ætlað „að
segja frá degi í lífi manns frá því
hann vaknar uns hann sofnar aftur
en fyrsta lagið og síðasta eiga að
vera for- og eftirmáli um mann-
skepnuna í víðari skilningi“.
Hallgrímur hefur gaman af því
að tefla saman andstæðum í text-
um, plötutitlar hans báðir bera
þessa merki og í fréttatilkynningu
segir hann að „ef illa færi fyrir
dómi reyndi ég að opna fyrir annan
skilning (til vara) og misskilnings
(til þrautavara).“
Skemmst frá að segja, þarf
Hallgrímur ekki að hafa áhyggjur,
þó hann taki vissulega áhættu –
eins og allir listamenn – þegar hann
ber verk sín á borð fyrir almenning.
En hvar hefði mátt berja í bresti og
hvar stirnir á hjá þessum áhuga-
plötuútgáfumanni eins og hann lýs-
ir sér? Bresti sé ég trauðla. Líkt og
á fyrra verki er tónlistin djass-
skotin og nokk þægileg alþýðu-
tónlist. Melódísk, já svei mér þá.
Um leið er þetta, eins og áður segir,
eitthvað svo undurfurðulegt. En í
algerlega réttum skammti. Söng-
rödd Hallgríms gerir mikið hvað
þetta varðar. Hún er nánast
klemmd, blíð þó en ekkert sér-
staklega sterk. Hallgrímur notar
hana vel, textar eru orðmargir og
segja margt og hann er ástríðu-
fullur og túlkandi. Það er næstum
því kabarettbragur yfir. Hann fer á
stundum á hlemmiskeið, sjá hið vír-
aða „Stefnuljós“, þar sem hann fer
úr Diabolus in Musica stemmum yf-
ir í hálfgert dauðarokk – á tuttugu
sekúndna bili. Í „Aldrei ein“ orgar
hann, í tilfinningaþrungnu ákalli.
Og svo má telja. Óvæntir sprettir í
unnvörpum og aldrei leiddist mér.
Og þá er heldur betur til einhvers
unnið.
»En hvar hefði mátt berja í bresti og hvarstirnir á hjá þessum áhugaplötuútgáfumanni
eins og hann lýsir sér?
Einyrkinn og söngva-
skáldið Hallgrímur
Oddsson fylgir hinni
sjö ára gömlu Einfald-
lega flókið eftir með
nýrri skífu, Aldrei það
villtur að ég rati ekki í
vandræði.
Vá, voru fyrstu viðbrögð eft-ir lestur þessarar mögn-uðu spennusögu. MonsKallentoft er þekktur fyr-
ir bækur sínar en sennilega er Mold-
rok sú besta til þessa.
Ógn með ýmsum hætti steðjar
víða að fólki. Stríð, ofbeldi og
náttúruhamfarir grafa undan íbú-
um, sem leita annað í von um betra
líf. Starfsfólk hjálparstofnana og
sjálfboðaliðar hafa í nógu að snúast
og sinna sínu starfi, þrátt fyrir hætt-
urnar, sem leynast við hvert horn.
Útlendingar, sem setjast að í Sví-
þjóð, eiga margir hverjir erfitt með
að aðlagast nýju samfélagi og ráða-
menn eru ekki á einu máli um
hvernig eigi að taka á vandanum.
Fordómar eru algengir og jafnvel
sjálfsvígsárásir í Sýrlandi eru raktar
til Svíþjóðar. Allir burðast með
óhreinindi í farteskinu, en fólk er
fólk, hvar sem það er. Ást og hatur
er samnefnari fyrir ástandið. „Bölv-
aður heimurinn er galinn og við bara
syngjum,“ segir Malin Fors lög-
regluforingi við kærastann Daníel
Högfeldt, blaðamanninn sem gerir
allt til þess að þóknast konunni, sem
á við áfengisvandamál að stríða.
Þessi suðupottur er yrkisefni
Mons Kallentoft í Moldroki og hann
tengir ólíka þætti
víða um heim við
ástandið í Svíþjóð
á snilldarlegan
hátt. Upphafs-
punkturinn er
morð á Sví-
þjóðardemókrata
og að því er virð-
ist rán á ungri
stúlku sama dag í maí fyrir nokkrum
árum (bókin kom fyrst út í Svíþjóð
2014). Peter Åkerlund, sem varð að
hætta í sveitarstjórn vegna ummæla
um múslima á fylliríi, var rasisti og
gekk hart gegn innflytjendum. Hat-
aði þá en snerist síðan í trúnni.
Nadja Lundin er 16 ára umhverf-
isaðgerðasinni. Eitt leiðir af öðru,
spennan magnast og það er engin
leið að hætta lestrinum fyrr en sag-
an er öll.
Þetta er frábær frásögn. Vissu-
lega eru útlistanir á ofbeldinu ógeðs-
legar, en málið horfir hugsanlega
öðruvísi við þeim sem eru í heilögu
stríði. Vítin eru til þess að varast
þau. Lífið er leikur en það getur ver-
ið erfitt við að eiga, þegar hver spil-
ar eftir eigin reglum. Mons Kallen-
toft kemur því vel til skila í
Moldroki.
Ást og hatur í víðustu mynd
Spennusaga
Moldrok bbbbm
Eftir Mons Kallentoft.
Jón Þ. Þór íslenskaði.
Ugla útgáfa 2019. Kilja, 351 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Rithöfundurinn Mons Kallentoft.
Í veruleik Hall-
grímur Oddsson
fer í senn vanaleg-
ar og óvanalegar
leiðir í tónlistinni.