Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 48
Meiri skerpa, meiri upplausn og dýpri litir.
Glæsilegt snjallúr fylgir öllum keyptum
Huawei P30 Pro fram til 22. apríl.
Þú getur meira með Símanum
Ljósmyndun verður
aldrei söm
T
il
b
o
ð
ið
g
il
d
ir
a
ð
e
in
s
ti
l
o
g
m
e
ð
2
2
.
a
p
rí
l
o
g
a
ð
e
in
s
e
ru
íb
o
ð
id
ö
k
k
g
ræ
n
H
u
a
w
e
iW
a
tc
h
G
T
A
c
ti
v
e
sn
ja
ll
ú
r.
Huawei GTfylgir meðtil 22 apríl
.
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson opnar
fyrstu einkasýningu sína í Listhúsi
Ófeigs í dag, laugardag, kl. 14. Þar
getur að líta myndir sem Jón hefur
unnið síðustu tvö árin. Óskar Guð-
jónsson saxófónleikari leikur ein-
leik við opnun sýningarinnar. Sýn-
ingin stendur til 20. maí og er opin
á verslunartíma.
Sýnir vatnslitamyndir
í Listhúsi Ófeigs
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 110. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
ÍR-ingar eru komnir í úrslitaeinvíg-
ið um Íslandsmeistaratitil karla í
körfuknattleik í fyrsta skipti frá
því núverandi keppnisfyrirkomulag
var tekið upp en þeir léku þó til úr-
slita fyrir 49 árum. Þeir lögðu
Stjörnuna að velli, 3:2, og Kristófer
Acox, leikmaður KR, segir að ÍR sé
með mun betri hóp en úrslitin í
deildinni í vetur hafi gefið til
kynna. KR og ÍR hefja úrslita-
einvígið á þriðjudag. »41
ÍR-ingar betri en úrslit
í vetur gáfu til kynna
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Að vera kjur
eða fara burt?
nefnist sýning
sem opnuð
verður í Þjóðar-
bókhlöðu á
fæðingardegi
Halldórs Lax-
ness, 23. apríl,
kl. 16.30. Með
sýningunni er
þess minnst að
sama dag er
öld liðin síðan Barn náttúrunnar,
fyrsta skáldsaga Halldórs, kom út.
Ólafur J. Engilbertsson er hönnuður
sýningarinnar. Höfundar greina í
sýningarskrá eru Auður Jónsdóttir,
Haukur Ingvarsson, Kristín Marja
Baldursdóttir, Árni Heimir Ingólfs-
son, Sjón og Unnar Örn.
Útgáfuafmælis Barns
náttúrunnar minnst
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur, sem heldur úti veðurvefnum
blika.is, rýndi sér til gamans í
þriggja mánaða veðurspá Evrópsku
reiknimiðstöðvarinnar. Gögnin gefa
ágæta innsýn í hvernig sumarið gæti
litið út hérlendis. Einar segir að lík-
ur séu á því að meðalhiti hafni í efsta
þriðjungi miðað við síðustu 30 árin á
undan.
„Samkvæmt kortinu eru allt að
60-70% líkur á að hitinn verði yfir
meðallagi norðan- og austanlands.
Ekki síst á hálendinu. Hins vegar
eru 20-40% líkur á að hiti verði
markvert undir meðallagi með suð-
ur- og suðvesturströndinni,“ segir í
greiningu Einars. „Þá eru 40-60%
líkur á að úrkoma teljist markvert
mikil (efri þriðjungur) um vestan- og
norðvestanvert landið.“ Samkvæmt
langtímaspánni er spáð margfalt
meiri úrkomu um vestan- og norð-
vestanvert landið, sér í lagi á
Vesturlandi og Vestfjarðakjálk-
anum. Hann bendir þó á að úrkoma
sé jafnan það erfiðasta að túlka í
langtímaspám sem þessum.
Hringrásin um norðurhvelið
„Það sem ræður ríkjum í tíðar-
farinu hjá okkur er í raun og veru
þessi almenna hringrás um norður-
hvelið og bylgjugangurinn hér. Það
eru frávik í sjávarhita og frávik í ísn-
um á norðurskautinu og upphitun
loftsins,“ segir Einar í samtali við
Morgunblaðið.
„Ef við tökum þessa spá er gert
ráð fyrir að það verði áberandi há-
þrýstifrávik við sunnan- og einkum
suðaustanvert landið vestur við
Írland. Þegar slík háþrýstifrávik eru
ríkjandi eru hér hjá okkur ríkjandi
vindáttir sem eru meira sunnan-
verðar og jafnvel suðvestanvindur
og það má jafnvel túlka þetta í
vestanvind og minna þá um austan-
og norðaustanáttir sem eru annars
nokkuð ríkjandi um sumarleytið.“
Það gæti því orðið í hlýrra lagi yfir
sumartímann, sérstaklega um norð-
austanvert landið.
Hann segir að svipaðar langtíma-
spár frá því í fyrra hafi verið nokkuð
nákvæmar en þeim tókst þó ekki að
segja fyrir um þann mikla hita sem
var í Skandinavíu. Það rúmast einn-
ig mikill breytileiki í þessum spám
og því gæti komið lengri kafli með
norðan- og austanátt. „Í fyrra feng-
um við lægðir yfir okkur hverja á
fætur annnari með mikilli úrkomu
en nú er þetta meira þannig að við
erum ekki endilega að sjá frávik með
lægðum heldur meira viðvarandi
hlýtt loft sem kemur með suðri sem
hæð yfir Bretlandseyjum eða Írlandi
stjórnar og stýrir.“ Samkvæmt lang-
tímaspánni er aftur spáð sólríku og
hlýju veðri í Evrópu í sumar líkt og
var síðasta sumar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Veðurfræði Einar Sveinbjörnsson reynir að átta sig á því hvernig veðrið verður hjá okkur á næstu mánuðum.
Stefnir í hlýtt en
vætusamt sumar
Rýnt í langtímaspá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar