Morgunblaðið - 26.04.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.04.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK 26. apríl 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.85 121.43 121.14 Sterlingspund 156.4 157.16 156.78 Kanadadalur 89.77 90.29 90.03 Dönsk króna 18.134 18.24 18.187 Norsk króna 14.08 14.162 14.121 Sænsk króna 12.895 12.971 12.933 Svissn. franki 118.6 119.26 118.93 Japanskt jen 1.0799 1.0863 1.0831 SDR 167.29 168.29 167.79 Evra 135.42 136.18 135.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.893 Hrávöruverð Gull 1273.8 ($/únsa) Ál 1854.5 ($/tonn) LME Hráolía 74.27 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Þýsku bankarnir Deutsche Bank og Commerzbank til- kynntu á fimmtudag að bundinn hefði ver- ið endir á samninga- viðræður sem mið- uðu að því að sameina rekstur bankanna. Wall Street Journal segir þetta áfall fyrir þýsk stjórnvöld sem höfðu vonast til að samruni gæti styrkt báða bankana og um leið eflt fjár- málageira landsins. Þýska ríkið á í dag u.þ.b. 15% hlut í Deutsche. WSJ hefur eftir heimildarmönnum að fulltrúum Deutsche hafi ekki litist á þann háa kostnað og mikla flækjustig sem samruninn hefði haft í för með sér. Fulltrúar Commerzbank hafi verið ólmir að koma samningnum í höfn en ekki hugnast hve hægt viðræðunum miðaði áfram og þótt sem stjórnendur Deutsche væru ekki samstíga. ai@mbl.is Deutsche og Commerz- bank hætta við samruna STUTT Hluthafafundur Icelandair sam- þykkti á miðvikudag að veita stjórn félagsins heimild til að gefa út nýja hluti og selja bandaríska fjárfesting- arsjóðnum PAR Capital Manage- ment. Samkvæmt samkomulagi sem gert var 3. apríl síðastliðinn greiðir PAR 9,03 krónur fyrir 625 milljónir nýrra hluta, eða samtals rösklega 5,6 milljarða króna og eignast þar með 11,5% hlut í félaginu. Þá hafði RÚV það í gær eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að félagið hygðist sækja skaðabætur til flugvélaframleiðandans Boeing vegna galla í stýrikerfi 737 MAX 8- þotanna sem flugfélagið keypti og hafa verið kyrrsettar frá því um miðj- an mars. Sveinn Þórarinsson, hlutabréfa- greinandi hjá Landsbankanum, segir aðkomu PAR Capital góðar fréttir en óljóst sé hvort, og þá hve háar bætur Icelandair getur vænst þess að fá frá Boeing. Bótamál án fordæma „Í raun er bótakrafa eðlilegt skref en við höfum ekki séð svona atburða- rás áður og því fátt sem getur gefið vísbendingu um bótarétt flugfélags- ins. Þegar uppgör Boeing var kynnt á dögunum var haft eftir forstjóra fyrirtækisins að ekkert væri „tækni- lega“ að MAX 8-flugvélunum. Óger- legt er að meta umfang þessa vanda- máls eða hvenær vélarnar munu hefja flug á ný,“ segir Sveinn og bætir við að eigi eftir að koma í ljós hve miklu tjóni Icelandair hefur orðið fyrir en nýjar vélar voru teknar á leigu til að fylla í skarðið. „Uppgjör flugfélagsins verður birt í byrjun næsta mánaðar og þá ættu kannski að koma fram nánari upplýsingar svo sjá megi betur hvaða áhrif kyrrsetningin hefur haft.“ PAR Capital Management hefur, að sögn Sveins, fjárfest víða í flug- geiranum og á t.d. hlut í United Air- lines og Delta. „PAR er að koma inn strax við gjaldþrot WOW, þekkir markaðinn vel og sér greinilega ein- hver tækifæri. Að fá PAR inn í hlut- hafahópinn er styrkleikamerki fyrir Icelandair en tíminn mun leiða í ljós hvert PAR vill að starfsemin stefni og væntanlega að sjóðurinn sæki fljót- lega um að fá mann í stjórn.“ Vilja bætur frá Boeing Morgunblaðið/Eggert Innsæi PAR Capital hefur m.a. fjárfest í United Airlines og Delta.  Þykir styrkleikamerki að PAR Capital hafi keypt 11,5% hlut í Icelandair Bandaríski tæknirisinn Microsoft varð á fimmtudag þriðja banda- ríska fyrirtækið til að rjúfa 1.000 milljarða dala múrinn. Hlutabréfa- verð Microsoft hækkaði um 5,1% í viðskiptum snemma á fimmtudag, upp í 130,50 dali, og fór markaðs- virði félagsins þar með yfir 1.000 milljarða dala. Apple og Amazon náðu 1.000 milljarða markinu síðasta sumar en markaðsvirði þeirra lækkaði í framhaldinu í takt við lækkun sem varð í bandaríska tæknigeiranum almennt. Hækkandi hlutabréfaverð Microsoft skrifast m.a. á að skýja- þjónusta fyrirtækisins þykir ganga mjög vel og sala á Windows- stýrikerfinu hefur aukist. Á síð- asta ársfjórðungi jukust sölutekjur Microsoft um 14% miðað við sama tímabil í fyrra og var það nokkuð umfram væntingar markaðs- greinenda. ai@mbl.is AFP Verðmæti Frá sýningarbás Micro- soft á CES sýningunni fyrr á árinu. Microsoft orðið 1.000 milljarða dala virði Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Íslenski matvælaframleiðandinn Good Good (áður Via Health) náði á dögunum þeim árangri að vera með vinsælustu sultuna hjá bandarísku vef- versluninni Ama- zon. „Listinn yfir mest seldu sult- urnar er á stöð- ugri hreyfingu en við erum allt- af í topp-10 hópnum og sitjum í fyrsta sæti af og til,“ segir Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri Good Good, og bendir hann á að með þessu sé fyrirtækið t.d. að skáka Smuckers sem um árabil hefur verið risinn á bandarískum sultumarkaði. Ekki er nóg með að sultan seljist vel heldur segir Garðar að stefni í að súkkulaðismyrja Good Good taki fram úr Nutella á Íslandsmarkaði. „Að því ég best veit yrði það í fyrsta skipti á nokkru markaðs- svæði sem Nutella myndi þurfa að gera sér að góðu annað sætið.“ Morgunblaðið fjallaði um Good Good í febrúar á síðasta ári en fyrirtækið sérhæfir sig í fram- leiðslu matvæla án viðbætts sykurs og notar í staðinn náttúruleg sætu- efni á borð við stevíu. Vöruþróun og hönnun fór fram á Íslandi en samstarfsaðilar Good Good í Evr- ópu annast framleiðsluna. Auk þriggja tegunda af sultu og Choco Hazel-súkkulaðismyrju selur Good Good m.a. sykurlaust síróp, ste- víudropa, stevíu-sykurlíki, og nú síðast að orkudrykkir bættust við vöruúrvalið. Eru vörur Good Good fáanlegar í 31 landi og vöxturinn hraðastur í Bandaríkjunum þar sem finna má Good Good í yfir 500 verslunum. Garðar segir árangur fyrirtækis- ins skrifast á þá heilsuvakningu sem orðið hefur meðal neytenda. Þeir leggi æ ríkari áherslu á heil- brigt mataræði og sæki í vörur sem eru í senn sykurlausar og án kem- ískra sætuefna. „Vinsældir ketó- mataræðis hjálpa okkur líka mikið enda vörurnar okkar ketó-vænar.“ Með vinsælustu sultuna á Amazon Garðar Stefánsson Hollusta Velgengnin stafa m.a. af vinsældum ketó-mataræðis. Skjá- skot af netverslun Amazon.  Íslensk sulta skákar Smuckers í BNA  Þjarma að Nutella á innanlandsmarkaði Ghosn laus gegn tryggingu ● Dómstóll í Tokyo féllst í gær á að sleppa Carlosi Ghosn, fyrrverandi stjórnanda Nissan, lausum gegn tryggingu. Var honum hleypt úr varðhaldi seint á fimmtudagskvöld að staðartíma, en þarf að hlýða ströngum skilyrðum og má t.d. ekki hafa samband við eiginkonu sína án leyfis dómara. Ghosn var upphaflega handtekinn 19. nóvember og ákærður fyrir fjármálamisferli. Þann 6. mars var hon- um sleppt gegn tryggingu en handtekinn aftur í byrjun apríl vegna nýrra saka. ai@mbl.is Átök Ghosn yfirgaf fangelsið á fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.