Morgunblaðið - 26.04.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 26.04.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 ✝ Nanna Sigurð-ardóttir fæddist í Efribænum á Fag- urhólsmýri í Öræfum 12. janúar 1934. Hún lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri 15. apríl 2019. Foreldrar hennar voru Sigurður Ara- son, f. 4.8. 1887, d. 3.8. 1979, og Halldóra Jónsdóttir, f. 23.12. 1892, d. 19.10. 1964. Systkini Nönnu voru: Guðrún, f. 29.12. 1925, d. 20.11. 2002; Hall- dór Jón, f. 11.1. 1928, d. 22.8. 1985; Ari Benedikt, f. 2.9. 1929, d. 2.7. 2004; Tryggvi, f. 6.10 1931, d. 24.12. 2012. Sigurður og Hall- dóra fóstruðu einnig Rósu Hjör- hennar maður er Hinrik Stefáns- son. Börn þeirra eru a) Nanna, f. 1994, sambýlismaður hennar er Kjartan Hjaltason, dóttir þeirra er Melkorka Máney, f. 2017; b) Hafsteinn Þór, f. 1997. Einnig á Hinrik soninn Daníel Örn, f. 1981, sambýlismaður hans er Svavar Örn Svavarsson. 3) Hall- dóra, f. 1967, eiginmaður hennar er Gunnar Sigurjónsson. Þeirra börn eru a) Oddur, f. 1992, b) Lóa, f. 1998, d. 1998, c) Gissur, f. 2000. Nanna og Oddur hófu búskap í Efribænum á Fagurhólsmýri ár- ið 1959, en fluttu árið 1968 í ný- byggt hús sem Kaupfélag A- Skaft. hafði látið reisa við nýja verslun Kaupfélags á Fagurhóls- mýri, en Oddur var versl- unarstjóri þar. Nanna starfaði um árabil við símstöðina á Fag- urhólsmýri ásamt Guðrúnu syst- ur sinni, en síðar við hlið Odds í versluninni. Útför Nönnu fer fram frá Hofskirkju í Öræfum í dag, 26. apríl 2019, klukkan 14. leifsdóttur, f. 9.10. 1920, d. 15.7. 2007, og Pál Björnsson, f. 25.3. 1914, d. 14.3. 1993. Systkini Sigurðar, þau Ing- unn og Helgi, voru einnig til heimilis í Efribænum. Nanna giftist Oddi Jónssyni, f. 24.6. 1928, d. 27.3. 1981, í júní 1965. Dætur þeirra eru: 1) Sigríður, f. 1961, eiginmaður hennar er Hró- bjartur Ágústsson og börn þeirra eru a) Oddný, f. 1982, gift Ágústi Sturlu Jónssyni og eiga þau fjór- ar dætur, Þórdísi Nönnu, f. 2008, Sigríði Ásu, f. 2010, Freyju Rún og Iðunni Helgu, f. 2014; b) Ari Viðar, f. 1990. 2) Helga, f. 1963, Elsku amma. Ég trúi því varla að þú sért farin frá okkur. Þegar ég hugsa til þín spretta fram svo marg- ar minningar. Ég man þegar ég var lítil og við pabbi sóttum þig á BSÍ þegar þú varst að koma til Reykja- víkur. Ekki var spennan minni þeg- ar við Danni fórum með rútunni að heimsækja þig í sveitina, oftast um páska eða snemma sumars. Ég man þegar ég fékk að að- stoða þig í kaupfélaginu, vigta epli, raða í hillur og verðmerkja vörur. Stundum þurftum við líka að skreppa út í búð eftir lokun, til að kaupa eitthvað sem hafði gleymst eða aðstoða ferðalanga sem vantaði bensín. Það fannst mér svakalega spennandi. Svo var það eitt sumar að ég bjó hjá þér í sveitinni og vann með þér í búð- inni, það var gott sumar. Það sum- ar prjónaði ég mína fyrstu lopa- peysu, undir þinni handleiðslu. Seinna, eftir að þú fluttir í Efribæ- inn, komum við Gústi oft í heim- sókn til þín með stelpurnar. Öll elskuðum við að koma í sveitina og dvelja hjá þér. Þið Gústi gátuð spjallað um heima og geima og oftar en ekki kom ég með einhverja handavinnu sem ég þurfti aðstoðar við. Ef stelpurnar lentu í því að það kom gat á sokkana þeirra sögðu þær að nú þyrftum við að fara í sveitina til að amma Nanna gæti „prjónað gatið“. Þú gerðir heimsins bestu pönnukökur og leyfðir stelpunum alltaf að aðstoða þig við að baka. Reglulega biðja stelpurnar mig um að gera hakk og spaghettí eins og þú gerðir það. Stundum dvaldir þú hjá okkur Gústa á Rauðalækn- um og okkur þótti svo gott að hafa þig hjá okkur. Þú hafðir góða nær- veru og þú gafst mér mörg góð ráð t.d. varðandi bakstur, handavinnu og heimilisstörf. Þú varst mikil hannyrðakona og við fjölskyldan nutum góðs af því allt til síðasta dags, en þú prjónaðir handa okkur m.a. sokka, peysur og vettlinga. Elsku amma, ég sakna þín mik- ið en ég veit að þú ert komin á góð- an stað þar sem afi, Gunna og bræður þínir taka vel á móti þér. Oddný Hróbjartsdóttir. Það var alltaf gaman að koma í sveitina til ömmu Nönnu. Við fór- um oft þangað í páskafríinu. Við fengum alltaf dásamlegar pönnu- kökur þar og góðan mat. Einnig átti amma stundum ís í frystikist- unni sem við máttum fá. Stundum kom ísbíllinn til ömmu og þá keyptum við ís. Amma prjónaði mikið og gerði við fötin okkar ef það kom gat á þau. Eitt sumarið byggðum við kofa á lóðinni hjá ömmu og skírðum kofann Nönnu- kot. Amma átti stórt hús sem var gaman að leika sér í. Við munum sakna þín, elsku amma, og það verður tómlegt að koma í sveitina þegar þú ert ekki til staðar. Þórdís Nanna, Sigríður Ása, Freyja Rún og Iðunn Helga. Við andlát náins ættingja þyrl- ast minningarnar upp, Nönnu höf- um við þekkt alla ævi. Hún bakaði ljúffeng brauð og kökur: eitt af því eftirminnilega er maltbrauð með mysuosti sem Nanna og Gunna höfðu brætt í potti – hvílíkt hnoss- gæti. Við frænkurnar lékum okk- ur mikið í engjahúsinu sem stóð ofan við Efribæinn, það var nú meiri ævintýraheimurinn. Á jólunum fórum við í Neðri- bænum alltaf í heimsókn til Dodda, Nönnu og stelpnanna. Þessar jólaheimsóknir sköpuðu afar dýrmætar minningar þar sem við skiptumst á upplýsingum um bækurnar í jólapökkunum og nutum samvistanna og dásam- legra veitinga: þarna kynntumst við fyrst mokkatertu með kara- mellubráð, apríkósum og möndl- um! Milli fjölskyldnanna var alla tíð góð vinátta og þar sem Nanna varð ekkja allt of snemma varð hún oft samferða foreldrum okkar þegar eitthvað stóð til utan heim- ilis. Það þurfti ekki facebooksíður eins og Samferða til að nágrannar áttuðu sig á gildi þess að nota ferð- irnar. Nanna var alltaf að prjóna eða sauma og sýndi kjark við val á uppskriftum, þannig að peysurnar hennar voru ekki alltaf hefð- bundnar. Sérstaklega er minnisstætt jóladagatalið sem hún saumaði handa Lóu. Þetta var fyrir tíma sælgætisjóladagatala, en hún saumaði efni utan um eldspýtu- stokka, sem voru festir utan á poka jólasveinsins og þetta var stórkostlegt veggteppi sem nýtt- ist ár eftir ár, í pakkana var þá hægt að setja rúsínur eða annað smálegt handa Lóu jólabarni! Þegar ég (Sigrún) tók við kefl- inu sem útibússtjóri KASK í búð- inni á Fagurhólsmýri kynntist ég Nönnu á vissan hátt upp á nýtt. Það er öðruvísi að vinna saman að skemmtilegum verkefnum, eins og búðarreksturinn var, sem tvær fullorðnar konur en þegar ég var þar unglingur í vinnu (þó að það hafi vissulega alltaf verið gaman líka). Margar ánægjustundir átt- um við í kaffitímunum í búðinni. Nanna var greind og vel lesin, fylgdist vel með því sem var á döf- inni hverju sinni og við í félagi brutum heilann um margt á þess- um dögum. Við Nanna tókum þátt í starfsmannaferð KASK til Ír- lands og það var heilmikil upplif- un. Nanna og Doddi höfðu farið til Írlands einhverjum árum áður og það var gaman að taka þátt í því með henni að rifja upp þá ferð því auðvitað sáum við margt sem þau höfðu einnig séð í sinni ferð. Við vottum Siggu, Helgu, Lóu og fjölskyldum þeirra samúð. Á svona stundum koma upp minn- ingar og það er dýrmætt að geta rifjað upp góðar stundir, bæði úr Efribænum og úr Efstabænum þar sem foreldrar ykkar sköpuðu ykkur heimili. Sigrún og Jónína. Fallin er frá Nanna Sigurðar- dóttir frá Fagurhólsmýri í Öræf- um. Hún var gift föðurbróður mín- um, Oddi Jónssyni (Dodda) frá Hofi í Öræfum, en hann lést úr krabbameini árið 1981, aðeins 52 ára gamall. Foreldrar mínir fluttu úr Öræf- um, á mölina, þegar ég var tveggja ára en tryggðaböndin voru sterk við Öræfi og Öræfinga. Ég var ekki há í loftinu þegar leið mín lá í flugvél frá Reykjavík til Fagur- hólsmýrar, fyrst til að heimsækja nákomna ættingja mína og síðar til að fá að vera þar í sveit. Að lok- um til að vinna í Kaupfélaginu á sumrin svo það voru nokkuð mörg sumur sem ég kom þangað til nokkurra mánaða dvalar hverju sinni. Ég átti alltaf „heima“ í Neðri- bænum á Fagurhólsmýri hjá ynd- islegum hjónum, Guðmundu og Sigurgeiri, sem síðar urðu næst- um eins og aðrir foreldrar mínir. Í Efribænum bjuggu Doddi og Nanna, ásamt fleira fólki, en síðar fluttu þau hjónin ásamt dætrum sínum í „Nýja húsið“ við Kaup- félagið, þar sem Doddi var útibús- stjóri til margra ára. Þau hjónin voru mér mjög kærkomin. Dætur þeirra þrjár voru nánast eins og systur mínar og þannig var það með okkur öll systkinabörnin á þessum tveimur bæjum, við þekktumst mjög vel. Fyrsta minning mín um Nönnu er þegar ég kom í heimsókn í Efri- bæinn, þá líklega sex eða sjö ára. Bærinn ilmaði af kaffi en þá var kaffið brennt og malað heima. Mér fannst þessi ilmur mjög góð- ur þó að ég væri nú ekki farin að smakka kaffi á þeim tíma! Ég minnist þess að hafa kíkt inn í litla eldhúsið þar sem Doddi sat og las Tímann og Nanna fann til góðgæti fyrir svanga munna. Útsýnið úr eldhúsglugganum var ekki af verri endanum, Öræfajökull í öllu sínu veldi. Nanna var róleg, brosmild og með góða nærveru. Hún lét ekki mikið fyrir sér fara í daglegu lífi en alltaf var hún með svör á reiðum höndum ef leitað var til hennar. Sama gilti hvort rætt var um handavinnu, matargerð, dýr, landa-/náttúrufræði eða heims- fréttir. Hún var víðlesin og fróð kona. Hún hlustaði mikið á út- varp og má segja að alltaf hafi verið kveikt á útvarpinu í hennar húsi. Nanna var mikil handavinnu- kona. Það eru ófáar flíkur sem hún hefur saumað, heklað, prjónað og einnig man ég eftir að hún hafi rýjað, flosað og saumað út. Allt lék í höndunum á henni. Hún var líka listakokkur og átti góðar upp- skriftabækur sem við „stelpurn- ar“ höfðum gaman af að skoða. Alltaf var hún tilbúin að miðla af þekkingu sinni og kunnáttu ef um var beðið. Nanna ræktaði garðinn sinn vel og minnist ég þess að hún hafi ræktað jarðarber og örugglega ýmislegt fleira í litlum vermireit við húsið sitt. Ég er þakklát fyrir góðar stundir með Nönnu og fjölskyld- unni allri í gegnum árin. Elsku Sigga, Helga, Lóa og fjölskyldur! Innileg samúðar- kveðja til ykkar allra. Megi elsku Nanna hvíla í friði. Helga Jónína Sigurjónsdóttir. Nanna Sigurðardóttir Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Ástkær maki minn, faðir okkar, afi, sonur og bróðir, HELGI LÁRUSSON Strandgötu 23, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 18. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju 3. maí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Nicole Sömmering ✝ Guðlaug Sigríð-ur Haralds- dóttir fæddist í Reykjavík 21. maí 1934. Hún lést í Reykjavík 6. apríl 2019. Foreldrar Guð- laugar voru Her- björg Andrésdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1906, d. 20. desem- ber 1978, og Har- aldur Jónsson sjómaður, f. 19. maí 1893, d. 26. júní 1977. Systkini Guðlaugar eru Ágúst Haraldur, f. 25. ágúst 1930, d. 13. ágúst 2014, Guðrún Jóna, f. 4. febrúar 1932, d. 27. desember 2008, Jón Sigurður, f. 27. maí 1933, d. 7. júní 1933, Elsa, f. 4. ágúst 1935, d. 6. júlí 2012, Andrés Eyberg, f. 21. september 1936, d. gerðar Guðnýjar var Guðni Hannesson klæðskeri, f. 15. des- ember 1912, d. 16. ágúst 1962. Börn Guðlaugar og Garðars eru: 1) Þóra Björg, f. 6. maí 1956, dætur hennar eru 1a) Guðrún Ósk Lindquist, f. 8. ágúst 1982, faðir hennar og fyrrum sambýlis- maður Þóru Bjargar er Gunnar Lindquist. Guðrún Ósk er gift Matthíasi Inga Árnasyni, f. 23. nóvember 1979, og eiga þau tvo syni, þá Bjart Mána og Dag Mána. 1b) Anna Sigríður Sig- þórsdóttir, f. 2. október 1992, faðir hennar og fyrrum sambýlis- maður Þóru Bjargar var Sigþór Grétarsson, f. 14. febrúar 1961, d. 22. desember 2016. 2) Guðjón, f. í Reykjavík 22. október 1958, giftur Guðrúnu Agnesi Friðþjófs- dóttur, f. 7. september 1960, börn þeirra eru þrjú. 2a) Garðar Guð- jónsson, f. 15. janúar 1980, sam- býliskona hans er Jóna Björg Guðnýjardóttir, f. 9. maí 1983, og á hún tvær dætur af fyrra sam- bandi, þær Hafdísi Björgu og Söndru Ósk. 2b) Ingunn María Guðjónsdóttir, f. 28. júní 1985, eiginmaður hennar er Guðleifur Werner, f. 30. júní 1980, og eiga þau soninn Friðrik Elmar. Fyrir á Guðleifur börnin Töru Ange- líku, Katrínu Emblu og Guðmund Einar. 2c) Guðný Erla Guðjóns- dóttir, f. 22. mars 1995, sambýlis- maður hennar er Grímur Gauti Runólfsson, f. 10. maí 1990, og eiga þau eina dóttur, Emilíu Rún. 3) Jón Sigurður, f. í Kópavogi 11. júní 1966, giftur Önnu Sigríði Ás- geirsdóttur, f. 7. nóvember 1972. Synir Jóns og fyrrum eiginkonu hans, Báru Hafsteinsdóttur, eru 3a) Oliver Snær Jónsson, f. 5. nóvember 1995, sambýliskona hans er Gerða Guðný Guðjóns- dóttir, f. 15. september 1995, og eiga þau eina dóttur, Hrafnhildi Malen. 3b) Nökkvi Snær Jónsson, f. 5. nóvember 2002. Fyrir á Anna Sigríður dæturnar 3c) Kristínu Birtu Bjarnadóttur, f. 9. apríl 1999, og 3d) Birgittu Líf Bjarnadóttur, f. 9. nóvember 2002. Útför Guðlaugar fer fram frá Lindakirkju í dag, 26. apríl 2019, klukkan 13. 16. febrúar 1955, Þóra, f. 18. janúar 1939, d. 20 júlí 1984, Sigurbjörn Gunnar, f. 30. apríl 1940, d. 27. maí 2016, Sig- urður, f. 22. desem- ber 1941, Ása Ást- hildur, f. 9. janúar 1944, d. 30. júní 2010, Lára Jensína, f. 9. apríl 1945, d. 2. júlí 2015, og Sig- urdís, f. 24. júní 1948. Árið 1955, þann 10. desember, giftist Guðlaug Sigríður Garðari Guðjónssyni, foreldrar hans voru Valgerður Guðný Óladóttir hús- freyja, f. 12. maí 1911, d. 24. ágúst 1994, og Guðjón Guð- mundsson, sjómaður og kokkur, f. 2. janúar 1909, d. 15. desember 1940. Seinni eiginmaður Val- Elsku amma Lauga. Það er erfitt að hugsa til þess að fá aldrei aftur skyr hjá þér á sunnudögum þó svo að það sé langt síðan seinast, bláberin, rjóminn og allur sykurinn sem að maður setti á skyrið og eins og þú sagðir alltaf þá er ekki hægt að setja of mikinn sykur út á skyr. Ég er heppin að hafa fengið að kynnast þér og þú tókst okkur systrunum eins og öllum öðrum barnabörnum þínum. Það var alltaf hægt að leita til þín, hvort sem það var til að fá að borða, læra að sauma út, skoða fingur- bjargir, kirkjurnar eða jafnvel spila við ykkur afa. Tímarnir í Tröllakórnum voru yndislegir og að hafa þig og afa í þarnæstu íbúð er eitthvað sem ég verð ævinlega þakklát fyrir. Það var svo gott að fá knús frá þér og þegar þú straukst á manni kinnarnar með mjúku höndunum vissi ég að ég væri á réttum stað – í ömmu fangi. Þér fannst alltaf svo mik- ilvægt að vera með fínar og fal- legar neglur, mér fannst það allt- af svo fallegt og mun ég alltaf hugsa til þín þegar að ég nagla- lakka mig. Sandkökurnar þínar og allt bakkelsið fer seint úr minnum mér, og við sem elskum endana á sandkökunni munum alltaf berjast um þá, eða baka bara meira eins og þú gerðir svo allir fái örugglega enda. Elsku amma Lauga, takk fyrir allar minningarnar okkar, ég elska þig endalaust. Kristín Birta. Þegar leiðir skilur fer hugur- inn í ferðalag um það sem liðið er, minningarnar eru margar um mömmu. Hún var alltaf í góðu skapi, henni er rétt lýst á þann hátt að hennar skap breyttist aldrei, var sanngjörn, ákveðin og vinnusöm. Barnabörnin höfðu mjög svo gaman af því að koma í heimsókn til hennar í mat og þá sérstaklega skyrið sem að hún og pabbi voru alltaf með í matinn á laugardögum. Krökkunum fannst alltaf svo gott að fá skyr með miklum sykri hjá þeim. Hún sagði alltaf að það væri aldrei of mikið af sykri né rjóma í skyrinu. Ég man hvað mér fannst gaman að hjóla til hennar í vinnuna niður í Símann þegar ég var lítill til að sjá öll tækin sem tæknimenn Símans voru að gera við, líklegast hefur áhugi minn á viðgerðum á skrifstofutækjum byrjað þarna og á ég því henni mikið að þakka hvað það varðar. Barnabörnin lærðu öll að sauma hjá ömmu sinni og var hún mjög iðin við að kenna þeim útsaum, að sauma eftir mynd eða að telja út var ekki vandamálið hjá henni að kenna. Minning mín frá uppvaxtarár- um mínum er að hún, eins og pabbi, vann mikið og því fannst mér hún endurgjalda það sem henni fannst hún ekki geta á mín- um uppvaxtarárum, í tímanum sem hún eyddi með barnabörn- unum. Krökkunum okkar Önnu, þeim Oliver Snæ, Nökkva Snæ, Kristínu Birtu og Birgittu Líf. Búandi á sama stigapalli í Trölla- kór þar sem börnin fjögur þurftu ekki að hafa áhyggjur af því hvað væri í matinn þar sem hægt var að fara í íbúð 304 til ömmu Laugu og afa Gæja og einnig í íbúð 305 til ömmu Önnu og afa Rabba sem bjuggu einnig í sama húsi og ef maturinn hjá okkur var ekki góð- ur. Að koma heim úr skóla og geta fengið snarl fyrir fótbolta- eða skíðaæfingu var iðulega í boði hjá þeim. Lauga var vinur vina sinna og kenndi okkur að vera sanngjörn í lífinu því með því fengjum við sanngirni til baka frá öðrum. Hún var alltaf til í að hjálpa þeim sem það þurftu í einu og öllu en þá helst með handavinnunni sinni. Í Hófgerðinu þar sem mamma og pabbi bjuggu lengstum var yfir- leitt kvöldkaffi og komu nágrann- arnir og gæddu sér á heimabök- uðu góðgæti þar sem sandkakan var hennar aðal. Sandkakan var skorin á þrjá vegu þar sem Gaui bróðir vildi alltaf taka miðju- sneiðarnar þar sem þær voru stærstar og við pabbi vildum hvort sinn endann og kom mamma oftar en ekki að kökunni í tveimur bitum og endalausri. Þegar veikindi mömmu og pabba fóru að hafa áhrif á líf þeirra voru þau og við fólkið þeirra svo lán- söm að þau fengu að fara saman á hjúkrunarheimilið Skógarbæ þar sem þau dvöldu síðasta æviskeið sitt, héldust þau saman hönd í hönd þangað til pabbi fór fyrir einu ári. Nú geta þau aftur hald- ist hönd í hönd. Við viljum þakka starfsfólki Skógarbæ fyrir góða umönnun. Góða ferð, góða ferð, góða ferð, góða ferð, já, það er allt, og síðan bros, því ég geymi alltaf vina það allt er gafstu mér. Góða ferð, vertu sæl já góða ferð. (Jónas Friðrik Guðnason) Þín, Jón og Anna. Guðlaug Sigríður Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.