Morgunblaðið - 26.04.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.04.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 60 ára Guðrún er fædd og uppalin á Presthól- um í Núpasveit, N-Þing., en er bóndi í Saurbæ í Holtum, Rang. Í Saurbæ er blandaður búskapur og rekið félagsbú. Maki: Ólafur Pálsson, f. 1953, bóndi í Saurbæ. Börn: Lára, f. 1986, Margrét, f. 1989, Ingi- björg, f. 1992, og Hjördís, f. 1994. Barnabörn: Guðmundur Ólafur, f. 2013, Elma Rún, f. 2014, Birkir Berg, f. 2015, og Erla Fríða, f. 2017. Foreldrar: Hálfdán Þorgrímsson, f. 1927, og Hjördís Vilborg Vilhjálmsdóttir, f. 1938, fyrrverandi bændur á Presthólum, nú bú- sett í Keflavík. Guðrún Hálfdánardóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Án þess að þú þurfir að leggja nokkuð aukalega á þig nærðu að fá alla á þitt band. Vertu sveigjanleg/ur í samningum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert ekki viss um hvernig þú eigir að taka á málunum í vinnunni í dag. Lífið verður áhugaverðara ef þú tekur við stjórnartaumunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert í góðum gír og ættir að notfæra þér það til að koma góðum málum á framfæri. Er eitthvað að því að langa í ástvin? 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það skiptir ekki máli hvert verk- ið er ef þú ákveður að vinna það. Láttu ekki pirring bitna á þínum nánustu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú leggur hart að þér bæði í leik og starfi. Hafðu hugfast að allt á sér sinn stað og sína stund. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sjáðu til þess að tryggingamál og gamlar skuldir séu réttum megin við strikið. Tilfinningar þínar eru heitar og rista sérstaklega djúpt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú færð innblástur í samtali við ótilgreinda manneskju. Reyndu að fá frið frá betri helmingnum til að hugleiða mál sem þið deilið um. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Viljirðu hafa áhrif skaltu byrja á sjálfum/sjálfri þér og sýna gott fordæmi. Allt er í heiminum hverfult. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vertu hreinskilin/n! Ertu enn að bíða eftir einhverjum/einhverri sem getur ekki skuldbundið sig? Vakn- aðu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér finnst þú þurfa meiri tíma til að íhuga málin. Þú vilt fást við eitthvað sem gefur lífinu gildi. Farðu varlega í umferðinni. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu þolinmóð/ur og nær- gætin/n við maka og nána vini í dag. Ekki gleyma þér samt sem áður, þér hættir til að fara yfir strikið í almenni- legheitum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Sparsemi er dyggð en níska ekki. Ástarsamband verður rafmagnað og spennandi. Það er skuldbinding til margra ára að fá sér gæludýr. vildi hann leiða málfundafélagið.“ Árni hefur sterkar taugar til skólans. Hann var með fjármálalega fram- kvæmdastjórn fyrir skólann um tíma og formaður skólanefndar VÍ til margra ára. Síðar varð hann formaður Sjálfseignarstofnunar Verzlunarráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV) en VÍ féll þar undir. „Merkasta málið frá þeirri stjórnartíð var þegar við stofnuðum Viðskiptaháskólann í Reykjavík. Síðar breyttum við nafni hans í Háskólinn í Reykjavík. Dóttir mín var í fyrsta árganginum sem út- skrifaðist frá skólanum. Háskólanám mitt stundaði ég hins vegar í Banda- ríkjunum og lauk meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá University of Minnesota á árinu 1974.“ Verzlunarskólinn var rekinn sem sjálfseignarstofnun á ábyrgð Verzl- unarráðsins en þar var Árni fram- kvæmdastjóri til ársins 1987. „Meg- inþunginn í störfum ráðsins á þessum árum snerist um að koma á svipuðu frjálsræði í atvinnulífinu og tíðkaðist á Vesturlöndum. Viðskiptaþingið 1983 Frá orðum til athafna markaði þar nokkur þáttaskil. Ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar tók við völdum á því ári og það voru ráðherrar í rík- isstjórn hans, Albert, Matthías og Þorsteinn, sem leiddu þær breytingar í átt til frjálsræðis og einkarekstrar sem þá hófust og urðu jafnt og þétt að veruleika. Þeirri atburðarás lýsti ég í blaðagrein, sem skrifuð var í tilefni af Sandvík fengum við, tveir drengir, að fara ríðandi í Skeiðaréttir. Ég man enn að Lýður ráðlagði okkur að við skyldum fara til Jóns í Skeiðháholti ef við lentum í vandræðum. Til þess kom þó ekki en þetta rifjaðist upp síðar þegar ég kynntist Jóhönnu, konu minni, en hún fæddist í Skeiðháholti og Jón var afi hennar. Við höfum átt marga yndisstundina í Skeiðháholti. Við Jóhanna kynntumst í Verzl- unarskólanum en við lukum bæði stúdentsprófi þaðan. Ég tók mikinn þátt í félagslífi skólans. Reyndar var ég fyrsti forseti nemendafélagsins en Ófeigur, heitinn, vinur minn, bað mig að gefa kost á mér til þess. Sjálfur Á rni Árnason fæddist á Fjölnisvegi 11 í Reykja- vík hinn 26.4. 1949 og ólst þar upp til tólf ára aldurs. „Aðalsteinn afi minn byggði húsið og ég á bókhaldið yfir byggingu þess ritað með fallegri rithönd hans. Hann dó áður en ég fæddist en Lára amma lifði mann sinn og bjó á efri hæðinni, foreldrar mínir á miðhæðinni og móðursystir mín með fjölskyldu sinni í kjallaranum. Þarna bjó stórfjölskyldan. Svo þurfti ein- ungis að hlaupa yfir tvo garða til þess að heimsækja afa og ömmu í föðurætt á Bergstaðastræti 80.“ Barnaskólinn var einnig í göngufjarlægð, en Árni gekk fyrst í Ísaksskóla, svo Æf- ingadeild Kennaraskólans og síðan tvo vetur í Réttarholtsskóla. „Ég var sendur í sveit á sumrin í Litlu-Sandvík í Flóa til Lýðs og Aldís- ar. Þarna kynntist ég fyrst laxveiði en Lýður sá um netalagnir í Ölfusá fyrir Sandvíkurbæina. Hann tók mig oft með sér að vitja um netin. Stangveiðin kom til síðar þegar Aðalsteinn frændi minn stakk upp á því að við töluðum við Pál frænda okkar, sýslumann á Selfossi, og fengjum að veiða fyrir landi Tannastaða sem hann hafði á leigu. Þar fékk ég tvo þá stærstu laxa sem ég hef veitt á ævinni á stöngina sem amma gaf mér í fermingargjöf. Stangveiði hefur síðan þá verið sér- stakt áhugamál. Síðasta sumarið mitt í Litlu- 100 ára afmæli Verzlunarráðsins, sem var hinn 17.9. 2017.“ Frá Verzlunarráðinu fór Árni til starfa sem framkvæmdastjóri hjá BYKO og endaði sem stjórnar- formaður í eitt ár. Hann tók þá við rekstri Árvíkur á árinu 1991 en það fé- lag stofnaði hann sem sameignarfélag með föður sínum við skiptin á G. Þor- steinson & Johnson árið 1983. „Í gegnum árin hef ég verið í stjórn- um margra fyrirtækja, stofnana og fé- lagasamtaka. Þá mætti nefna fjöl- margar greinar um viðskipti, efnahagsmál og stangveiði sem ég hef skrifað þannig að maður hefur svo sem fengist við ýmislegt á þessum 70 árum.“ Fjölskylda Eiginkona Árna er Jóhanna Gunn- laugsdóttir, f. 22.10. 1949, prófessor í upplýsinga og skjalastjórn og rafræn- um samskiptum við Háskóla Íslands. Foreldrar hennar voru hjónin Gunn- laugur Jónsson, f. 20.3. 1928, d. 27.5. 2013, kerfisfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, og Bergþóra Jensen, f. 3.2. 1927, d. 22.11. 2013. Hún starfaði á leikskóla. Börn Árna og Jóhönnu eru: 1) Gunnlaugur, f. 1.3. 1974, stjórn- arformaður og eigandi breska fjöl- miðlafyrirtækisins M2 Communi- cations, bús. í Garðabæ, en eiginkona hans er Svava Kristjánsdóttir, f. 13.3. 1974, viðskiptafræðingur. Börn þeirra Árni Árnason, framkvæmdastjóri Árvíkur – 70 ára Fjölskyldan Á heimili Árna og Jóhönnu í Garðabæ. Frjálslyndur fluguveiðimaður Veiðimaðurinn Árni Árnason. Frá orðum til athafna Frá Viðskiptaþinginu árið 1983. 50 ára Már er Reyk- víkingur og er með MS-próf í verkfræði frá DTU í Danmörku. Hann er aðstoðarfor- stjóri Skeljungs frá 2017 en hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2006. Hann var sveitarstjóri í Tálkna- fjarðarhreppi 2004-2006. Maki: Halla Gunnarsdóttir, f. 1970, kenn- ari í Melaskóla. Börn: Guðbjörg Lára, f. 1994, Erling Hugi, f. 1997, Logi Heiðar, f. 2003, og Sölvi Geir, f. 2005. Foreldrar: Erling S. Tómasson, f. 1933, d. 2017, skólastjóri Langholtsskóla, og Ingibjörg Magnúsdóttir, f. 1932, d. 2009, húsmóðir í Reykjavík. Már Erlingsson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.