Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019
HEILSUNUDDPOTTAR
FRÁ SUNDANCE SPAS
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
HEILSUNUDDPOTTAR OG HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA
Meistarakeppni kvenna
Breiðablik – Þór/KA............................... 5:0
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 63., 65.,
Hildur Antonsdóttir 68., Sólveig Jóhann-
esdóttir Larsen 77., 86.
Lengjubikar karla
Úrslitaleikur B-deildar:
Selfoss – Dalvík/Reynir ........................... 4:0
Lengjubikar kvenna
B-deild:
HK/Víkingur – Fylkir .............................. 0:1
Fylkir 15, FH 9, Keflavík 9, KR 6, ÍA 3,
HK/Víkingur 0.
Spánn
Sevilla – Rayo Vallecano.......................... 5:0
Real Sociedad – Villarreal ....................... 0:1
Getafe – Real Madrid............................... 0:0
Staða efstu liða:
Barcelona 34 24 8 2 85:32 80
Atlético Madrid 34 21 8 5 51:23 71
Real Madrid 34 20 5 9 59:38 65
Sevilla 34 16 7 11 59:42 55
Getafe 34 14 13 7 43:29 55
Valencia 34 12 16 6 40:31 52
Athletic Bilbao 34 12 13 9 37:40 49
Holland
Den Haag – Excelsior ............................. 3:1
Mikael Anderson kom inná hjá Excelsior
á 73. mínútu en Elías Már Ómarsson var
allan tímann á bekknum.
Pólland
Slask Wroclaw – Górnik Zabrze............ 1:2
Adam Örn Arnarson fór af velli á 59.
mínútu í liði Górnik Zabrze.
Grikkland
Bikarinn, undanúrslit, seinni leikur:
Asteras Tripolis – PAOK........................ 0:0
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
PAOK í úrslit, 2:0 samanlagt.
Svíþjóð
Helsingborg – Sundsvall......................... 1:1
Andri Rúnar Bjarnason lék ekki með
Helsingborg vegna meiðsla.
Djurgården – Norrköping...................... 1:1
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með Norrköping en Alfons Sampsted
var ekki í hópnum.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Origo-völlur: Valur – Víkingur R............. 20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Annar úrslitaleikur karla:
Hertz-hellirinn: ÍR – KR (1:0).................. 20
HANDKNATTLEIKUR
Umspil karla, undanúrslit, oddaleikur:
Laugardalshöll: Þróttur – HK (1:1)......... 19
Í KVÖLD!
FÓTBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Íslandsmótið í knattspyrnu hefst
formlega í kvöld þegar ríkjandi Ís-
landsmeistarar Vals taka á móti Vík-
ingi R. í fyrsta leik tímabilsins klukk-
an 20 að Hlíðarenda. Eftir langt og
strangt undirbúningstímabil, sem
sumir kalla það lengsta í heimi, leynir
fiðringurinn sér ekki þegar loks er
komið að því að byrja ballið.
„Það er gaman að byrja í flóð-
ljósum á föstudagskvöldi. Vonandi
verður mikil og góð mæting á völlinn,
stemning og góður fótbolti spilaður,“
segir Haukur Páll Sigurðsson, fyr-
irliði Vals, við Morgunblaðið í að-
draganda fyrsta leiks. Valsmenn eru
taldir langlíklegastir til þess að verja
titilinn í svo til öllum spám fyrir tíma-
bilið, en það truflar ekki undirbún-
inginn að Hlíðarenda.
„Hugarfarið er gott hjá öllum og
menn eru staðráðnir í því að gera vel.
Eins og undanfarin 10-20 ár hefur Ís-
landsmeisturum síðasta árs yfirleitt
verið spáð titlinum aftur og það er
engin undantekning á því í ár. Það er
góður andi í hópnum, það hefur verið
stígandi í þessu hjá okkur og við er-
um klárir,“ segir Haukur, sem hefur
lyft Íslandsmeistarabikarnum síðast-
liðin tvö ár en er alls ekki saddur eftir
árangurinn.
Gríðarleg samkeppni í liðinu
„Ef maður verður einhvern tímann
saddur á því að vinna bikara, þá ætti
alveg eins að hætta þessu. Maður er í
þessu til þess að ná árangri, og til
þess þarf að leggja mikið á sig. En
það er mikið af mjög góðum liðum í
deildinni svo þetta verður erfitt mót,“
segir Haukur.
Þrátt fyrir að vera spáð titlinum
hefur Valsliðið tekið töluverðum
breytingum frá síðasta ári. Liðið hef-
ur misst frá sér sjö leikmenn, meðal
annars markakónginn Patrick Ped-
ersen, en fengið átta leikmenn í stað-
inn, þar af fimm úr atvinnumennsku
erlendis. Helst ber að sjálfsögðu að
nefna landsliðsmarkvörðinn Hannes
Þór Halldórsson, auk framherjans
Gary Martin sem hefur löngu sannað
sig hér á landi.
„Við erum búnir að missa góða
leikmenn en einnig búnir fá góða
leikmenn, sem eru margir kannski
svolítið öðruvísi en þeir sem við
misstum. Það er mikil samkeppni í
liðinu og þannig á það að vera,“ segir
Haukur. Miðað við hvað margir spá
yfirburðum liðsins í sumar hikstuðu
Valsmenn svolítið á vormánuðum.
Þeir komust ekki í úrslit Lengjubik-
arsins og töpuðu svo leiknum um
meistara meistaranna eftir víta-
spyrnukeppni við Stjörnuna.
„Það er mikið um breytingar og við
vorum kannski svolítið lengi í gang á
undirbúningstímabilinu, en erum
klárir þegar við fáum Víking í heim-
sókn [í kvöld],“ segir Haukur og á
ekki von á því að liðið þurfi tíma til
þess að spila sig betur saman.
Ætla sem lengst í Evrópu
Aðspurður hvernig hann telji Ís-
landsmótið spilast í sumar er ljóst að
á Hlíðarenda er ekki búist við að fá
neitt gefið þrátt fyrir allar spár.
„Það eru mörg mjög góð lið í deild-
inni og ég held að þetta eigi eftir að
vera mjög jafnt. Það geta í raun allir
unnið alla. Ef maður er ekki á tánum
er hægt að tapa fyrir öllum liðum í
deildinni svo það þarf að vera klár í
hverjum einasta leik,“ segir Haukur.
Auk þess að stefna leynt og ljóst á
alla titla sem eru í boði hér heima fyr-
ir er ekki úr vegi að spyrja hvort
Valsmenn hafi opinberað markmið
um að verða fyrsta íslenska fé-
lagsliðið sem kemst í riðlakeppni
Evrópukeppni, miðað við hversu
miklu hefur verið tjaldað til hjá félag-
inu.
„Ég hef sagt að það styttist alltaf í
það að íslenskt lið fari í riðlakeppn-
ina. Það væri frábært ef við myndum
ná því, en ég held að hvert einasta lið
sem fer í Evrópukeppni stefni að því.
Við ætlum okkur að gera allt sem við
getum til þess, en þá þarf líka að vera
heppinn með andstæðinga og í leikj-
um. Það kemur fiðringur þegar er
dregið, en það kemur ekki að því fyrr
en um mitt sumar svo hausinn er
ekki alveg farinn þangað,“ segir
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði
Vals.
Sjá nánar um Íslandsmótið í
knattspyrnu í sérblaðinu Fótboltinn
2019 sem fylgir Morgunblaðinu í dag.
„Maður er í þessu til
þess að ná árangri“
Haukur Páll Sigurðsson segir að spár um sigurgöngu Valsmanna trufli ekki
undirbúning þeirra fyrir Íslandsmótið Fyrsti leikurinn gegn Víkingi í kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reyndur Haukur Páll Sigurðsson í harðri baráttu gegn KR-ingum í vetur. Haukur hefur leikið lengst samfleytt með
Valsliðinu af öllum leikmönnum þess í dag en hann er að hefja sitt tíunda Íslandsmót í rauða búningnum.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Upphafsleikur Íslandsmótsins í
knattspyrnu 2019 á milli Reykjavík-
urfélaganna Vals og Víkings ætti
samkvæmt bókinni ekki að vera sá
mest spennandi á nýju keppn-
istímabili. Íslandsmeisturum Vals
er af nánast öllum spáð þriðja titl-
inum í röð á meðan flestir eiga von
á því að Víkingar verði í basli í
neðri hlutanum og þurfi að hafa
talsvert fyrir því að halda sæti sínu
í deildinni.
Þá er óhætt að segja að Víkingar
hafi ekki sótt gull í greipar Vals-
manna á Hlíðarenda undanfarin
þrjú ár. Valsmenn hafa skorað 15
mörk í þeim þremur viðureignum
en þeir unnu 7:0 sigur árið 2016, þá
nauman 4:3 sigur árið 2017 og loks
4:1 á síðasta sumri.
Ef horft er einu ári lengra aftur í
tímann unnu Víkingar góðan 1:0
sigur á Hlíðarenda árið 2015 og þá
skoraði Ívar Örn Jónsson, núver-
andi leikmaður Vals, sigurmarkið.
Auk Ívars eru fyrrverandi Víking-
arnir Sigurður Egill Lárusson og
Gary Martin í liði Vals en Sigurður
Egill hefur verið uppeldisfélaginu
erfiður. Hann skoraði tvö mörk í
7:0 sigrinum og eitt markanna árið
eftir. Fyrrverandi Valsmaðurinn
Nikolaj Hansen skoraði hins vegar
mark Víkings í 4:1 tapinu á Hlíð-
arenda í fyrra.
Anton Ari Einarsson mun verja
mark Vals eins og undanfarin ár
þar sem Hannes Þór Halldórsson
tekur út leikbann.
Það verður því að segjast eins og
er að allt annað en öruggur Vals-
sigur í kvöld kæmi talsvert á óvart.
Spáin: Valur sigrar 3:0.
Á Víkingur mögu-
leika á Hlíðarenda?