Morgunblaðið - 26.04.2019, Page 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019
Gleoilegt sumar
Marmot®
Kringlan 7 I Laugavegur 11 I S: 510 9505 I fjallakofinn.is IJ@
Ég bjó fyrstu árin á Eyrinni á
Akureyri, sem er nokkuð hlutlaust
hverfi er varðar stuðning við bæj-
arliðin Þór eða KA. Þó var nokkur
Þórs-slagsíða í mínum árgangi
þarna upp úr aldamótum, þótt
maður hafi ef til vill ekki fundið
ríginn jafn sterkt og þau sem
bjuggu á Brekkunni og í Þorpinu.
Á dögunum rifjaðist upp fyrir
mér ein gáta sem mig rámar í úr
æsku, og undirstrikar þessa Þórs-
slagsíðu í mínum bekk. Ég man
orðalagið ekki nákvæmlega, en
hún var eitthvað á þessa leið:
„Hvað er gult og blátt og grætur
úti í horni? KA-maður að missa af
enn einum titlinum!“
Þetta skot á KA-mennina átti
þó ekki mikinn rétt á sér, en félag-
ið var til að mynda með ógn-
arsterkt handknattleikslið sem
varð Íslandsmeistari bæði 1997
og 2002. Enda var hægt að svara
þessu skoti að bragði með því að
tengja Þórsarana við það sem
rímar við spurninguna; hvað er
þetta hvíta?
En ástæða þess að þessi
gáta, ef svo má kalla, um sein-
heppna KA-manninn kom mér í
huga á dögunum er einmitt út af
hinu gagnstæða. Ástæðan er hin
magnaða titlasöfnun KA í blaki,
en karla- og kvennalið félagsins
eru bæði þrefaldir meistarar í
þessari skemmtilegu íþrótt.
Það kemur mér heldur ekk-
ert á óvart, því ég finn alla leið
suður hvað stemningin innan fé-
lagsins alls er áþreifanleg. Ég hef
tekið greinilega eftir því hvað
markvisst er búið að lyfta inn-
viðum félagsins upp á hærra stig
með allri þeirri vinnu sem gerð er
á bak við tjöldin, til dæmis á sam-
félagsmiðlum og í allri umfjöllun á
vegum félagsins.
Því ber að hrósa sem vel er
gert og þarna hefur sannarlega
verið unnið gott starf.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Ríkjandi fimmfaldir Íslandsmeist-
arar KR í körfuknattleik freista þess
í kvöld að jafna úrslitaeinvígið um Ís-
landsmeistaratitilinn eftir tap í fram-
lengdum fyrsta leik rimmunnar við
ÍR fyrr í vikunni. ÍR vann fyrsta leik-
inn 89:83 og þurfa KR-ingar að
sækja til sigurs í Seljaskóla í kvöld
þar sem flautað verður til leiks
klukkan 20.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
KR, segir í samtali við Morgunblaðið
að það hafi eitthvað undarlegt legið í
loftinu fyrir fyrsta leikinn í einvíginu.
Það leiði til þess að breyta þurfi á
einhvern hátt nálguninni í undirbún-
ingi liðsins fyrir annan leikinn í
kvöld.
„Það var eitthvað skrítið andrúms-
loft, bæði hjá mér og leikmönnum.
Það var eitthvað í loftinu sem maður
getur ekki útskýrt,“ segir Ingi Þór
um fyrsta leikinn og segir jafnframt
að listinn af því sem fór úrskeiðis hjá
KR-liðinu í fyrsta leik sé langur.
Klárt mál að við erum tilbúnir
Meðal þess sem Ingi nefnir er að
einhver skrekkur hafi verið í mönn-
um að byrja úrslitaeinvígið, en áður
hafði liðið slegið út Þór Þorlákshöfn
og Keflavík. Menn séu hins vegar
búnir að hrista af sér fyrsta leik og
horfi fram á veginn.
„Við gerum breytingar, en gerum
ekki allt upp á nýtt. Við þurfum að
svara því sem misfórst hjá okkur og
það er klárt mál að við erum tilbúnir.
Við erum búnir að undirbúa okkur
vel og ætlum að laga það sem mis-
fórst. Við erum mjög spenntir að
jafna seríuna,“ segir Ingi Þór.
Eins og flestir á Ingi Þór von á
hörkuleik í kvöld þar sem ekkert
verður gefið eftir, en þrjá sigurleiki
þarf til þess að verða Íslandsmeist-
ari.
„Þetta verður gríðarlega harður
leikur. Bæði lið eru nú búin að þreifa
á hvort öðru og munu selja sig mjög
dýrt. En staðan er 1:0 fyrir ÍR og við
erum bara ótrúlega spenntir að
mæta í Seljaskólann,“ segir Ingi Þór.
ÍR hefur þegar slegið út deildar-
og bikarmeistara Stjörnunnar og
hafði áður sent silfurlið Njarðvíkur í
sumarfrí. Ingi tekur undir að það sé
mikil stemning sem fylgi ÍR-liðinu,
hvort sem er innan eða utan vallar.
Skýtur fast á stuðningsmennina
„Það hefur fylgt þeim í úr-
slitakeppninni. Það er góð ára yfir
þessu hjá þeim, en ég vil meina að
það sé líka hjá okkur. Við verðum að
svara því og mæta með það á gólfið
og gera betur en þeir. Það á líka við
um áhorfendur,“ segir Ingi og notar
tækifærið og sendir stuðnings-
mönnum KR og Miðjunni, stuðnings-
mannasveit félagsins, skýr skilaboð
fyrir leikinn í kvöld.
„KR-ingar þurfa að koma og Miðj-
an þarf að mæta og svara því að vera
öflugri en Ghetto Hooligans,“ segir
Ingi Þór og vísar í hina háværu
stuðningsmannasveit ÍR sem hefur
verið lífleg á pöllunum í allan vetur.
KR-ingar verða að svara
á vellinum og í stúkunni
Ríkjandi Íslandsmeistarar freista þess að jafna úrslitaeinvígið gegn ÍR í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Úrslitaeinvígið Kristófer Acox og Sigurkarl Jóhannesson verða í eldlínunni í öðrum leik einvígis KR og ÍR í kvöld.
Þýska handknattleiksfélagið Magdeburg hefur áhuga á
að fá Ómar Inga Magnússon landsliðsmann til liðs við
sig. Samkvæmt staðarblaðinu Volksstimme vill Magde-
burg fá Ómar Inga í stað Albin Lagergren, sem er á leið-
inni til Rhein-Neckar Löwen. Volksstimme vísar til þess
að Ómar leiki sömu stöðu og Ólafur Stefánsson sem var
lykilmaður hjá Magdeburg á árunum 1998 til 2003.
Ómar Ingi hefur leikið afar vel með Aalborg í dönsku
úrvalsdeildinni á leiktíðinni og hefur hann gefið flestar
stoðsendingar allra. Hann er auk þess níundi marka-
hæsti leikmaður deildarinnar.
Ómar er sem stendur í fullu fjöri með Aalborg í úr-
slitakeppninni í Danmörku þar sem lið hans er í góðri stöðu. Hann skoraði
sex mörk fyrir liðið í 34:28-sigri á ríkjandi meisturum í Skjern í fyrradag.
Magdeburg er í hópi bestu liða Þýskalands og er sem stendur í þriðja
sæti 1. deildarinnar, á eftir Flensburg og Kiel, en með jafnmörg stig og Lö-
wen sem er í fjórða sæti. johanningi@mbl.is
Fetar Ómar í fótspor Ólafs?
Ómar Ingi
Stefánsson
Ísland vann stórsigur á Mexíkó, 8:1,
í þriðja leik sínum í B-riðli 2. deild-
ar karla á heimsmeistaramótinu í
íshokkí í Mexíkóborg í fyrrinótt.
Andri Már Mikaelsson skoraði þrjú
mörk, Axel Orongan tvö, Miloslav
Racansky, Bjarki Reyr Jóhann-
esson og Róbert Pálsson eitt hver.
Markvörður Íslands, Dennis Hed-
ström, var valinn maður leiksins en
hann varði 22 skot. Eftir þrjár um-
ferðir af fimm er Ísrael með 9 stig,
Ísland 6 og Nýja-Sjáland 6 í þremur
efstu sætunum á mótinu. vs@mbl.is
Stórsigur á
gestgjöfunum
Ljósmynd/Bjarni
Bestur Dennis Hedström mark-
vörður með viðurkenninguna.