Morgunblaðið - 26.04.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 26.04.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Arvada flísjakki • 100% prjónað pólýester • Einstaklega þægilegir og flottir flísjakkar með hettu og vösum • Til í gulum og bláum lit • Stærðir: XS - 3XL Vnr: 1899 312 Verð: 8.900 kr. HANDBOLTI Olís-deild kvenna Annar úrslitaleikur: Fram – Valur................................ (frl.) 26:29  Staðan er 2:0 fyrir Val og þriðji leikur á Hlíðarenda á sunnudaginn. Meistaradeild karla 8-liða úrslit, fyrri leikur: Vardar Skopje – Pick Szeged............ 31:23  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 2 mörk fyrir Pick Szeged. Þýskaland Stuttgart – Füchse Berlín .................. 33:34  Bjarki Már Elísson skoraði eitt mark fyrir Füchse. Bietigheim – Wetzlar .......................... 26:26  Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim. Þýskaland Bayreuth – Alba Berlín....................... 80:79  Martin Hermannsson lék ekki með Alba Berlín vegna meiðsla. Svíþjóð Undanúrslit, sjötti leikur: Norrköping – Borås ........................... 82:90  Jakob Örn Sigurðarson skoraði 4 stig fyrir Borås og tók 3 fráköst en hann lék í 22 mínútur.  Borås vann einvígið 4:2. Spánn Úrslitakeppni B-deildar á Tenerife: Celta Zorka – Barcelona............ (frl.) 84:79  Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 2 stig fyrir Celta og tók 2 fráköst en hún lék í 19 mínútur. Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, 8-liða úrslit: Houston – Utah .................................. 100:93  Houston vann einvígið 4:1. Golden State – LA Clippers ............ 121:129  Staðan er 3:2 fyrir Golden State. KÖRFUBOLTI Í KÓRNUM Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Nú þegar aðeins sex dagar eru í að flautað sé til leiks á Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu er óhætt að segja að ríkjandi Íslands- og bik- armeistarar Breiðabliks gætu vart far- ið með betra veganesti inn í mótið. Í gær vann liðið sinn annan titil á ör- skömmum tíma þegar það vann stór- sigur á Þór/KA, 5:0, í leiknum um meistara meistaranna, sléttri viku eftir að hafa unnið Lengjubikarinn. Fyrr í vetur vann liðið svo Faxaflóamótið og hefur því nú á tæpu ári unnið fimm titla. Meistaraleikurinn við Þór/KA í gær, sem norðankonur spiluðu eftir að hafa hafnað í öðru sæti í deildinni í fyrra, var nokkuð fjörugur en öll fimm mörk Blika voru skoruð á síðasta hálftíma leiksins. Markalaust var í hálfleik eftir að Þór/KA hafði fengið hættulegri færi, en ef einhvern tímann er hægt að tala um að flóðgáttir hafi opnast þá á það við um þennan leik. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik og lagði upp það þriðja fyrir Hildi Antonsdóttur á fimm mínútna kafla um miðbik síðari hálfleiks sem al- gjörlega gerði út um leikinn. Tvö lag- leg mörk frá Sólveigu Larsen innsigl- uðu svo endanlega 5:0-sigur Blika, sem höfðu þó ekki haft þá yfirburði í leikn- um sem lokatölurnar gefa til kynna. Það er dýrt að klúðra færum og það fengu norðankonur svo sannarlega að finna í gær. Blikar munu bara styrkjast Blikaliðið er nánast óbreytt frá síð- asta ári og traustið er áfram sett á þá ungu leikmenn sem hafa þegar sannað sig og eru nú árinu eldri. Liðsheildin og trúin á verkefnið er svo greinileg og kemur Blikum mjög langt, þó önnur lið hafi ef til vill styrkt sig betur. Þú getur hins vegar ekki keypt liðsheild. Áslaug Munda var ekki í stóru hlut- verki í fyrra en er leikmaður sem vert er að fylgjast með í sumar. Hún og Sólveig eru sennilega með fljótustu leikmönnum deildarinnar og vissara fyrir andstæðingana að missa ekki augun af þeim. Hildur og Fjolla Shala voru með yfirburði gegn reynsluminni miðju Þórs/KA í leiknum í gær og það má ekki gleyma því að liðið á enn þær Andreu Rán Hauksdóttur og Selmu Sól Magnúsdóttur inni úr háskólabolt- anum. Þá kemur Berglind Björg Þor- valdsdóttir inn eftir lánsdvöl í Hollandi og Blikar eiga því aðeins eftir að styrkjast frekar, en eru þó ógn- arsterkir fyrir. Hryggsúluna vantaði Það er hins vegar erfitt að dæma lið Þórs/KA út frá þessum leik. Það má segja að hryggsúluna hafi vantað í liðið þar sem Bianca Sierra var ekki í vörn- inni og þær Lára Kristín Pedersen og Andrea Mist Pálsdóttir ekki á miðj- unni. Þær eiga allar að vera til taks fyrir fyrsta leik í næstu viku, auk þess sem hollenskur framherji verður þá einnig með. Sterkir leikmenn fóru í atvinnu- mennsku eftir síðasta tímabil og nú verður yngri leikmönnum ýtt út í djúpu laugina í sumar, nokkuð sem hefur ekki þurft að gera mikið síðustu ár. Það er engin afsökun að tapa 5:0, en þegar öll breiddin verður til taks mun liðið eflaust geta tekið mótlæti betur en í gær. Morgunblaðið/Árni Sæberg Meistarar Sonný Lára Þráinsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, lyftir meistarabikarnum á loft eftir leikinn í gær á meðan liðsfélagar hennar fagna í bakgrunni. Liðsheild fæst ekki keypt  Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks hafa nú unnið fimm titla á tæpu ári Höskuldur Gunnlaugsson er kom- inn aftur í raðir knattspyrnuliðs Breiðabliks en hann verður þar í láni fram á haust frá Halmstad í Svíþjóð. Höskuldur er 24 ára gam- all sóknarmaður sem sló í gegn með Blikum árið 2015, þegar hann gerði 6 mörk í úrvalsdeildinni, og lék með liðinu fram á mitt sumar 2017 þeg- ar hann var seldur til Halmstad. Þar spilaði hann hálft tímabil í úr- valsdeildinni og allt síðasta tímabil í B-deildinni en hafði ekki fengið tækifæri með sænska liðinu í fyrstu umferðunum á þessu ári. vs@mbl.is Höskuldur lánaður heim Ljósmynd/Breiðablik Breiðablik Höskuldur Gunn- laugsson er kominn heim. Stefán Rafn Sigurmannsson, lands- liðsmaður í handknattleik, er í erf- iðri stöðu ásamt liði sínu Pick Sze- ged frá Ungverjalandi eftir fyrri leikinn gegn Vardar frá Norður- Makedóníu rimmu þeirra í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Stefán skoraði tvö mörk þegar Szeged tapaði fyrri leiknum í gær 31:23, en sigurlið rimmunnar kemst í úrslitahelgina í Köln þar sem fjög- ur lið leika til sigurs í keppninni. Erfið leið Stefáns í úrslitin í Köln

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.