Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 27

Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Besta sprunguleitarefnið  Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfubolta, hefur misst af síð- ustu fjórum leikjum þýska körfubolta- liðsins Alba Berlín, sökum meiðsla. Í samtali við mbl.is í gær sagði hann að blætt hefði inn á vöðva aftan í vinstra læri og að forráðamenn félagsins vilji ekki taka neina áhættu heldur hafa hann 100% kláran í slaginn fyrir úr- slitakeppnina um meistaratitilinn.  Sex leikmenn Manchester City, fjór- ir leikmenn Liverpool og Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, skipa úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar 2018-19 sem samtök atvinnuknatt- spyrnumanna á Englandi opinberuðu í gær. Frá City eru í liðinu þeir Ederson, Aymeric Laporte, Bernardo Silva, Fernandinho, Raheem Sterling og Sergio Agüero en frá Liverpool þeir Virgil van Dijk, Trent Alexander- Arnold, Andy Robertson og Sadio Mané. Á sunnudag verður opinberað hvern samtökin útnefna besta leik- mann tímabilsins.  Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir hóf í gær keppni á Lalla Meryem-mótinu í golfi í Marokkó en það er liður í Evr- ópumótaröð kvenna. Valdís lék fyrsta hring- inn á 76 höggum, þremur yfir pari vallarins. Hún fékk tvo fugla, þrjá skolla og einn skramba á hringnum. Hún er í 62. til 79. sæti af 126 keppendum og því í hörðum slag um að kom- ast áfram eftir nið- urskurð í dag. Eitt ogannað Í SAFAMÝRI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Valskonur eru komnar í afar góða stöðu í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta eftir 29:26-sigur á Fram á útivelli í framlengdum spennuleik í gær. Eftir æsispennandi lokamínútur var staðan eftir leiktíma jöfn, 22:22. Valskonur voru mun sterkari í fram- lengingunni og eru nú með 2:0-forskot í einvíginu. Valur verður því Íslands- meistari í fyrsta skipti síðan 2014 með sigri á heimavelli sunnudaginn kemur. Valur var sterkari aðilinn framan af og var með forystu nánast allan fyrri hálfleikinn. Framarar voru hins vegar ekki af baki dottnir og tókst þeim að jafna og síðan komast tveimur mörk- um yfir þegar skammt var eftir, 21:19. Valskonur neituðu hins vegar að gef- ast upp og tókst þeim að knýja fram framlengingu. Í henni var meðbyrinn með Val, gegn Framkonum sem voru svekktar með að úrslitin réðust ekki í venjulegum leiktíma. Valur vann sannfærandi sjö marka sigur í fyrsta leik, en Framarar ætl- uðu ekki fá annan skell. Erla Rós Sig- marsdóttir varði mjög vel í markinu og var sóknarleikur Framara ágætur stærstan hluta leiks. Karen Knúts- dóttir var allt í öllu í sóknarleiknum og gaf hún fallegar stoðsendingar og skoraði góð mörk til skiptis. Ragn- heiður Júlíusdóttir var sterkari en í síðasta leik, en hún á enn mikið inni. Hún tók nokkur slök skot, þegar mik- ið var undir. Steinunn Björnsdóttir var sterk á línunni, en Fram þarf meira frá Þóreyju Rósu Stef- ánsdóttur. Hún fékk fá færi og hrað- inn hennar nýttist ekki eins vel og oft áður. Hjá Val fór Lovísa Thompson á kostum, en úrslitakeppnin er mikill vinur hennar. Lovísa spilar aldrei eins vel og í úrslitakeppninni. Hún er ef- laust himinlifandi að fá að taka þátt í úrslitaleikjum á ný, eftir tvö ár í fall- baráttu með Gróttu. Sandra Erlings- dóttir nýtti vítin sín vel og þar á meðal eitt eftir að leiktíminn rann út, sem jafnaði leikinn. Díana Dögg Magn- úsdóttir var afar sterk í fyrri hálfleik og Íris Björk Símonardóttir varði vel, eins og alltaf. Framarar geta verið svekktir með að staðan í einvíginu sé ekki 1:1, miðað við hversu mikið betri frammistaðan var, samanborið við fyrsta leikinn. Haldi Framliðið áfram að vaxa, er alls ekki ólíklegt að liðið minnki muninn með útisigri á sunnudaginn kemur. Fram er með bakið upp við vegg á meðan Valskonur verða að halda ein- beitingu, ætli þær sér þriðja titilinn á leiktíðinni. Þetta einvígi er alls ekki búið. Valskonur einu skrefi frá þrennunni eftir útisigur  Valur vann Fram í framlengingu  Valur meistari með heimasigri á sunnudag Morgunblaðið/Árni Sæberg Markahæst Lovísa Thompson skoraði 11 mörk í gær og er hér með boltann gegn Hildi Þorgeirsdóttur í leiknum. Framhús, annar úrslitaleikur kvenna, fimmtudag 25. apríl 2019. Gangur leiksins: 1:2, 5:7, 7:9, 8:11, 11:11, 12:13, 13:14, 14:16, 17:16, 18:18, 21:19, 21:21, 22:21, 22:22, 24:24, 24:26, 24:28, 25:29, 26:29. Mörk Fram: Ragnheiður Júl- íusdóttir 7/1, Karen Knútsdóttir 7/1, Steinunn Björnsdóttir 5, Þór- ey Rósa Stefánsdóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 3, Hildur Þorgeirs- dóttir 1. Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir 20/1, Sara Sif Helgadóttir 3. Fram – Valur 26:29 Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Vals: Lovísa Thompson 11, Sandra Erlingsdóttir 8/6, Díana Dögg Magnúsdóttir 6, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 1, Morgan Marie Þor- kelsdóttir 1. Varin skot: Íris Björk Sím- onardóttir 19/1. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Ramunas Mikalonis og Þorleifur Árni Björnsson. Áhorfendur: 453.  Staðan er 2:0 fyrir Val. Sverrir Ingi Ingason er kominn í úrslit grísku bik- arkeppninnar í knattspyrnu með liði sínu PAOK frá Thessaloniki eftir markalaust jafntefli við Asteras Tri- polis á útivelli í gær. Fyrri viðureign liðanna endaði með sigri PAOK, 2:0, og Sverrir og félagar mæta AEK frá Aþenu í úrslitaleik keppninnar 10. maí. Sverrir lék allan leikinn í gær en frá því PAOK keypti hann af Rostov í Rússlandi snemma á þessu ári hefur hann aðeins spilað með liðinu í bikarkeppninni. Þar var hann í byrjunarliði í öllum fjórum leikjum liðsins í átta liða úrslitum og undanúrslitum keppninnar. Sverrir hefur hins vegar mátt sætta sig við að sitja á varamannabekknum í öllum tíu deildarleikjum PAOK síðan hann kom til Grikklands. Þjálfarinn hefur ekki haft sérstaka ástæðu til að breyta vörn- inni en liðið hefur aðeins fengið á sig 14 mörk í 29 leikjum í deildinni í vet- ur og tryggði sér gríska meistaratitilinn um síðustu helgi. Sverrir getur því fagnað tvöföldum sigri í grísku knattspyrnunni í ár. vs@mbl.is Sverrir kominn í bikarúrslitin Sverrir Ingi Ingason Knattspyrnukonan Málfríður Erna Sigurðardóttir hefur ákveðið að taka sér frí og verður því ekki með Val um óákveðinn tíma, en Íslands- mótið hefst í næstu viku. Fyrstu fréttir í gær hermdu að Málfríður væri hætt, en í samtali við mbl.is í gærkvöld sagði hún svo ekki vera. Ástæðuna fyrir því að hún tekur sér frí segir hún einfaldlega vera þá að gleðin hafi minnkað, þótt hún viti ekki ástæður þess. Hún segist verða áfram samningsbundin Val, en erfitt sé að segja hvað framtíðin muni bera í skauti sér. yrkill@mbl.is Málfríður ekki hætt en í fríi Morgunblaðið/Hari Frí Málfríður Erna Sigurðardóttir verður ekki með Val í bili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.