Morgunblaðið - 26.04.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 26.04.2019, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 Tony-verðlaunaði rokksöngleik- urinn Vorið vaknar er frumsýndur í kvöld í Gaflaraleikhúsinu og stendur söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz að sýn- ingunni. „Það er lengi búið að blunda í mér að setja þetta verk á svið. Það var frumsýnt á Broadway undir lok árs 2006 og það er svona ári eftir það sem ég fór að heyra tón- list úr þessu,“ segir Orri Huginn Ágússton, leik- stjóri sýningarinnar. „Þetta fjallar um ungmenni að vakna til náttúrunnar og hvernig samfélagið í kringum þau bregst við, kúgar þau og lemur þau niður og vill ekki láta sveigja eða brjóta niður sín gildi og norm,“ útskýrir Orri Huginn sem segir verkið sýna sígild minni úr mannskynssögunni og hvernig mað- urinn upplifi sjálfan sig og reyni að heimta sjálfstæði sitt. Söngleikurinn byggist á leikriti eftir Frank Wede- kind frá 1891 og gerist í skóla á 19. öld í Þýskalandi. Óslökkvandi metnaður Um 20 nemendur skólans koma fram í sýningunni en nemendur söngleikjadeildarinnar voru meðal annars fengnir til þess að syngja bæði kórhluta og einsöng í uppfærsl- unni á Phantom of the Opera sem sýnd var í Eldborg í fyrra. Leikstjórinn kveðst njóta þess að vinna með metnaðarfullum og hug- myndaríkum einstaklingum. Hann telur ómetanlegan lærdóm fólginn í því að taka þátt í uppsetningu af þessu tagi fyrir nemendurna. „Það skemmtilega við að vinna í leikhúsi almennt – ekki síður í svona stofnun – er að metnaðurinn er einhvern veginn alveg óslökkvandi og það leggjast allir á eitt. Óttast ekki að mistakast Það sem mér finnst líka gaman við að vinna með fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í áttina að þessu er að það er allt pínu óskrifað blað fyrir þeim og þeim finnst alveg jafn sjálf- sagt að kýla á hugmyndir sem manni finnst sjálfum kannski allt að því ógerlegar. Það eru engir fordómar gagnvart hugmyndunum eftir því hversu auðveldar eða erfiðar þær eru í útfærslu eða framkvæmd,“ seg- ir Orri Huginn. Hann bætir við að reynsluleysi geri að nemendurnir óttist ekki að mistakast „og þá er þetta svo gaman. Það er svo örlátt og fallegt að vinna svoleiðis. Svo er þetta mjög fín reynsla fyrir þá sem ætla að halda áfram“. gso@mbl.is Rokksöngleikur vorsins Ljósmynd/Gunnar Freyr Steinsson Söngleikjalist Vorið vaknar er margverðlaunaður söngleikur og er frumsýning uppfærslu skólans í kvöld.  Sýning söngleikjadeildar Söngskóla Sigurðar Demetz Orri Huginn Ágústsson Útilistaverkið Fyssa eftir Rúrí var gangsett að nýju í Grasagarðinum í gær, á sumardaginn fyrsta. Tæp tvö ár eru síðan borgarráð samþykkti að veita fé til við- gerðar á verkinu, en áætlaður viðgerðarkostnaður var þá um átta milljónir. Sumarið 2012 bilaði dælubúnaður í verkinu með þeim afleiðingum að ekkert vatn hefur leikið um vatnslistaverkið Fyssu þar til nú, en vatns- gangurinn gegnir lykilhlutverki í listaverkinu. Listaverkið Fyssa er frá 1995. Nafn verksins er sam- stofna orðinu foss. Hugmyndin á bak við verkið er nátt- úruöfl Íslands. Verkið er steypt í steinsteypu, en annað aðalefni þess er vatn. Vatnsrennslið er síbreytilegt og stjórnast af flóknum dælu- og tölvubúnaði. Samkvæmt upplýsingum frá Listasafni Reykjavíkur hefur safnið tekið við umsjón verksins af Orkuveitu Reykjavíkur, en verkið er í eigu Reykjavíkurborgar. Vatn leikur um Fyssu á ný Morgunblaðið/Árni Sæberg BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s Sun 2/6 kl. 19:00 38. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s Mið 5/6 kl. 19:00 39. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s Mið 22/5 kl. 19:00 33. s Fim 6/6 kl. 19:00 40. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s Fim 23/5 kl. 19:00 34. s Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas. Lau 25/5 kl. 13:00 aukas. Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s Sun 26/5 kl. 19:00 35. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s Mið 29/5 kl. 19:00 36. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s Lau 11/5 kl. 13:00 aukas. Fim 30/5 kl. 19:00 37. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk! Elly (Stóra sviðið) Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Bæng! (Nýja sviðið) Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s Alltof mikið testósterón Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 26/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 5/5 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 2/6 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00 Lau 8/6 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 16:00 Auka Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Lau 4/5 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30 Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Fös 3/5 kl. 19:30 Fim 9/5 kl. 19:30 Mið 22/5 kl. 19:30 Fyndinn og erótískur gamanleikur Loddarinn (Stóra Sviðið) Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 23/5 kl. 19:30 7.sýn Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Þitt eigið leikrit (Kúlan) Sun 28/4 kl. 15:00 Lau 4/5 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 17:00 Lau 4/5 kl. 17:00 Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn) Fös 26/4 kl. 19:30 Lau 27/4 kl. 19:30 Þri 30/4 kl. 19:30 Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor Dansandi ljóð (Leikhúskjallarinn) Lau 11/5 kl. 20:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Mið 15/5 kl. 20:00 Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart Dimmalimm (Brúðuloftið) Lau 27/4 kl. 14:00 Lau 27/4 kl. 15:30 Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.