Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Þrjú í fréttum
Kælar í ríkið,
alríkislögreglan
og lúxushótel
Dóra Björt Guðjónsdóttir
oddviti Pírata í Reykjavík
skorar á ÁTVR að
setja aftur kæli
í Vínbúðina í
Austurstræti.
Kælirinn var
fjarlægður árið
2007. Hún studdi
tillögu Sjálfstæðis
manna í borgarstjórn um að skora
á Alþingi að leyfa sölu áfengis í
verslunum.
Kristinn Hrafns son
rit stjóri WikilLeaks
krefur yfirvöld
svara varðandi
komu banda
rísks alríkislög
reglu manns til
Ís lands vegna
rann sóknar
alríkislögreglunnar
á Juli an Ass an ge, stofnanda Wiki
leaks.
Hreggviður Jónsson
fjárfestir
er meðal þeirra
íslensku fjár
festa sem lögðu
félagi utan um
byggingu fimm
stjörnu lúxus
hótelsins við hlið
Hörpu til 1,3 milljarða
og eignuðust 66 prósenta hlut í
verkefninu. Íslendingar fara því nú
með meirihluta hlutafjár í Marr i
ott Edition sem stendur til að opna
í vor.
TÖLUR VIKUNNAR 02.06.2019 TIL 08.06.2019
7
sinnum hefur Mannréttindadóm-
stóll Evrópu komist að því að
íslenska ríkið hafi brotið
á ákvæði um réttláta
málsmeðferð
fyrir óvilhöllum
dómstól.
3
tónleikar voru fram undan
hjá rokksöngvaranum Stef-
áni Jakobssyni, kenndum
við Dimmu, eftir endajaxla-
töku sem fór illa. Daginn
áður gat hann ekki opnað
munninn fyrir sársauka.
60%
hækkun hefur
orðið á launatengdum
gjöldum sem atvinnu-
rekendur greiða,
úr 13,5 prósent af
launum starfsfólks í
21,8 prósent.
1.750
bílar á dag munu lík-
legast keyra í gegnum
Vaðlaheiðargöng
á ársgrundvelli,
samkvæmt spá
Vegagerðar-
innar.
800
milljónir lögðu hlut-
hafar til inn í ÍSAM
í fyrra, samhliða
662 milljóna króna
tapi fyrir tekjuskatt.
Tapið jókst um 310
milljónir milli ára.
GOÐSÖGNIN NÝR JEEP® WRANGLER
jeep.is
JEEP® WRANGLER RUBICON
Rock-Track® fjórhjóladrif, Select-Trac® millikassi, Tru-Lock® 100%
driflæsingar að framan og aftan, aftengjanleg jafnvægisstöng að
framan, Heavy Duty fram- og afturhásing, 17” álfelgur, 32” BF
Goodrich Mudtrack hjólbarðar, bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð,
bakkskynjarar, aðgerðarstýri, hraðastillir, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, rafdrifnar rúður, rafdrifnir og upphitaðir hliðarspeglar
og fjarstýrðar samlæsingar.
WRANGLER RUBICON BENSÍN 273 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
WRANLGER RUBICON DÍSEL 200 HÖ. 8 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ: 10.890.000 KR.
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d
35
” d
ek
k
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST
EFNAHAGSMÁL Samtök atvinnulífs
ins telja endurskoðaða fjármála
stefnu ríkisstjórnarinnar 20182022
of bjartsýna. Stefnan er sú fjórða á
fjórum árum, en rétt er að geta þess
að fram fóru kosningar og skipt var
um ríkisstjórn í millitíðinni.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu
maður efnahagssviðs SA, segir lík
legt að leggja þurfi fram fimmtu
fjármálastefnuna á næsta ári.
„Þær hagvaxtarforsendur sem
liggja að baki þessari endurskoðuðu
fjármálastefnu byggja á því að það
verði samdráttur í ár en síðan eigi
hagkerfið að taka við sér á næsta
ári. Þá verði 2,6 prósenta hagvöxt
ur. Við teljum einfaldlega að vegna
óvissunnar í íslensku efnahags
lífi og þess að við vitum ekki hver
áhrifin verða, sé það fullbjartsýnt
að áætla að viðsnúningurinn verði
svona hraður.“
Fjármálastefnan byggir á upp
færðri hagvaxtarspá Hagstofunnar.
Samkvæmt henni mun hagkerfið
dragast saman um 0,2 prósent, sem
er neikvæðasta breyting á hagvexti
síðan 1988 að hruninu undan
skildu. Það er þó gert ráð fyrir svig
rúmi í fjármálastefnunni.
„Það er fulllítið. Það er gert ráð
fyrir að hallinn geti verið 0,4 pró
sent af landsframleiðslu, sem eru
um 10 til 15 milljarðar. Við bendum
á að afkoman í ár er 40 milljörðum
lakari vegna breyttra efnahagsfor
senda. Það blasir við að hagvaxtar
spáin er í bjartsýnni kantinum
og á sama tíma er svigrúmið ekki
mikið,“ segir Ásdís. Ef svo fer munu
stjórnvöld aftur þurfa að endur
skoða fjármálastefnuna.
„Gallinn við fjármálareglurnar
sem miðað er við í dag er að þær
taka ekki tillit til hagsveiflunnar,“
segir Ásdís. Telur hún best ef
af komuviðmið stjórnvalda væru
miðuð út frá hagsveiflu.
Þrátt fyrir að búið sé að greiða
niður skuldir ríkisins hefði stefna
síðustu ára þurft að vera aðhalds
samari að mati Ásdísar.
„Miðað við stöðuna í dag þá
teljum við að áherslurnar eigi að
vera á að minnka umsvif hins opin
bera,“ segir Ásdís. „Það er hægt með
aukinni skilvirkni og hagræðingu.
Þá um leið að skapa svigrúm til að
lækka skatta á fyrirtæki og heimili.
Skattar hækkuðu í síðustu niður
sveif lu og hafa lítið lækkað í upp
sveif lunni, þannig að nú er rétti
tíminn til þess.“
Þar að auki sé svigrúm til fjárfest
inga sem stjórnvöld hyggjast ráðast
í. „Svo eru líka eignir sem ættu ekki
að vera í eigu ríkisins,“ segir Ásdís.
Má þar helst nefna Landsbankann,
Íslandsbanka, Kef lavíkurf lugvöll
og Íslandspóst fyrir utan þær tæp
lega þúsund fasteignir sem eru í eigu
ríkisins. „Við hvetjum stjórnvöld
til að selja þær eignir eins f ljótt og
auðið er.“ arib@frettabladid.is
Endurskoðuð fjármálastefna
er fullbjartsýn að mati SA
Samtök atvinnulífsins
telja endurskoðaða
fjármálastefnu ríkis-
stjórnarinnar of bjart-
sýna. Forstöðumaður
efnahagssviðs SA telur
líklegt að á næsta ári
þurfi að koma fram
með fimmtu stefnuna á
fimm árum.
Fjármálaáætlun
Fjármálaáætlun 2020-2024 sem
byggir á fjármálastefnunni var
lögð fram í mars síðastliðnum
en forsendurnar hafa breyst
eins og varðandi fjármála-
stefnuna. Breytingartillögur
ríkisstjórnarinnar voru kynntar
í fjárlaganefnd í gær.
Ágúst Ólafur Ágústsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
greinir frá því að þar hafi meðal
annars verið boðaður alls
átta milljarða niðurskurður á
framlögum til öryrkja á næstu
fimm árum og tæplega þriggja
milljarða niðurskurður til ný-
sköpunar og rannsókna á sama
tímabili.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti fjármálaáætlun 2020 til 2024 í mars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ásdís Kristjáns-
dóttir, forstöðu-
maður efnahags-
sviðs Samtaka
atvinnulífsins.
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-E
A
0
C
2
3
2
F
-E
8
D
0
2
3
2
F
-E
7
9
4
2
3
2
F
-E
6
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K