Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 6

Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 6
LÖGREGLAN Djúpur ágreiningur milli embættis ríkislögreglustjóra og lögregluembætta landsins hefur birst landsmönnum í umfjöllun fjölmiðla undanfarna daga. Kvartanir lögreglumanna undan einelti ríkislögreglustjóra hafa verið til meðferðar í dómsmálaráðu- neytinu og þar kemur skipulag sér- sveitarinnar einnig við sögu. Lög- reglufélög um landið hafa ályktað á fundum og skorað á formann Landssambands lögreglumanna að standa í lappirnar gagnvart ríkis- lögreglustjóra. Bílamál lögreglunnar virðast vera í algerum ólestri og eru að sliga lögregluembættin um landið. Lögreglustjórar kenna ríkislög- reglustjóra um þann vanda. Sjálfur hefur hann óskað eftir úttekt Ríkis- endurskoðunar á rekstri bílamið- stöðvarinnar og á lögmæti aðgerða lögreglustjóra í bílamálum. Bráða- birgðalausn var samþykkt í dóms- málaráðuneytinu í gær þar sem æðstu embættismenn lögreglu funduðu með ráðherra um málið. Þá hefur yfirmaður miðlægu deildar lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu gagnrýnt áherslur í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi. Mjög skiptar skoðanir virðast þannig vera innan lögreglunnar um þá ógn sem landsmönnum stafar af slíkri brotastarfsemi á landinu. Heimildir Fréttablaðsins herma að undirrót ágreiningsins sé í raun ágreiningur um ráðstöfun þeirra fjármuna sem veitt er til löggæslu úr ríkissjóði. Lögreglustjórar sem stýra emb- ættum lögreglunnar um landið eru ósáttir við áherslur ríkislögreglu- stjóra gagnvart fjárveitingarvald- höfum en hann einn hafi raun- verulegan aðgang að þeim sem taki ákvarðanir þar að lútandi. Honum beri að gæta hagsmuna lögregluembættanna allra og tala þeirra máli við fjárveitingarvaldið en hann beiti sér meira fyrir eigið embætti en löggæsluna í landinu almennt. adalheidur@frettabladid.is Stríðið loksins háð fyrir opnum tjöldum Ágreiningur milli ríkislögreglustjóra og lögregluembætta landsins hefur birst almenningi í fjölmiðlum í vikunni. Ríkislögreglustjóri hefur ráðið almanna- tengil hjá KOM sér til aðstoðar. Mikið mæðir á ráðuneytinu sem hefur ein- eltismál, bifreiðamál og ágreining um sérsveitina til meðferðar. Ráðherra skar á hnútinn í gær Bílamiðstöð hefur verið starfrækt hjá ríkislögreglustjóra frá aldamótum og er markmið hennar að auka hagkvæmni með sameiginlegum rekstri bílaflotans fyrir allt landið. Það markmið mun hafa snúist upp í andhverfu sína og gjaldið sem embættin greiða fyrir bílana hækkað svo úr hófi að ekkert samræmi sé lengur milli raun- og rekstrarkostn- aðar og fjárhæðanna sem renni til bílamiðstöðvarinnar frá embættunum. Hjá minni embættunum sé um langstærsta útgjaldaliðinn að ræða, að frátöldum launakostnaði. Mikil óánægja er með þetta fyrirkomulag hjá lögreglu- embættunum um landið. Lýtur óánægjan annars vegar að því að fjárhæðirnar sem lögregluumdæmin greiða fyrir leigu á bílum er, að þeirra sögn, ekki í samræmi við raun- kostnað og rekstur bílanna. Hins vegar gengur bæði seint og illa að fá bíla endurnýjaða, þrátt fyrir háar fjárhæðir sem renni frá embættunum til ríkislögreglustjóra. Embættin úti á landi þurfi að notast við bæði gamla og mikið ekna bíla. Samkvæmt heimildarmönnum blaðsins hefur halla- rekstri á bílamiðstöðinni á undanförnum árum verið varpað á embættin öll með þeim áhrifum sums staðar að þak hefur verið sett á leyfilegan akstur lögreglubíla sem hafi bein áhrif á störf lögreglunnar. Sérútbúnar lögreglubifreiðir eru dýrar og hafa nokkur embættanna brugðið á það ráð að notast við bílaleigu- bíla í stað þess að eiga viðskipti við ríkislögreglustjóra. Í einhverjum tilvikum hafi þessir bílar verið sérmerktir og notaðir í neyðarakstur. Ráðherra skar á hnútinn til bráðabrigða eftir fund með ríkislögreglustjóra og lögreglustjórum í gær með tíma- bundinni heimild til að sérmerkja bílaleigubíla til for- gangsaksturs. Unnið verður áfram að framtíðarskipulagi bílamála lögreglunnar hjá ráðuneytinu og öðrum stjórnvöldum. Ríkislög- reglustjóri hefur þegar óskað eftir því að ríkisendurskoð- andi taki út rekstur bíla- miðstöðvarinnar og svari því einnig hvort lögmætt sé að lög- reglan noti bílaleigu- bíla með þessum hætti. Efasemdir um gífurlega ógn Í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarf- semi hér á landi er máluð mjög dökk mynd af stöðu mála og alvarlegustu ógn við samfélag og einstaklinga á Íslandi að náttúruhamförum frátöldum. Áhættan fari enn vaxandi og þá sérstaklega umsvif erlendra glæpahópa. Ekki eru allir lögreglumenn landsins sammála áherslum ríkislögreglustjóra í skýrslunni. Yfirmaður miðlægu deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur til að mynda gagnrýnt það litla vægi sem íslenskir glæpahópar fá í skýrslunni í samanburði við erlenda glæpahópa. Þá hafa lögreglumenn gagnrýnt þann tón í skýrslunni sem ýtir undir ótta fólks við útlendinga og flóttafólk. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að einstaklingum sem tengist skipulögðum glæpahópum hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Íslandi meðal annars á grundvelli kynhneigðar og nokkrir karlmenn frá „íslömsku ríki“ hafi verið kærðir fyrir kyn- ferðislega áreitni gagnvart konum hér á landi. Lögreglu- menn sem Fréttablaðið hefur rætt við segja ekki skynsam- legt að ýta undir öryggisleysi fólks. Því fari fjarri að öryggi fólks á götum úti sé á einhvern hátt skert enda sé skipulögð brotastarfsemi sjaldnast sýnileg borgurum. Slík starfsemi varði ekki síður meðferð fjármuna og ólögmæts ávinn- ings af ólöglegum viðskiptum. Peningaþvætti og slík brot séu ekki framin í skuggalegum húsasundum og ógni ekki líkamlegu öryggi saklausra vegfarenda á götum borgarinnar. Innan lögregluembættanna furða menn sig einnig á því að hættumat sem þetta sé fram- kvæmt alfarið af embætti ríkislögreglustjóra án óháðra utanaðkomandi sérfræðinga. Á þessu áhættumati byggi ríkislögreglu- stjóri fjárþörf embættisins til að takast á við þá gífurlegu ógn sem hann hafi málað af stöðunni. Lögregluembættin um landið hljóti að bera skarðan hlut frá borði af fjárframlögum til lög- reglu til að takast á við dagleg störf eins og umferðareftirlit, rannsóknir kynferðisbrotamála og annarra málaflokka sem mikil þörf sé á að setja í forgang. Ágreiningur um sérsveit á Akureyri Mikil óánægja ríkir innan lögreglunnar með áherslur ríkis- lögreglustjóra um dreifingu sérsveitarinnar og fækkun sérsveitarmanna á landsbyggðinni. Sérsveitarmönnum hefur fækkað mjög á Akureyri á undanförnum árum og nú er þar aðeins einn sérsveitarmaður með starfsstöð. Aðrir sérsveitarmenn eru í Reykjavík. Samkvæmt heimildum blaðsins lýtur óánægja þeirra sem kvartað hafa undan ríkislögreglustjóra meðal annars að því hvernig hann hafi fækkað mönnum í sérsveitinni úti á landi og aðferðum við þá fækkun. Menn hafi verið færðir úr starfi sínu í sérsveit eða þrýst á þá að flytja sig í aðrar deildir án þess að staða sérsveitarmanns sé auglýst og ekkert gert til að bregðast við fækkuninni á Akureyri. Í viðtali við Jón F. Bjartmarz, yfirmann sérsveitarinnar, í Morgunblaðinu í gær sagði Jón að ekki væru lengur faglegar forsendur fyrir því að dreifa sérsveitarmönnum um landið. Áður hefði almenna lögreglan enga burði haft til að sinna fyrstu viðbrögðum í vopnamálum en í dag réði almenna lögreglan fullkomlega við það hlutverk sem sérsveitar- menn höfðu áður á Akureyri. Lögreglumönn- um hafi verið fjölgað, búnaður stórbættur og þjálfun aukin til að takast á við stærri og erfiðari verkefni. Þessu er almenna lögreglan ekki sammála ef marka má yfirlýsingu Lögreglufélags Norðurlands sem birtist í vikunni. Þar er lögð áhersla á mikilvægi þess að sérsveitin verði aftur starfhæf á Akureyri eins og skipulag ríkislög- reglustjóra sjálfs geri ráð fyrir. Svör ríkislögreglustjóra hafa einnig verið á þá leið að illa gangi að manna stöður sérsveitarmanna á Akureyri. sérsveitarmenn þar hafi fengið fram- gang í starfi án þess að tekist hafi að ráða í stöðurnar í staðinn. Ekki fengust skýr svör um hvort veldur stöðunni á Akureyri; landsbyggð- arflótti sérsveitarmanna eða faglegur forsendubrestur. Ríkislögreglustjóri hefur fengið Friðjón Friðjónsson, almannatengil hjá KOM, til aðstoðar við embættið tímabundið vegna fjölmiðla- umfjöllunar undanfarinna daga. 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 F -F D C C 2 3 2 F -F C 9 0 2 3 2 F -F B 5 4 2 3 2 F -F A 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.