Fréttablaðið - 08.06.2019, Qupperneq 6
LÖGREGLAN Djúpur ágreiningur
milli embættis ríkislögreglustjóra
og lögregluembætta landsins hefur
birst landsmönnum í umfjöllun
fjölmiðla undanfarna daga.
Kvartanir lögreglumanna undan
einelti ríkislögreglustjóra hafa verið
til meðferðar í dómsmálaráðu-
neytinu og þar kemur skipulag sér-
sveitarinnar einnig við sögu. Lög-
reglufélög um landið hafa ályktað
á fundum og skorað á formann
Landssambands lögreglumanna
að standa í lappirnar gagnvart ríkis-
lögreglustjóra.
Bílamál lögreglunnar virðast
vera í algerum ólestri og eru að
sliga lögregluembættin um landið.
Lögreglustjórar kenna ríkislög-
reglustjóra um þann vanda. Sjálfur
hefur hann óskað eftir úttekt Ríkis-
endurskoðunar á rekstri bílamið-
stöðvarinnar og á lögmæti aðgerða
lögreglustjóra í bílamálum. Bráða-
birgðalausn var samþykkt í dóms-
málaráðuneytinu í gær þar sem
æðstu embættismenn lögreglu
funduðu með ráðherra um málið.
Þá hefur yfirmaður miðlægu
deildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu gagnrýnt áherslur í
nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um
skipulagða brotastarfsemi. Mjög
skiptar skoðanir virðast þannig
vera innan lögreglunnar um þá ógn
sem landsmönnum stafar af slíkri
brotastarfsemi á landinu.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að undirrót ágreiningsins sé í raun
ágreiningur um ráðstöfun þeirra
fjármuna sem veitt er til löggæslu
úr ríkissjóði.
Lögreglustjórar sem stýra emb-
ættum lögreglunnar um landið eru
ósáttir við áherslur ríkislögreglu-
stjóra gagnvart fjárveitingarvald-
höfum en hann einn hafi raun-
verulegan aðgang að þeim sem
taki ákvarðanir þar að lútandi.
Honum beri að gæta hagsmuna
lögregluembættanna allra og tala
þeirra máli við fjárveitingarvaldið
en hann beiti sér meira fyrir eigið
embætti en löggæsluna í landinu
almennt. adalheidur@frettabladid.is
Stríðið loksins háð
fyrir opnum tjöldum
Ágreiningur milli ríkislögreglustjóra og lögregluembætta landsins hefur birst
almenningi í fjölmiðlum í vikunni. Ríkislögreglustjóri hefur ráðið almanna-
tengil hjá KOM sér til aðstoðar. Mikið mæðir á ráðuneytinu sem hefur ein-
eltismál, bifreiðamál og ágreining um sérsveitina til meðferðar.
Ráðherra skar á hnútinn í gær
Bílamiðstöð hefur verið starfrækt hjá ríkislögreglustjóra
frá aldamótum og er markmið hennar að auka hagkvæmni
með sameiginlegum rekstri bílaflotans fyrir allt landið. Það
markmið mun hafa snúist upp í andhverfu sína og gjaldið
sem embættin greiða fyrir bílana hækkað svo úr hófi að
ekkert samræmi sé lengur milli raun- og rekstrarkostn-
aðar og fjárhæðanna sem renni til bílamiðstöðvarinnar frá
embættunum. Hjá minni embættunum sé um langstærsta
útgjaldaliðinn að ræða, að frátöldum launakostnaði.
Mikil óánægja er með þetta fyrirkomulag hjá lögreglu-
embættunum um landið. Lýtur óánægjan annars vegar
að því að fjárhæðirnar sem lögregluumdæmin greiða fyrir
leigu á bílum er, að þeirra sögn, ekki í samræmi við raun-
kostnað og rekstur bílanna. Hins vegar gengur bæði seint
og illa að fá bíla endurnýjaða, þrátt fyrir háar fjárhæðir sem
renni frá embættunum til ríkislögreglustjóra. Embættin úti
á landi þurfi að notast við bæði gamla og mikið ekna bíla.
Samkvæmt heimildarmönnum blaðsins hefur halla-
rekstri á bílamiðstöðinni á undanförnum árum verið
varpað á embættin öll með þeim áhrifum sums staðar að
þak hefur verið sett á leyfilegan akstur lögreglubíla sem
hafi bein áhrif á störf lögreglunnar.
Sérútbúnar lögreglubifreiðir eru dýrar og hafa nokkur
embættanna brugðið á það ráð að notast við bílaleigu-
bíla í stað þess að eiga viðskipti við ríkislögreglustjóra. Í
einhverjum tilvikum hafi þessir bílar verið sérmerktir og
notaðir í neyðarakstur.
Ráðherra skar á hnútinn til bráðabrigða eftir fund með
ríkislögreglustjóra og lögreglustjórum í gær með tíma-
bundinni heimild til að sérmerkja bílaleigubíla til for-
gangsaksturs. Unnið verður áfram að framtíðarskipulagi
bílamála lögreglunnar hjá ráðuneytinu
og öðrum stjórnvöldum. Ríkislög-
reglustjóri hefur þegar óskað
eftir því að ríkisendurskoð-
andi taki út rekstur bíla-
miðstöðvarinnar og
svari því einnig hvort
lögmætt sé að lög-
reglan noti bílaleigu-
bíla með þessum hætti.
Efasemdir um gífurlega ógn
Í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarf-
semi hér á landi er máluð mjög dökk mynd af stöðu mála
og alvarlegustu ógn við samfélag og einstaklinga á Íslandi
að náttúruhamförum frátöldum. Áhættan fari enn vaxandi
og þá sérstaklega umsvif erlendra glæpahópa.
Ekki eru allir lögreglumenn landsins sammála áherslum
ríkislögreglustjóra í skýrslunni. Yfirmaður miðlægu deildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur til að mynda
gagnrýnt það litla vægi sem íslenskir glæpahópar fá í
skýrslunni í samanburði við erlenda glæpahópa. Þá hafa
lögreglumenn gagnrýnt þann tón í skýrslunni sem ýtir
undir ótta fólks við útlendinga og flóttafólk. Í skýrslunni
kemur meðal annars fram að einstaklingum sem tengist
skipulögðum glæpahópum hafi verið veitt alþjóðleg vernd
á Íslandi meðal annars á grundvelli kynhneigðar og nokkrir
karlmenn frá „íslömsku ríki“ hafi verið kærðir fyrir kyn-
ferðislega áreitni gagnvart konum hér á landi. Lögreglu-
menn sem Fréttablaðið hefur rætt við segja ekki skynsam-
legt að ýta undir öryggisleysi fólks. Því fari fjarri að öryggi
fólks á götum úti sé á einhvern hátt skert enda sé skipulögð
brotastarfsemi sjaldnast sýnileg borgurum. Slík starfsemi
varði ekki síður meðferð fjármuna og ólögmæts ávinn-
ings af ólöglegum viðskiptum. Peningaþvætti og slík brot
séu ekki framin í skuggalegum húsasundum og ógni ekki
líkamlegu öryggi saklausra vegfarenda á götum
borgarinnar.
Innan lögregluembættanna furða menn sig
einnig á því að hættumat sem þetta sé fram-
kvæmt alfarið af embætti ríkislögreglustjóra
án óháðra utanaðkomandi sérfræðinga.
Á þessu áhættumati byggi ríkislögreglu-
stjóri fjárþörf embættisins til að takast
á við þá gífurlegu ógn sem hann hafi
málað af stöðunni. Lögregluembættin
um landið hljóti að bera skarðan hlut
frá borði af fjárframlögum til lög-
reglu til að takast á við dagleg störf
eins og umferðareftirlit, rannsóknir
kynferðisbrotamála og annarra
málaflokka sem mikil þörf sé á að
setja í forgang.
Ágreiningur um sérsveit á Akureyri
Mikil óánægja ríkir innan lögreglunnar með áherslur ríkis-
lögreglustjóra um dreifingu sérsveitarinnar og fækkun
sérsveitarmanna á landsbyggðinni. Sérsveitarmönnum
hefur fækkað mjög á Akureyri á undanförnum árum og nú
er þar aðeins einn sérsveitarmaður með starfsstöð. Aðrir
sérsveitarmenn eru í Reykjavík. Samkvæmt heimildum
blaðsins lýtur óánægja þeirra sem kvartað hafa undan
ríkislögreglustjóra meðal annars að því hvernig hann hafi
fækkað mönnum í sérsveitinni úti á landi og aðferðum við
þá fækkun. Menn hafi verið færðir úr starfi sínu í sérsveit
eða þrýst á þá að flytja sig í aðrar deildir án þess að staða
sérsveitarmanns sé auglýst og ekkert gert til að bregðast
við fækkuninni á Akureyri.
Í viðtali við Jón F. Bjartmarz, yfirmann sérsveitarinnar, í
Morgunblaðinu í gær sagði Jón að ekki væru lengur faglegar
forsendur fyrir því að dreifa sérsveitarmönnum
um landið. Áður hefði almenna lögreglan enga
burði haft til að sinna fyrstu viðbrögðum í
vopnamálum en í dag réði almenna lögreglan
fullkomlega við það hlutverk sem sérsveitar-
menn höfðu áður á Akureyri. Lögreglumönn-
um hafi verið fjölgað, búnaður stórbættur
og þjálfun aukin til að takast á við
stærri og erfiðari verkefni. Þessu er
almenna lögreglan ekki sammála ef
marka má yfirlýsingu Lögreglufélags
Norðurlands sem birtist í vikunni.
Þar er lögð áhersla á mikilvægi þess
að sérsveitin verði aftur starfhæf
á Akureyri eins og skipulag ríkislög-
reglustjóra sjálfs geri ráð fyrir.
Svör ríkislögreglustjóra hafa einnig
verið á þá leið að illa gangi að manna
stöður sérsveitarmanna á Akureyri.
sérsveitarmenn þar hafi fengið fram-
gang í starfi án þess að tekist hafi að
ráða í stöðurnar í staðinn.
Ekki fengust skýr svör um hvort
veldur stöðunni á Akureyri; landsbyggð-
arflótti sérsveitarmanna eða faglegur
forsendubrestur.
Ríkislögreglustjóri hefur
fengið Friðjón Friðjónsson,
almannatengil hjá KOM, til
aðstoðar við embættið
tímabundið vegna fjölmiðla-
umfjöllunar undanfarinna
daga.
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-F
D
C
C
2
3
2
F
-F
C
9
0
2
3
2
F
-F
B
5
4
2
3
2
F
-F
A
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K