Fréttablaðið - 08.06.2019, Blaðsíða 8
OUTLET DAGAR
Allir Adidas og Nik
e skór í Outleti á
5000 kr.út sunnudag.
LAUGAVEGUR 91
Meira úrval í vers
lun
Opið til kl. 22:00 öll kvöld
EFNAHAGSMÁL Ekki er útlit fyrir að
sú mikla fækkun flugfarþega til og
frá landinu sem varð eftir fall WOW
air gangi til baka ef marka má nýja
spá Isavia.
WOW lagði upp laupana í lok
mars. Strax í apríl fækkaði far-
þegum til og frá landinu um 27,0
prósent og um 30,4 prósent í maí. Í
spá sem Isavia gaf út í byrjun janúar
var gert ráð fyrir að heildarfjöldi
farþega á þessu ári um Keflavíkur-
f lugvöll yrði 8,9 milljónir. Í nýju
spánni er áætlaður fjöldi 7,3 millj-
ónir manna. Rætist sú spá mun
farþegunum fækka um nærri 2,5
milljónir milli ára eða 25,6 prósent.
Fjöldinn er þó nærri hálfri milljón
meiri en var árið 2016.
„Skiptifarþegum sem fara um
Kef lavíkurf lugvöll fækkar um 43
prósent frá í fyrra, úr tæpum 3,9
milljónum í tæpar 2,2 milljónir. Þar
munar tæplega 1,7 milljónum far-
þega. Mestu munar um brotthvarf
WOW air,“ segir í tilkynningu frá
Isavia. „Útlit er fyrir að íslenskir far-
þegar um Keflavíkurflugvöll verði
um 631 þúsund árið 2019 sem er 37
þúsund færri en í fyrra.“ – gar
Fækkun farþega
að festast í sessi
25,6
prósentum færri fara
um Keflavíkurflugvöll
á þessu ári en í fyrra.
MENNTAMÁL „Ég held að Íslendingar
þurfi að leggja mikið á sig til þess að
tryggja að allir nemendur sýni betri
námsárangur“ segir doktor Andreas
Schleicher, yfirmaður menntamála
hjá Efnahags- og framfarastofnun
Evrópu (OECD).
Schleicher hélt erindi í Háskóla
Íslands í gær þar sem hann ræddi
stöðu Íslands í menntamálum
samanborið við önnur lönd OECD.
Þar var frammistaða íslenskra ung-
menna í PISA-könnuninni meðal
annars rædd, en Ísland hefur komið
illa út úr könnuninni undanfarin ár.
„Það sem hefur að mínu mati
gerst á Íslandi er að starf kennarans
er farið að líkjast iðnaðarstarfi,“
segir Schleicher. „Kennslan er orðin
eins og færiband sem hefur í för með
sér einangrun kennara og minni
samskipti og samvinnu kennara á
milli. Kennarar eru ekki að kynnast
nemendum sínum og þekkja því
ekki áhugamál þeirra og langanir.“
Skólar víða um land hafa tekið
upp aukna tækni í kennslustofum
sem svar við hröðum tæknibreyt-
ingum og breyttu námsumhverfi
og -árangri, svo sem notkun spjald-
tölva. Schleicher segir tækni geta
stuðlað að auknum áhuga nemenda
ásamt því að bæta kennslu en á
sama tíma segir hann tæknina ekki
geta tekið við af kennurum. „Tækni
kemur aldrei í staðinn fyrir kennslu,
og hún getur ekki tekið við af okkur
mönnunum. Ef það á að nýta tækni
við kennslu þá þarf að gera það var-
færnislega.“
Schleicher telur kennara hér á
landi hafa mikið frelsi til marg-
breyttra kennsluaðferða en að
mikilvægt sé að vekja áhuga barna
á námi. „Skólar á Íslandi þurfa að
leggja sig fram við að gera nám
áhugavert. Skýringar á stórum
hluta brottfalls úr skólum eru þær
að krökkum finnst námið ekki
áhugavert, þeir sjá ekki námið sem
eitthvað sem skiptir máli og finnst
það gamaldags,“ segir hann.
„Ef þú værir að reka matvöru-
verslun og á hverju ári kæmi í hana
ákveðinn fjöldi fólks og á sama tíma
myndi alltaf ákveðinn fjöldi hætta
að koma, þá yrði einhverju breytt,“
segir Schleicher og aðspurður að
því hvað sé til ráða segir hann að
mikilvægt sé að minnka ekki þær
væntingar sem gerðar eru til nem-
enda. „Ég held að lausnin sé fólgin í
því að auka væntingar til nemenda.
Kennarar eru of f ljótir að minnka
væntingarnar sem þeir hafa til nem-
enda sinna um leið og vandi kemur
upp.“
Þrátt fyrir að Ísland komi ekki
vel út í PISA-könnuninni segir
Schleicher Íslendinga veita fordæmi
á ýmsum sviðum. Þar nefnir hann
sérstaklega ánægju barna í skóla,
lífsánægju og mikil samskipti barna
á milli. birnadrofn@frettabladid.is
Breyta þurfi kennarastarfinu
Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá OECD, segir að auka þurfi áhuga nemenda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Sérfræðingur í mennta-
málum á vegum OECD
er staddur hér á landi til
að ræða stöðu Íslands.
Hann segir mikilvægt
að breyta starfi kennar-
ans og auka væntingar
til nemenda.
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-1
1
8
C
2
3
3
0
-1
0
5
0
2
3
3
0
-0
F
1
4
2
3
3
0
-0
D
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K