Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 10
Einungis fimmtíu
metrar voru á milli herskip-
anna tveggja.
BANDARÍKIN Rússar og Bandaríkja-
menn kenna hvorir öðrum um
vegna atviks sem varð úti á hafi
austur af Asíu í gær þegar herskip
ríkjanna tveggja lentu næstum í
árekstri. Að því er Kyrrahafsf loti
rússneska sjóhersins greindi frá
voru um fimmtíu metrar á milli
skipanna og þurftu þau að grípa til
neyðarráðstafana til að skella ekki
saman.
„Mótmæli voru send á alþjóðlegri
útvarpstíðni til þess að kvarta yfir
óásættanlegum aðgerðum yfir-
stjórnar bandaríska skipsins,“ sagði
í tilkynningu frá Rússum. Upplýs-
ingafulltrúi bandaríska sjóhersins
sagði aftur á móti að rússneska
skipið hefði gert hættulega stefnu-
breytingu.
Patrick Shanahan, starfandi
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagðist ætla að kvarta form-
lega yfir aðgerðum Rússa í málinu.
„Bandaríski herinn mun ræða við
þann rússneska og að sjálfsögðu
munum við leggja fram formlega
kvörtun vegna þessa.“
Rússneskur þingmaður sem Reu-
ters vitnaði til sagði að allar slíkar
kvartanir væru til þess fallnar að
auka á togstreituna á milli ríkjanna
og við því mætti ekki. – þea
Skella sökinni
hvorir á aðra
BRETLAND Theresa May steig til
hliðar sem leiðtogi breska Íhalds-
flokksins í gær er hún afhenti svo-
kallaðri 1922-nefnd f lokksins, er
sér meðal annars um leiðtogakjör,
afsagnarbréf sitt. May heldur þó enn
forsætisráðuneytinu þar til Íhalds-
menn hafa valið sér nýjan leiðtoga.
Ekki er um nein óvænt tíðindi
að ræða. May tilkynnti um þessa
ákvörðun sína fyrir um tveimur
vikum. Það hafði raunar lengi litið
út fyrir að dagar hennar í embætti
væru taldir vegna vandræðagangs
við útgöngu Breta úr Evrópusam-
bandinu. Þótt May hafi staðið af sér
vantrauststillögur á þingi og innan
flokksins, þurft að kljást við marg-
klofinn Íhaldsflokk og erfið mál á
borð við bruna Grenfell-turns náði
hún að halda sæti sínu í um þrjú ár.
Það var vitaskuld útgöngumálið,
Brexit, sem kostaði May sæti sitt og
mun kosta hana forsætisráðuneytið
í náinni framtíð. Stefna hennar um
svokallaða mjúka útgöngu, það er
að segja nokkuð náin tengsl við ESB
eftir útgöngu, vakti reiði ýmissra
samflokksmanna og sagði utanrík-
isráðherrann Boris Johnson til að
mynda af sér eftir samþykkt þeirrar
stefnu í ríkisstjórn.
Samningurinn sem ríkisstjórn
May náði við ESB um framtíðarsam-
band eftir útgöngu vakti heldur enga
stormandi lukku á Bretlandi. Meiri-
hluti þjóðar er andvígur samþykkt
samningsins samkvæmt könnunum
og þá hefur þingið fellt plaggið í þrí-
gang. Fyrst með sögulegum mun.
Andstaðan byggist að miklu leyti
á óvinsælu bráðabirgðaákvæði um
hvernig koma skuli í veg fyrir landa-
mæragæslu á milli Írlands og Norð-
ur-Írlands með því að Norður-Írar
skuli halda stærri hluta regluverks
ESB en aðrir Bretar.
Nú þarf Íhaldsflokkurinn að velja
sér nýjan leiðtoga og þar með for-
sætisráðherra. Ellefu gefa kost á sér.
Það eru Michael Gove, Sam Gyimah,
Matt Hancock, Mark Harper, Jeremy
Hunt, Sajid Javid, Boris Johnson,
Andrea Leadsom, Esther McVey,
Dominic Raab og Rory Stewart.
Hluti þeirra hefur aflað sér stuðn-
ings átta þingmanna, sem er skilyrði
svo framboð viðkomandi teljist gilt.
Þann 10. júní verður tilkynnt um
hvaða framboð teljast gild og þrem-
ur dögum síðar hefst fyrsta umferð
atkvæðagreiðslu. Þar þurfa fram-
bjóðendur að fá atkvæði sautján
þingmanna flokksins, ellegar detta
út. Í annarri umferð, 18. til 20. júní,
þarf svo atkvæði 33 þingmanna og
er sá þröskuldur hækkaður þangað
til einungis tveir standa eftir. Alls-
herjaratkvæðagreiðsla flokksmanna
hefst svo 22. júní þar sem næsti leið-
togi verður valinn. Niðurstöður
munu liggja fyrir mánuði síðar.
Einkar líklegt verður að teljast að
Johnson verði fyrir valinu. Hann
hefur nú þegar tryggt sér stuðning að
minnsta kosti 42 þingmanna, meira
en nokkur annar, og hefur mælst
vinsælastur í skoðanakönnunum
til þessa, sama hvort þátttakendur
eru spurðir um alla frambjóðendur
eða Johnson sé stillt upp sérstaklega
gegn öðrum frambjóðanda.
Eini frambjóðandinn sem virðast
hafa roð við Johnson, samkvæmt
tölum breska ríkisútvarpsins um
stuðning þingmanna við frambjóð-
endur, er umhverfismálaráðherrann
Michael Gove með 29 þingmenn á
bak við sig. Johnson er með stuðning
33,5 prósenta samkvæmt Conserva-
tiveHome, Gove 12,4 prósent.
Pattstaðan í Brexit-málinu er hins
vegar svo erfið að það er ekki hægt
að slá því föstu að það eitt að skipta
um mann í brúnni leiði til þess að
hægt sé að leysa málið. Brexit hefur
nú þegar verið frestað í tvígang
vegna þess að þingið nær ekki sam-
komulagi um neitt nema að það vilji
ekki samningslausa útgöngu.
Jafnvel þótt Johnson, Gove eða
einhver annar Íhaldsmaður næði að
sameina Íhaldsflokkinn, sem gæti
reynst erfitt verkefni sökum þess hve
langt er á milli stórra hluta flokksins
í útgöngumálinu, myndi það líkleg-
ast ekki duga til. Íhaldsflokkurinn
er nefnilega í minnihlutastjórn og
þarfnast stuðnings norðurírska
DUP-flokksins sem getur ómögulega
hugsað sér að styðja útgöngusamn-
ing nema Norður-Írlandsákvæðinu
verði breytt. Í því samhengi er vert
að nefna að toppar Evrópusam-
bandsins og aðildarríkja hafa ítrek-
að sagt það ekki í boði að semja upp
á nýtt. thorgnyr@frettabladid.is
Óvíst hvort afsögn May breyti nokkru
Ætlar að miðla málum
Abiy Ahmed, forseti Eþíópíu og hér í hvítu, kom til Súdans í gær ásamt fylgdarliði. Shamseddin Kabashi, upplýsingafulltrúi herforingjastjórnar
landsins og hér hægra megin við forsetann, tók á móti honum. Heimsókn Ahmeds er til þess gerð að reyna að miðla málum á milli herforingja-
stjórnarinnar og mótmælenda en allt er á suðupunkti í Súdan eftir að herinn myrti tugi mótmælenda í Kartúm á mánudaginn. NORDICPHOTOS/AFP
Theresa May mun stíga til hliðar sem forsætisráðherra Bretlands í næsta mánuði og nýr leiðtogi tekur við eftir þriggja ára starf May. NORDICPHOTOS/AFP
Theresa May steig til
hliðar sem leiðtogi
breska Íhaldsflokksins í
gær og mun sömuleiðis
yfirgefa forsætisráðu-
neytið þegar nýr leið-
togi er valinn. Brexit
varð henni að falli og
afar erfitt verkefni bíður
næsta leiðtoga. Allt útlit
fyrir að Boris Johnson
taki við keflinu.
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-0
C
9
C
2
3
3
0
-0
B
6
0
2
3
3
0
-0
A
2
4
2
3
3
0
-0
8
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K