Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 16
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
En hvað sem
því líður,
Barenboim
hefur tekist
að sanna að
„svarnir
óvinir“ geta
lyft grettis-
taki með því
að stilla
saman
strengi ef
hugarfarið er
rétt.
Þín eigin skrifborðskæling!
Kæli-, raka- og lofthreinsitæki, allt í einu tæki.
Verð aðeins kr. 24.900 m.vsk.
West-Eastern Divan er sinfóníu-hljómsveit ungmenna af ólíkum uppruna sem stjórnandinn Daniel Barenboim stofnaði til að sanna að ungt fólk frá Ísrael og Arabalöndum geti sameinast um
góð verk. Hugsjónin var að skapa skilning milli þjóða
sem lengi hafa eldað grátt silfur.
Ungt hæfileikafólk fyrir botni Miðjarðarhafsins
dreymir um að komast í hljómsveitina, sem nýtur
mikillar viðurkenningar í heimi tónlistarinnar.
Ungmennin sjá þar fyrirmyndir, sem þau vilja fylgja.
Engum datt í hug, ekki einu sinni Barenboim sjálfum,
að honum tækist að stilla til friðar með uppátækinu,
sem alls ekki féll í góðan jarðveg hjá harðlínumönnum.
En hvað sem því líður, Barenboim hefur tekist að
sanna að „svarnir óvinir“ geta lyft grettistaki með því
að stilla saman strengi ef hugarfarið er rétt. Og víst er
að hljómsveitin hefur haft góð áhrif á eitrað andrúms-
loftið. Hún er orðin tákn hins mögulega hjá stórum
hópum.
Góðar og áberandi fyrirmyndir valda straum-
hvörfum víðar, ekki síst í íþróttum. Mörgum þykir fót-
boltaheimurinn tákn um fjáraustur, óhóf og öfgafulla
stjörnudýrkun – en um leið er hann órækur vitnis-
burður um heillandi samstarf fólks af ólíkum uppruna.
Dæmi er um stjörnulið í sterkustu deildum með
byrjunarlið af 11 þjóðernum. Börn og unglingar upp-
lifa það sem sjálfsagðan hlut og hætta að velta fyrir sér
kynþætti eða uppruna líkt og fyrri kynslóðir gerðu.
Þetta breytir viðhorfum.
Egyptinn Mo Salah, hin geðþekka fótboltahetja
Liverpool, er múslimi líkt og flestir landar hans. Stórir
hópar við Merseyside hafa litið múslima hornauga. Nú
er það breytt.
Könnun Stanford-háskóla sýnir að óvild í garð
múslima hefur snarminnkað á örfáum misserum.
Viðhorfsbreytingin er rakin til afreka þessa frábæra
boltasnillings og ljúfmannlegrar framkomu hans
innan vallar og utan. Hann hefur unnið hug og hjörtu
fólksins, sýnt og sannað að múslimar eru ágætir, líkt og
annað fólk.
Þetta er ekkert nýtt. Fyrir aldarfjórðungi eða svo
fór þríeykið Gullit, Rijkard og Van Basten fyrir dáðu
hollensku landsliði. Þá var útlendingaótti útbreiddari
en núna. Félagsvísindamenn fundu út að fátt átti ríkari
þátt í viðhorfsbreytingum en stjörnurnar þrjár.
Flennistórar myndir af þeim prýddu veggi barna-
herbergja og máðu úr huga æskunnar efasemdir um að
einn væri öðrum fremri – tveir þeldökkir úr Karíba-
hafinu og einn evrópskur mann fram af manni. Hlið-
stæðar sögur er að finna frá mörgum löndum.
Listir og íþróttir færa okkur daglega heim sanninn
um að fólk af ólíkum uppruna með mismunandi húð-
lit, trú og menningu, getur unnið saman afrek ef viljinn
er fyrir hendi.
Þótt háleit hugsjón Barenboim leysi ekki allan vanda
sannar hún að náin kynni „óvinanna“ slá á útbreidda
hleypidóma, en uppræta þá því miður ekki á auga-
bragði. En dropinn holar steininn.
Samspil óvina
2. september 2017. Það er morgunn. Tíu ungir menn krjúpa í döggvotu grasi. Hendur þeirra eru bundnar aftan við bak. Í augum þeirra leiftrar
ótti. Mennirnir eru Róhingjar, múslimar búsettir í þorp-
inu Inn Din í Rakhine-héraði í Mjanmar. Ljósmynd sýnir
síðustu andartök þeirra þar sem þeir horfa á fangara sína
og nágranna grafa þeim gröf. Stuttu eftir að myndin
er tekin eru þeir myrtir á hrottafullan hátt; sumir eru
brytjaðir niður af búddatrúar þorpsbúum, aðrir skotnir
af hermönnum hers Mjanmar.
Það vakti reiði víða um heim þegar fréttir bárust af
því í síðustu viku að yfirvöld í Mjanmar hefðu sleppt
úr haldi sjö hermönnum sem dæmdir höfðu verið í
10 ára fangelsi fyrir morðin í Inn Din. Mannréttinda-
samtökin Human Rights Watch sögðu ákvörðunina
undirstrika að líf Róhingja væri lítils virði í Mjanmar
en síðustu ár hefur þjóðarbrot Róhingja sætt þar
ofsóknum sem eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu
þjóðanna hafa kallað „tilraun til þjóðarmorðs“.
Siðferðisbrestur annarra
En hingað heim: Svokölluð „Báramótabrenna“ fór fram
á skemmtistaðnum Gauknum í vikunni. Þar eyddi
Bára Halldórsdóttir með viðhöfn hljóðupptökum
sem hún náði af sex reifum þingmönnum á barnum
Klaustri eins og frægt er orðið. Í síðasta mánuði komst
Persónuvernd að þeirri niðurstöðu að upptakan hefði
verið brot á persónuverndarlögum og var Báru gert að
eyða upptökunni.
Bára Halldórsdóttir er ekki eina konan sem nýlega
hefur verið úrskurðuð brotlegi aðilinn í siðferðisbresti
annarra. Siðanefnd Alþingis kvað í áliti að Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, hefði brotið
siðareglur þingsins með ummælum um Ásmund Frið-
riksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins. Þórhildur
Sunna hafði gagnrýnt endurgreiðslur til Ásmundar
vegna aksturskostnaðar í sjónvarpsþættinum Silfur
Egils og sagði að grunur væri um fjársvik af hans hálfu.
Hafði Ásmundur fengið 4,6 milljónir króna endur-
greiddar 2017 og hafði þá ekið á einu ári 48.000 kíló-
metra; 130 kílómetra á dag að meðaltali sem kostuðu
skattgreiðendur 335 þúsund krónur á mánuði.
Æra manna
Hermennirnir sex í Mjanmar sem myrtu af vægðar-
leysi 10 óbreytta borgara í Inn Din afplánuðu innan
við ár af 10 ára fangelsisdómum sínum. Það var þó
ekki eina tölulega staðreyndin sem vakti óhug heims-
byggðarinnar við málið. Talnaglöggir ráku augun í að
morðingjarnir höfðu setið inni í skemmri tíma en tveir
fréttamenn Reuters-fréttastofunnar sem komu upp
um ódæðisverkin og voru í kjölfarið handteknir og
dæmdir fyrir að greina frá morðunum.
Sá sem vekur máls á óeðlilegum akstursgreiðslum
er fundinn sekur um að „kasta rýrð á Alþingi“ en sá
sem þiggur þær er laus allra mála. Sá sem tekur upp
samtal sem kemur upp um vafasamt innræti kjörinna
fulltrúa er sá sem er fundinn brotlegur í málinu. Þeim
sem segja frá fjöldamorðum er refsað harðar en þeim
sem fremja þau.
Nú þegar löglærður her Klaustursþingmanna
gengur verklaus eftir að hafa lokið sér af með Báru
Halldórsdóttur er rétt að ítreka eitt: Nei, undirrituð
er ekki að líkja umræddum íslenskum þingmönnum
við dæmda morðingja í Mjanmar. Kærugjarnir bola-
bítarnir geta því lagt niður rófuna. Eitt eiga þessir tveir
hópar þó sameiginlegt.
Þeir eru það sem þeir eru því þeir gerðu það sem
þeir gerðu. Æra manna verður ekki endurreist með
áliti nefndar eða úrskurði stofnunar. Upprunalegu
Klaustursupptökunum hefur verið eytt. En orðin
verða ekki aftur tekin. Þau sveima áfram yfir steinhús-
inu á Austurvelli eins og uppvakningar úr drullugustu
holræsum mannssálarinnar. Þótt Ásmundur Frið-
riksson fengi öllu Alþingi vísað til siðanefndar breytti
það því ekki að hann ók 48.000 kílómetra sem kostaði
skattgreiðendur 4,6 milljónir króna.
Morðingi er morðingi hvort sem hann er á bak við
lás og slá eða frjáls ferða sinna í boði hliðhollra stjórn-
valda.
Morðingi er morðingi
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-D
1
5
C
2
3
2
F
-D
0
2
0
2
3
2
F
-C
E
E
4
2
3
2
F
-C
D
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K