Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 20

Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 20
Hrafnhildur Gunn-a r s dót t i r k v i k-myndagerðarkona k y n nt i s t hjón-unum Steinu og Woody Vasu lka þegar hún var við nám í kvik- myndagerð í Bandaríkjunum á níunda áratugnum. „Þau eru frum- kvöðlar í vídeólist í heiminum, ég ætlaði upphaflega að gera myndina um Steinu en eftir að hafa kynnst þeim nánar og kynnst því hversu samofin þau eru þá ákvað ég að myndin skyldi vera um þau tvö,“ segir Hrafnhildur um tilurð heim- ildarmyndarinnar Vasúlka áhrifin sem hún frumsýnir á Skjaldborgar- hátíðinni á Patreksfirði. Myndin er samvinnuverkefni Krumma Films og Sagafilm og Margrét Jónasdóttir er framleiðandi myndarinnar. Steina (Steinunn Bjarnadóttir) er fædd og uppalin í Reykjavík en fór til Prag á sjötta áratugnum í fram- haldsnám í fiðluleik. Þar kynntist hún verkfræðingnum og kvik- myndagerðarmanninum Woody Saga þeirra byrjar á bónorði Dagana 7.-10. júní er Skjaldborg – hátíð ís- lenskra heimildarmynda haldin í þrettánda sinn á Patreksfirði. Hátíðin er opnuð með sýningu heimildarmyndar Hrafnhildar Gunnarsdóttur Vasúlka áhrifin, sem er um hjónin Steinu og Woody Vasúlka, braut- ryðjendur í gerð vídeólistar á heimsvísu. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri kynntist hjónunum Steinu og Woody. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Steina og Woody stofnuðu The Kitchen í New York. Þeim Steinu og Woody skaut skyndilega upp á stjörnuhimininn. Vasúlka. „Líf þeirra saman hefur verið ein löng uppákoma sem hófst með því að þau hittust fyrir til- viljun á heimavist listaskóla í Prag. Woody heilsaði Steinu og sagði: Sæl og blessuð, ég heiti Woody, viltu giftast mér? Og hún sagði já. Þetta voru þeirra fyrstu kynni og þannig hófst þeirra saga, á bónorði,“ segir Hrafnhildur frá. Steina og Woody giftu sig og f luttu til New York þar sem þau einbeittu sér að vídeólist. Árið 1971 stofnuðu þau The Kitchen í Green- wich Village á Manhattan, sem er nú meðal virtustu margmiðlunar- stöðva í heimi. Þau f luttu fáeinum árum seinna til Buffalo, þar sem rekin var leiðandi háskóladeild í margmiðlunarfræðum, þar gegndu þau prófessorsstöðu við skólann. Þaðan fluttu þau til Santa Fe í Nýju- Mexíkó þar sem þau búa enn. New York var pínu villt borg á þessum tíma og þau Steina og Woody opn- uðu þetta batterí sem heitir Kitchen á Manhattan vegna þess að það var enginn staður sem var vettvangur fyrir vídeólist, þörfin var greini- lega mikil því á Kitchen voru uppá- komur á hverju kvöldi. Kitchen verður fimmtíu ára á næsta ári og lifir góðu lífi, þar hófu margir lista- menn feril sinn, til dæmis Philip Glass og Laurie Anderson.“ Slypp og snauð Hrafnhildur kynntist hjónunum vel á námsárum sínum og hélt vin- skap sínum við þau. Hún heimsótti hjónin þegar hún var á ferðalagi í Santa Fe fyrir fimm árum. „Ég komst þá að því að þau voru í miklum fjárkröggum,“ segir Hrafn- hildur. „Þau voru komin á ellilaun í Bandaríkjunum og voru að reyna að selja húsið sitt og koma því þannig fyrir að bankinn fengi að hirða það að þeim látnum. En það gekk ekki upp hjá þeim, bankinn hafði ekki áhuga á að kaupa af þeim húsið. Því það var ekki eins og hús eru f lest, heldur bara mest opið vinnurými. Það var ekki einu sinni sófi í húsinu þeirra,“ segir hún frá og segist hafa orðið hugsi um þessi tímamót sem hjónin stóðu á. Þarna hafi þessir merku brautryðjendur staðið uppi slyppir og snauðir eftir allt sitt fram- lag til listheimsins. „Þau voru ekki álitin hluti af list- samfélaginu og verk þeirra voru ekki gerð með hvatningu listasafna eða listaverkasala. Þau fengu að vera í friði og voru þess vegna mjög hrein í sinni framleiðslu. Þau deildu verk- um sínum fólki að kostnaðarlausu. Ég ákvað að fylgja þeim eftir og gerði umsókn til kvikmyndasjóðs um vinnslu heimildarmyndarinnar árið 2014.“ Skaut upp á stjörnuhimininn Á meðan Hrafnhildur fylgdi þeim hjónum eftir gerðist nokkuð undra- vert. Þau voru enduruppgötvuð af listaheiminum og skaut upp á stjörnuhimininn. Gæfan varð þeim hliðholl og þau þurftu ekki á því að halda að biðla til bankans til að skrimta. „Það verður sífellt meiri eftirspurn eftir verkum þeirra. Þau fá umboðs- mann og stór listasöfn kaupa verk eftir þau, til að mynda London Tate og New York Modern. Þau komust á græna grein og hafa engar fjárhags- áhyggjur lengur sem er dásamlegt því þau eru engin unglömb lengur, hún er 79 ára og hann 83 ára.“ Hrafnhildur vonar að myndin komi fólki rækilega á óvart. „Þetta er mögnuð saga og ævintýraleg. Þau voru í samskiptum við marga af þekktustu og virtustu listamönnum þess tíma, Andy Warhol og leikkonu á hans vegum, Jackie Curtis, Salva- dor Dalí og f leiri. Lífshlaup þeirra blessaðist vel og samstarf þeirra er merkilegt,“ segir Hrafnhildur. Meira um Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, á frettabladid.is GÆFAN VARÐ ÞEIM HLIÐHOLL OG ÞAU ÞURFTU EKKI Á ÞVÍ AÐ HALDA AÐ BIÐLA TIL BANKANS TIL AÐ SKRIMTA. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN 0 8 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 9 6 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 F -F 3 E C 2 3 2 F -F 2 B 0 2 3 2 F -F 1 7 4 2 3 2 F -F 0 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.