Fréttablaðið - 08.06.2019, Síða 20
Hrafnhildur Gunn-a r s dót t i r k v i k-myndagerðarkona k y n nt i s t hjón-unum Steinu og Woody Vasu lka
þegar hún var við nám í kvik-
myndagerð í Bandaríkjunum á
níunda áratugnum. „Þau eru frum-
kvöðlar í vídeólist í heiminum, ég
ætlaði upphaflega að gera myndina
um Steinu en eftir að hafa kynnst
þeim nánar og kynnst því hversu
samofin þau eru þá ákvað ég að
myndin skyldi vera um þau tvö,“
segir Hrafnhildur um tilurð heim-
ildarmyndarinnar Vasúlka áhrifin
sem hún frumsýnir á Skjaldborgar-
hátíðinni á Patreksfirði. Myndin er
samvinnuverkefni Krumma Films
og Sagafilm og Margrét Jónasdóttir
er framleiðandi myndarinnar.
Steina (Steinunn Bjarnadóttir) er
fædd og uppalin í Reykjavík en fór
til Prag á sjötta áratugnum í fram-
haldsnám í fiðluleik. Þar kynntist
hún verkfræðingnum og kvik-
myndagerðarmanninum Woody
Saga þeirra
byrjar á
bónorði
Dagana 7.-10. júní er Skjaldborg – hátíð ís-
lenskra heimildarmynda haldin í þrettánda
sinn á Patreksfirði. Hátíðin er opnuð með
sýningu heimildarmyndar Hrafnhildar
Gunnarsdóttur Vasúlka áhrifin, sem er um
hjónin Steinu og Woody Vasúlka, braut-
ryðjendur í gerð vídeólistar á heimsvísu.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri kynntist hjónunum Steinu og Woody. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Steina og Woody stofnuðu The Kitchen í New York.
Þeim Steinu og Woody skaut
skyndilega upp á stjörnuhimininn.
Vasúlka. „Líf þeirra saman hefur
verið ein löng uppákoma sem hófst
með því að þau hittust fyrir til-
viljun á heimavist listaskóla í Prag.
Woody heilsaði Steinu og sagði: Sæl
og blessuð, ég heiti Woody, viltu
giftast mér? Og hún sagði já. Þetta
voru þeirra fyrstu kynni og þannig
hófst þeirra saga, á bónorði,“ segir
Hrafnhildur frá.
Steina og Woody giftu sig og
f luttu til New York þar sem þau
einbeittu sér að vídeólist. Árið 1971
stofnuðu þau The Kitchen í Green-
wich Village á Manhattan, sem er
nú meðal virtustu margmiðlunar-
stöðva í heimi. Þau f luttu fáeinum
árum seinna til Buffalo, þar sem
rekin var leiðandi háskóladeild í
margmiðlunarfræðum, þar gegndu
þau prófessorsstöðu við skólann.
Þaðan fluttu þau til Santa Fe í Nýju-
Mexíkó þar sem þau búa enn. New
York var pínu villt borg á þessum
tíma og þau Steina og Woody opn-
uðu þetta batterí sem heitir Kitchen
á Manhattan vegna þess að það var
enginn staður sem var vettvangur
fyrir vídeólist, þörfin var greini-
lega mikil því á Kitchen voru uppá-
komur á hverju kvöldi. Kitchen
verður fimmtíu ára á næsta ári og
lifir góðu lífi, þar hófu margir lista-
menn feril sinn, til dæmis Philip
Glass og Laurie Anderson.“
Slypp og snauð
Hrafnhildur kynntist hjónunum
vel á námsárum sínum og hélt vin-
skap sínum við þau. Hún heimsótti
hjónin þegar hún var á ferðalagi í
Santa Fe fyrir fimm árum.
„Ég komst þá að því að þau voru í
miklum fjárkröggum,“ segir Hrafn-
hildur. „Þau voru komin á ellilaun í
Bandaríkjunum og voru að reyna að
selja húsið sitt og koma því þannig
fyrir að bankinn fengi að hirða það
að þeim látnum. En það gekk ekki
upp hjá þeim, bankinn hafði ekki
áhuga á að kaupa af þeim húsið. Því
það var ekki eins og hús eru f lest,
heldur bara mest opið vinnurými.
Það var ekki einu sinni sófi í húsinu
þeirra,“ segir hún frá og segist hafa
orðið hugsi um þessi tímamót sem
hjónin stóðu á. Þarna hafi þessir
merku brautryðjendur staðið uppi
slyppir og snauðir eftir allt sitt fram-
lag til listheimsins.
„Þau voru ekki álitin hluti af list-
samfélaginu og verk þeirra voru
ekki gerð með hvatningu listasafna
eða listaverkasala. Þau fengu að vera
í friði og voru þess vegna mjög hrein
í sinni framleiðslu. Þau deildu verk-
um sínum fólki að kostnaðarlausu.
Ég ákvað að fylgja þeim eftir og
gerði umsókn til kvikmyndasjóðs
um vinnslu heimildarmyndarinnar
árið 2014.“
Skaut upp á stjörnuhimininn
Á meðan Hrafnhildur fylgdi þeim
hjónum eftir gerðist nokkuð undra-
vert. Þau voru enduruppgötvuð
af listaheiminum og skaut upp á
stjörnuhimininn. Gæfan varð þeim
hliðholl og þau þurftu ekki á því að
halda að biðla til bankans til að
skrimta.
„Það verður sífellt meiri eftirspurn
eftir verkum þeirra. Þau fá umboðs-
mann og stór listasöfn kaupa verk
eftir þau, til að mynda London Tate
og New York Modern. Þau komust á
græna grein og hafa engar fjárhags-
áhyggjur lengur sem er dásamlegt
því þau eru engin unglömb lengur,
hún er 79 ára og hann 83 ára.“
Hrafnhildur vonar að myndin
komi fólki rækilega á óvart. „Þetta
er mögnuð saga og ævintýraleg.
Þau voru í samskiptum við marga af
þekktustu og virtustu listamönnum
þess tíma, Andy Warhol og leikkonu
á hans vegum, Jackie Curtis, Salva-
dor Dalí og f leiri. Lífshlaup þeirra
blessaðist vel og samstarf þeirra er
merkilegt,“ segir Hrafnhildur.
Meira um Skjaldborg, hátíð
íslenskra heimildarmynda, á
frettabladid.is
GÆFAN VARÐ ÞEIM
HLIÐHOLL OG ÞAU ÞURFTU
EKKI Á ÞVÍ AÐ HALDA AÐ
BIÐLA TIL BANKANS TIL
AÐ SKRIMTA.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-F
3
E
C
2
3
2
F
-F
2
B
0
2
3
2
F
-F
1
7
4
2
3
2
F
-F
0
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K