Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 24

Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 24
jákvæðu en ekki því sem spillir og er leifar frá eldgömlum tíma.“ Ró og yfirsýn Hvernig er að verða gamall? „Mér finnst það merkilega gott og eiginlega líður mér að sumu leyti betur en áður. Það verður miklu minni spenna í manni eftir því sem maður eldist og ég get grúskað í mínu fagi svo lengi sem það er glóra í kollinum á mér. Ég er heppinn með það og ég hugsa að ég sé ekki orðinn vitlaus. Auðvitað er ég farinn að týna miklu niður og gleyma og stundum verð ég mér til skammar og man ekki nöfn. En fyrir það sem maður tapar fær maður kannski vissa yfirsýn og almennan skilning. Ég hreyfði mig ekki mikið áður, sat mest við borðið og grúfði mig ofan í bækurnar. Ég geri það svo sem ennþá en ég finn það hvað það er þýðingarmikið að hreyfa sig á hverjum degi. Svo sé ég betur, það er nú merkilegt. Fyrir nokkrum árum var ég nærri því orðinn blindur en þá kom indælis augn- læknir, kona sem stakk inn í augun á mér steinum og nú sé ég betur en nokkru sinni fyrr,“ segir Páll sem segist einnig hafa breytt mataræði sínu með hærri aldri og uppskera í meiri orku. „Ég var lengi með verki í kviðarholinu, fyrir nokkrum árum hætti ég að smakka kjöt og þá hurfu þeir. Nú finn ég enga verki og það er bara allt annað líf.“ Las þrjá bekki utanskóla Hann segist hugsa oft til æskuár- anna og hafa fengið gott atlæti. Páll fæddist í Fljótstungu í Hvítársíðu og bjó fyrstu tíu árin í burstabæ. Hann átti sex systkini sem öll fóru í bók- nám. Foreldrar Páls voru Bergþór Jónsson og Kristín Pálsdóttir. „Pabbi kenndi okkur systkin- unum mikið, hann tók nefnilega að sér kennslu á yngri árum í sveitinni og kenndi þá okkur líka. Hann skrif- aði forskriftarbækur fyrir okkur og var afskaplega hjálplegur og vakti áhuga okkar, við vorum sjö börnin og fórum eiginlega öll í einhvers konar bóknám.“ Páll þótti fyrirmyndar nemandi og lauk gagnfræðaskólaprófi frá Alþýðuskólanum í Reykholti og var hvattur til þess að læra í Mennta- skólanum í Reykjavík en þaðan lauk hann stúdentsprófi árið 1944. „Ég hafði ekki ætlað mér að fara í Menntaskólann í Reykjavík og á þessum árum var óalgengt að bændasynir yrðu stúdentar. Ég var eiginlega rekinn í þetta. Það var nú svona erfiðara að fá pláss í Reykja- vík fyrir sveitafólk að búa þar svo ég tók þann póst að læra bara utan- skóla,“ segir Pál sem las þrjá bekki á tveimur vetrum. „Ég skrapp stundum til Reykja- víkur og hitti kennarana og Pálma rektor. Svo settist ég í sjötta bekk og fékk herbergi hjá frændfólki mínu og mér gekk bara furðuvel. Þegar Pálmi var að útskrifa stúdenta þá las hann alltaf upp þá sem voru þrír hæstir í hverjum bekk nema í einum, þá las hann fjóra. Það var ég sem var fjórði hæstur og hann vissi að ég átti dálítið sérstaka sögu.“ Tók þátt í þróun á veðurspám Páll segist hafa verið heppinn að hafa fundið sér fag til að læra sem hafi orðið ástríða hans. „Ég byrjaði í verkfræði en hafði bara alls ekki nógan áhuga og sinnti náminu ekki vel. Það gengur ekki og ég var að grúska í hinu og þessu líka. Einn daginn kemur til mín Finn- bogi Rútur Þorvaldsson, prófessor í veðurfræði, og segir mér að Teresía Guðmundsson veðurstofustjóri sé að leita að stúdent til að læra veður- fræði. Hann sagðist vilja mæla með mér og ég var ráðinn til starfa á Veðurstofunni. Þar lærði ég mjög mikið áður en ég hélt utan til Stokkhólms til að læra veðurfræði. Nú vissi ég hvað ég ætlaði að gera, þetta væri það sem mig hafði dreymt um að gera,“ segir hann. Páll, sem hafði aldrei farið til útlanda áður, starfaði hjá prófessor sem var sá fyrsti til að gera veðurspá með nýtilkominni tölvutækni. „Ég átti að láta tölvuna teikna veðurkort og það hafði aldrei verið gert áður í heiminum. Í fyrstu gátum við aðeins sett inn fimm veður- stöðvar í einu í tölvuna til að gera kortið. Þessar spár voru grunnurinn að þeirri tækni sem er enn notuð í dag um allan heim,“ segir Páll frá og segir þessi ár hafa verið spennandi og gaman að hafa átt hlut í þessari þróun. „Þarna vorum við fimmtán nemendur og nú var ég hæstur í bekknum, því áhuginn fleytti mér áfram.“ Páll stundaði rannsóknir í veður- fræði við Stokkhólmsháskóla og seinna í Noregi og Englandi. Hann hefur rannsakað tölvugreiningu veðurkorta, hafísspár, vöxt og hop skriðjökla og loftslagssögu. Hann sagði veðurfréttir í Ríkissjónvarp- inu í 23 ár og kenndi einnig veður- fræði við Háskóla Íslands. Nýlega birtist grein um ævi hans og störf í sænsku tímariti um loftslagsmál og þar var að sjálfsögðu einnig minnst á fallhlífarstökkið ævintýralega. Greinarhöfundurinn var fyrrver- andi samnemandi Páls. „Þetta var mjög spennandi tími og þarna starf- aði ég með Carli Gustav Rossby að upphafi tölvugreininga veðurkorta og þetta markaði straumhvörf,“ segir Páll en rannsóknir þeirra eru þær sem mest er vitnað til enn þann dag í dag um gerð veðurspár með tölvugreiningu. Stjórnendur standa í veginum Páll segist viss um að hægt verði að leysa loftslagsvandann ef mann- kynið stendur saman. Hann segist ætla á loftslagsmótmæli með börn- um sem skrópa í skólann til þess að krefja stjórnvöld um breytingar. „Já, þarna ætti ég að vera með unga fólk- inu. Það eru stjórnendur sem standa í vegi fyrir því að takast á við lofts- lagsvandann því þeir eru bundnir við gamla tíma, börnin eru það ekki og Greta Thunberg hefur sterka sýn og rödd. Hún er frábær stúlka. Mannkynið stefnir í að verða 20 milljarðar. Fyrir hundrað árum var það einn milljarður og við erum að nota of mikið af jarðefnum á borð við kol og olíu. Í f lug og ferðalög og verksmiðjur, þetta gengur ekki svona lengur því þessi orkunotkun er það sem veldur hlýnuninni. Það hlýnar og hlýnar en það er hægt að vinna á móti þessu. En við verðum að nota aðra orku og það er núna hægt að nota sólina og vindinn. Ég vona að það verði f ljótt þau tíma- mót að við skiptum um orkugjafa því það er mikilvægt að gera það sem allra fyrst og það er líka mikil- vægt að vona það besta, ég hef trú á því að unga kynslóðin geti leyst vandann á heiðarlegan og snjallan hátt.“ Spennandi ráðgáta Er hann hræddur við dauðann? Og er hann trúaður? „Það er svo óskaplega mikið sem við vitum ekki og svo margt í þessu lífi og þessum heimi sem vekur ótrúlega furðu. Hugsaðu þér bara að við séum til yfirhöfuð og svona fullkomin hvert og eitt okkar. Það er alveg ótrúlegt. Ég er nú kannski ekki trúaður en ég reyni að útiloka ekki neitt. Því það er svo mikið sem við getum ekki tjáð okkur um. Eigum við ekki bara að kíkja aðeins í Almanak Háskóla Íslands?“ spyr Páll og teygir sig í það á borðstofu- borðinu og les upp úr því nokkuð sem við þó vitum en minnir á smæð okkar í alheiminum: „Fjöldi smástirna um staðfestar brautir 560.000. Fjöldi vetrarbrauta í hinum sýnilega heimi, 200 millj- arðar vetrarbrauta. Hugsaðu þér, og við erum bara á einni sem okkur finnst nógu stór. Stærðin á vetrar- brautinni okkar, breiddin á henni er 150 þúsund ljósár. Þessari einu af þessum 200 milljörðum. Maður yrði 150 þúsund ár að komast á endimörk vetrarbrautarinnar. Það er alltaf að bætast við í almanakið,“ segir Páll. „Lífið er spennandi ráðgáta.“ MÉR FINNST ÞAÐ MERKI- LEGA GOTT OG EIGIN- LEGA LÍÐUR MÉR AÐ SUMU LEYTI BETUR EN ÁÐUR. ÞAÐ VERÐUR MIKLU MINNI SPENNA Í MANNI EFTIR ÞVÍ SEM MAÐUR ELDIST. ÞAÐ ERU STJÓRNENDUR SEM STANDA Í VEGI FYRIR ÞVÍ AÐ TAKAST Á VIÐ LOFTSLAGSVANDANN ÞVÍ ÞEIR ERU BUNDNIR VIÐ GAMLA TÍMA, BÖRNIN ERU ÞAÐ EKKI. Páll eldar á hverjum degi og fær sér alltaf fisk og grænmeti. Hann gerir leikfimisæfingar og fer í gönguferðir og síðast en ekki síst þá grúskar hann í veðurfræðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 0 -1 B 6 C 2 3 3 0 -1 A 3 0 2 3 3 0 -1 8 F 4 2 3 3 0 -1 7 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.